Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 64
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
HVAÐ? HVENÆR?
HVAR?
Leiklist
21.00 Leikfélagið Sýnir verður með spuna-
kvöld á Café Rosenberg. Stendur yfir frá
9 til 11.
Umræður
20.00 Ívar Brynjólfsson myndlistarmaður
tekur þátt í leiðsögn og ræðir við gesti um
verk sín á sýningunni Rás, sem nú stendur
yfir í Hafnarborg. Rás er sýning þar sem
teflt er saman verkum áhugaverðra lista-
manna sem þekktir eru fyrir að gera hug-
lægri reynslu efnisleg skil á áhrifaríkan
hátt.
Dansleikir
22.00 Busaball NFS verður í kvöld á Stap-
anum. Miðinn er á litlar 2.500 kr fyrir
nema NFS en 3.500 kr fyrir ÓNFS. Fram
koma ELOQ, Úlfur Úlfur og Micha Moor.
Dans
20.00 DJ Styrmir the Cat spilar fyrir dansi
á Prikinu í kvöld.
Tónlist
19.30 Víkingur Heiðar tekst á við 1. píanó
konsert Beethovens sem var á líku reki og
Víkingur þegar hann frumflutti konsertinn
í Vínarborg árið 1801. Hann mun einnig
spila Largo mistico eftir Pál Pampichler
Pálsson og Sinfóníu nr. 6 eftir Prokofiev.
Stjórnandi er Finninn Pietari Inkinen.
21.00 Raftónlistarmennirnir Future-
grapher og Bistro Boy koma fram á Dillon
á tónleikakvöldi íslensku plötuútgáfunnar
Möller Records.
21.00 Trúbadorarnir Alexander og Guð-
mann leika ábreiður af gömlum lögum á
English Pub í kvöld.
22.00 Trúbador Pétur leikur ábreiður
af frægum lögum á Den Danske Kro á
Ingólfsstræti 3 í kvöld.
Fyrirlestrar
12.00 Viola G. Miglio, dósent í málvís-
indum við spænsku- og portúgölskudeild
Kaliforníuháskóla í Santa Barbara og gesta-
dósent við Deild erlendra tungumála, bók-
mennta og málvísinda, heldur fyrirlestur
um nýjar aðferðir í bókmenntafræði í dag.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
16.30 Dr. Terry Hartig prófessor í
umhverfissálfræði við Uppsalaháskóla
mun flytja erindið Þétting byggðar: Stefna
í úlfakreppu? (The densification dilemma:
Stress, restoration and the pursuit of
urban sustainability) á opnum fyrirlestri í
Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 11.
september nk. kl. 16.30 í stofu M105.
Myndlist
11.00 Seinasti opnunardagur myndlistar-
sýningar Hrafnkels Sigurðssonar, Revela-
tion, er í dag í i8 Gallery á Tryggvagötu 16.
Opið frá 11 til 5.
17.00 Fabúlararnir eru að fjölga sér og
langar þá að fagna þessum viðburði með
þér og þínum. Gestum er boðið til að
hitta nýja meðlimi Fabúlu sem og aðra
listamenn gallerísins. Nýju Fabúlarnir eru
Þóra Einarsdóttir myndlistarkona, Dagný
Gylfadóttir keramiker og Embla Sigurgeirs-
dóttir keramiker. Léttar veitingar í boði.
17.00 Málverkasýning Evu Ísleifsdóttur,
Hálfur listamaður opnuð í dag kl. 17.00 í
SÍM salnum í Hafnarstræti.
Samkoma
09.00 Haustpartí hjá Lemon á Suðurlands-
braut í dag á milli 9 og 11. Lemon kynnir
gómsæta haustdjúsa sem eru ókeypis fyrir
gesti.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR
KRINGLAN OG SMÁRALIND
591 5300 · GAMESTODIN.IS
Leitin er hafin á ný fyrir stærsta
sjónvarpsviðburð Íslandssögunn-
ar, Ísland Got Talent!
Skráning er í fullum gangi og
landsmenn virðast vera mjög
spenntir fyrir nýrri þáttaröð.
Stöð 2 leitar að fólki á öllum
aldri sem hefur einstaka hæfi-
leika til að syngja, dansa, leika á
hljóðfæri, sýna töfrabrögð, fara
með uppistand eða annað sem
mun heilla þjóðina.
Áheyrnarprufur fara fram í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
Reykjavík, dagana 20. og 21. sept-
ember.
Skráning fer fram á stod2.is/
talent.
Skráðu þig í Ís-
land Got Talent
AUÐUNN BLÖNDAL FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI