Fréttablaðið - 23.09.2014, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 23.09.2014, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 23. september 2014 | SKOÐUN | 15 HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Flestir eru sammála því að það sé skynsamlegt að stunda forvarnir, aðrir segja að skynsamlegar for- varnir séu þær sem skila árangri. Þá eru til sumir sem vilja bara lækna það sem aflögu hefur farið og þegar skjólstæðingar kvarta eða koma með einkenni sé rétti tíminn til að bregðast við. Enn aðrir halda því á lofti að lækna- stéttin og heilbrigðiskerfið með sínum leiðbeiningum sé að stuðla að oflækningum og mögulega valda skaða fremur en gera gagn, að minnsta kosti miklum kostnaði. Allt eru þetta atriði sem þarf að skoða í samhengi. Nýlegar greinar í British Medical Journal vekja áleitnar spurningar sem vert er að skoða nánar. Ef við veltum fyrir okkur forvörnum þá snúast þær fyrst og fremst um að finna sjúkdóma áður en þeir gefa einkenni. Eðli máls- ins samkvæmt er verið að skoða „heilbrigða“ einstaklinga í von um að finna eitthvað óheilbrigt svo bregðast megi við því í tíma. Dæmi um slíkar forvarnir er skimun fyrir brjósta- og legháls- krabbameini, önnur væri skimun fyrir ristilkrabbameini. Áhættu- mat í tengslum við hjarta og æða- sjúkdóma er svipað og þá mætti líka telja til þessa háan blóðþrýst- ing. Heilsuefling er aftur á móti aðgerð sem lýtur að því að auka eða bæta heilsu viðkomandi. Slíkt væri að breyta mataræði, auka hreyfingu, hætta að reykja og svo framvegis. Skili því sem til er ætlast Þegar skoðað er hvort það sé fýsilegt að stunda forvarnir og að ríkið eða sjúkratryggingar niður- greiði þær þá er nauðsynlegt að þær skili því sem til er ætlast, sú er ekki raunin í flestum sjúkdóm- um. Því er ekki skipulega í dag neins staðar í heiminum skim- að fyrir t.d. lungnakrabbameini og þannig mætti nefna fjölda annarra sjúkdóma. Núverandi þekking dugar ekki til að það ríki sátt um slíka skimun. Víða um heiminn hafa leiðbeiningar breyst varðandi skimanir líkt og við brjóstakrabbamein, USPSTF (US Preventive Services Task Force) í Bandaríkjunum hækk- aði aldur skimunar úr 40 í 50 ár. Krabbameinsfélagið breytti leiðbeiningum sínum um legháls- krabbameinsskimun úr tveimur í þrjú ár nýverið. Þá hefur verið umræða um að hætta skimun við ákveðinn aldur, t.d. fyrir brjósta- krabbameini. Enn hefur ekki haf- ist skimun fyrir ristilmeini. Ljóst er að ekki eru öll kurl komin til grafar í þessu. Víða er umræða um genapróf sem hluta af forvörnum og má til gamans geta þess að Angelina-Jolie- effektinn sem kallaður er, þegar hún opnaði umræðuna um að hafa látið fjarlægja bæði brjóst sín vegna verulega aukinnar áhættu á að þróa með sér brjósta- krabbamein, sprengdi skalann á slíkum skoðunum bæði aust- an hafs og vestan. Íslendingar hafa heldur ekki farið varhluta af möguleikunum sem felast í því að vita með nokkurri vissu hverjir eru í hvaða áhættu með notkun á gagnagrunni DeCode. Hin siðferðilega spurning er svo allt önnur og er henni ósvarað þar sem alltaf er verið að vinna með líkur í þessum heimi. Til viðbótar við erfðaþætti koma svo umhverfis- og lífsstílstengd- ir þættir til að rúnna af áhættu- jöfnuna. Ábyrgð á eigin heilsu Skimun á þjóðarvísu kann að skila takmörkuðum árangri í mörgum tegundum sjúkdóma, en það sem kallast einstaklings- miðað áhættumat er líklega það sem koma skal. Má benda á slíkar leiðbeiningar varðandi blöðruhálskirtilsmein og marga aðra sjúkdóma þar sem skyn- samlegt getur talist að láta meta persónubundið hver áhætta við- komandi er og nota þá tæki- færið í leiðinni til að koma inn með heilsueflingu og markmiða- setningu. Sé litið til lækninga almennt hefur auðvitað orðið gífurleg þróun og möguleikar okkar á að lækna sjúkdóma hafa gjörbreyst á undanförnum ára- tugum og munu gera það áfram. Mikill þrýstingur er þó í mark- aðssetningu lyfja og nýrra með- ferða sem kosta mjög mikla pen- inga og er varhugavert að ætla sér að tækla heilsufarsvanda þjóða á þann máta þar sem vitað er að heilbrigðiskerfi Vestur- landa þola ekki núverandi kostn- að, hvað þá þann sem koma skal. Oflækningar okkar eru þar með líka að bíta í rassinn á okkur að einhverju leyti. Í ofannefndum greinum er sér- staklega rætt að slíkt sé að eiga sér stað í meðferð háþrýstings en viðmiðunarmörk um það hvenær eigi að hefja meðferð hafa farið lækkandi. Þar telja höfundar að allt að 20% ein- staklinga sem eru með vægan háþrýsting hafi engan ábata af meðferð og það sé eingöngu verið að búa til kostnað sem þeir meta á 32 milljarða dala árlega. Án þess að vísindin hafi úttalað sig um það má eflaust færa rök fyrir hinu sama í með- höndlun kólesteróls og ýmissa fleiri kvilla sem taldir eru upp sem áhættuþættir sjúkdóma. Tækifærin liggja í því að tækla einstaklinginn, hegðun hans og áhættuþætti. Tæki, tól og töflur skipta líka máli, mikilvægast er þó að við berum ábyrgð á eigin heilsu! Forvarnir, lækning eða oflækningar? Íslendingar hafa heldur ekki farið varhluta af möguleikunum sem felast í því að vita með nokkurri vissu hverjir eru í hvaða áhættu með notkun á gagnagrunni DeCode. Hin siðferðilega spurning er svo allt önnur og er henni ósvarað þar sem alltaf er verið að vinna með líkur í þessum heimi. GEFÐU HÆNU gjofsemgefur.is 9O7 2OO3 Plastrusl í hafinu hefur margvísleg neikvæð áhrif á lífríkið, samfélag- ið og hagkerfið. Meginmarkmið ráðstefnunnar er að leita leiða til að draga úr þessum áhrifum með því að skapa umræðu um vand- ann og kalla eftir hugmyndum um lausnir. Ráðstefnan er hluti af for- mennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og er styrkt af henni. RÁÐSTEFNA Í HÖRPU 24. SEPTEMBER 2014 KL. 9–17 Ráðstefna um plast í hafinu MEÐAL EFNIS » Umhverfisráðherra flytur ávarp » Alþýðuvísindi og viðhorf almennings » Niðurstöður ráðstefnu um rusl í hafi 2013 » Svæðisáætlanir um rusl í hafi » Nýjustu athuganir á míkróplasti í heimshöfunum » Norrænt samstarf um rusl í hafinu » Plast í hafi frá sjónarhóli plastiðnaðarins » Plast í hafi frá sjónarhóli útgerðarinnar » Plast í hafi frá sjónarhóli úrgangsgeirans » Samantekt MÁLSTOFUR » Útgerð, fiskvinnsla og plastrusl í hafi » Míkróplast úr neytendavörum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.