Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 1
VINNUMARKAÐUR Í fjárlagafrum- varpinu er gert ráð fyrir að spara 1,1 milljarð króna á næsta ári með því að stytta bótatímabil atvinnu- lausra úr þremur árum í tvö og hálft ár um næstu áramót. Samkvæmt samantekt Vinnu- málastofnunar þýðir það að 623 missa rétt sinn til bóta og detta út af skránni á einu bretti um áramót- in en að jafnaði hafa á milli 80 og 90 atvinnulausir fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði á þessu ári. Vinnumálastofnun áætlar að 900 til 1.000 einstaklingar hafi eða muni fullnýta rétt sinn til atvinnuleysis- bóta á þessu ári. Fjölmennasti aldurshópurinn sem tapar bótarétti er fólk á milli 30 og 40 ára, eða 190 manns, þar af eru konur mun fjölmennari, eða 124. Þegar menntun hópsins í heild er skoðuð kemur í ljós að 285 hafa lokið grunnskólaprófi, næstfjölmennasti hópurinn sem tapar bótarétti um áramót eru háskólamenntaðir, eða 135 manns. Þeir sem missa rétt til atvinnu- leysisbóta eiga rétt á framfærslu- styrk frá sínu sveitarfélagi, hann ræðst þó af félagslegri stöðu við- komandi og hvort hann á maka sem getur eða vill hafa viðkomandi á framfæri. Sveitarfélögin eru ekki sátt við að fá allan þennan fjölda yfir til sín um áramótin. „Þetta er ansi bratt,“ segir Halldór Halldórsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, og bendir á að það sé ansi stutt síðan bótarétturinn var styttur úr fjórum árum í þrjú. Hann segir að verið sé að færa kostnað frá rík- inu til sveitarfélaganna. „Við vilj- um að það verði farið í atvinnuátak til að mæta þessu. Þetta er þving- uð verkefnafærsla á milli ríkis og sveitarfélaga,“ segir Halldór. johanna@frettabladid.is FRÉTTIR Á undanförnum 100 árum er talið að inntaka fólks á omega-3 fitu-sýrum hafi minnkað um allt að 80% en neysla á omega-6 hefur hins veg-ar aukist vegna breytinga á mataræði og það brenglar hlutföll fitusýranna í líkamanum. Með því að taka hörfræolíu er hægt að jafna þessi hlutföll,“ segir Sigrún Kjartansdóttir, framkvæmda-stjóri Gengur vel ehf. „Hörfræolían er líklega besta uppspretta omega-3 EFA fitusýra sem völ er á enda einstaklega rík af bæði Omega-3, -6 og -9 fitusýrum í hlutföllunum 4:1:1.“ ÓMISSANDI FITUSÝRUROmega-3 fitusýrur eru sérstaklega mikil- vægar fyrir hjarta- og æðakerfið en þær hjálpa til við að halda blóðfitunni (kól- esterólinu) í skefjum og geta stuðlað að lægri blóðþrýstingi. „Hörfræolían getur einnig komið jafnvægi á hormónakerf- ið, dregið úr bólgum, aðstoðað við að brenna fitu og glúkósa og hjálpað til við að viðhalda heilbrigðum frumAð a ki h HÖRFRÆOLÍA – NÚ Í HYLKJUMGENGUR VEL KYNNIR Flestir þekkja hörfræolíuna og fjölmarga heilsufars- lega kosti hennar. Hér er hörfræolían komin í hylkjum til að losna við vonda bragðið. Flaxseed Oil frá Natures Aid inniheldur hágæða kaldpressaða hörfræolíu sem er einstaklega rík af omega-3, -6 og -9 fitusýrum. HIPPAR Í NEW YORKBlóm og blómabörn voru áberandi á tískusýningu Tommys Hilfiger sem fram fór í New York nýverið. Sýningin dró dám af hippatísku sjöunda áratugarins. ÚTSÖLUSTAÐIR w w w .v it ex .is Fæst í 14 og 28 daga skömmtum. Útsölustaðir apótek og heilsu búðir. Aptiless: Mest selda þyngdarstjórnunar efnið í Noregi og Svíþjóð. Thylakoids: Dregur úr hungri - Minnkar sykurlöngun Minnkar ummál - Fækk ar aukakílóum. Aukakílóin burtspínat extrakt með ThylakoidsFrábært fyrir þá sem eru á 5:2 mataræðinu eða öðrum matar prógrömmum Thylakoids spínat extrakt UTVECKLAD I SVERIGE VIDLUNDS UNIVERSITET Loksins efni sem virkar vísindalega sannað af Karólínska Háskólanum í Lundi í Svíþjóðsjá Medica Nord á facebook TÆKIFÆRISGJAFIR Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is - mikið af frábærum tilboðum 10% afsláttur Mömmumen Bjartey Ásmundsdóttir hefur hannað hálsmen sem henta mæðrum með handóð ungbörn. SÍÐA 2 Beckham breytir til Victoria Beckham hefur lagt stuttu kjólana á hilluna. Nýja línan er látlaus. SÍÐA 4 Heilbrigt hár í tísku Náttúrulegir hárlitir og klassískar klippingar verða áberandi í vetur. Ýktar hárlínur eru á undanhaldi. SÍÐA 6 SPJALDTÖLVUR FIMMTUDAGUR 11 . SEPTEMBER 2014 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Fimmtudagur 26 3 SÉRBLÖÐ Spjaldtölvur | Haust & vetrartíska | Fólk Sími: 512 5000 11. september 2014 213. tölublað 14. árgangur SKOÐUN Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir segir Fiskistofu hvorki stássstofu né vinnustofu. 28 MENNING Birgir Snæbjörn sýnir blondínur í Listasafni ASÍ um þessar mundir. 40 SPORT Jón Daði Böðvarsson er nýjasta stjarna íslenska landsliðsins eftir frammistöðuna gegn Tyrkjum. 58 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka PI PA R\ TB W A SÍ A 12. SEPTEMBER Sex hundruð missa atvinnu- leysisbætur um áramótin Á sjöunda hundrað atvinnulausra missa rétt til atvinnuleysisbóta um áramótin. Af þeim sem missa bætur er fjölmennasti hópurinn 30 til 40 ára og hafa flestir þeirra ýmist lokið grunnskóla- eða háskólaprófi. 361 kona 58% 262 karlar 42% FÓLKIÐ SEM MISSIR BÆTURNAR Bolungarvík 10° SSV 13 Akureyri 13° SV 5 Egilsstaðir 14° SV 3 Kirkjubæjarkl. 11° SV 3 Reykjavík 12° S 7 Hvassast NV-til Í dag ríkja S- og SV-áttir, 10-18 m/s NV-til en annars hægari. Skýjað og súld á stöku stað V-til en bjartviðri austanlands. 4 MENNING „Ég get ekki svarað fyrir ráðuneytið, eða tjáð mig um hvaða ástæður liggja að baki, en ég get staðfest það að framleiðendur myndarinnar Noah hafa ekki enn fengið þá tuttugu prósenta endur- greiðslu frá atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytinu sem þeim ber að fá,“ segir Helga Margrét Reykdal, hjá íslenska framleiðslufyrirtæk- inu Truenorth, en fyrirtækið þjónu- staði kvikmynda verið Paramount Pictures við tökur myndarinnar hér á landi sumarið 2012. „Að sjálf- sögðu kemur þetta sér ekki vel,“ segir Helga. Hún er ekki sú fyrsta úr kvik- myndageiranum á Íslandi sem tjáir sig um seinagang stjórnvalda við afgreiðslu á endurgreiðslum. Í við- tali við Vísi í janúar nefndi leik- stjórinn Baltasar Kormákur dæmi um seinagang við endurgreiðslu á myndinni Oblivion, sem tekin var á Íslandi árið 2012, og skartaði Tom Cruise í aðalhlutverki. Balt- asar nefndi í sama viðtali að endur- greiðslurnar væru mjög mikilvæg- ur þáttur í ferlinu að trekkja erlend kvikmyndaverkefni til landsins. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið vildi ekki tjá sig um stöðu einstakra verkefna. ósk / sjá síðu 66 Framleiðendur Noah bíða eftir 20 prósenta endurgreiðslu frá ráðuneyti: Endurgreiðslan enn ekki borist EFNAHAGSMÁL Eftir stöðuga fjölgun ferðamanna á Íslandi undanfarin ár mun draga úr þeirri aukningu á næsta ári, samkvæmt spá Grein- ingardeildar Arion banka. Spáin verður kynnt á morgunverðar- fundi í dag. Aukningin í ár mun nema 22,6 prósentum en verður 13,7 prósent á næsta ári. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ekki æskilegt að aukningin sé stöð- ugt yfir tuttugu prósentum. Nú þurfi að einbeita sér að því að bæta innviðina fyrir ferðaþjónustuna, til dæmis með betra vegakerfi. „Við vorum að berjast við það í fyrra að láta moka að Gullfossi. Ferðamenn sem eiga að vera hér á veturna, þeir komast jafnvel ekki að náttúruperlunum,“ segir hún. - jhh / sjá síðu 6. Huga þarf að innviðunum: Dregur úr vexti ferðaþjónustu Þetta er þvinguð verkefna- færsla á milli ríkis og sveitarfélaga Halldór Halldórsson UMRÆÐUR UM RÆÐU Stefnuræða forsætisráðherra fékk ekki háa einkunn hjá stjórnarandstöðunni í gærkvöldi. Sjálfur virtist ráðherrann ekki láta það á sig fá og ræddi þess í stað málin við sessunaut sinn, utanríkisráðherra. Sjá síðu 4. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Herferð gegn tekjulágum Forystumenn innan Starfsgreina- sambandsins segja ríkisstjórnina í herferð gegn tekjulágu fólki og atvinnulausum. 8 Engin stytta Fyrirætlanir um að reisa þrettán metra háa styttu af jóganum Sri Chinmoy við Esjurætur verða ekki að veruleika. 2 Grátbiðja Skota Leiðtogar bresku stjórnmálaflokkanna grátbiðja skoska kjósendur um að hafna sjálfstæði. 4 Reinfeldt að styrkjast Hægri stjórn Fredriks Reinfeldt í Svíþjóð hefur verið að styrkjast í skoðana- könnunum á lokaspretti kosninga- baráttunnar. 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.