Fréttablaðið - 17.07.2014, Side 60
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
Söngkonan Adele hefur staðfest
að nýja platan hennar beri nafnið
25 og að hún fari á tónleikaferða-
lag á næsta ári. Þetta kemur fram
á Twitter-síðu World Music-verð-
launanna.
„Adele staðfestir tónleikaferða-
lag 2015 eftir útgáfu nýju plötunnar
hennar 25!“ stendur á Twitter-síðu
verðlaunahátíðarinnar.
Adele fagnaði 26 ára afmæli sínu
í maí og gaf í skyn hvert plötuheitið
yrði á Twitter-síðu sinni.
„Bless, bless 25 … Sjáumst aftur
seinna á þessu ári x,“ skrifaði söng-
konan.
Síðasta plata hennar, 21, kom út
árið 2011 og vakti gríðarlega lukku
um heim allan. Adele fékk sex
Grammy-verðlaun fyrir plötuna og
var hún meðal annars valin plata
ársins. Þá hlaut hún einnig Brit-verð-
launin og American Music-verðlaun-
in fyrir 21. Í kjölfarið sló Adele nokk-
ur met í Heimsmetabók Guinness
en hún er fyrsti listamaðurinn til að
selja meira en þrjár milljónir platna
á einu ári í Bretlandi.
Meðal laga á plötunni 21 eru
Someone Like You, Set Fire to the
Rain og Rolling in the Deep en
Adele afrekaði það að eiga tvö lög
á topp fimm listanum í Bretlandi á
sama tíma en það hafði ekki gerst
síðan Bítlarnir settu það met árið
1964. - lkg
Adele túrar um heiminn 2015
Staðfestir að nýja platan heiti 25 en síðasta plata, sem hét 21, sló öll met.
SIGURSÆL Adele slær hvert metið á fætur öðru. NORDICPHOTOS/GETTY
➜ 21 hefur selst í meira
en 28 milljónum eintaka
um heim allan.
Cheryl Fernandez-Versini er
byrjuð að læra frönsku en hún
vill geta talað við franskan eigin-
mann sinn, Jean-Bernard, á móð-
urmáli hans.
Hlutirnir gerast ansi hratt hjá
söngkonunni þessa dagana en
hún giftist Jean-Bernard í síðustu
viku eftir aðeins þriggja mánaða
samband.
Á dögunum lét hún einnig
breyta eftirnafni sínu en hún bar
áður eftirnafn fyrrverandi eigin-
manns síns, knattspyrnukappans
Ashley Cole. - ka
Í frönskunámi
NÝGIFT Cheryl gifti sig á dögunum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn Ryan Gosling tekur
komandi föðurhlutverki alvarlega
en hann á von á sínu fyrsta barni
með leikkonunni Evu Mendes.
Samkvæmt heimildum tíma-
ritsins Us Weekly er Ryan dug-
legur að elda fyrir sína heittelsk-
uðu.
„Ryan kaupir í matinn. [Eva]
hefur haft löngun í pasta og hann
eldar fyrir hana. Ryan er nú
þegar kominn í föðurhlutverkið,“
segir heimildarmaður tímarits-
ins.
Stutt er í að frumburður pars-
ins fæðist en skötuhjúin kynntust
á setti myndarinnar The Place
Beyond the Pines árið 2011 og
byrjuðu í kjölfarið saman. - lkg
Eldar fyrir Evu
UMHYGGJUSAMUR Ryan er talinn afar
kynþokkafullur. NORDICPHOTOS/GETTY