Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 6
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu miklu fé á að verja til 100
ára afmælis kosningaréttar kvenna
samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi?
2. Hvað ætla starfsmenn Marels og
fjölskyldur þeirra að hlaupa marga
kílómetra í áheitasöfnun sinni?
3. Hver voru úrslitin í leik Íslands og
Tyrklands í undankeppni EM 2016?
SVÖR:
1. 60 milljónum. 2. 6.500 km.
3. 3-0 fyrir Ísland.
SKOTLAND, AP „Ég yrði niðurbrotinn maður,“
sagði David Cameron, sem er leiðtogi breska
Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands,
„ef þessi þjóðafjölskylda yrði slitin í sundur.“
Hann hélt til Skotlands í gær í von um að telja
kjósendum hughvarf en skoðanakannanir hafa
sýnt að meira en helmingur kjósenda í Skotlandi
er líklegur til að samþykkja tillögu um sjálf-
stæði.
Með í för voru þeir Nick Clegg, sem er leiðtogi
Frjálslynda flokksins og aðstoðarforsætisráð-
herra í stjórn Camerons, og Ed Miliband, sem er
leiðtogi Verkamannaflokksins, stærsta stjórnar-
andstöðuaflsins.
Alex Salmond, leiðtogi skoskra sjálfstæðis-
sinna, er hins vegar hvergi banginn. Heimsókn
hinna óvinsælu stjórnmálaleiðtoga gæti varla
annað en hjálpað málstað þeirra sem vilja segja
skilið við Bretland.
„Ef ég héldi að þeir kæmu með rútu, þá myndi
ég senda þeim fargjaldið,“ sagði hann.
Cameron viðurkenndi fúslega að hægri-
stjórnin væri harla óvinsæl, ekki síst í Skotlandi.
Hann sagði þó ekki rétt að nota þessar kosn-
ingar til að refsa hægristjórninni. „Þetta er ekki
ákvörðun til næstu fimm ára,“ sagði hann.
Skotar ganga að kjörborðinu þann 18. septem-
ber. - gb
Leiðtogar bresku flokkanna hröðuðu sér til Skotlands í gær í von um að telja kjósendum hughvarf:
Grátbiðja Skota um að hafna sjálfstæði
HVERGI BANGINN Alex Salmond, forsprakki
aðskilnaðarsinna, segir heimsókn hinna óvinsælu
stjórnmálaleiðtoga bara hjálpa sínum málstað.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ATVINNUMÁL Á næsta ári mun
draga verulega úr fjölgun erlendra
ferðamanna sem koma til Íslands.
Búist er við að hún verði 22,6 pró-
sent í ár en 13,7 prósent á næsta
ári. Þetta kemur fram í nýrri spá
Greiningardeildar Arion banka
sem kynnt verður á morgunverð-
arfundi bankans í dag.
„Það stefnir
í enn eitt met-
árið í komum
erlendra ferða-
manna í ár og
fjórða árið í röð
er ferðamönnum
að fjölga með
meiri hraða en
árið á undan.
Greiningardeild
Arion banka
gerir ráð fyrir að fjölgun ferða-
manna í ár muni nema um 23%
frá seinasta ári og því komi um
960 þúsund ferðamenn til Íslands
í gegnum Leifsstöð,“ segir Regína
Bjarnadóttir, forstöðumaður Grein-
ingardeildarinnar.
Hún segir að deildin geri ráð
fyrir að um 1,1 milljón ferðamanna
muni heimsækja Ísland á næsta ári
og á árinu 2017 verði þeir rúmlega
1,3 milljónir. Gangi spáin eftir mun
vöxturinn haldast yfir langtíma-
meðaltali á næstu árum.
Helga Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir þessar tölur koma ekkert á
óvart. „Tuttugu prósenta aukning
á milli ára er ekki það sem við vilj-
um horfa á sem árlega aukningu til
framtíðar. Það er allt of hröð aukn-
ing,“ segir hún. Þótt hún fari niður
í 13,7 prósent, þá sé hún vel yfir
meðaltalinu í Evrópu og mun við-
ráðanlegri. „Hvort sem það eru tíu
prósent eða þrettán prósent þá er
það mjög gott,“ segir hún.
Helga segir að það þurfi að afla
meiri tölfræðiupplýsinga um ferða-
þjónustuna til að efla greinina til
framtíðar. „Það er í raun sorg-
legt hvað við vitum lítið um þessa
atvinnugrein og það þarf að rann-
saka svo við tökum öll rétt skref í
sömu átt hverju sinni. Það þarf alls-
herjarstefnumótun sem allir koma
að,“ segir Helga.
Það þurfi raunverulega fram-
kvæmdaáætlun um uppbyggingu
ferðamennsku. Það sé auðvelt að
leggja huglægt mat á ferðaþjón-
ustu, en huglægt mat sé ekki það
sama og staðreyndir. „Það er til
dæmis svo auðvelt að halda að
ákveðnir ferðamenn eyði of litlu,
en hvað vitum við?“ segir hún.
Þá bendir Helga líka á að það
þurfi að ráðast í uppbyggingu inn-
viða, meðal annars með því að bæta
vegakerfið og halda því við. Það
þurfi líka að halda vegum opnum á
veturna. „Við vorum að berjast við
það í fyrra að láta moka að Gull-
fossi. Ferðamenn sem eiga að vera
hér á veturna, þeir komast jafnvel
ekki að náttúruperlunum,“ segir
hún. Hér séu enn einbreiðar brýr
og margt sem þurfi að laga. „Það er
mikilvægt að allir líti á þessi verk-
efni sem tækifæri sem við þurf-
um að nýta sem allra best,“ segir
Helga. Ekki beri að líta á þetta sem
vandamál. jonhakon@frettabladid.is
Fjölgun ferðamanna
að komast í hámark
Greiningardeild Arion banka spáir að draga muni úr fjölgun erlendra ferðamanna
hér á landi á næstunni. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það
jákvætt. Nú þurfi að huga að rannsóknum á greininni og uppbyggingu innviða.
GULLFOSS Í VETRARBÚNINGI Helga segir að það hefði mátt moka betur við Gull-
foss í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HELGA
ÁRNADÓTTIR
Sjónmælingar
í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind
sími 5288500
Optical Studio í Keflavík
sími 4213811
Optical Studio í Leifsstöð
sími 4250500
UMHVERFISMÁL Áform um að
útbúa ylströnd við Urriðavatn
á Fljótsdalshéraði hafa siglt í
strand í bili.
Hitaveita Egilsstaða og Fella
lét vinna fyrir sig skýrslu þar
sem fram kemur að ekki séu
neinar líkur á að starfsemi tengd
ylströnd geti haft áhrif á vinnslu-
vatn fyrirtækisins við Urriða-
vatn. Heilbrigðiseftirlit Austur-
lands segist hins vegar ekki geta
mælt með framkvæmdinni þar
sem í starfsleyfi hitaveitunnar
vegna neysluvatnsveitu sé grann-
svæði vatnsbólsins skilgreint „við
efstu flóðamörk Urriðavatns“. - gar
Hætta á vatnsmengun:
Ný ylströnd fær
dræm viðbrögð
VELFERÐARMÁL Tæplega 1.800
einstaklingar og fjölskyldur eru á
biðlista eftir félagslegu húsnæði
hjá sjö stærstu sveitarfélögum
landsins samkvæmt könnun vel-
ferðarráðuneytisins.
Eygló Harðardóttir, félags-
og húsnæðismálaráðherra, stóð
fyrir könnun á biðlistum í sumar.
Hún segir upplýsingar sveitar-
félaganna gefa til kynna að veru-
lega skorti á að sveitarfélögin
uppfylli skyldur sínar í húsnæðis-
málum gagnvart þeim íbúum sem
vegna félagslegra aðstæðna eru
ekki færir um að sjá sér sjálfir
fyrir húsnæði. - ebg
Sveitarfélög sinna ekki þörf:
Tæplega 2.000
fjölskyldur bíða
VIÐSKIPTI Alls hafa 85 bifreiðar
af tegundinni Suzuki Swift af
árgerðinni 2013 verið innkall-
aðar. Ástæðan er sú að hemlarör
geta farið utan í vélarfestingu
þar sem bilið þar á milli er of
lítið og sökum víbrings frá vél.
Í versta falli getur komið leki að
hemlaröri.
Í tilkynningu á síðu Neytenda-
stofu kemur fram að Suzuki bílar
hf. hafi þegar byrjað að innkalla
viðkomandi bifreiðar. Neytenda-
stofa hvetur bifreiðaeigendur
til að verða við innkölluninni og
leita til Suzuki bíla hf. varðandi
frekari upplýsingar. - fb
Hemlarör getur lekið:
85 Suzuki-bílar
innkallaðir
NEYTENDUR Neytendasamtökin
gera alvarlegar athugasemdir við
þær fyrirætlanir íslensku bank-
anna að taka upp sérstakt þjón-
ustugjald sem felst í gjaldtöku
af þeim sem óska eftir þjónustu
gjaldkera. Fréttablaðið greindi frá
þessum áætlunum nýlega.
Það er mat samtakanna að gjald-
takan komi harðast niður á eldri
borgurum sem ekki greiði reikn-
inga sína í heimabanka, sem og
öðrum sem séu með litla tölvu-
kunnáttu. „Þá má einnig velta
fyrir sér hvort öryggi sjálfvirkra
bankaviðskipta sé slíkt að rétt
sé að skylda neytendur á þennan
hátt,“ segir í tilkynningu frá sam-
tökunum. - sáp
Gagnrýna gjaldkeragjald:
Bitnar helst á
eldri borgurum
SUZUKI SWIFT Alls hafa 85 bifreiðar
verið innkallaðar.
YLSTRÖND Áform við Urriðavatn eru í
uppnámi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?