Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 27

Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 27
FIMMTUDAGUR 11. september 2014 | SKOÐUN | 27 Við lifum í menningu sem nennir ekki að ræða ólíkar skoðanir en horfir fremur á hagsmuni. Við tökum meiningar manna eða lífsskoðanir ekki of hátíðlega því þegar upp er staðið virðast allir bara vera að hugsa um sína hagsmuni. Deilurnar um morgun- og kvöldorð á RÚV hafa fengið þennan farveg líkt og annað. Stór notendahópur gengur fram og vill halda þessu óbreyttu og flestir líta svo á að hér séu hagsmunir trúaðra sem haldi sínum kröfum á lofti. Gegn þessu kemur sú staðhæfing að hér sé fátt á ferð annað en argur minnihlutahópur eldri borgara og þeirra sem vilji boða tiltekna trú. Taka skal fram að frá því dag- skrárstjórnendur Rásar 1 til- kynntu að fella skyldi niður allan guðsorðalestur og bæna- hald kvölds og morgna hefur orðið viðsnúningur. Samanlagð- ur tími kvöld- og morgunorða hefur ekki verið styttur heldur hafa morgunorðin með biblíu- lestri, íhugun og bæn orðið ítar- legri en áður, bætt hefur verið við þætti þar sem fjalla skal um trúmál á víðum grunni hvert sunnudagskvöld á besta tíma auk þess sem góðir útvarps- menn hafa tekið höndum saman í þættinum Rökkurtónum á gamla kvöldorðatímanum þar sem við fáum að heyra áhuga- verða tilraun guðfræðingsins og útvarpsmannsins Ævars Kjart- anssonar til að hugleiða á for- sendum almennrar skynsemi. Leikin eru ljúf lög og segja má að þarna sé mál hugar og hjarta á dagskrá þótt ég og aðrir sem iðka bæn sakni þess að heyra ekki bænamál. Ekki verður þó sagt að dagskrárstjórar hafi ekki hlýtt á fólk og endurskoðað fyrri ákvarðanir. Að mínum dómi getur það ekki verið krafa okkar sem trúum á Jesú að kristindómur sé tjáður í ríkisútvarpinu. Við þráum að svo sé og óskum þess heitt en við krefjumst þess ekki. Eina krafan sem kristnin í land- inu getur haldið á lofti er krafan um almannahag. Jesús stóð með almenningi gegn allri þöggun og smættun á fólki. – Veistu ekki að ég hef vald? Spurði Pílatus Krist. – Þú hefðir ekkert vald nema þér væri gefið það að ofan, ansaði hann. Þannig benti hann á hvernig þvingunarvaldið er spunnið að ofan úr kerfi yfir- ráða. Svar hans er ævarandi áminning til allra sem fara með völd: Mundu að þú ert maður eins og ég. Bænamál ólíkra kirkjudeilda Tíðarandinn horfir á hagsmuni en gefur lítið fyrir skoðanir. Pólitík er látin fjalla um hag ólíkra hópa og þegar talað er um réttlæti er einkum átt við jafn- ræðisregluna því við trúum ekki að til sé neitt réttlæti í sjálfu sér. Ég hygg að hugmyndin um hagsmuni á kostnað lífsskoðana sé snjallasta útfærslan á yfir- ráðum sem fram hefur komið og að Pílatus og rómverska valdið með sína land- stjóra og standandi heri hafi verið hógvært í samanburði. Rökræðu er hafnað, hvers konar lífs- sýn tortryggð og þeim fækkar sem bera ábyrgð gagnvart almenningi á sama tíma og ofurlaun vaxa og margvíslegur annar ójöfnuður gagn- vart mönnum og nátt- úru vegna þess að það er ekkert réttlæti, bara hagsmunir. Við þetta bætist sú tæra snilld að kostnaður yfirráðakerfisins er í lágmarki því allur almenn- ingur er samtaka í trúnni á að ekkert réttlæti sé til í heiminum og hin fátæku telja sig sjálf bera ábyrgð á stöðu sinni. Þannig rit- skoðar almenningur sjálfan sig og hin stóru trúarbrögð vest- ræns nútíma eru trúin á hags- munina. Fylgjendur Jesú frá Nasaret geta ekki skilgreint sig sem hagsmunahóp. Að því leyti sem kristin kirkja fer að eðli sínu og fylgir stofnanda sínum stendur hún utan hagsmuna og heldur engu á lofti öðru en almannahag. Við trúum á Guð sem elskar af ástríðu og hefur fyrirætl- anir, meiningar. Við treystum Jesú Kristi og sjáum í honum hið sanna réttlæti. Við trúum á heilagan anda sem býr í fólki og laðar fram Guðs góða vilja. Þess vegna höfum við enga kenningu aðra en persónu frelsarans, ekk- ert trúarkerfi nema bænamálið og íhugun ritningarinnar, enga kröfu umfram þá að mennskan sé ekki kæfð með hroka. Þar er komin ástæða þess að við vonum að guðsorð og bænir fái að óma í útvarpinu. Hvernig væri ef Ævar Kjartansson leyfði okkur að heyra bænamál ólíkra kirkjudeilda og trúarbragða á kvöldin? Okkar hefðbundna og þjóðlega kristni ætti sinn stað á morgnana en ákall manns- andans í fjölbreytileika sínum á kvöldin? Væri það ekki sann- gjarnt og þokkafullt? Trúin á hagsmunina RÚV Bjarni Karlsson prestur með meist- aragráðu í siðfræði ➜ Þar er komin ástæða þess að við vonum að guðsorð og bænir fái að óma í útvarp- inu. FYRIR AÐSTOÐ INNANLANDS gjofsemgefur.is 9O7 2OO2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.