Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 76
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 56
„Við Rottweiler-hundar vorum
bannaðir á Samfés á sínum tíma,“
segir rapparinn Erpur Eyvind-
arson, einnig þekktur sem Blaz
Roca. Hann var fenginn til að spila
á nýnemaballi Flensborgar í gær
eftir að plötusnúðarnir Óli Geir og
Gillzenegger voru afboðaðir. Skóla-
stjórn ákvað að afboða komu Óla
Geirs og Gillzenegger eftir að for-
eldraráð skólans hafði blandað sér
í málið.
„Ég hef aldrei almennilega skilið
hver viðmiðin eru fyrir því hvað er
í lagi og hvað ekki,“ segir Erpur.
Margir nemendur skólans lýstu
yfir óánægju sinni með skiptin á
samfélagsmiðlum. „Það átti að fá
Gillz og Óla Geir en því var sleppt
þar sem Gillz var náttúrulega
kærður fyrir nauðgun og Óli Geir
var með „Dirty Night“,“ segir einn
nemandi í samtali við blaðamann
og bætir við að hann telji Blaz Roca
vera lítt betri fyrirmynd.
„Hvað Blaz Roca varðar – þótt
ég rífi alveg kjaft og noti klúr orð
þá hef ég samt verið yfirlýst-
ur femínisti í 14 ár,“ segir
Erpur, aðspurður um þessa
gagnrýni. „Fólk túlkar
það að ég segi „mella“ og
„lufsa“ á sinn hátt en ég
nota ekkert fallegri orð um
karlmenn. Að segja „larf-
ur“ er ekki vesen en að segja
„lufsa“ er vesen. Þetta er oft
meiri spurning um tepru-
skap heldur en að það sé
verið að passa upp á ein-
hvern hóp sem vegið er
að,“ segir Erpur.
„Eðlilega er Nemenda-
félagið að gera það eina
í stöðunni til að ballið
virki, þú færð engan
gæja sem labbar inn í
fermingarkyrtlinum
lesandi upp úr Nýja
testamentinu. Ungt lið
hefur ekkert gaman
af Skátakórn-
um, hann gæti
komið og sungið
Kumbaya en það
vill það enginn.“
Skólameist-
ari Flensborg-
ar, Magnús Þor-
kelsson, segir að
skiptingin hafi
verið málamiðl-
un. „Ég er ansi
hræddur um að það séu ekki voða
margir sem eru með alveg hreinan
skjöld en þessir tveir stóðu í okkar
fólki. Listamenn búa til ákveðna
ímynd, ákveðna karaktera og sumir
fara yfir einhver strik sem okkur
líkar ekki við.“
„Á sínum tíma voru Rot tweiler
hundar umdeildir, Mínus var
umdeild, þeir í Botnleðju voru
þekktir fyrir að vera fullir opin-
berlega. Þetta er rokk og ról. Ég hef
aldrei almennilega skilið hverjar
forsendurnar eru fyrir því hvað má
og hvað ekki,“ segir Erpur. „Óháð
öllu þessu drama þá lofa ég því að
þetta verða vanskapaðir tónleikar.“
- þij
Listamenn búa til
ákveðna ímynd, ákveðna
karaktera og sumir fara yfir
einhver strik sem okkur
líkar ekki við.
Magnús Þorkelsson,
Skólameistari Flensborgar
Gott fólk sem gerir vonda hluti
BAKÞANKAR
Frosta
Logasonar
Í dag er 11. september – dagsetning sem ég tengi ósjálfrátt við hryðjuverk og
trúarofstæki. Í helgarblaði Fréttablaðsins
las ég viðtal við Madsjíd Nili, mjög við-
kunnanlegan sendiherra Írans á Íslandi.
ÍRAN er áhugavert ríki. Stjórnskipan þar
mætti flokkast sem íslamskt lýðveldi. Þar
ríkir trúarræði, með talsvert flókinni
blöndu klerkaveldis og einhvers konar lýð-
ræðislíkis.
ÍRANSKI embættismaðurinn er í óþægi-
legri stöðu þegar hann tjáir sig um trú-
arbrögð sem stjórntæki á fólk og þjóð-
ir. Hann viðurkennir að hryðjuverk
og öfgafólk séu eitt helsta vanda-
mál Mið-Austurlanda um þessar
mundir. En bætir strax við að
trúarbrögð séu ekki orsökin.
„Hvaðan fá þeir fjármagnið
og vopnin?“ spyr Madsjíd
Nili.
ÞARNA fetar sendiherr-
ann sömu braut og þeir
sem aðhyllast vinsælar samsæris-
kenningar á borð við þá, að fámenn,
en mjög valdaþyrst gyðingaklíka, í
Bandaríkjunum sé meginuppspretta
haturs og illverka í heiminum.
ER þér alvara Madsjíd Nili? Er það virki-
lega tilfellið að ungir múslimar frá Bret-
landi, Ástralíu og Noregi fari nú í stórum
stíl til Sýrlands og Íraks til að afhöfða
saklausa blaðamenn, krossfesta kristna
og gyðinga og taka þátt í fjöldaaftökum
á múslimum sem ekki tilheyra hinu rétta
íslam vegna þess að það eru svo miklir
peningar í jihad-bransanum? Eða lýsir
þetta hugsanlega vanþekkingu sendiherr-
ans á mannlegu eðli og náttúru?
VISSULEGA getur gamla villimannseðl-
ið verið ríkt í mörgum okkar á köflum.
Í gegnum árþúsundir hefur það komið
okkur að einhverju marki áfram í harðri
lífsbaráttu mannkyns. En þróunarlíffræð-
ingar eru flestir sammála um að sam-
kenndin hafi ráðið mestu í þeirri baráttu.
Það er hennar vegna sem við Vestur-
landabúar fyllumst viðbjóði og sorg þegar
við heyrum af opinberum hengingum
samkynhneigðra á torgum úti í Teheran,
höfuðborg íslamska lýðveldisins Írans.
VONT fólk mun alltaf gera vonda hluti.
Síkópatar gera það líka. Þeim er ekki
sjálfrátt. En til að fá gott fólk til að fram-
kvæma þann hrylling sem við sjáum dag-
lega í fréttum frá Mið-Austurlöndum um
þessar mundir, þá þarftu trúarbrögð.
Fatahönnuðurinn og fyrrum No
Doubt-söngkonan Gwen Stefani
vinnur að nýrri plötu um þessar
mundir, en síðasta plata hennar,
The Sweet Escape, kom út árið
2006. Mun
enginn
annar en
Pharr ell
Williams
vinna með
Stefani að
plötunni.
Williams
sagði að
hann hlakk-
aði mikið
til að vinna
með svona
miklum
snillingi
sem henni
og að töffaraskapur hennar
myndi ná nýjum hæðum á plöt-
unni. Þetta er þó ekki í fyrsta
sinn sem Williams og Stefani
vinna saman, en síðast unnu þau
saman að slagaranum Hollaback
Girl sem kom út árið 2004.
Töff araskapur-
inn mun ná
nýjum hæðum
GWEN STEFANI
Ungt lið hefur ekkert gaman
af Skátakórnum að syngja
Gillz og Óli Geir spila ekki á skólaballi Flensborgar eins og stóð til vegna foríðtar þeirra. Erpur Eyvindarson
var fenginn til að koma fram í stað þeirra, en sumir nemendur telja Blaz Roca lítt betri fyrirmynd.
YFIRLÝSTUR FEMÍNISTI TIL FJÓRTÁN ÁRA Erpur segist rífa kjaft og nota klúr orð en segist þó vera yfirlýstur femínisti.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GILLZENEGGER
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
DENOFGEEK.COM
RICHARD ROEPER-CHICAGO SUN TIMES
PARÍS NORÐURSINS 5:30, 8, 10
LIFE OF CRIME 8
TMNT 3D 5:30
LET’S BE COPS 10:10
LUCY 8
AÐ TEMJA DREKAN SINN 2D 5:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
PARÍS NORÐURSINS LÚXUS KL. 8 - 10.15
TMNT 2D KL. 3.30 - 5.45
TMNT 3D KL. 3.30 - 8
THE GIVER KL. 5.45 - 10.15
LET́S BE COPS KL. 3.30 - 5.40 - 8 -10.20
EXPENDABLES KL. 8 - 10.40
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
THE GIVER KL. 8 - 10.15
ARE YOU HERE KL. 10.40
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8
NIKULÁS Í FRÍI KL. 5.45
DAWN . . . PLANET OF THE APES KL. 10.15
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 8
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
MIÐASALA Á
Save the Children á Íslandi