Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 62
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
„Við ætlum að taka hátt í tíu lög,
gamla standarda frá 1930 til 1950,“
segir Reynir Sigurðsson víbrafón-
leikari um efnisvalið á hádegistón-
leikum í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi á morgun, föstudag.
Um nýja tónleikaröð er að ræða
sem nefnist Jazz í hádeginu og
Reynir ætlar að ríða á vaðið ásamt
nokkrum félögum. Hann leiðir
kvartett sem skipaður er Hauki
Gröndal sem leikur á altsax og
klarínett, Gunnari Hilmarssyni
á rythmagítar og Leifi Gunnars-
syni sem leikur á kontrabassa og er
jafnframt listrænn stjórnandi dag-
skrárinnar. Leifur orðar það svo að
kvartettinn muni „töfra fram tóna
frá meisturum gullaldarinnar“.
Eitt laganna sem leikið verður
er Memories of you og Reynir á
fallega sögu um það. „Louis Arms-
trong fór í stúdíó með hljómsveit
sína 16. október 1930. Trommu-
leikarinn í þeirri sveit, Lionel
Hampton, sá víbrafón úti í horni í
stúdíóinu og gat ekki leynt áhuga sínum á hljóðfærinu og fór að spila
þetta lag, Memor ies of you. Louis Armstrong varð svo hrifinn að
hann bað Hampton að nota víbrafóninn í upptökunni og sagan segir
að það hafi verið í fyrsta sinn sem víbrafónn var notaður í djassi.“
Hádegistónleikarnir í Gerðubergi standa frá 12.15 til 13. Hver
efnisskrá verður flutt tvisvar, frumflutt á föstudegi og endurtekin á
sunnudegi. gun@frettabladid.is
Stefnum að ánægju-
stund í hádeginu
Jazz í hádeginu er ný tónleikaröð í Gerðu bergi sem
hefst á morgun, 12. september. Reynir Sigurðsson
víbra fónleikari leiðir þar swing-kvartett.
VÍBRAFÓNLEIKARINN Reynir
Sigurðsson ætlar að kynna djass fyrir
almenningi. MYND/ÚR EINKASAFNI
„Kameljón er fyrsti einleikurinn
minn og það var mikil áskorun að
takast á við hann. Ég samdi hann
líka ásamt Margréti systur minni
og Friðgeiri Einarssyni – fékk hug-
mynd sem lét mig ekki í friði!“ segir
Álfrún Örnólfsdóttir leikkona. Hún
hefur hafið sýningar á einleiknum
Kameljóni í Tjarnarbíói sem snýst
um spurninguna um að vera eða
ekki vera.
Einstök aðlögunarhæfni og sífelld
hamskipti valda því að Kameljónið
veit ekki lengur hver grunnlitur
þess er og í verkinu óttast aðalpers-
ónan að hún sé aðeins endurspeglun
af þeim sem á vegi hennar verða en
ákveður að hafa uppi á sjálfri sér.
Álfrún frumsýndi Kameljón fyrst
á Lókal fyrir tveimur árum og fór
með það á Act Alone á Suðureyri í
fyrrasumar. Hinar góðu viðtökur
voru henni hvatning til að taka það
upp aftur enda kveðst hún aldrei
fá nóg af því að pæla í hvernig
umhverfið móti manneskjuna. Leik-
stjóri er Friðgeir Einarsson.
„Ég gerði örlitlar styttingar og
smávægilegar breytingar á verkinu
núna, mest til að láta það falla betur
inn í rýmið,“ segir Álfrún og tekur
fram að sýningin sé 70 mínútur að
lengd og án hlés. - gun
Hugmynd sem lét mig ekki í friði
Álfrún Örnólfsdóttir leikkona sýnir einleikinn Kameljón í Tjarnarbíói næstu
helgar. Hún segir það tryllt ferðalag um hinar villugjörnu lendur sjálfsins.
Á SVIÐINU Álfrún í hlut-
verki sínu í Kameljóni sem
hún sýnir í Tjarnarbíói.
MYND/ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
„Það var ákveðin heimþrá í mér og
mig langaði að vinna með Íslend-
ingi,“ segir Lilja Rúriksdóttir dans-
ari um samstarf sitt og Finns Sig-
urjóns Sveinbjarnarsonar sem er
að semja tónlist við nýtt dansverk
hennar. Hún er stödd hér á landi en
fer út til New York nú í vikulokin til
að hefja æfingar á verkinu því það
verður frumsýnt í Brooklyn þann
10. október. Dansarar í því, auk
Lilju, eru þrír og markmiðið er að
sýna verkið á Íslandi eftir frum-
sýninguna. „Ég vona innilega að ég
geti komið með sýninguna heim,“
segir hún.
Lilja er tuttugu og þriggja ára
og er nýútskrifaður dansari frá
Juilliard-háskólanum í New York.
Hún er sest að í stórborginni
vestra, á þar bandarískan eigin-
mann sem hún kynntist í skólan-
um og hefur nóg að gera í dansin-
um með hinum ýmsu hópum. Við
útskriftina úr skólanum hlaut hún
verðlaun sem kallast The Hector
Zaraspe Prize for Choreo graphy og
eru veitt einum fjórða árs nemanda
ár hvert. „Það var mikill heiður,“
segir hún brosandi.
Í sumar hlaut hún styrk frá The
Mertz Gilmore Foundation til að
semja nýtt verk og réð félaga sinn,
Finn Sigurjón Sveinbjarnarson, til
að semja tónlistina. „Ég kynntist
Finni Sigurjóni í MH, við vorum
þar í sömu grúppu. Hann samdi tón-
list við dansverk í Listaháskólanum
fyrir Gígju vinkonu mína, ég kom
heim til að sjá þá sýningu og hreifst
af,“ segir Lilja. „Okkur gengur bara
vel með verkið. Byrjuðum hægt en
um leið og við þrengdum ramm-
ann sem við vinnum í miðar okkur
betur.“
Lilja er dóttir Hörpu Helgadótt-
ur sjúkraþjálfara og Rúriks Vatn-
arssonar lögfræðings. Segja má að
hún hafi farið dansandi gegnum
lífið og ætli að halda því áfram. „Ég
byrjaði í Dansskóla Eddu Schev-
ing þriggja ára. Svo var ég í List-
dansskóla Íslands en sautján ára
fór ég til New York á sumarnám-
skeið í Joffrey-ballettskóla. Ákvað
að halda áfram þar um veturinn
og hætta í MH. Svo hef ég verið í
Juilliard síðustu fjögur árin. Kom
heim á sumrin í fyrstu en hef svo
verið úti ýmist á námskeiðum eða
að dansa með dansflokkum.“
Hún kveðst hafa verið svo heppin
að geta búið hjá frænku sinni fyrst
þegar hún fór út í hinn stóra heim.
„Ég þekkti hana ekkert fyrir en
það var dásamlegt að fá að kynn-
ast henni,“
Lilja var í klassískum ballett
lengi vel en byrjaði að leggja aukna
áherslu á nútímadans í Juilliard.
„Þar lærði ég líka að semja sjálf.
Hluti af bekknum var tekinn í þann
kúrs og við þurftum að semja stór
verk.“
Dansflokkurinn sem Lilja er
mest í heitir The Dash Ensemble.
Það er stór grúppa sem fer um New
York og nágrenni með ýmis verk-
efni. „Við brestum í breikdans á
köflum,“ segir Lilja. „Oftast döns-
um við innan dyra en síðasta sýn-
ingin var úti.“
gun@frettabladid.is
Vonast til að koma
með sýninguna heim
Þegar Lilja Rúriksdóttir útskrifaðist sem dansari úr Juilliard-háskólanum í New
York í vor tók hún við eft irsóttum verðlaunum. Í framhaldinu fékk hún styrk til
að semja nýtt dansverk sem verður sýnt í Brooklyn í NY í næsta mánuði.
TÓNSKÁLDIÐ OG DANSHÖFUNDURINN Finnur Sigurjón og Lilja keppast við að forma dansverkið sem Lilja ætlar að frumsýna
ásamt fleirum í Brooklyn 10. október. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kameljón er fyrsti
einleikurinn minn og það
var mikil áskorun að
takast á við hann.
Í Juilliard lærði
ég líka að semja sjálf.
Hluti af bekknum
var tekinn í þann kúrs
og við þurftum að
semja stór verk.
Bókmenntahátíðin Mýrin skreyt-
ir sig með litskrúðugum fjöðr-
um páfugls þetta árið og nefnist
Páfugl úti í mýri. Á henni koma
fram hátt í 40 rithöfundar, mynd-
höfundar og fræðimenn til að hitt-
ast og spjalla um barnabókmennt-
ir, lesa upp og kenna sagnagerð og
myndlist.
Frekari upplýsingar um hátíð-
ina og gesti hennar má finna á
www.myrin.is.
Páfugl úti í mýri
Barnabókmenntahátíðin Mýrin fer fram í sjöunda
sinn í Norræna húsinu 9. til 12. október.