Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 34

Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 34
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 34 ➜Kjarnorku- sprenging- arnar á Japan voru ekki lokabombur síðari heims- styrjaldar- innar, þær mörkuðu miklu fremur upphafsskot kalda stríðsins gegn Sovét- ríkjunum. „Japanir voru reiðubúnir til þess að gefast upp og það var alls ekki nauðsynlegt að ráðast á þá með þess- um hræðilega hlut.“ Þessi orð Dwights Eisenhower, þáverandi yfirhershöfðingja og síðar forseta Bandaríkj- anna um kjarnorkuárásina á Japan, má lesa í Smithson- ian-safninu í Washington, en sýning safnsins um árásina olli miklum deilum í land- inu þegar hún var sett upp fyrir tæpum 20 árum. Hægrisinn- arnir vildu halda í gömlu, opinberu söguskýringuna. Það er alkunna að í gegnum tíð- ina hefur verið reynt að gera ýmsar „söguskýringarnar“ eða réttara sagt pólitískar sögulegar afbakanir að „sögulegum staðreyndum“ – hag- ræða sannleikanum, sleppa ákveðn- um staðreyndum og fela raunveru- legan tilgang átaka eða aðgerða. Ég gæti nefnt mörg dæmi og ófá má sjá í sögubókum sem lesnar eru í skól- um, eða í fjölmiðlum. Ein þeirra er að kjarnorkusprengjum hafi verið varpað á Hiroshima 6. ágúst 1945 og Nagasaki þremur dögum síðar í því skyni að binda enda á seinni heimsstyrjöldina með sem minnst- um fórnarkostnaði þar eð innrás í landið hefði kostað hundruð þús- unda mannslífa, er fullyrt. Talið er að þarna hafi a.m.k. 200.000 fallið. Þessi staðhæfing er fjarri raunveru- leikanum. Japönsk stjórnvöld voru reiðubúin til uppgjafar tæpum mán- uði fyrr, í júlí, með ákveðnum skil- málum þó; nákvæmlega sömu skil- málum og fallist var á við uppgjöf þeirra 14. ágúst. Þetta er sögulega óvefengjanlegt. Þegar leið að lokum styrjald- arinnar var Japan rjúkandi rúst; iðnaðarframleiðsla hafði nær stöðvast. Japan var innikróað – engin við- skipti voru við önnur lönd; um 90% kaupskipaflotans voru eyðilögð og hin 10% föst við bryggju í Japan. Einungis 10% sjóhersins voru enn nothæf. Í mars varpaði Bandaríkjaher napalmsprengjum á fjórar borgir, Tókýó, Osaka, Kobe og Nagoya. Í Tókýó féllu á einni nóttu 80.000 manns og 1 milljón varð heimilislaus – hver borgin á fætur annarri var nú sprengd í tætlur, þó voru fjórar borgir, þar á meðal Hiroshima og Nagaski, skildar eftir – í bili! Höfnuðu skilmálunum Því var það að Japansstjórn fór fram á það við Sovétríkin, sem stóðu enn utan við Kyrrahafsstríðið, að þau hefðu milligöngu um friðarvið- ræður við Bandaríkjastjórn. Stalín greindi Truman og Churchill frá þessu á fundi þeirra þriggja í Pots- dam 17. júlí – raunar vissi Banda- ríkjastjórn þegar af tillögunni 13. júlí, því leyniþjónustan hafði leyst dulmálslykil Japana. Eina skilyrð- ið sem Japansstjórn setti var um áframhaldandi fullveldi landsins og að Hirohito keisari héldi völdum. Truman og Churchill höfnuðu skil- málunum og kröfðust 26. júlí upp- gjafar án nokkurra skilmála. Eftir að sprengjunum var varpað sam- þykkti Bandaríkjastjórn (14. ágúst) uppgjöf Japana með sömu skilyrð- um og áður hafði verið hafnað. Daginn áður en Stalín lagði fram tillögu Japana fékk Truman skeyti þar sem á stóð: „It‘s a boy!“ Enginn vissi í raun, hvort sprengjan myndi virka fyrr en „velheppnuð“ tilraun hafði verið gerð í New Mexico þann sama dag. Samstundis var flogið með tvær sprengjur í flotastöð við Kyrrahaf, tónninn gagnvart Sovét- ríkjunum gerbreyttist en ætlunin var að þau hæfu innrásina í Japan. Nú var allt klárt á síðustu stundu fyrir alvöru tilraun þar sem ekki hafði verið gerð loftárás! Ekki lokabombur Kjarnorkusprengingarnar á Japan voru ekki lokabombur síðari heims- styrjaldarinnar, þær mörkuðu miklu fremur upphafsskot kalda stríðsins gegn Sovétríkjunum. Þær voru sprengdar í tilraunaskyni og til þess að sýna Sovétríkjunum og öðrum þjóðum að öflugt drápstæki hafði verið þróað og framleitt og eins að Bandaríkin hefðu fullan hug á að beita þessu vopni þegar þurfi þætti. Bandaríkjastjórn hófst þegar handa við að búa til lista yfir 20 mikilvægustu staðina í Sovétríkj- unum til kjarnorkuárása. Kjarn- orkuvopn hafa gegnt lykilhlutverki í hótunum Bandaríkjastjórnar gagn- vart alþýðu í öllum heimshlutum síðustu ártugina – m.a. þjóðum sem hafa risið upp gegn hagsmunum fámennrar ráðastéttar í landinu. Truman hótaði að beita kjarn- orkuvopnum gegn Sovétríkjunum þegar árið 1946. Eisenhower endur- tók leikinn gagnvart Kína og Sovét- ríkjunum í tímum Kóreustríðsins. Eftir sögulegan ósigur Frakka við Dien Bien Phu árið 1954 í frelsis- stríði Víetnama velti Eisenhower því alvarlega fyrir sér að nota kjarnorkuvopn. Hann hótaði líka að beita þeim gegn Sovétríkjunum 1956 ef þau kæmu Egyptalandi til aðstoðar í kjölfar innrásar Breta, Frakka og Ísraels í landið – sama ógnun var viðhöfð í deilunni um Hiroshima og Nagasaki og nokkrar staðreyndir UTANRÍKISMÁL Gylfi Páll Hersir áhugamaður um það sem gerist í heiminum stöðu Berlínar 1959. Kennedy hótaði að gera kjarnorkuárás á Kúbu 1962 ef sovéskar eldaflaugar yrðu ekki fluttar brott af eyjunni. Í viðtali við tímaritið Time viðurkenndi Nixon að hafa íhugað að beita kjarnorku- vopnum m.a. árið 1969 gegn Norð- ur-Víetnam, 1971 gegn Kína og 1973 gegn Sovétríkjunum í stríði Egypta og Ísraels. Bandaríkjastjórn vill ákveða hvaða þjóðir eru nógu fínar til þess að eiga kjarnorkuvopn og hverjar ekki. Ísrael sem þessa daga frem- ur fjöldamorð á saklausu fólki í Palestínu ræður yfir kjarnorku- vopnum, þótt stjórnvöld vilji ekki viðurkenna það – það finnst stjórn- völdum í Bandaríkjunum í góðu lagi. stórt! Fyrir þá sem hugsa Áskrifendur 365 fá allt að 50% afslátt hjá fjölda fyrirtækja og verslana. fylgir Með þessum fá allir í fjölskyldunni eitthvað við hæfi – allir sáttir! Internet og heimasími fylgir Stóra pakkanum 14 stöðvar Internet og heimasími 0 kr. Stóri pakkinn ber nafn með rentu enda sameinast Skemmtipakkinn og Sportpakkinn í þessum frábæra og fjölbreytta pakka. Grín, spenna, rómantík, fréttir, barnaefni og allt það besta úr heimi íþróttanna, eitthvað fyrir alla í Stóra pakkanum – á frábæru verði. 17.490 kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.