Fréttablaðið - 11.09.2014, Síða 72

Fréttablaðið - 11.09.2014, Síða 72
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 52 LITLIKRIKI 74 270 MOS.  Þrjú raðhús í fjögra húsa lengju. Enda- raðhúsið er 216 og tvö miðhús eru 202,5 fm. Húsin eru á tveimur hæðum með inn- byggðum 26,9 fm bílskúr. Timburverönd til suðurs. Húsin seljast í núverandi ástandi, þ.e. tilbúið til innréttinga, hiti er komin í gólf og rafmagn dregið í að hluta. Búið er að sandspartla og mála endaraðhúsið en hin tvö tilbúin til sandspörtlunar. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11.september milli kl. 17:00 og kl. 17:30. V. 110 m. 4540 SVALBARÐ 10 220 HF. 155 fm einbýlishús á einni hæð með bílskúr innarlega í botnlanga við Svalbarð 10 Hafnarfirði. Húsið er laust við kaupsamn- ing. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11.september milli kl. 17:00 og kl. 17:25. V. 37,9 m. 4528 LINDARGATA 10 101 RVK. Húsið er kjallari hæð og ris, byggt árið 1913.  Laust við kaupsamning. Samkvæmt deiliskipulagi:Leyfilegt er að rífa núverandi bíslag og stækka húsið þ.e. kjallara, hæð og ris til austurs upp að brunavegg við Lindargötu 12. Þarf að skoða vel. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11.september milli kl. 17:00 og kl. 17:30. V. 37,9 m. 4533 LAUGARNESVEGUR 52 Tvær íbúðir í endursteinuðu 102 fm húsnæði á einni hæð að Laugarnesvegi 52 Reykjavík. Húsnæðið var áður versluna- rhúsnæði en hefur nú verið breytt í 2ja herbergja íbúð og eina stúdíóíbúð sem er ekki samþykkt sem íbúð ein og sér. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11.september milli kl. 17:00 og kl. 17:25. V. 28,9 m. íbúð merkt 01-01. 4536 ENGIHJALLI 17 KÓP. íbúð 0201 er 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í góðu lyftuhúsi. Þrjú svefnherb. Endurnýjað baðherb. Tvennar svalir. Sameiginlegt þvot- tahús á hæðinni. Laus strax og sölumenn sýna.  Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11.september milli kl. 17:00 og kl. 17:25. V.  22,9 m. íbúð merkt 02-01. 4531 ENGJASEL 67 109 RVK. 3ja herbergja 91,7 fm íbúð á 2.hæð í húsi sem að mestu er klætt með steni að utan. Stæði í bílageymslu fylgir. Rúmgóð stofa, suðvestursvalir. Eignin þarfnast lagfæringa, laus strax, lyklar á skrifstofu.  Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11.september milli kl. 17:00 og kl. 17:30. V. 19,9 m. íbúð merkt 02-02. 4534 BJARKARÁS 9 GBÆ.  Glæsileg fullbúin 4-5 herbergja 141,7 fm nýleg efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt stæði í bílageymslu. 51,3 fm sér þaksvalir. Húsið er byggt 2006 . 3 svefnherb. Parket, sjónvarp- shol. Frábært skipulag. Laus strax, lyklar á skrifstofu.  Eignin verður sýnd fimmtu- daginn 11.september milli kl. 17:15 og kl. 17:45.V.  49,9 m. íbúð merkt 02-01. 4535 DIGRANESHEIÐI 31, KÓP.  Digranesheiði 31 íbúð 0101 er 59,4 fm 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi  Góð staðsetning. Eignin er til afhendingar við kaupsamning.  Eignin verður sýnd fimmtu- daginn 11.september milli kl. 17:45 og kl. 18:10. V. 16,9 m. íbúð merkt 01-01. 4530 HÁALEITISBRAUT 34 Góð 105 fm 4ra herbergja íbúð á 2.hæð við Háaleitisbraut í Reykjavík. Íbúðin er laus við kaupsamning.  Eignin verður sýnd fimmtu- daginn 11.september milli kl. 17:45 og kl. 18:10. V. 29,9 m. íbúð merkt 02-01. 4532 FJÓLUHVAMMUR 10 HF.  261 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 2ja herbergja aukaíbúð á jarðhæð. Efri hæðin skiptist í forstofu, 4 svefnherbergi, sjónvarpsstofu, stofu, eldhús og baðher- bergi. Á neðri hæð er rúmgóður bílskúr og aukaíbúð með sérinngang. Auðvelt er að opna á milli íbúða og nýta sem eina heild. Húsið er laust við kaupsamning.  Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11.september milli kl. 17:45 og kl. 18:10.V. 52,9 m. 4529 OPIN HÚS Í DAG OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag OP IÐ HÚ S fim mt ud ag „Við erum að leysa vandamál sem flestir þekkja vel. Þegar þú leggur út fyrir einhverju og vinirnir gleyma að borga þér,“ segir Arnar Jónsson, einn af stofnendum frumkvöðlafyrir- tækisins Memento sem unnið hefur að þróun nýs greiðsluapps sem kallast Sway. Memento tók þátt í Gullegginu seinasta vor og komst þar í úrslit. Um er að ræða smáfor- rit sem gerir kleift að halda utan um greiðslur og rukk- anir milli vina, vandamanna eða hópa en með appinu má ganga frá greiðslum sam- stundis bæði á einfaldan og skemmtilegan hátt. „Það er ákveðið vandamál sem getur fylgt því að taka þátt í sameiginlegum útgjöldum en ýmsir kannast við vand- ræðin sem fylgja því að skipta reikningi á veitinga- stað, fara í kortaleikinn í leigubílnum, rukka vin um pítsu frá helginni áður eða allt utanumhaldið sem getur fylgt því að kaupa gjafir með öðrum. Oft lendir reikning- urinn á einhverjum einum en seinlegt og óþægilegt getur reynst að innheimta þessar skuldir án þess að togstreita myndist,“ útskýrir Arnar. Hugmyndafræði Memento er að fyrir hverja greiðslu eða rukkun sé viðeigandi að taka mynd af atburðinum – upphæðinni til staðfestingar. Með þessu móti verður greiðsluferlið bæði skemmtilegra og félagsmiðaðra. Á einfaldan hátt geta notendur fundið vini sína og búið til tengslanet. „Kerfið er óháð bönkum, og í raun- inni töluvert frábrugðið þeim greiðslulausnum sem við þekkjum í dag,“ segir Gunn- ar Helgi einn af stofnendunum. „Það má segja að þetta sé eins og Snapchat eða Instag- ram fyrir greiðslur,“ bætir hann við. Fyrirtækið hefur í eitt ár unnið að smíði appsins sem gefur notandanum kost á að hafa fullkomna yfirsýn yfir ógreiddar skuldir ásamt því að öll samskipti er varða vin- agreiðslur eru á einum stað. Það er liðin tíð að þurfa að biðja vini um kennitölu og reikningsnúmer. Þessi lausn hentar því vel fyrir bæði ein- staklinga, hópa, góðgerðar- samtök sem og félagasam- tök. Sway er hannað fyrst og fremst með öryggi að leiðar- ljósi. Sett hefur verið saman gott teymi á sviði öryggis- mála og gagnagrunnskerfa sem hafa séð til þess að öryggi verði á heimsmæli- kvarða. Starfsmenn Sway eru nú að álagsprófa smáforrit- ið en það mun fara í notk- un á meðal almennings innan skamms. Forritið virkar bæði fyrir stýrikerfi Apple og Android. gunnarleo@frettabladid.is Leysa algengt peningavandamál Fjórir piltar leggja nú lokahönd á smíði nýs apps sem kallast Sway. Appið kemur til með að leysa vandamál fyrir þá sem fá aldrei til baka þá peninga sem þeir lána. Það virkar fyrir stýrikerfi Apple og Android. LEYSA VANDANN Hér eru þeir Arnar Jónsson, Gunnar Helgi Gunnsteinsson, Jón Dal Kristbjörnsson og Trausti Sæmundsson hafa unnið að smíði nýs greiðsluapps sem kallast Sway. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■ Kerfið er byggt upp ekki ósvipað þekktum samfélagsmiðlum líkt og Snapchat og Instagram þar sem samskipti með ljósmyndir og persónuleg tengslanet eru þungamiðjan. Hugmyndafræði Memento er að fyrir hverja greiðslu eða rukkun sé viðeigandi að taka mynd af atburðinum– upphæðinni til stað- festingar. Með þessu móti verður greiðslu- ferlið bæði skemmtilegra og félagsmiðaðra (e. more social). Í raun má segja að með Sway sé verið að færa netbankaþjónustu og snjallsíma- greiðslur bankanna upp á annað stig. ■ Sway er hannað fyrst og fremst með öryggi að leiðarljósi. Sett hefur verið saman teymi helstu öryggissérfræðinga landsins sem hafa séð til þess að öryggi er á heimsmælikvarða bæði á sviði almenns netöryggis sem og gagnavörslu. ■ Sway er hannað og þróað samhliða innleið- ingu öryggismála og því bitna öryggisþættirnir lítið á notendaupplifuninni. ■ Allt fjármagn er geymt á bankareikningi hjá viðskiptabanka og því ekkert eiginlegt fjár- magn í kerfinu sjálfu. Auðvelt er að tengja debet- og kreditkort við kerfið en engar kortaupplýsingar eru geymdar hjá Sway heldur eingöngu hjá færsluhirðum. ■ Öll samskipti sem og gögn eru dulkóðuð skv. nýjustu stöðlum. ■ Persónuupplýsingum er haldið leyndum fyrir öðrum notendum. ■ Kerfið verður einungis aðgengilegt í gegnum snjallsíma. Af öryggisástæðum verður ekki hægt að skrá sig inn í kerfið í síma annarra heldur einungis í þeim síma sem aðgangur var stofnaður. Þannig má tryggja að aðeins sé hægt að opna Sway-aðganginn úr eigin síma þar sem hver notandi er auðkenndur í sínu símtæki. ■ Hefðbundin pin-númer verða að sjálfsögðu til staðar þegar greitt er. Hvernig virkar appið? SWAY APP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.