Fréttablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 40
KYNNING − AUGLÝSINGHaust- og vetrartíska FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson. Kolli@365.is, s. 512-5449
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
www.rfa.is – Skráning stendur yfir
námskeið
Men fyrir mömmur
Bjartey Ásmundsdóttir var orðin leið á því að geta ekki gengið með hálsmen
því sonur hennar átti til að toga í þau og stinga upp í sig. Hún ákvað að búa sjálf
til men sem væru úr náttúrulegum efnivið og þannig hættulaus fyrir strákinn.
Síðastliðinn vetur var ég að tala við samstarfskonu mína og hún var að sýna mér fal-
legt hálsmen. Þar sem drengur-
inn minn var aðeins sex mánaða
sagði ég henni að ég væri löngu
búin að gefast upp á að nota háls-
men líkt og margar ungamömmur
enda stinga börnin öllu upp í sig
sem þau ná taki á. Sumir hlutir í
hálsmenum geta verið hættulegir
og svo geta menin auðvitað slitnað
sem er óskemmtilegt,“ segir Bjart-
ey. Hún minntist á það við sam-
starfskonu sína að líklega þyrfti
hún bara að útbúa sterka keðju
til að bera um hálsinn og jafnvel
hengja í hana dót fyrir drenginn
að leika við. Þó þetta væri sagt í
gríni vaknaði þarna hugmynd
sem Bjartey ákvað að þróa áfram.
„Mig langaði að búa til hálsmen
fyrir mæður ungbarna.“
Slitsterk men
„Ég fór á netið, leitaði upplýs-
inga og efniviðar. Ég fann ýmis-
legt skemmtilegt sem ég pantaði
og fór svo bara að föndra,“ segir
Bjartey sem fljótt varð gagntek-
in af föndrinu. „Þá fór ég að búa
til men fyrir fleiri en sjálfa mig,“
segir hún glaðlega.
Bjartey velur aðeins slit-
sterk og skaðlaus efni í menin.
„Ég nota viðarhringi og silí-
k onperlur. Hringirnir eru
óunnir og aðeins búið að
bera á þá ólífuolíu og lífrænt
býflugnavax.“
Bjartey segist litla reynslu
hafa haft af skartgripagerð
fram að þessu. Hún er tækni-
teiknari að mennt og vinn-
ur hjá verkfræðistofunni
Verkís þó hún sé nú í árs
námsleyfi. „Ég hef alltaf
verið teiknandi og var
á myndlistarbraut í
framhaldsskóla en
þetta er frumraun
mín á skartgripasvið-
inu.“
Rúmenskt hjarta
Menin ka l lar
Bjartey „Inima“
en það þýðir
hjarta á rúm-
ensku. Maður Bjart-
eyjar er frá Rúmeníu og
þar kynntist hún honum. „Mér
fannst nafnið eiga vel við þar
sem menin liggja við hjartað
á manni,“ segir hún. Bjartey
hefur mikið skrautskrifað í gegn-
um árin og hvert men
merkir hún með brenni-
penna, bæði með
merki Inima en einn-
ig skrifar hún nöfn
barna á hringina
ef óskað er.
Bjartey held-
ur úti Facebook-
síðu undir nafn-
inu Inima.
Hægt er að skoða men
Bjarteyjar á Facebook undir
Inima.
Bjartey með yngri syni sínum, Elíasi Davíð, sem er mjög hrifinn af mömmumeninu og
leikur sér oft að því í fangi móður sinnar. MYND/STEFÁN
Það er enginn hægðarleikur að fylgjast með tískunni og þeim
straumum og stefnum sem ríkja hverju sinni. Tískutímaritið
Vogue tekur reglulega saman lista yfir það sem er heitt og kalt
hverju sinni. Listinn fyrir veturinn er á þessa leið:
Heitt&kalt
SANDALAR FYLLTIR HÆLAR
NIÐURÞRÖNGAR GALLABUXUR ÚTVÍÐAR BUXUR
NEONLITIR OG SÍMUNSTRAÐAR FLÍKUR
DRUNGALEGIR LITIR; TIL DÆMIS SANDLITUR,
MOSAGRÆNN OG RAUÐFJÓLUBLÁR
HIPHOPFATNAÐUR, ÍÞRÓTTASKÓR, MERKTIR STUTTERMA
BOLIR OG SPORTLEGIR JAKKAR ÚR GLANSEFNI
EINSTAKAR HÖNNUNARFLÍKUR, ÚTSAUMUR OG ÓRÆÐ
MUNSTUR
MAGABOLIR
HNÉSÍÐAR PRJÓNAFLÍKUR, SÍÐAR ERMAR, HERÐA OG
PEYSUSLÁR
MISLITT HÁR. TIL DÆMIS AFLITUN Í RÓT OG DÖKKIR ENDAR
NÁTTÚRULEGIR LITIR, HEILBRIGT HÁR, SÓLARSTRÍPUR
Tommy Hilfiger
er einn þeirra
sem boða
útvíðar buxur.
Neonlitir eru
á undanhaldi.
Drungalegri
tónar taka
við.