Fréttablaðið - 11.09.2014, Síða 80
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 60
Kaupir ekki fórnfýsi og ástríðu
Freys Alexanderssonar og Davíðs Snorra Jónassonar beið erfi tt en jafnframt spennandi verkefni þegar þeir tóku við þjálfun uppeldis-
félagsins haustið 2012. Leiknismenn höfðu gengið í gegnum margt árin á undan, þar á meðal fráfall Sigursteins Gíslasonar, fyrrverandi
þjálfara liðsins. En nú, tveimur árum síðar, er aft ur bjart yfi r Breiðholtinu því Leiknir mun spila í deild þeirra bestu á næsta tímabili.
FÓTBOLTI „Þetta var alveg magnað
og í raun alveg eins og maður var
búinn að ímynda sér þegar maður
lagðist á koddann, lokaði aug-
unum og sá þetta fyrir sér. Þetta
var, eins og maður hefur oft sagt,
draumi líkast.“
Svona lýsti Freyr Alexanders-
son fimmtudeginum 4. september
fyrir blaðamanni Fréttablaðsins
þegar hann hitti hann og Davíð
Snorra Jónasson, þjálfara Leikn-
is, að máli eftir að Breiðholtsliðið
hafði tryggt sér sæti í efstu deild
í fyrsta skipti. Leiknir er búinn að
vera í toppsæti 1. deildar meira og
minna allt tímabilið, en það var
ekki fyrr en eftir 2-1 sigur á Þrótti
frammi fyrir tæplega 1.000 manns
á Leiknisvelli sem úrvalsdeildar-
sætið var gulltryggt.
Allir hugsuðu mikið til hans
Leiknisliðið er að mestu skipað
heimamönnum sem hafa spilað
lengi saman og búa, þrátt fyrir
ungan aldur, yfir mikilli reynslu,
ánægjulegri jafnt sem sárri.
Haustið 2010 var Leiknir í
dauðafæri til að tryggja sér sæti
í efstu deild, en sá draumur varð
að engu þegar liðið tapaði 1-3
fyrir Fjölni á heimavelli í síðustu
umferðinni.
„Eftir tímabilið 2010 töluðu allir
um að við myndum bara taka þetta
næst, en ég held að það hafi verið
meira högg en menn gerðu sér
grein fyrir,“ sagði Davíð, en annað
og sárara áfall reið yfir nokkrum
mánuðum seinna.
Vorið 2011 dró Sigursteinn
Gíslason, sem tók við þjálfun
Leiknis haustið 2008, sig í hlé
vegna veikinda. Sigursteinn var
virtur og vinsæll meðal leikmanna
og þeirra sem stóðu að félaginu.
Sumarið 2011 reyndist Leiknis-
mönnum erfitt, en þeir björguðu
sér frá falli í lokaumferðinni eftir
sigur á ÍA. Sigursteinn féll svo frá
í byrjun árs 2012 eftir baráttu við
krabbamein.
„Þetta voru rosaleg áföll, ég
held að við getum alveg sagt það í
dag,“ sagði Freyr og sneri talinu að
Sigursteini heitnum: „Það var eins
og hann væri uppalinn hérna. Ég
þekkti hann ekkert áður en hann
tók við Leikni, en þegar ég kom
hingað tók hann á móti mér eins og
hann væri einn af uppöldu mönn-
unum. Strákarnir tala ofboðslega
vel um hann og eiga honum mikið
að þakka. Allir sem léku undir
hans stjórn hugsuðu mikið til hans,
bæði fyrir og eftir leikinn gegn
Þrótti,“ sagði Freyr.
„Hann tók öllum opnum
örmum,“ bætti Davíð við. „Sama
hver þú varst eða hvað þú hafðir
gert, þá tók hann vel á móti þér og
hann var tilbúinn að hjálpa öllum.
Hann var frábær karakter.“
Leiknir var áfram í vandræðum
sumarið 2012. Liðið var í fallbar-
áttu eins og árið á undan og þegar
þrír leikir voru eftir var Willum
Þór Þórssyni sagt upp störfum, en
hann hafði verið ráðinn þjálfari
Leiknis haustið 2011. Gunnar Ein-
arsson, þáverandi leikmaður, og
Davíð tóku við til bráðabirgða og
Leiknir bjargaði sér frá falli með
því að vinna þrjá síðustu leikina.
Ætlaði að taka mér ársfrí
Síðar um haustið tóku Davíð og
Freyr svo við Leiknisliðinu í sam-
einingu. Þeir eru báðir uppaldir
Leiknismenn og byrjuðu snemma
að þjálfa í yngri flokkum félags-
ins. Freyr söðlaði síðan um, var
aðstoðarþjálfari og svo aðalþjálf-
ari kvennaliðs Vals með góðum
árangri, auk þess sem hann var
aðstoðarþjálfari Kristjáns Guð-
mundssonar hjá karlaliði Vals
2011-2012.
Freyr segist ekki hafa þurft
langan umhugsunarfrest þegar
uppeldisfélagið leitaði til hans
haustið 2012: „Fyrst var rætt við
mig um hvort ég hefði áhuga á að
koma í Leikni og ég sagði strax já.
Svo þegar ég settist á fund með
stjórninni var þetta nefnt við mig,
að vinna með Davíð. Mér fannst
það strax áhugavert og svo hitt-
umst við og ræddum málin, hvern-
ig við vildum gera þetta og eftir
þann fund var þetta aldrei spurn-
ing, allavega af minni hálfu, að við
myndum gera þetta saman.“
Davíð segir að hann hafi verið
búinn að ákveða að taka sér frí frá
þjálfun, en hafi síðan snúist hugur:
„Áður en ég tók við meistara-
flokknum fyrir síðustu þrjá leik-
ina 2012 var ég búinn að tilkynna
að ég ætlaði að taka mér ársfrí.
„En það gekk vel undir lok sum-
arsins og ég hafði gaman af þessu.
Stjórnin kom svo að máli við mig
og spurði hvort ég vildi vera áfram
og vinna með Frey, og eftir sam-
tal okkar var ég ákveðinn í að
láta reyna á þetta,“ sagði Davíð
sem var aðeins 25 ára þegar hann
tók við Leikni, en hann verður að
öllum líkindum yngsti þjálfarinn
í Pepsi-deildinni á næsta tímabili.
Tölum sama tungumálið
Þjálfaradúó hafa ekki verið algeng
í fótboltanum hér heima, en Freyr
og Davíð segja samstarfið ganga
vel.
„Við settum okkur vinnureglur
um hvernig við vildum hafa hlut-
ina,“ sagði Freyr, en hann stýrði
kvennaliði Vals í samstarfi við
Elísabetu Gunnarsdóttur sumarið
2008. Freyr segir að það hafi verið
góð reynsla sem hann hafi getað
deilt með Davíð.
„Ég sé þjálfun ekki fyrir mér
öðru vísi en samstarf,“ bætti Freyr
við. „Ég heyrði einhvern tímann
þjálfara segja að það væri bara
ein ráðandi rödd, en ég bara ekki
sammála því. Það er hins vegar
ein hugmyndafræði og ein stefna
og það er það sem við erum með.
Við erum með sitthvora röddina en
tölum samt sama tungumálið.“
Freyr lætur vel af samstarf-
inu við Davíð: „Þetta er ofboðs-
lega gott samstarf og hefur verið
þvílíkur kostur fyrir þetta félag;
hvað við höfum náð að gera mikið
og gera það svo vel. Leikmennirnir
vita nákvæmlega hvað ég sé um og
hvað Davíð sér um og við pössum
okkur á að það sé skýrt hvað við
erum að gera.“
Annars látum við ykkur fara
Freyr og Davíð segja að fyrsta
verkefni þeirra eftir að þeir tóku
við Leikni hafi verið að ná aftur
jafnvægi í leikmannahópnum og
kveða niður drauga fortíðarinnar.
„Það var alveg skýrt að það
fyrsta sem við þurftum að gera
var að taka til í höfðinu á leik-
mönnunum, hreinsa það neikvæða
í burtu og byggja sjálfstraustið
upp á nýtt,“ sagði Freyr.
Davíð bætti við að þeir hefðu
þurft að minna leikmennina á
hversu góðir þeir væru: „Við
þurftum að minna liðið á hvaða
hæfileika við höfðum í höndunum.
Þegar þú hefur farið í gegnum það
að vera næstum því farinn upp og
næstum fallinn tvisvar, þá er allt á
fullu í hausnum á þér. Við þurftum
að koma jafnvæginu aftur á.“
Leiknir endaði í 7. sæti 1. deild-
ar aðlögunarárið 2013, en Freyr
og Davíð segja að markmiðið hafi
alltaf verið að komast upp um
deild árið 2014.
„Þegar við horfðum á hópinn
sem við vorum með í höndunum,
þá sáum við nokkra leikmenn
sem gátu spilað í Pepsi-deildinni.
Við skoruðum á þá að gera það í
Leiknisbúningnum,“ sagði Davíð
og Freyr bætti við:
„Við sögðum við þessa leikmenn
sem höfðu getuna til að spila í
Pepsi-deildinni: Við gefum þessu
séns til 2014, ef það tekst ekki
látum við ykkur fara! Þið þurfið að
spila á næsta getustigi. Við settum
þvílíka pressu á okkur að komast
upp í ár.“
Munum byggja á okkar kjarna
Talið berst næst að möguleikum
Leiknis í Pepsi-deildinni á næsta
tímabili. Þau lið sem hafa farið
upp í Pepsi-deildina á síðustu árum
hafa mörg hver fallið eftir eitt eða
tvö ár í deild þeirra bestu. Það er
því hægara sagt en gert að festa
sig í sessi þar, en hvað þarf gerast
hjá Leikni til að svo verði?
„Eftir tímabilið munum við
skoða hvernig við ætlum að nálg-
ast það verkefni. Það verður á
margan hátt öðru vísi en í 1. deild-
inni,“ sagði Freyr og bætti við
að liðið yrði áfram byggt upp á
heimamönnum:
„Við þurfum að halda í og rækta
styrkleika okkar. Við munum allt-
af byggja þetta á okkar kjarna.
Leikmennirnir sem komu okkur
upp munu fá tækifæri til að sýna
að þeir eigi skilið að spila í Pepsi-
deildinni.
„En það fær enginn neitt gefins
hérna, það er alveg klárt. Þó þeir
séu uppaldir og þó þeir hafi komið
liðinu upp, þá er eins gott að allir
mæti með vinnuhanskana í nóvem-
ber þegar undirbúningstímabilið
hefst.“
Þjálfararnir segja að Leiknir
þurfi að bæta í og þeir muni styrkja
liðið með skynsamlegum hætti:
„Við munum styrkja okkur, en það
verður enginn gámur fenginn hing-
að. Við ætlum að fá 2-3 leikmenn,
að því gefnu að við höldum öllum,“
sagði Freyr og Davíð bætti að þeir
þyrftu að velja leikmenn sem passa
vel inn í Leiknis umhverfið.
Kaupir það ekki í gámi
En hver er helsti munurinn á
Pepsi-deildinni og 1. deildinni?
„Helsti munurinn er leikskilning-
ur og reynsla leikmanna. Og svo
eru bestu leikmennirnir í Pepsi-
deildinni auðvitað mun betri en
bestu leikmennirnir í 1. deild-
inni,“ sagði Freyr og bætti við að
reynslan sem lið eins og FH og KR
byggju yfir væri svo mikilvæg.
„Varðandi þann þátt fótboltans
eigum við auðvitað ekki séns. En
það eiga fá lið í Pepsi-deildinni
séns í þetta sem við eigum, þenn-
an styrkleika innan félagsins, sam-
heldnina, ástríðuna og fórnfýsina.
Þú kaupir það ekkert í einhverjum
gámi í byrjun maí.
„Við vitum alveg hverjir verða
veikleikar okkar. Það er bara
spurningin hversu vel við náum
að fela þá og hversu vel við náum
að nýta styrkleika okkar,“ sagði
Freyr enn fremur.
„Þetta verður líka lærdómsferli
fyrir allt umhverfið hjá félaginu.
Það eru ekki bara 20 leikmenn
sem þurfa að undirbúa sig, held-
ur allir sem eru í kringum félagið.
Við þurfum að hjálpast að,“ sagði
Davíð að lokum. ingvithor@365.is
SYNIR BREIÐHOLTSINS Davíð Snorri Jónasson og Freyr Alexandersson eru báðir uppaldir Leiknismenn. Þeir settu stefnuna á að koma félaginu sínu upp í Pepsi-deildina í
ár og það gekk eftir. Leiknir verður meðal tólf þátttökuliða í Pepsi-deildinni árið 2015. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÓSVIKIN GLEÐI Gríðarlegur fögnuður braust út eftir að Pepsi-deildar sætið var tryggt eftir sigur á Þrótti. Leiknir spilar í efstu
deild sumarið 2015 í fyrsta sinn í rúmlega 40 ára langri sögu félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI