Fréttablaðið - 17.07.2014, Page 64

Fréttablaðið - 17.07.2014, Page 64
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48SPORT © GRAPHIC NEWSHeimild: R&A Championships Opna breska á Royal Liverpool Royal Liverpool, sem er við stendur Dee við Hoylake, er tiltölulega flatur völlur og við hann standa fá tré. Til varnar vindinum eru aðeins nokkrir sandhólar. 50 metrum bætt við síðan opna breska var síðast haldið 2006 1 4 419 2 4 415 3 4 390 4 4 340 5 5 483 6 3 184 7 4 439 8 4 394 9 3 180 Út 35 3,044 Samtals Par 72 6.686 metrar 10 5 486 11 4 358 12 4 409 13 3 177 14 4 415 15 3 147 16 5 436 17 4 419 18 5 504 Inn 37 3,351 Hola Par Metrar Hola Par Metrar Opna breska á Royal Liverpool GOLF Opna breska meistaramótið í golfi, The Open, hefst í dag, en það er elsta og virtasta risamótið í íþróttinni. Að þessu sinni fer mótið fram á Hoylake-vellinum hjá Royal Liverpool-klúbbnum, strandvelli sem getur verið nokkuð þægilegur í góðu veðrið en refsað grimmilega ef Kári kemur í heimsókn. Baráttan um Silfurkönnuna (e. Claret jug) verður hörð og enginn einn sem kemur frekar til greina sem sigurvegari en annar. Eng- lendingar vonast eftir að sjá ein- hvern af sínum mönnum standa uppi sem sigurvegara en Eng- lendingur hefur ekki unnið opna breska í 22 ár eða síðan Nick Faldo bar sigur úr býtum á Muirfield árið 1992. Síðasti Bretinn til að vinna opna breska var Darren Clarke fyrir þremur árum en aðeins hafa tveir Bretar unnið mótið undanfarna tvo áratugi. Bandaríkjamenn hafa drottnað yfir mótinu og unnið í tólf skipti af síðustu 20. Ríkjandi meistari er einmitt Bandaríkja- maðurinn Phil Mickelson. Hvað gerir Tiger? Eins og alltaf þegar Tiger Woods er með snúast hlutirnir um hann. Tiger er langstærsta nafnið í íþróttinni og vinsælasti kylfingu heims. Hann hefur þó átt mjög erfitt uppdráttar á árinu vegna meiðsla og ekki verið á meðal efstu 20 á neinu móti sem hann hefur tekið þátt í á þessu ári. Tiger hefur unnið 14 risamót á ferlinum en gengur illa að nálgast met Jack Nicklaus sem vann 18 risamót á sínum ferli. Tiger hefur ekki unnið eitt af risamótunum í sex ár eða síðan hann stóð uppi sem sigurvegari á opna banda- ríska meistaramótinu árið 2008. Síðast vann hann opna breska meistaramótið á vellinum sem spilað er núna. Hann gjörsamlega valtaði yfir keppinauta sína á Hoy- lake árið 2006; lauk leik á 18 högg- um undir pari sem er met. Þar sýndi Tiger hrein töfrabrögð með járnin og notaði „dræverinn“ aðeins einu sinni allt mótið. Þarna var þessi magnaði kylfingur á hápunkti ferilsins og algjörlega ósnertanlegur. Mikil meiðsli hafa sett strik í reikninginn og er tæpt að hann geti slegið jafnlöng og góð högg með járnunum að þessu sinni. Allavega er það sem menn hafa hvað mesta áhyggjur af. Rose líklegur Englendingurinn Justin Rose þykir hvað líklegastur að vinna á Hoylake, en hann vann opna skoska mótið um síðustu helgi sem er undanfari opna breska. Þar svaraði hann gagnrýnisrödd- um margra og er hann helsta von Englendinga. Rory McIlroy hefur átt í vand- ræðum með stöðugleika á tíma- bilinu, en hann setti vallarmet á fyrsta hringnum á opna skoska í síðustu viku en spilaði svo sjö yfir pari daginn eftir. „Ég verð að geta spilað eins á föstudegi og ég geri á fimmtudegi. Það er engin ástæða til annars,“ sagði Rory á blaðamannafundi um sveiflukennda frammistöðu sína undanfarið. Ástralinn Adam Scott, efsti kylf- ingur heimslistans, er alltaf lík- legur og svo er spurning um hvað Evrópumennirnir Martin Kaymer, Sergio Garcia og Henrik Stenson gera. Sagan segir okkur þó, að þeir sem eru vanir góðum árangri á Hoylake standa vanalega uppi sem sigurvegarar. Síðast þegar mótið var haldið þar voru í fjórum af fimm efstu sætunum Tiger Woods (3 sigrar), Ernie Els (2 sigrar), Sergio Garcia (sjö sinnum í topp 10) og Jim Furyk (fimm sinnum í topp 10.) tomas@365.isW Tiger þarf sömu járn-töfrana Opna breska meistaramótið í golfi hefst á Hoylake-vellinum í Liverpool í dag. Tiger Woods stefnir á fyrsta sigurinn á risamóti í sex ár. Valtaði yfi r keppinauta síðast þegar mótið fór fram á sama velli árið 2006. RORY MCILROY FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY TIGER WOODS FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI FH og Stjarnan halda áfram keppni í forkeppni Evr- ópudeildar UEFA í kvöld en liðin leika fyrri leiki sína í 2. umferð ytra í kvöld. FH mætir Neman frá Grodno í Hvíta-Rússlandi en bær- inn liggur við landamærin við Pól- land. Stjarnan leikur gegn skoska liðinu Motherwell. „Ferðalagið gekk mjög vel og þetta lítur allt saman vel út,“ sagði Heimir Guðjónsson í samtali við Fréttablaðið í gær en FH-ingar lögðu snemma af stað á þriðju- dagsmorgun og komu á áfangastað í gær eftir að hafa gist í Póllandi á leið sinni til Grodno. Hann segir að FH-ingar mæti ágætlega undir- búnir til leiks. „Við teljum okkur vita eitt og annað um þá. Þetta er hörkulið og eins og önnur frá Austur-Evrópu vel skipulagt og gott í að halda boltanum innan liðsins,“ segir Heimir. „Þar að auki er sumar- deild hér í Hvíta-Rússlandi og því er liðið í hörkuformi, eins og við. Það hefur hentað íslenskum liðum illa að spila gegn slíkum liðum og ég á því von á erfiðum leik.“ Neman Grodno hafnaði í fjórða sæti hvít-rússnesku deildarinnar í fyrra en þar í landi hefur BATE Borisov borið höfuð og herðar yfir önnur lið og unnið meistaratitilinn átta ár í röð. „Við spiluðum við BATE bæði 2007 og 2010 og þó svo að þetta lið sé ekki jafn sterkt er það afar öflugt. Það er ljóst að við þurf- um að spila þéttan varnarleik og komast frá leiknum þannig að við eigum möguleika í seinni leiknum í Kaplakrika,“ segir Heimir. Belgíski bakvörðurinn Jon athan Hendrickx samdi nýverið við FH og er kominn með leikheimild fyrir Evrópukeppnina. „Hann er góður leikmaður sem styrkir hóp- inn. Ég veit ekki hvort hann byrji í kvöld en reikna með að hann komi við sögu,“ segir þjálfarinn. Bæði FH og Stjarnan kom- ust auðveldlega áfram úr fyrstu umferðinni en fá nú mun sterkari anstæðinga. Garðbæingar leika gegn Motherwell sem hafnaði í öðru sæti skosku úrvalsdeildar- innar í vor, á eftir Celtic sem vann 1-0 sigur á KR í fyrrakvöld í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistara- deildarinnar. FH-ingar hefja leik í Hvíta- Rússlandi klukkan 17.00 í dag og Stjarnan mætir Motherwell klukk- an 18.45. Hægt verður að fylgjast með gangi mála á Boltavakt Vísis. - esá Reynslunni ríkari eft ir leikina gegn BAKU FH og Stjarnan eru í eldlínunni í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Báðir leikirnir fara fram ytra í dag. ÆVINTÝRI Atli Viðar og félagar eru í Hvíta-Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Bakvörðurinn öflugi Jóhann Laxdal er genginn aftur í raðir Stjörnunnar frá Ullensaker/Kisa í norsku 1. deildinni sem hann samdi við eftir síðustu leiktíð. Jóhann hefur spilað nánast alla leiki liðsins í deildinni, en forráðamenn norska liðsins vildu samt sem áður losna við hann. „Þetta er eiginlega frá þeim komið. Ég fæ skilaboð í gegnum umboðsmann minn frá for- ráðamönnum félagsins um að ég geti rift samningnum. Þjálfararnir voru samt ekki ánægðir með þetta þannig ég er að fá misvísandi skilaboð,“ segir Jóhann í samtali við Fréttablaðið. „Þjálfararnir fréttu í morgun að þetta hefði komið frá stjórninni og þeir voru ekki nógu ánægðir með það. Það var samt ekki hægt að snúa aftur eftir þetta. Það hefði verið mjög skrýtið að halda áfram þegar yfirvaldið vill mann burt. Þeir geta þá notað peninginn til að kaupa aðra leikmenn þannig að ég taldi best að koma bara heim aftur,“ segir Jóhann. „Þetta snýst ekkert um að mér líði illa og vilji koma heim– alls ekki. Ég hef yfir engu að kvarta. Ég er á frábærum stað og mér semur vel við strákana. Ég setti bara mikla pressu á sjálfan mig þegar ég kom út og vildi komast enn lengra í atvinnumennskunni.“ Stjarnan fékk Nicklas Vemmelund til að leysa Jóhann af og hefur hann staðið sig vel. Býst Jóhann við að fá stöðuna sína strax aftur? „Nei. Ég kem bara heim og verð leikmaður Stjörnunnar. Ef ég þarf að sitja á bekknum til að byrja með verð ég bara ofur-varamaður.“ - tom Fékk misvísandi skilaboð HANDBOLTI Handknattleikssam- band Íslands, HSÍ, sendi frá sér í gær kröfu þess efnis að Alþjóða- handknattleikssambandið, IHF, myndi draga til baka ákvörðun um að úthluta Þýskalandi sæti á heimsmeistaramótinu í Katar 2015. Evrópska handknattleiks- sambandið, EHF, hafði tilkynnt að Ísland væri sú þjóð sem fengi sæti frá Evrópu kæmi til þess en IHF úthlutaði Þýskalandi sætinu. Fyrri reglur sögðu til um að handknattleikssamband þeirrar álfu sem ríkjandi heimsmeistar- ar koma frá myndi útnefna þjóð sem tæki hvert það sæti sem yrði laust á mótinu. Samkvæmt IHF var ákvörð- un tekin á fundi stjórnarráðs sambandsins þann 30. maí sl. að breyta fyrirkomulaginu. Þess í stað yrði liðinu sem komst ekki á mótið sem náði hvað bestum árangri á síðasta móti boðið sætið. HSÍ hefur hins vegar fengið staðfest að enginn fundur fór fram þann 30. maí. Var ákvörðun- in tekin 8. júlí þegar það lá fyrir um hvaða þjóðir ræddi. Var ákvörðunin tekin eftir að EHF hafði gefið út yfirlýsingu um að Ísland væri fyrsta þjóðin inn af Evrópuþjóðunum. - kpt HSÍ krefst þess að fá sæti á HM ÓSÁTTIR Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Albert Brynjar Ingason, leikmaður FH er á förum frá félaginu. Albert hefur tilkynnt að hann vilji fara frá félaginu og staðfesti Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmdarstjóri knatt- spyrnusviðs Fylkis í samtali við Fréttablaðið að það væri áhugi af hálfu beggja aðila að Albert gengi til liðs við Fylki. Samkvæmt heimasíðu KSÍ er Albert Brynjar án samnings og ætti því að geta samið við Fylki. FH-ingar tóku fyrir allt slíkt í samtali við Vísi í gær og fullyrti framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar FH, Birgir Jóhannsson að Albert væri samningsbundinn FH. Albert Brynjar lék á sínum tíma 56 leiki fyrir Fylki í efstu deild og skoraði í þeim 26 mörk. Á fyrsta tímabili sínu hjá FH sló Albert í gegn og skoraði 15 mörk en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri í liðinu á núverandi tímabili. - kpt Óvissa með samningsmál Alberts UFC Gunnar Nelson mætir Zak Cummings í sannkölluðum stór- bardaga í UFC á laugardaginn. Verður bardagi Gunnars og Zaks einn af aðalbardögum kvölds- ins en viðburðurinn fer fram í Dublin. Garry Cook, yfirmaður UFC í Evrópu og Asíu, sagði við- burðinn á laugardaginn vera einn þann stærsta í langan tíma í Evrópu og Asíu. Áætlaði hann að um 350 milljón manns myndu horfa á viðburðinn um allan heim. Fyrirfram þykir Gunnar tölu- vert líklegri til að sigra bardag- ann en Zak var nokkuð bjartsýnn á blaðamannafundi sem hald- inn var í gær. Talaði hann um að þetta væri stórt tækifæri sem hann ætlaði ekki að missa af. - kpt Búist er við miklu áhorfi VINSÆLL Í DUBLIN Búist er við fullu húsi á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.