Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 28
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Fiskistofa er hvorki stáss-
stofa sem framreiðir sjáv-
arrétti né vinnustofa sem
framleiðir þá. Fiskistofa
er stjórnsýslustofnun. Sú
tilhneiging að kalla stjórn-
sýslustofnanir „stofur“ eða
„nefndir“ hljómar í eyrum
fólks sem eitthvað lítið og
„kósí“. Það fellur ágætlega
að stefnunni sem boðar
„báknið burt“. Stofnanir,
stjórntæki hins opinbera,
hafa fengið á sig neikvætt
yfirbragð; þær þykja þung-
lamalegar og seinvirkar. Þeir sem
aftur á móti ekki vita betur gætu
litið svo á að „stofur“ séu þægilegri
og léttari við að eiga; að þær megi
jafnvel „missa sín“, að það sé auð-
veldara að leggja þær niður eða
að staðsetning þeirra skipti engu
máli. M.ö.o. hugtakið „stofa“ getur
í hugum fólks „smættað“ starfsem-
ina, þ.e. dregið úr réttmæti hennar.
Umræðan um flutning Fiski-
stofu til Akureyrar hefur nú verið
einkavædd. Einkavæðing umræðu
heitir það þegar látið er að því
liggja að málið varði einungis ein-
staklingshagsmuni; að málið snú-
ist ekki um almannahagsmuni og
því eigi almenn umræða um málið
sem málefni samfélagsins ekk-
ert erindi. Ekki skal gera lítið úr
áhrifum flutnings Fiskistofu á hagi
starfsfólks. Þar kemur fram kostn-
aður sem oftast er vanreiknaður
eða hreinlega undanskilinn. Slík-
ur kostnaður fellur á einkaaðila,
þ.e. einstaklinga og fjölskyldur.
En flutningur Fiskistofu út á land
snýst ekki bara um hagsmuni ein-
staklinga.
Almannahagsmunir
Flutningur Fiskistofu snýst um
brýna almannahagsmuni. Fiski-
stofa er sjálfstæð stofnun sem
heyrir undir atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið. Hún ann-
ast framkvæmd laga og reglna um
stjórn fiskveiða í sjó og fersku vatni
og á þannig að stuðla að ábyrgri
og sjálfbærri nýtingu fiskistofna.
M.ö.o. starfsfólk Fiskistofu hefur
eftirlit með nýtingu á sjáv-
arafla landsmanna, þess-
ari sameiginlegu auðlind
þjóðarinnar sem aðeins
fáir hafa fengið réttinn til
að nýta með fyrirkomu-
lagi sem er svo umdeilt og
mikið hitamál að upp úr
sýður hvar sem kjarnann
í þeirri stefnumótun ber
á góma. Flutningur Fiski-
stofu til Akureyrar snýst
um það hvernig búið er að
starfsemi þeirrar stofnun-
ar sem fara á með eftirlit
með nýtingu sjávarútvegsauðlind-
arinnar sem er í eigu almennings.
Um það snúast almannahagsmunir
þessa máls og um það þarf umræða
málsins að snúast, ekki bara í fjöl-
miðlum, heldur á Alþingi.
Við flutning Fiskistofu til Akur-
eyrar magnast þær hættur sem
opinbert eftirlit stendur ávallt
frammi fyrir. Hætturnar magnast
vegna þess að þær tengjast bein-
línis stærð eða smæð þess samfé-
lags sem eftirlitsstofnanir eru stað-
settar í. Í fyrsta lagi, sérhæfðar
stofnanir af þessu tagi þurfa stórt
úrtak umsækjenda til að geta valið
þá hæfustu úr stórum hópi hæfra
umsækjenda. Við flutning úr fjöl-
menni minnkar slíkt aðgengi. Í
öðru lagi, eftirlitsstarf er ekki til
vinsælda fallið. Til að sinna trú-
verðugu eftirliti þarf ákveðna
fjarlægð milli eftirlits og eftirlits-
skyldra aðila, bæði faglega og pers-
ónulega. Til lengdar verður þessi
þáttur við að tryggja virkt og trú-
verðugt eftirlit oft veruleg áskorun
fyrir eftirlitsfólk sem þarf að við-
halda slíkri fjarlægð og draga línu
í sandinn á degi hverjum, bæði í
leik og starfi. Hætturnar á veik-
ingu eftir litsins eru raunveruleg-
ar, lúmskar og eiga sér stoð í við-
urkenndum rannsóknum.
Meðvirkni
Hugtakið „að fanga regluverkið“ (e.
regulatory capture) er þekkt innan
stjórnsýslufræðinnar og lýsir því
hvernig eftirlitsskyldir aðilar hafa
náð að fanga eftirlitið og þannig
náð eftirlitinu á sitt vald. Þetta er
þekkt í öllum samfélögum, stórum
sem smáum. Hættan á slíkri yfir-
töku eftirlits vex með smæð sam-
félagsins. Þá á hugtakið „cognitive
regulatory capture“ ef til vill betur
við því smærra sem samhengið og
eftirlitskerfið er. Þetta fyrirbæri
lýsir því hvernig eftirlitsfólk, oft-
ast ómeðvitað, gerir sýn eftirlits-
skyldra aðila smám saman að sinni
eigin sýn; samúðin byrjar að snúast
um hagsmuni þeirra sem þeir eiga
að hafa eftirlit með. Slík meðvirkni
grefur undan áhrifum eftirlits.
Hættan á þessari þróun er því
meiri eftir því sem faglegur skyld-
leiki og bakgrunnur starfsfólks
eftirlits og eftirlitsskyldra aðila er
líkari. Hér geta opinber samskipti
og skyldur verið í höndum fyrr-
verandi skóla- eða vinnufélaga;
fólks sem stundar sams konar frí-
stunda- og áhugamál, hefur svip-
aðan lífsstíl eða sækir sömu veit-
ingastaði og menningarviðburði.
Svigrúm til að viðhalda faglegri
fjarlægð í persónulegri nálægð
verður lítið. Félagslegur þrýstingur
og einsleitni eru áleitnari í fámenni
smærri samfélaga. Rökin um kosti
nálægðar Fiskistofu við sjávarút-
vegsdeild Háskólans á Akureyri
eru hér umdeilanleg.
Birtingarmynd yfirtöku eftirlits
má m.a. sjá í skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis um aðdraganda
og orsakir falls íslensku bankanna.
Ef stjórnvöld vilja sýna landsmönn-
um dæmi um það hvernig læra má
af því sem þar fór úrskeiðis, þá
ætti umræðan um flutninginn á
Fiskistofu til Akureyrar að snú-
ast um aðalatriði málsins, þ.e. um
almannahagsmuni og vandaða
stjórnsýsluhætti. Nema því aðeins
að þingheimur allur hafi meðtekið
þá speki að það sé ekkert til sem
heitir samfélag – aðeins einstak-
lingar og misvelskilgreindir hópar
einstaklinga.
Fiskistofa: Stássstofa
eða stjórnsýsla
Umhverfisvitund er óvíða í heim-
inum meiri en hjá Norðurlanda-
búum. Mörg veltum við því dag-
lega fyrir okkur hvernig við getum
minnkað álagið á náttúruna og
unnið gegn loftslagsbreytingun-
um. En þrátt fyrir þessa jákvæðu
staðreynd höfum við enn mikið
verk að vinna áður en samfélag
okkar getur talist sjálfbært og það
á sannarlega við um hina ört vax-
andi ferðamannaþjónustu. Vegna
þessa hafa jafnaðarmenn í Norður-
landaráði lagt til að komið verði á
fót sérstakri norrænni umhverf-
isvottun til að auðvelda og efla
umhverfisvæn ferðalög um Norð-
urlöndin.
Einfaldar og skýrar merkingar
er mikilvæg forsenda þess að neyt-
endur geti með auðveldum hætti
tekið umhverfisvænar ákvarð-
anir í erli dagsins. Það má ekki
vera flókið og tímafrekt að velja
þann kost sem hefur minnst áhrif
á umhverfið og viðskiptavinirn-
ir eiga ekki að þurfa að rannsaka
sjálfir hvaða áhrif varan eða þjón-
ustan hefur. Ábyrgðin í þessum
efnum liggur ekki síst hjá okkur
stjórnmálamönnum enda er það
okkar hlutverk að tryggja hags-
muni neytenda og auðvelda þeim
hversdaginn.
Við jafnaðarmenn sjáum það
einnig fyrir okkur að græna hag-
kerfið skapi sífellt stærri hluta af
framtíðarstörfum okkar og með
sérstakri umhverfisvottun fyrir
norræna ferðaþjónustu getum við
tekið mikilvægt skref í þá átt að
norræn ferðaþjónusta verði leið-
andi í þessum efnum, í stað þess
að dragast aftur úr.
Norðurlandaráð hefur áður beitt
sér fyrir norrænu umhverfismerki
með góðum árangri, en norræna
umhverfismerkið Svanurinn er í
dag þekktasta umhverfismerkið
í heiminum. Með auknum áhuga
almennings á að nýta sér umhverf-
isvænar vörur og þjónustu sjáum
við síðan hvernig vaxandi fjöldi
fyrirtækja á sífellt fleiri svið-
um viðskiptalífsins vilja nú bæta
umgengni sína við náttúruna með
því að óska eftir Svansmerkingu.
Stóreykur umhverfisvitund
Jafnaðarmenn í Norðurlanda-
ráði vilja koma á fót sambærilegu
umhverfismerki fyrir ferðaþjón-
ustuna. Með sama hætti og við
getum í dag valið að kaupa Svans-
merkt þvottaefni til að vernda
umhverfið viljum við að í náinni
framtíð getum við sem ferðamenn
valið áfangastað eða upplifun sem
er umhverfisvænsti kosturinn. Til-
raunaverkefni hafa sýnt að þeir
ferðaþjónustuaðilar sem vinna
samkvæmt skýrum umhverfis-
stöðlum sem slíku merki myndu
fylgja geta með umtalsverðum
hætti dregið úr neikvæðum áhrif-
um sínum á umhverfið.
Auk þess að auðvelda almenn-
ingi að ferðast með umhverfis-
vænum hætti myndi merkið því
stórauka umhverfisvitund hjá
fyrir tækjunum sjálfum og stuðla
að jákvæðri þróun ferðaþjónust-
unnar í átt til umhverfisvænni
starfshátta. Umhverfisvernd og
sjálfbærni yrði sett skörinni hærra
innan ferðaþjónustunnar og slíkt
starf gæti skapað umhverfisvott-
uðum fyrirtækjum mikilvægt við-
skiptaforskot.
Norræn umhverfisvottun fyrir
áfangastaði og upplifanir ferða-
þjónustunnar gætu enn fremur
stuðlað að auknum ferðamanna-
straumi til Norðurlandanna. Sam-
eiginlegt umhverfismerki gæfi
okkur t.d. kost á að markaðssetja
Norðurlöndin sem umhverfis-
vænsta svæðið í Evrópu. Með því
að undirstrika áherslu Norður-
landanna á umhverfismálin gætum
við því fjölgað heimsóknum ferða-
manna og fjölgað störfunum, ekki
síst á svæðum sem á undanförn-
um árum hafa þurft að þola fólks-
fækkun.
Norræn umhverfisvottun fyrir
ferðaþjónustuna og stóraukin
áhersla hennar á sjálfbærni skap-
ar því fleiri störf, grænni störf og
gerir hversdaginn fyrir ferðamenn
og samfélagið í heild umhverfis-
vænni og grænni.
Umhverfi svænni ferða-
þjónusta á Norðurlöndum
Í desember 2013 skip-
aði innanríkisráðherra
starfshóp sem hafði það
verkefni að endurskoða
fjárhagsleg samskipti
ríkis og Þjóðkirkjunnar
og safnaða hennar. Sá
sem hér ritar hefði hald-
ið að slíkur hópur myndi
taka tillit til athuga-
semda Mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóð-
anna, sem í úttekt sinni á
stöðu mannréttinda á Íslandi árið
2012 gerði athugasemd við fyrir-
komulag sóknargjalda á Íslandi.
Nefndin taldi að íslensk stjórn-
völd ættu ekki að leggja sóknar-
gjöld á alla þegna óháð því hvort
þeir séu skráðir í trúfélag eða
kjósi að standa utan þeirra. Í dag
eru sóknargjöld ekki innheimt
sérstaklega heldur litið svo á að
þau séu hluti af almennum tekju-
skatti, en álagning tekjuskatts er
alveg óháð trúfélagaaðild.
Því kemur á óvart að í frétt á
heimasíðu innanríkisráðuneyt-
is frá 5.9. um tillögur starfs-
hópsins kemur ekkert fram um
hugsanlegar breytingar á þessu
kerfi. Einungis er talað um að
hækka þurfi þær upphæðir sem
renna úr ríkissjóði til skráðra
trúfélaga og lífsskoðunarfélaga,
til að leiðrétta fyrir skerðingu
þessara gjalda til jafns við aðra
aðila „sem byggja rekstur sinn á
framlögum af fjárlögum“. Í frétt
á heimasíðu Þjóðkirkjunnar má
lesa meira um vinnu starfshóps-
ins, en þar stendur: „Starfshóp-
urinn telur að það fyrirkomulag
sem kveðið er á um í gildandi
lögum um sóknargjöld hafi stað-
ist tímans tönn. Það sé farsælt
bæði fyrir ríki og kirkju þar sem
það skapi stöðugleika í fjármögn-
un sókna og sé einfalt í fram-
kvæmd.“
Hvernig það geti talist hag-
stætt fyrir ríkið að þurfa að
greiða sóknargjöld til Þjóðkirkj-
unnar og fjölda misgáfulegra trú-
félaga úr ríkissjóði er erfitt að
sjá. Eðlilegra væri að trúfélög,
líkt og önnur félög sem vilja kalla
sig sjálfstætt starfandi félög, inn-
heimti sín félagsgjöld sjálf, en fái
þau ekki greidd úr ríkissjóði. Ef
hins vegar ríkið og trúfélög vilja
að ríkið annist innheimtu sókn-
argjalda ætti ríkið að innheimta
slík gjöld sem nefskatt á þá sem
skráðir eru í trúfélög, en ekki líta
svo á að sóknargjöld séu innifal-
in í almennri skattheimtu á alla
þegna, líkt og hver önnur ríkis-
rekin þjónusta.
Af hverju ekki
nefskattur?
FJÁRMÁL
Einar Karl
Friðriksson
ráðgjafi
FERÐAÞJÓNUSTA
Helgi Hjörvar, Íslandi
Per Rune Henriksen, Noregi
Sjúrður Skaale, Færeyjum
Ann-Kristine Johansson, Svíþjóð
Per Berthelsen, Grænlandi
jafnaðarmenn í Norðurlandaráði
STJÓRNSÝSLA
Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir
lektor í opin-
berri stjórnsýslu við
Stjórnmálafræði-
deild HÍ
➜ Umræðan um fl utning
Fiskistofu til Akureyrar
hefur nú verið einkavædd.
➜ Hvernig það
geti talist hagstætt
fyrir ríkið að þurfa
að greiða sóknargjöld
til Þjóðkirkjunnar og
fjölda misgáfulegra
trúfélaga úr ríkissjóði
er erfi tt að sjá.
Boðaðar breytingar
á virðisaukaskatti og
afnám vörugjalda í nýju
fjárlagafrumvarpi eru
afar jákvæðar fyrir
íslenskt efnahagslíf.
Bæði neytendur og fram-
leiðendur munu njóta
góðs af breytingunum og
innheimta skatta fyrir
ríkissjóð verður einfald-
ari og skilvirkari. Neyt-
endur munu enn fremur
njóta minnkandi kostn-
aðar við innheimtu vöru-
gjalda. Hins vegar eru það mikil
vonbrigði að til standi að hætta
endurgreiðslu 100% virðisauka-
skatts vegna vinnu á byggingar-
stað.
Breytingar á virðisaukaskatti
eiga að taka gildi um næstu ára-
mót og fela í sér að efra þrep
skattsins lækkar úr 25,5% í 24%
en neðra þrepið hækkar úr 7% í
12% auk þess sem stofn skatts-
ins breikkar. Vissulega hækkar
almennt matarverð, en á móti
vegur afnám vörugjalda á mat-
væli sem voru afar íþyngjandi
og á margan hátt falin skatt-
lagning. Þessi breyting er í góðu
samræmi við áherslur Samtaka
iðnaðarins á að dregið sé úr bili
milli skattþrepa og hætt inn-
heimtu ógegnsærra og óskil-
virkra vörugjalda. Í heild sinni
er þessum aðgerðum ekki ætlað
að auka tekjur ríkissjóðs og því
verða ekki neikvæð áhrif á verð-
lag. Raunar má færa gild rök
fyrir hinu gagnstæða.
Mikil vonbrigði
Samtök iðnaðarins hafa um langt
árabil barist fyrir afnámi vöru-
gjalda enda byggði sú skattlagn-
ing á óljósum forsendum.
Það eru hins vegar mikil von-
brigði að hætta eigi við 100%
endurgreiðslu á virðisauka-
skatti vegna vinnu á byggingar-
stað. Ríkir almannahagsmunir
réðu því að stjórnvöld ákváðu
að fara í þessa aðgerð árið 2009.
Atvinnuástand var slæmt og auk
þess var endurgreiðslan mikil-
vægur liður í að draga úr svartri
atvinnustarfsemi.
Samkvæmt nýju fjárlagafrum-
varpi stendur til að lækka endur-
greiðsluna aftur í 60%.
Samtök iðnaðarins styðja að
endurgreiðsluheimild til sveitar-
félaga verði felld úr gildi enda
ekki þörf á að hvetja til opin-
berra byggingaframkvæmda.
Samtökin telja hins vegar fulla
ástæðu til að framlengja endur-
greiðsluna í almennri bygginga-
starfsemi til að sporna gegn
svartri atvinnustarfsemi. Færa
má fyrir því gild rök að 100%
endurgreiðsla hafi jákvæð áhrif
á fjárhag ríkissjóðs enda mikil-
vægur hvati þess að hafa öll við-
skipti uppi á borði.
Einfaldara og skilvirkara
skattkerfi hefur frá upphafi
verið eitt helsta baráttumál Sam-
taka iðnaðarins. Með þessum
breytingum eru stigin mikil-
væg skref í rétta átt. Halda þarf
áfram á þeirri braut og vilja
Samtök iðnaðarins eiga gott sam-
starf við stjórnvöld um næstu
skref.
Breytingar á neyslu-
sköttum – mikil-
vægt skref í rétta átt
SKATTAR
Guðrún
Hafsteinsdóttir
formaður Samtaka
iðnaðarins
➜ Einfaldara og
skilvirkara skatt-
kerfi hefur frá upp-
hafi verið eitt helsta
baráttumál Samtaka
iðnaðarins. Með
þessum breytingum
eru stigin mikilvæg
skref í rétta átt.