Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 82

Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 82
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 62 HANDBOLTI Handknattleikssam- band Íslands sendi frá sér yfirlýs- ingu í gær þar sem tilkynnt var að sambandið hefði ákveðið að kæra ákvörðun Alþjóðahandknattleiks- sambandsins, IHF, um að úthluta Þýskalandi lausu sæti á HM til dómstóls sambandsins. Aðeins fjórir mánuðir eru til stefnu en þetta er líklegast fyrsta skref- ið enda mun HSÍ líklegast þurfa að fara með málið fyrir Alþjóða- íþróttadómstólinn í Lausanne í Sviss sem tók fyrir málefni Luis Suárez í sumar. IHF afturkallaði þátttökurétt Ástralíu í upphafi sumarsins og úthlutaði Þýskalandi sæti þeirra þrátt fyrir að evrópska handknatt- leikssambandið, EHF, hefði þegar tilkynnt HSÍ að Ísland væri fyrsta varaþjóð frá Evrópu. Lokaúrræði Málið hefur tekið langan tíma og staðfesti Guðmundur B. Ólafs- son, framkvæmdastjóri HSÍ, við Fréttablaðið að þetta væri lokaúr- ræði HSÍ. „Þetta er í raun eini valkost- urinn í stöðunni hjá okkur. Við höfum ákveðinn tímaramma til að vinna eftir og við lögðum fram tvær tillögur, fyrst að fjölga liðum. Þeir þurftu að ræða þetta að bæta við liðum en sögðu nei á endanum. Þá könnuðum við að fara með málið fyrir Alþjóða- íþróttadómstólinn en þeir þurfa að samþykkja það og þeir sögðust ekki geta tekið þá ákvörðun fyrr en í nóvember þegar búið væri að ræða þetta í ráðinu,“ sagði Guð- mundur en IHF hefur tekið langan tíma í allar ákvarðanir og ákvað HSÍ að höfða mál fyrir dómstóli IHF til þess að reyna að flýta fyrir málsmeðferð. „Við reynum ekki að hugsa svo langt að málið endi fyrir Alþjóða íþróttadómstólnum en við ætlum ekki að sætta okkur við þetta. Þeir setja nýjar reglur og tilkynna þetta á sama tíma, þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð og við munum ekki sitja hjá,“ sagði Guðmundur. Snýst um huglægt mat Samkvæmt reglunum er litið til áhrifa fjölmiðlunar og markaðs- setningar. „Þetta er huglægt mat, ekki hlutlaust mat. Það er verið að segja að þetta þurfi að vera sterkt lið frá stórri þjóð að þeirra mati og ef svo er þá á Ísland aldrei möguleika á að komast aftur inn. Þeir vita það að það munu fleiri Þjóðverjar en Íslendingar mæta til Katar.“ Forráðamenn HSÍ hafa einnig bent IHF á að jafn stórar breyt- ingar á regluverki ættu ekki að taka gildi á miðju keppnistímabili heldur í næstu keppni. „Okkar sjónarmið er að ef það er hægt að setja svona reglur eigi þær ekki að taka gildi strax. Þær eiga að taka gildi í næstu keppni á eftir. Þetta eru skrýtin vinnubrögð að breyta reglunum svona í miðri keppni, ég veit að Ísland kæmist aldrei upp með þetta, ekki það að við myndum reyna það. Það er í lagi að gera þetta ef þetta er eitt- hvað sem hefur jákvæð áhrif en ef þetta er eitthvað sem skaðar ein- hvern þá er ekki hægt að bjóða upp á það.“ Erum að lenda í tímaþröng Aðeins fjórir mánuðir eru þar til flautað verður til leiks í Katar og eru forráðamenn HSÍ því að falla á tíma í von sinni um að úrskurði IHF verði breytt. „Tíminn er auðvitað mjög naum- ur í þessu og við erum að setja þá í erfiða stöðu. Við vitum ekki hvernig þessi dómstóll virkar, við höfum aldrei lent í svona áður og þetta verður fróðlegt,“ sagði Guð- mundur. kristinnpall@365.is Eini kosturinn í stöðunni HSÍ kærði til Alþjóða handknattleiksdómstólsins í gær þá ákvörðun IHF að úthluta Þýskalandi sæti á HM. Guð- mundur B. Ólafsson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að Ísland sé að falla á tíma enda aðeins 4 mánuðir í mót. SVEKKTUR Guðjón Valur Sigurðsson var að vonum svekktur eftir tapið gegn Bosníu en ólíklegt er að Ísland fái sæti Ástralíu á HM í Katar í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Gunnar Guðmunds- son mun ekki stýra liði Selfoss á næstu leiktíð, en stjórn knatt- spyrnudeildar hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi hans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu félags- ins. Selfoss situr í 9. sæti 1. deildar með 26 stig eftir 20 umferðir, en liðið á tvo leiki eftir. Gunnar tók við Selfossi af Loga Ólafssyni haustið 2012. Undir hans stjórn hafnaði liðið í 8. sæti 1. deildar 2013, en miklar breyt- ingar hafa orðið á liðinu á milli síðustu tímabila. Yfirlýsingin á heimasíðu Sel- foss er svohljóðandi: „Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss hefur ákveðið að nýta uppsagnarákvæði í samningi sínum við Gunnar Guðmundsson, þjálfara meistaraflokks karla, að loknu tímabilinu. Gunnari eru þökkuð góð störf þau tvö ár sem hann hefur starfað fyrir félagið og mun hann stýra liðinu út tíma- bilið. Þetta gefur stjórn deild- arinnar góðan tíma til að finna arftaka Gunnars fyrir næsta keppnistímabil.“ - iþs Gunnari sagt upp á Selfossi HVAÐ NÚ? Gunnar þarf að finna annað félag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.