Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 22
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 22
Ýmiss konar afþreying er í boði á
höfuðborgarsvæðinu fyrir barna-
fjölskyldur. Á meðal þess sem
hægt er að gera er að skella sér í
leikhús, keilu eða bíó. Dýrast er
að fara á nýju barnaleikritin Línu
Langsokk og Latabæ á meðan
ódýrast er að fara í bíó.
Taka skal fram að ekki fylgir
með í tölunum kostnaðurinn við
mat, drykki og sælgæti sem getur
fylgt afþreyingunni og því getur
hann hækkað umtalsvert þegar
um vísitölufjölskyldu, tvo full-
orðna og tvö börn, er að ræða.
Lína Langsokkur
Í Borgarleikhúsinu verður á laug-
ardag frumsýndur söngleikurinn
Lína Langsokkur. Lína á fastan
sess í hugum flestra barna og
eiga mörg þeirra vafalítið eftir
að biðja foreldra sína um miða á
sýninguna.
Einn miði 4.250 krónur
Fjölskyldan 17.000 krónur
Latibær
Stærsta barnasýning Þjóðleik-
hússins í vetur, Latibær, verður
frumsýnd á sunnudag. Íslenskir
krakkar hafa margir hverjir alist
upp við að horfa á Latabæ í sjón-
varpinu og eiga þeir örugglega
eftir að flykkjast á sýninguna
með foreldrum sínum.
Einn miði 3.400-4.200 kr.
Fjölskyldan 13.600-16.800 kr.
Trúðleikur
Trúðleikur í Tjarnarbíói var fyrst
sýndur í Frystiklefanum á Rifi
við mjög góðar undirtektir. Núna
verður leikurinn endurtekinn í
Tjarnarbíói í Reykjavík.
Einn miði 2.000-2.900 kr.
Fjölskyldan 8.000-11.600 kr.
Langafi prakkari
Leikritið Langafi prakkari í
Möguleikhúsinu er byggt á
sögum Sigrúnar Eldjárn. Verkið
hefur verið sýnt um 300 sinnum
frá því það var frumsýnt árið
1999.
Einn miði 2.500 kr.
Fjölskyldan 10.000 kr.
Keila
Það getur verið gaman að
skella sér í keilu en það er
langt í frá ókeypis því hver
mínúta kostar 90-108 krónur.
Keiluhöllin í Öskjuhlíð
25 mínútur 2.250 kr
(kvöld- og helgarverð).
Fjölskyldan 9.000 kr.
Keiluhöllin Egilshöll
25 mínútur 2.700 kr.
(kvöld- og helgarverð).
Fjölskyldan 10.800 kr.
Bíó
Teiknimyndin Flugvélar: Björg-
unarsveitin er sýnd í Sam-
bíóunum. Börnin kynntust
áburðarflugvélinni Dusty í
Disney-myndinni Flugvélar sem
var frumsýnd í ágúst í fyrra.
Núna er komið að framhalds-
myndinni.
Einn miði 700-1.300 kr.
Fjölskyldan 4.000 kr (ef annað
barnið er undir 8 ára).
Afþreying vísitölufjölskyld-
unnar kostar skildinginn
Fyrirtækið BSH, Bosch und Sie-
mens Hausgeräte GmbH, hefur
sent frá sér öryggistilkynningu
vegna Siemens-þurrkara og mögu-
legrar eldhættu af völdum hans.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að takmarkaður fjöldi tækja, sem
var framleiddur frá janúar til maí
2002, gæti ofhitnað vegna gallaðs
rafmagnsíhlutar í stjórnborði.
„Það getur í algjörum undan-
tekningartilvikum leitt til hugsan-
legrar eldhættu,“ segir í tilkynn-
ingunni. Þar segir einnig að
viðgerð tæknimanns þjónustuað-
ila á þessum gallaða íhluta heima
hjá eigendum þurrkarans sé án
endurgjalds. „Þar til gert hefur
verið við tæki, sem þetta á við um,
á í varúðarskyni eingöngu að nota
það undir eftirliti, þ.e. ef einhver
er heima, og ekki á næturnar.“
BSH, sem er með starfsemi í 47
löndum og um 50 þúsund starfs-
menn, biður alla neytendur afsök-
unar á hvers kyns óþægindum
sem þetta veldur. - fb
Öryggistilkynning frá BSH:
Möguleg eld-
hætta
SIEMENS Fyrirtækið BSH hefur sent frá
sér tilkynningu.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
3
7
1
SUBARU XV
FJÓRHJÓLADRIFINN – SJÁLFSKIPTUR
SUBARU ER EINN ÖRUGGASTI BÍLL SEM ÞÚ GETUR KEYPT
Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur fyrst upp í
hugann. Lágur þyngdarpunktur, þverliggjandi BOXER vél og sítengt fjórhjóladrif með
tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn að akstursöryggi. Allir Subaru eru með 5
stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP.
GERÐU ÖRUGG BÍLAKAUP – KAUPTU SUBARU!
Subaru XV 2.0i, sjálfskiptur
Verð: 5.290.000 kr.
6,6 l / 100 km
í blönduðum akstri
Ný LINEARTRONIC stiglaus sjálfskipting
með þrepastillingum í stýri.
Veturinn er að ganga í garð og eykst þá þörfin fyrir almenning að lyfta sér upp í
skammdeginu. Það getur aftur á móti kostað skildinginn fyrir hina hefðbundnu
fjögurra manna vísitölufjölskyldu að njóta afþreyingar á höfuðborgarsvæðinu.