Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 11. september 2014 | SKOÐUN | 27
Við lifum í menningu
sem nennir ekki að ræða
ólíkar skoðanir en horfir
fremur á hagsmuni. Við
tökum meiningar manna
eða lífsskoðanir ekki of
hátíðlega því þegar upp
er staðið virðast allir
bara vera að hugsa um
sína hagsmuni.
Deilurnar um morgun-
og kvöldorð á RÚV hafa
fengið þennan farveg
líkt og annað. Stór notendahópur
gengur fram og vill halda þessu
óbreyttu og flestir líta svo á að
hér séu hagsmunir trúaðra sem
haldi sínum kröfum á lofti. Gegn
þessu kemur sú staðhæfing að
hér sé fátt á ferð annað en argur
minnihlutahópur eldri borgara
og þeirra sem vilji boða tiltekna
trú.
Taka skal fram að frá því dag-
skrárstjórnendur Rásar 1 til-
kynntu að fella skyldi niður
allan guðsorðalestur og bæna-
hald kvölds og morgna hefur
orðið viðsnúningur. Samanlagð-
ur tími kvöld- og morgunorða
hefur ekki verið styttur heldur
hafa morgunorðin með biblíu-
lestri, íhugun og bæn orðið ítar-
legri en áður, bætt hefur verið
við þætti þar sem fjalla skal um
trúmál á víðum grunni hvert
sunnudagskvöld á besta tíma
auk þess sem góðir útvarps-
menn hafa tekið höndum saman
í þættinum Rökkurtónum á
gamla kvöldorðatímanum þar
sem við fáum að heyra áhuga-
verða tilraun guðfræðingsins og
útvarpsmannsins Ævars Kjart-
anssonar til að hugleiða á for-
sendum almennrar skynsemi.
Leikin eru ljúf lög og segja má
að þarna sé mál hugar og hjarta
á dagskrá þótt ég og aðrir sem
iðka bæn sakni þess að heyra
ekki bænamál. Ekki verður þó
sagt að dagskrárstjórar hafi
ekki hlýtt á fólk og endurskoðað
fyrri ákvarðanir.
Að mínum dómi getur það
ekki verið krafa okkar sem
trúum á Jesú að kristindómur
sé tjáður í ríkisútvarpinu. Við
þráum að svo sé og óskum þess
heitt en við krefjumst þess ekki.
Eina krafan sem kristnin í land-
inu getur haldið á lofti er krafan
um almannahag. Jesús stóð með
almenningi gegn allri þöggun og
smættun á fólki. – Veistu ekki
að ég hef vald? Spurði Pílatus
Krist. – Þú hefðir ekkert vald
nema þér væri gefið það að ofan,
ansaði hann. Þannig benti hann
á hvernig þvingunarvaldið er
spunnið að ofan úr kerfi yfir-
ráða. Svar hans er ævarandi
áminning til allra sem fara með
völd: Mundu að þú ert maður
eins og ég.
Bænamál ólíkra kirkjudeilda
Tíðarandinn horfir á hagsmuni
en gefur lítið fyrir skoðanir.
Pólitík er látin fjalla um hag
ólíkra hópa og þegar talað er um
réttlæti er einkum átt við jafn-
ræðisregluna því við trúum ekki
að til sé neitt réttlæti í sjálfu
sér. Ég hygg að hugmyndin um
hagsmuni á kostnað lífsskoðana
sé snjallasta útfærslan á yfir-
ráðum sem fram hefur komið
og að Pílatus og rómverska
valdið með sína land-
stjóra og standandi heri
hafi verið hógvært í
samanburði. Rökræðu er
hafnað, hvers konar lífs-
sýn tortryggð og þeim
fækkar sem bera ábyrgð
gagnvart almenningi á
sama tíma og ofurlaun
vaxa og margvíslegur
annar ójöfnuður gagn-
vart mönnum og nátt-
úru vegna þess að það er
ekkert réttlæti, bara hagsmunir.
Við þetta bætist sú tæra snilld
að kostnaður yfirráðakerfisins
er í lágmarki því allur almenn-
ingur er samtaka í trúnni á að
ekkert réttlæti sé til í heiminum
og hin fátæku telja sig sjálf bera
ábyrgð á stöðu sinni. Þannig rit-
skoðar almenningur sjálfan sig
og hin stóru trúarbrögð vest-
ræns nútíma eru trúin á hags-
munina.
Fylgjendur Jesú frá Nasaret
geta ekki skilgreint sig sem
hagsmunahóp. Að því leyti sem
kristin kirkja fer að eðli sínu og
fylgir stofnanda sínum stendur
hún utan hagsmuna og heldur
engu á lofti öðru en almannahag.
Við trúum á Guð sem elskar
af ástríðu og hefur fyrirætl-
anir, meiningar. Við treystum
Jesú Kristi og sjáum í honum
hið sanna réttlæti. Við trúum á
heilagan anda sem býr í fólki og
laðar fram Guðs góða vilja. Þess
vegna höfum við enga kenningu
aðra en persónu frelsarans, ekk-
ert trúarkerfi nema bænamálið
og íhugun ritningarinnar, enga
kröfu umfram þá að mennskan
sé ekki kæfð með hroka.
Þar er komin ástæða þess að
við vonum að guðsorð og bænir
fái að óma í útvarpinu. Hvernig
væri ef Ævar Kjartansson leyfði
okkur að heyra bænamál ólíkra
kirkjudeilda og trúarbragða á
kvöldin? Okkar hefðbundna og
þjóðlega kristni ætti sinn stað
á morgnana en ákall manns-
andans í fjölbreytileika sínum
á kvöldin? Væri það ekki sann-
gjarnt og þokkafullt?
Trúin á hagsmunina
RÚV
Bjarni Karlsson
prestur með meist-
aragráðu í siðfræði
➜ Þar er komin ástæða þess
að við vonum að guðsorð og
bænir fái að óma í útvarp-
inu.
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2