Fréttablaðið - 11.09.2014, Síða 36

Fréttablaðið - 11.09.2014, Síða 36
FÓLK|TÍSKA VILL VITA MEIRA „Það fer mikið fyrir brjóstið á mér hve margar flíkur í tískuvöruverslun- um eru framleidd- ar í verksmiðjum þar sem kjör eru bág og aðstæður eru hræðilegar. Því miður eru upplýs- ingar um hvar og hvernig flíkurnar eru framleiddar oft takmarkaðar.“ Ég hef gaman af því að ögra hinu hefðbundna og upplifi mig stundum eins og hálfgerðan eilífðarungling,“ segir Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir, fata- og textílhönn- uður, þegar Fólk forvitnast um fatastíl hennar. Stíll Tönju einkennist af afslöpp- uðum sniðum og skipulögðu kaosi og hún leikur sér að því að setja saman liti og munstur til að fá óvænta niðurstöðu. „Mér finnst líka algjört skilyrði að fötin séu þægileg.“ Áttu þér einhverja tískufyrirmynd? „Ég get ekki sagt að ég eigi tískufyrir- mynd hvað útlitið varðar en ég held að tvær af mínum helstu fyrirmyndum tengdar hönnun og list séu Walter Van Beirendonck og Björk. Þegar ég var 8 ára dagdreymdi mig um að vera vin- kona Spice Girls en nú dreymir mig um að vera vinkona herra Beirendoncks. Hann er svo mikill frumkvöðull á sviði fatahönnunar. Mér finnst líka stórkost- legt að sjá hvernig Björk vinnur með konsept. Ég táraðist af aðdáun þegar ég horfði á When Björk Met Atten- borough.“ Hvaðan færðu innblástur? „Það er síbreytilegt en mér finnst mjög áhugavert að rannsaka eitthvað sem mun koma mér á óvart, til dæmis fyrir- bæri sem við sjáum ekki með berum augum. Ég laðast að hlutum sem mér finnst fallegir og ljótir á sama tíma. Það skapar einhvers konar óvissu og spennu og niðurstaðan verður óvænt.“ Bestu og verstu kaupin? „Það fer mikið fyrir brjóstið á mér hvað margar flíkur í tískuvöruversl- unum eru framleiddar í verksmiðjum þar sem kjör eru bág og aðstæður eru hræðilegar. Því miður eru upplýsingar um hvar og hvernig flíkurnar eru fram- leiddar oft takmarkaðar. Ég reyni mitt besta til að vera meðvituð um þetta og bera virðingu fyrir flíkum sem ég kaupi. Verstu kaupin eru í öll þau skipti sem ég keypti flíkur úr lélegum og óþægileg- um efnum sem entust illa vegna lélegra gæða. Bestu kaupin sem ég hef gert er þegar ég verslaði í Antwerpen og keypti flíkur eftir hönnuðinn Bernhard Will- helm og merkið Moonspoonsaloon, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, á spottprís miðað við hvað gengur og gerist. Síðustu helgi gerði ég líka mjög góð kaup í Kolaportinu og keypti sól- gleraugu á 500 krónur. Mér líður alltaf eins og maður sé hálfósýnilegur með sólgleraugu, eins og fólk þekki mann ekki þegar augun eru hulin. Þessi sól- gleraugu eru enn betri, gefa manni ný augu og þar af leiðandi nýtt dular- gervi.“ Hvaða hönnuður er í uppáhaldi? „Uppáhaldshönnuðirnir mínir eru Walter Van Beirendonck, Bernhard Will- helm, Meadham Kirchhoff, Jeremy Scott og uppáhaldsmerkin mín eru Kenzo, KTZ og Moonspoonsaloon.“ Er einhver flík skápnum í uppáhaldi? „Það eru flíkurnar sem gleðja mig mest, til dæmis Oprah-peysan mín, broskalla- bolurinn minn og prjónaðar gylltar buxur með froskamynstri hannaðar af Bernhard Willhelm. Síðan er risastóra Mundapeysan mín með blóðkorna- munstri alltaf í uppáhaldi á veturna.“ Hvað er annars að frétta? „Allt meiriháttar gott. Þetta er búið að vera frábært og viðburðaríkt sumar en ég var svo heppin að fá að taka þátt í nokkrum skemmtilegum verkefnum. Til dæmis að vera með í sýningu á LungA á Seyðisfirði ásamt listakonunni Kol- brúnu Þóru Löve. Ég tók einnig þátt í verkefninu Torg í biðstöðu ásamt vöruhönnuðunum Ólöfu Rut Stefáns- dóttur og Ágústu Sveinsdóttur þar sem við hönnuðum risastórt hengirúm og rólur og buðum upp á útibíó á Bern- höftstorfunni. Á Menningarnótt var ég einnig með verk á sýningunni „Gakktu í Bæinn“. Næst á döfinni er að safna fyrir draumaferð til Japans í lok árs, til að kanna tísku- og textílmarkaðinn þar og hitta fatahönnuð sem starfar í Japan og er einnig kennari í Bunka Fashion College sem er einn virtasti skólinn á sviði fatahönnunar. Ég verð bara að halda nokkrar tombólur fyrst til að láta drauminn rætast.“ EILÍFÐARUNGLINGUR TÍSKA Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir, fata- og textílhönnuður, er tilrauna- glöð í lita- og munstursamsetningum þegar hún velur saman föt á morgnana. BESTU KAUPIN Í KOLAPORTINU „Mér líður alltaf eins og maður sé hálfósýnilegur með sól- gleraugu, eins og fólk þekki mann ekki þegar augun eru hulin.“ TILRAUNAGLÖÐ Tanja Huld Levý Guðmunds- dóttir, fata- og textíl- hönnuður, hefur gaman af því að ögra hinu hefð- bundna í fatavali. MYND/VALLI NÝIR KJÓLAR OG SKOKKAR Sjá fleiri myndir á 30% AFSLÁTTUR Kjóll áður 17.990 nú 12.590 kr. Kjóll áður 14.990 nú 9.990 kr. - Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið - Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland. -Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms. -Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu Helstu námsgreinar: - Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. - Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. - Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. - Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. Umsögn: Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa, frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem skapaði gott andrúmsloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tíma var mjög vel varið hvort sem maður hyggur á ferðaleiðsögn eða ekki. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8-22 Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri Umsögn: S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel u dir væntingum þar sem fjölmargir ke ar komu að kennslun i og áttu þeir a ðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsu ar um þá auðlind sem la dið okkar er og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðv lt með að koma efninu ti skila. Námi efur mikla atvinnumöguleika og spennandi tí r eru framundan. Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum Útsölustaðir: Fjöldi apóteka, Heilsuver, Fjarðarkaup, Hagkaup, Heilsuhornið Blómaval, Heimkaup og Sportlíf
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.