Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 4
2. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
ALÞINGI Búið er að leggja fram
182 mál á Alþingi í haust. Af
þeim á stjórnarandstaðan 112.
Stjórnarandstaðan hefur lagt
fram 14 lagafrumvörp, 23
þingsályktanir og 75 fyrirspurn-
ir.
„Á meðan sú hefð ríkir á
Alþingi að þingmannafrumvörp
stjórnarandstöðunnar eru nán-
ast aldrei samþykkt sjá Píratar
ekki tilgang í að leggja þau fram,
enda þingflokkurinn fámenn-
ur. Mér finnst hrein tímasóun
að eyða tíma í að semja frum-
vörp,“ segir Birgitta Jónsdóttir
þingmaður og bætir við að þó að
Píratar leggi ekki mikið upp úr
því að leggja fram frumvörp þá
leggi þingmenn Pírata áherslu á
að leggja fram tillögur að laga-
breytingum á þeim frumvörpum
sem Alþingi hefur til meðferðar
á hverjum tíma.
Píratar hafa það sem af er
þingi lagt fram þrjár þings-
ályktunartillögur. „Við leggjum
áherslu á að leggja fram vand-
aðar þingsályktunartillögur og
leggjum mikla vinnu í þær. Það
eru mun meiri líkur á að stjórn-
arandstaðan fái þingsályktunar-
tillögur samþykktar heldur en
lagafrumvörp,“ segir Birgitta.
Píratar hafa lagt fram fjölda
fyrirspurna á þingi í haust.
„Ég hef fengið mjög gagnleg-
ar upplýsingar um hin ýmsu mál
með því að leggja fram fyrir-
spurnir. Upplýsingar sem ég
hefði ekki fengið að öðrum kosti.
Fyrirspurnir eru góð leið fyrir
þingmenn til að hafa eftirlit með
framkvæmdarvaldinu. Þær eru
líka góð leið til að hreyfa við
málum,“ segir hún og bætir við
að almenningur eigi oft á tíðum
erfitt með að fá upplýsingar úr
stjórnsýslunni. Því hafi hún og
flokkssystkini hennar lagt fram
fyrirspurnir fyrir fólk sem hafi
komið fram með
vel rökstuddar
beiðnir þar að
lútandi.
„Við er u m
með mörg mál í
gangi sem eiga
eftir að l íta
dagsins ljós á
næstu dögum,“
s e g i r G u ð -
mundur Steingrímsson, formað-
ur Bjartrar framtíðar, og nefnir
að Björt framtíð ætli að leggja
fram frumvarp um uppljóstrara
og réttindi þeirra, þá sé frum-
varp um breytingar á manna-
nafnalögum á leiðinni og annað
um mannréttindamál.
„Við ætlum líka að endurflytja
frumvarp til laga um breyting-
ar á frídögum frá fyrra þingi
og þingsályktunartillaga um að
taka upp sumar- og vetrartíma
verður líka endurflutt,“ segir
Guðmundur og boðar auk þess
þingsályktun um landbúnaðar-
kerfið.
Hvað varðar fáar fyrirspurn-
ir á þingi segir Guðmundur að
Björt framtíð hafi lagt fram
margar fyrirspurnir á síðasta
þingi og það verði farið að dæla
þeim inn að lokinni kjördæma-
viku en henni lýkur nú um
helgina. „Við förum að spýta í
lófana hvað þetta varðar,“ segir
hann.
Guðmundur minnir á að ein-
ungis séu þrjár vikur liðnar
síðan þing kom saman. Björt
framtíð sé á leið inn í þingið með
mörg mál. Hann segir að á síð-
asta löggjafarþingi hafi flokkur-
inn náð fjórum málum í gegnum
þingið sem sé mjög góður árang-
ur hjá stjórnarandstöðuflokki.
Stefnt sé að því ná fleiri málum
í gegn á þessu þingi.
johanna@frettabladid.is
Frumvörp eru tóm tímasóun
Píratar segja að það sé tilgangslaust fyrir stjórnarandstöðu að leggja fram lagafrumvörp. Þeir leggja áherslu á
fyrirspurnir. Björt framtíð hefur komið fram með fá mál það sem af er en boðar fjölda nýrra þingmála.
● Frumvarp til laga er drög að nýjum lögum eða lagabreytingu sem lagt
er fyrir löggjafann til umræðu og samþykktar. Þegar lagafrumvarp hefur
verið samþykkt af löggjafanum þarf að bera það undir forseta til stað-
festingar.
● Þingsályktun er samþykkt Alþingis sem ekki þarfnast staðfestingar
forseta Íslands, ólíkt almennum lögum. Þær geta haft þýðingu sem
réttarheimild. Þingsályktunartillögur eru eins konar viljayfirlýsing af
hálfu löggjafarvaldsins.
● Fyrirspurn. Þingmaður getur lagt fram skriflega fyrirspurn til ráðherra
um opinbert málefni og er henni annaðhvort svarað munnlega á fyrir-
spurnafundi eða ráðherra veitir skriflegt svar við henni.
Frumvarp, þingsályktun og fyrspurn
FJÖLDI FRUMVARPA, ÁLYKTANA OG FYRIRSPURNA
ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGUR FYRIRSPURNIRFRUMVÖRP
SAMFYLK-
INGIN
VINSTRI
GRÆNIR
PÍRATAR
BJÖRT
FRAMTÍÐ
29 3
7 6
34 7
3 26
1 5 1
7 6 21
6 9 27 42 9
Alls
Þing-
menn
Á meðan
sú hefð ríkir á
Alþingi að
þingmanna-
frumvörp
stjórnarand-
stöðunnar
eru nánast aldrei samþykkt
sjá Píratar ekki tilgang í að
leggja þau fram.
Birgitta Jónsdóttir,
þingmaður Pírata
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
GUÐMUNDUR
STEINGRÍMSSON
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
KÓLNAR Í VEÐRI Lítið lát er á lægðagangi og í dag má víða búast við strekkingi eða
allhvössum vindi. Rigning S- og A-til og síðdegis má búast við rigningu eða slyddu
norðantil. Á morgun léttir til sunnanlands og lægir töluvert um miðjan daginn.
3°
8
m/s
5°
9
m/s
7°
10
m/s
11°
16
m/s
Víða
strekk-
ingur eða
allhvasst
í fyrstu
en lægir
síðdegis.
Yfi rleitt
fremur
hægur
vindur.
Gildistími korta er um hádegi
21°
30°
16°
23°
27°
14°
19°
15°
15°
27°
20°
26°
26°
26°
23°
20°
16°
21°
9°
10
m/s
10°
13
m/s
8°
5
m/s
7°
6
m/s
6°
4
m/s
6°
11
m/s
4°
7
m/s
5°
5°
1°
1°
5°
3°
6°
3°
4°
2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
FLÓTTAMENN Samkvæmt skýrslu
Alþjóðafólksflutningastofnunar-
innar, sem nýverið kom út, hafa að
minnsta kosti 40.000 flóttamenn
eða innflytjendur látist frá árinu
2000. Samkvæmt skýrslunni voru
um það bil 22.000 þeirra að reyna
að komast til meginlands Evrópu.
Þó er talið að 4.000 manns hafi
látist á leið sinni til Evrópu frá árs-
byrjun 2013.
Þá eru 6.000 manns taldir hafa
látist á landamærum Mexíkó og
Bandaríkjanna frá árinu 2000.
Á hverjum degi leggur fjöldi
flóttamanna af stað í leit að betra
lífi en mannréttindasamtökin
Amnesty International hafa sagt
í skýrslu að um 2.500 flóttamenn
hafi látist í leið sinni að betra lífi
eingöngu á Miðjarðarhafinu á
þessu ári. - glp
Fjöldi flóttamanna látinn:
40.000 látnir
frá árinu 2000
AFGANISTAN
Tvöföld sjálfsmorðsárás
Sjö fórust og 21 særðist í sjálfs-
morðsárásum tveggja talíbana í Kabúl,
höfuðborg Afganistans, í gær. Árásirnar
voru gerðar í tveimur rútum með
afganska hermenn um borð. Deginum
áður skrifuðu bandarísk og afgönsk
stjórnvöld undir samning um að
bandarískt herlið verði í landinu lengur
en til loka þessa árs.
LEKAMÁLIÐ Frávísunarkrafa Gísla
Freys Valdórssonar í lekamálini var
tekin fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Gísli Freyr er ákærður
fyrir brot gegn þagnarskyldu í opin-
beru starfi en hann er grunaður um
að hafa látið óviðkomandi í té efni
samantektar sem bar yfirskriftina
„Minnisblað varðandi Tony Omos“,
eins og segir í ákæru.
Við málflutninginn í gærmorgun
spannst nokkur umræða um þann
hluta frávísunarkröfunnar sem snýr
að hlutlægnisskyldu. Verjandi Gísla
Freys, Ólafur Garðarsson hæstarétt-
arlögmaður, sagði rannsóknaraðila
hafa einblínt á það sem gæti bent til
sektar umbjóðanda síns en leitt hjá
sér öll atriði sem ýtt gætu undir sak-
leysi hans. Þá sagði verjandinn sak-
sóknara jafnframt vera vanhæfan
í málinu vegna þess að hann hafði
„lækað“ við færslu á Facebook eftir
Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarn-
ans. Hann lýsti þar skoðun sinni á
sam særis kenn ingu um leka málið.
Helgi Magnús Gunn ars son, vara-
rík is sak sókn ari og sak sókn ari í mál-
inu, setti „læk“ við umrædda færslu
og sagði verjandi það sýna að hann
væri ekki hlutlaus í málinu.
Verjandi Gísla fór þar að auki fram
á að málinu yrði vísað frá vegna
þriggja annarra atriða. Í fyrsta lagi
var farið fram á frávísun vegna þess
hve ákæran væri óskýr, í öðru lagi
vegna brots gegn meðalhófsreglu og í
þriðja lagi fyrir brot gegn jafnræðis-
reglu. Saksóknari hafnaði þessu öllu
og fór fram á að málið yrði tekið til
efnislegrar meðferðar.
- skh, glp
Frávísunarkrafa Gísla Freys Valdórssonar í lekamálinu var tekin fyrir í gær:
Saksóknari sagður vanhæfur
LEIÐRÉTTING
Farið var rangt með föðurnafn Kristínar
Kalmansdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu-
sviðs Ríkisendurskoðunar, í Frétta-
blaðinu á þriðjudaginn. Var hún sögð
Halldórsdóttir. Beðist er velvirðingar á
þeim mistökum.
1,4 milljónir gesta sóttu kvikmyndahús á Íslandi
árið 2012.
það jafngildir því að hver lands-
maður hafi sótt kvikmyndasýningu
4,5 sinnum.
Tólf prósent færri fóru þó í bíó árið
2012 en árið 2009.
ÓSÆTTI Gísli Freyr og verjandi hans
telja „læk“ á Facebook-færslu gera sak-
sóknara óhæfan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁSTAND Talið er að um 2.500 flótta-
menn hafi látist á Miðjarðarhafinu á
þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
VINNUVERNDehf
Vinnuvernd ehf.
Brautarholt 28
105 Reykjavík
s: 5780800
www.vinnuvernd.is
vinnuvernd@vinnuvernd.is