Fréttablaðið - 11.09.2014, Síða 70
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
Ég hef verið að pæla í því hvað
sé sexí. Mitt sexí er annað en þitt
sexí og það er svolítið skemmti-
legt. Mér finnst líka eitthvað
ofsalega æsandi á miðvikudegi
en alls ekki á fimmtudegi. Ef ein-
hver segist vera hrifin af klúru
koddahjali væri það fljótt að
missa kitlið sitt ef viðkomandi
ætlar að klæmast á hverju ein-
asta kvöldi. Við manneskjurnar
erum nefnilega ansi sveigjanleg-
ar þegar kemur að þessum hlut-
um. Það getur skipt máli að hafa
smá fjölbreytni í þessu, rétt eins
og öðru í lífinu.
Þá er það mjög mikilvægt fyrir
okkar kynferðislega sjálf að vita
hvað kveikir í okkur ásamt því
að átta okkur á því að við kveikj-
um á okkur sjálfum, ekki aðrir
í kringum okkur. Það er nefni-
lega okkar að vera með augun
og skynfærin opin fyrir því sem
okkur þykir æsandi. Mjög marg-
ir falla í þá gryfju að ætla öðrum
að kveikja í þeim kynferðislega.
Þeir skrifa skort á kynlöngun á
ytri aðstæður eða bólfélaga sem
er ekki nægjanlega svona eða
hinsegin. Þegar þú skoðar kyn-
löngun þá þarf hún að byrja á
þér, ekki einhverjum öðrum. Þú
þarft að finna hvað þér þykir sexí
og hvernig það verkar á þig. Rétt
eins og okkur langar stundum
í einn mat fram yfir einhvern
annan, þá getur okkur þótt eitt
æsandi einn daginn og eitthvað
allt annað daginn eftir og þar
getur bólfélaginn einnig spilað
inn í. Þetta er ákveðin kúnst en
getur verið virkilega skemmtileg
æfing. Ein leið til að finna út úr
þessu er að prófa sig áfram. Það
þarf ekki að vera í kynferðislegu
samhengi heldur getur það verið
með lestri bókar, fatnaði, mat,
umhverfi, bara eiginlega öllu.
Hvað er það sem lætur þér líða
unaðslega og vel? Sem fær þig til
að geta leyft þér að njóta? Kyn-
líf snýst um að njóta og sumir
þurfa leyfi til að fá að njóta.
Rétt eins og þegar maður sekkur
ofan í góða bók og gleymir stað
og stund þá getur verið gott að
gefa sér rými til að gera slíkt hið
sama í kynlífinu. Bara vera, hér
og nú. Þessi núvitund er verk-
efni nútíma mannsins sem þeyt-
ist út um allt í leit að afþreyingu
frá utanaðkomandi áreitum. Inn
í þetta spilar svo einnig að gefa
sér tíma og rými til að uppgötva
eigin líkama og taka honum fagn-
andi, hvernig svo sem hann er.
Ein fullnæging kveikir á ann-
arri og því þarft þú að kveikja á
þínum eigin kveikiþræði áður en
þú býður bólfélaganum að baða
sig í birtunni frá þér.
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
AUSTURKÓR 121-125,
203 KÓP
- Mjög vel skipulögð einnar hæðar raðhús
- Stærðir eru ca. 150 fm með innb.bílskúr
- Afhendast fullbúin að utan fokheld að innan
- Gert er ráð fyrir rúmgóðri verönd
- Afhendingartími ca. 6 mánuðir.
- Mögulegt að fá afhentar fullbúnar án gólfefna
V. 34.7 – 35.5 millj. Sveinn s: 6900.820
„Kostnaður getur hlaupið á
hundruðum þúsunda sem ungt
fólk hreinlega stendur ekki undir,
er jafnvel nýkomið úr námi, með
ung börn og er að byrja að fóta
sig á vinnumarkaðnum. Kostnað-
ur sjúklinga í heilbrigðiskerfinu
hefur farið vaxandi síðastliðin ár,
en ef við berum okkur saman við
nágrannalönd okkar að þá stönd-
um við virkilega höllum fæti. Á
Norðurlöndunum, í Bretlandi,
Frakklandi og Þýskalandi þarf
fólk ekki að borga krónu þegar
það greinist með jafn alvarleg-
an sjúkdóm og krabbamein,“
segir Halldóra Víðisdóttir, for-
maður Krafts, félags ungs fólks
með krabbamein, og aðstandenda
þeirra. Félagið stendur fyrir
Styrktartónleikum í Norðurljósa-
sal Hörpunnar þann 17. septem-
ber næstkomandi. Í ár fagn-
ar Kraftur 15 ára afmæli sínu
og verður Neyðarsjóður Krafts
stofnaður formlega á afmælis-
deginum, 1. október. Hans hlut-
verk verður að standa við bakið
á ungu fólki með krabbamein
þegar kemur að kostnaði í sam-
bandi við lyf, læknisheimsóknir
og þess háttar.
Það sem hefur einkennt starf-
semi Krafts í gegnum árin er
jafningastuðningurinn sem með-
limir félagsins veita, en Kraftur
starfrækir stuðningsnet undir
handleiðslu sálfræðings. Ungt
fólk með krabbamein og aðstand-
endur þeirra hafa því kost á að
leita þangað eftir stuðningi frá
aðila sem hefur verið í svipuð-
um sporum. Þetta þekkir Hall-
dóra af eigin reynslu, en haustið
2011 missti hún systur sína eftir
stutta en erfiða baráttu við sjúk-
dóminn. Mánuði áður en hún tók
við sem formaður félagsins hljóp
hún í Reykjavíkurmaraþoninu
til styrktar Krafti. „Ég sá þarna
tækifæri til að gefa til baka en
eftir jafn erfiða lífsreynslu og að
missa einhvern svona nákominn
þá hafði ég mikla þörf fyrir það,“
segir Halldóra. Eins og áður
sagði verða tónleikarnir haldn-
ir í Norðurljósasal Hörpu þann
17. september kl. 20.00. Allir
sem fram koma þetta kvöld gefa
vinnu sína og er Atlantsolía sér-
stakur styrktaraðili tónleikanna.
Allur ágóði tónleikanna rennur
óskiptur í Neyðarsjóð Krafts.
Þeir sem fram koma á tónleikun-
um eru: Emilíana Torrini, Bagga-
lútur, Amaba Dama, KK & Ellen
og AbbaShow. Sérstakur gestur
verður Ari Eldjárn og kynnir
verður Sólmundur Hólm.
Miðasala fer fram á midi.is og
harpa.is.
- asi
Vilja aðstoða við að
kaupa lyf og lækna
Kraft ur, félag ungs fólks með krabbamein og aðstandenda, stofnar neyðarsjóð.
VILL STANDA VIÐ BAKIÐ Á UNGU FÓLKI MEÐ KRABBAMEIN Halldóra Víðisdóttir
er formaður Krafts. AÐSEND MYND
Ein fullnæging kveikir á annarri
Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00
Glös fyrir stór
og smá tilefni
Hjá Fastus fæst mikið úrval af glösum fyrir
stóra og litla veitingastaði. Komið í verslun
okkar að Síðumúla 16 og látið fagmenn
hjálpa ykkur við að velja réttu glösin.
F
A
S
TU
S
_H
_0
7.
03
.1
4
Diskó Berlín, níunda breiðskífa
hljómsveitarinnar Nýdönsk, er nú
komin út í rafrænu formi á Tónlist.is
og Spotify. Almennur útgáfudagur á
geisladiski er 13. september. Sama
dag heldur hljómsveitin tvenna tón-
leika í Eldborgarsal Hörpu.
Diskó Berlín var hljóðrituð í
Berlín, Hafnarfirði og Reykjavík
og inniheldur fjölbreytilega popp-
tónlist, oftar en ekki takfasta mjög.
Þrjú lög af plötunni hafa hljómað á
öldum ljósvakans síðustu mánuði
og hlotið ágætis viðtökur. Þau eru
ádeilusöngurinn Uppvakningar,
Nýr maður, sem hljómsveitin gerði
myndband við á dögunum, og titil-
lagið Diskó Berlín. - glp
Nýdanskir gefa út
Hljómsveitin Nýdönsk sendir frá sér nýja hljómplötu á
veraldlegu formi um helgina sem heitir Diskó Berlín.
NÝ PLATA
Nýdanskir
fagna nýrri
plötu um
helgina.
MYND/MUMMI LÚ