Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 17. júlí 2014 | LÍFIÐ | 45
ÞÚSUNDIR ÍSLENDINGA
ÁVAXTA FÉ SITT Í LÍFEYRISAUKA
Lífeyrisauki er stærsti sjóður landsins sem býður eingöngu
viðbótarlífeyrissparnað.
Sjö fjárfestingarleiðir tryggja að þú finnur þá réttu fyrir þinn
lífeyrissparnað og leggur grunn að varasjóði til að skapa þér
góð lífskjör eftir starfslok.
Skoðaðu leiðirnar á www.arionbanki.is/lifeyrisauki, með því
að senda fyrirspurn á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða
hafðu samband við ráðgjafa í síma 444 7000 og leggðu grunn
að góðri framtíð.
ÞÚ KEMST HÆRRA
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP
Lífeyrisauki
Innl. skuldabr.
Lífeyrisauki
Erl. verðbr.
Lífeyrisauki 5
Lífeyrisauki 4
Lífeyrisauki 3
Lífeyrisauki 2
Lífeyrisauki 1
Nafnávöxtun 30.06.2013-30.06.2014
5 ára meðalnafnávöxtun júní 2009-júní 2014
ÁVÖXTUN LÍFEYRISAUKA
Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun
í framtíð. Fimm ára ávöxtunartölurnar sýna
meðalnafnávöxtun frá 30.06.2009-30.06.2014 en
ávöxtunin er mismunandi á milli ára. Frekari
upplýsingar um ávöxtun hvers árs má nálgast
á arionbanki.is/lifeyrisauki.
8,2%
4,4%
5,3%
8,7%
3,1%
9,1%
2,4%
9,3%
7,2%
4,5%
3,9%
5,8%
8,6%
-0,2%
Einkaþjálfarinn Jillian Michaels
er alveg hætt í þættinum The
Biggest Loser vestan hafs eftir tíu
ára þátttöku.
„Ég vil ekki að aðdáendur haldi
að mér finnist ég of fræg fyrir
þáttinn eða að ég sé að leita að ein-
hverju öðru. Ég er mjög þakklát
fyrir þetta tækifæri og er leið yfir
því að fara,“ segir Jillian í viðtali
við tímaritið People. Hún segist
hafa hætt vegna ósættis við fram-
leiðendur þáttanna.
„Í byrjun þáttanna var sýnt hve
hörð ég er en líka ástrík,“ segir
Jillian og bætir við að upp á síð-
kastið hafi hún aðeins verið sýnd
sem hörð.
„Samböndin sáust ekki og ekki
tengingin sem ég byggi við skjól-
stæðinga mína.“ Þar af leiðandi
hafi margir litið neikvæðum
augum á hana. Það hafi síðan haft
áhrif á einkalíf hennar með kær-
ustunni Heidi Rhoades og tvíbur-
um þeirra sem eru fjögurra ára.
- lkg
Hafði áhrif á
einkalífi ð
EKKI LENGUR TEYMI Hér er Jillian
með Bob Harper, hinum þjálfara þátt-
anna.
Leikarinn og sjarmatröllið Chace
Crawford er einhleypur á ný.
Crawford og fyrirsætan Rachalle
Goulding höfðu verið að hittast
frá því í mars í fyrra en leikarinn
greindi frá því í viðtali á dögun-
um að parið hefði tekið sameigin-
lega ákvörðun um að slíta sam-
bandinu.
Hann segist nú ætla að taka sér
hlé frá samböndum og einbeita
sér að leikaraferlinum. Crawford
sló eftirminnilega í gegn í sjón-
varpsþáttunum Gossip Girl. - ka
Hættur með
fyrirsætunni
SJARMÖR Chace Crawford er með
þeim myndarlegri í Hollywood.
Samdi lag á hjóli á leiðinni heim til sín
Söngkonan Kristín Stefánsdóttir frumfl ytur nýtt lag, Both Feet on the Ground, á Visir.is í dag.
MIKIL ÁST Kristín syngur frá hjartanu á
tónleikunum í kvöld. MYND/ÚR EINKASAFNI
„Það var mikill heiður að fá að
vinna með þessum snillingum,
Ómari og Kristjönu. Algjör forrétt-
indi að vera þátttakandi í flæðinu
sem myndast þegar tónlistarmenn
vinna saman og skapa. Það eru
töfrar hreint og beint,“ segir söng-
konan Kristín Stefánsdóttir. Hún
gaf nýverið út lagið Both Feet on the
Ground og frumflytur það á Lífinu
á Visir.is í dag.
Lag og texti eru eftir Kristínu en
lagið var unnið í samvinnu við tón-
listarmennina Kristjönu Stefáns-
dóttur og Ómar Guðjónsson. Krist-
ín hefur undanfarin ár stundað nám
við Complete Vocal-söngskólann í
Kaupmannahöfn og er lagið einmitt
innblásið af námi hennar þar.
„Lag og texti varð til á nokkrum
mínútum þegar ég var að hjóla heim
eins og sönnum Dana sæmir. Eftir
krefjandi dag þar sem við þurft-
um að kafa djúpt í okkur varð það
til og fjallar um hversu mikilvægt
það er að finna sitt grúv eða sinn
stað í lífinu. Það er þinn sérstaki
staður sem er einstakur af því við
erum öll algjörlega einstök og það
er bara til eitt eintak af hverjum,“
segir Kristín.
Hún heldur tónleika á Café
Deluxe í Hafnarfirði í kvöld ásamt
Helga Má Hannessyni píanóleikara.
Þar munu þau taka djassstandarda
og perlur úr poppheiminum og að
sjálfsögðu nýja lagið hennar.
„Mér hefur verið sagt að lagið lík-
ist í raun ekki neinu. Eða sé allavega
ólíkt því sem ég syng vanalega, en
ég er með frekar dökka rödd og
elska þess vegna til dæmis Carp-
enters og lög með mikla sál. Það
verður mikil ást á tónleikunum í
kvöld og sungið frá hjartanu,“ segir
Kristín og bætir við að framundan
séu spennandi tímar.
„Ég er búin að semja annað lag
sem mun koma út á næstunni og er
ég strax farin að hlakka til að frum-
flytja það.“ - lkg
➜ „Það verður mikil ást á
tónleikunum í kvöld og
sungið frá hjartanu.“