Fréttablaðið - 11.09.2014, Síða 38
FÓLK|TÍSKA
Margir hafa verið duglegir að nýta sólargeislana í sumar og hafa jafn-
vel brunnið sem er alls ekki
gott fyrir húðina. Einnig geta
litabreytingar orðið á húðinni
og brúnir litaflekkir myndast
í henni. „Mjög gott er að nýta
haustið í að endurnýja og næra
húðina eftir sumarið og sólina,“
segir Þórey Gyða Þráinsdóttir,
snyrtifræðingur á Snyrtistofunni
Verði þinn vilji. „Til eru sér-
stakar meðferðir og krem sem
vinna á svona litabreytingum í
húð og hafa hjálpað mörgum að
ná góðum árangri. Eftir sumarið
getur verið nauðsynlegt að gefa
húðinni smá styrkingu með and-
litsbaði eða góðum kremum sem
gefa húðinni þann raka og nær-
ingu sem hún þarf. Húðin getur
orðið mjög þurr eftir sumartím-
ann, sérstaklega ef fólk var mikið
í sól og bar ekkert á hana.“
HÚÐHREINSAR ÞURRKA
Þórey nefnir einnig að margir
hreinsar sem fólk notar til að
hreinsa húðina geti verið mjög
þurrkandi. Þá sé gott að athuga
að á haustin og veturna þurfi
húðin meiri raka og næringu en
á vorin og sumrin. „Það eru til
hreinsar sem gefa húðinni raka
um leið og þeir hreinsa. And-
litsskrúbbar og -maskar eru líka
mjög góð viðbót við andlitslín-
una á haust- og vetrarmánuðum.
Með andlitsskrúbbnum er verið
að taka í burtu dauðar húð-
frumur, þegar þær eru fjarlægðar
komast kremin dýpra ofan í húð-
ina og virkni þeirra verður þar af
leiðandi meiri. Andlitsmaska er
gott að nota einu sinni til tvisvar
í viku eftir þörfum. Rakamaska
og maska fyrir viðkvæma húð
eins og til dæmis rósroða má
nota oftar, jafnvel daglega, ef
fólki finnst þörf á. Fólk á það líka
HUGAÐ AÐ HÚÐINNI
HÚÐUMHIRÐA Haustið er komið og óhætt að pakka niður þeim örfáu sumar-
plöggum sem dregin voru fram á meðan blíðan varaði. Með árstíðabreyting-
unum þarf bæði að huga að breyttum klæðnaði og að hugsa betur um húðina.
OPTIMUM
PROTECTION
CREAM
Þetta er krem
sem allir ættu
að eiga og nota
allt árið. Það
er nærandi og
endurnýjar húð-
ina og ver hana
gegn ótímabærri
öldrun. Ver húð-
ina gegn UVA-
og UVB-geislum
sólarinnar.
HÚÐMEÐFERÐ Þórey segir gott að nota haustið í að næra húðina og hlúa að henni. MYND/ANTON
SKIN ELIXIER
Þetta er eitt
okkar allra vin-
sælasta krem
og ég myndi
segja að þetta
væri fullkomið
krem fyrir vetur-
inn. Það er nær-
andi og græðandi
og hentar öllum,
jafnt fullorðnum
sem börnum.
Mjög gott á bruna,
exem, mikinn
þurrk og útbrot.
til að vera viðkvæmt í húðinni
eftir sumarið sérstaklega ef hún
hefur orðið fyrir smá bruna,“
segir Þórey.
EKKI RAKAKREM Í FROSTI
Yfir vetrarmánuðina þarf að
hugsa sérstaklega vel um húðina
en það er versti tíminn fyrir
hana vegna kuldans og frostsins
sem er svo þurrkandi. „Þegar fer
að frysta þá má alls ekki fara út
með einungis rakakrem á húð-
inni því eins og við vitum flest
þá frýs vatn og í rakakremum er
nóg af vatni. Því er mjög gott að
skipta og nota feitari krem sem
vernda húðina betur í kulda og
frosti.“
Hún segir gott að nota amp-
úlur sem skyndilausn þegar
húðina vantar raka. „ Meðferð
í ampúluformi getur verið
mjög árangursrík enda krem-
inu pakkað í umbúðir áður en
súrefni kemst að því. Alls kyns
meðferðir má fá á þessu formi en
sérstaklega gott getur verið fyrir
fólk með viðkvæma húð að nota
þær.“
MUNIÐ EFTIR AUGUNUM
Augun eiga það til að gleym-
ast allt of oft að sögn Þóreyjar.
„Húðin í kringum augun er mjög
viðkvæm og því mikilvægt að
passa vel upp á hana. Það er gott
að geyma augnkrem í kæli til að
bera á þrútin augu eftir erfiðan
dag. Til eru nokkrar gerðir af
augnkremum, krem sem vinna á
hrukkum og línum og svo krem
sem vinna á dökkum baugum og
þrota í kringum augun.“
ETHNICRAFT bakkar
Verð frá 17.500 kr.
Margar gerðir LUCA stólar
Verð 45.000 kr.
GEORGINA hægindastóll
79.000 kr.
TEKK COMPANY OG HABITAT
KAUPTÚN 3
SÍMI 564 4400
VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
Gerum hús að heimili
NÝJAR VÖRUR!
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is