Fréttablaðið - 02.10.2014, Side 66

Fréttablaðið - 02.10.2014, Side 66
2. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54 NÝ VERSLUN LAUGAVEGI 77! OPIÐ TIL 22:00 ÖLL KVÖLD Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is „Bókin fjallar um mína reynslu af átröskun. Þetta er í raun mín þroskasaga þar sem ég lýsi baráttu minni,“ segir Birna Varðardóttir sem sendir frá sér sína fyrstu bók á laugardaginn. Bókin heitir Mol- inn minn og lýsir baráttu hennar við átröskun. Nafnið á bókinni segir hún komið frá því að í kon- fektkassa lífsins sé ómögulegt að vita hvaða mola maður fái. Þrátt fyrir að Birna sé aðeins tvítug þá á hún að baki mikla reynslu. Í um þrjú ár var hún alvarlega veik af átröskun en veikindin byrjuðu þegar hún var um þrettán ára gömul. „Ég var að æfa mjög mikið. Ég var í frjálsum íþróttum og mest í langhlaupi. Ég var mjög metnað- arfull og vildi ná langt í hlaupun- um. Ég fann út að því léttari sem ég var því hraðar gat ég hlaupið,“ segir Birna og segir átröskunina hafa þróast hægt og rólega án þess að hún gerði sér grein fyrir því til að byrja með. „Í rauninni var þetta dæmi- gerð íþróttaátröskun og ég stýrð- ist af vigtinni. Ef ég var að halda vigt og léttast þá fannst mér það merki um að ég gæti borðað meira og öfugt, ef ég var að þyngjast þá borðaði ég ekki,“ segir hún. Eðli- lega tók það sinn toll af henni og á endanum var átröskunin farin að hafa áhrif á hlaupagetu hennar. Hún segist hafa leitað sér hjálp- ar en hafi þó farið óhefðbundn- ar leiðir í því. „Ég fann út að það hentaði mér ekki að vera inni á geðdeildum eða í hefðbundnum átröskunarmeðferðum. Ég nýtti mér hjálp Boot Camp. Þar var þjálfari sem tók mig að sér og var mín stoð og stytta. Hann hjálpaði mér með ákveðna andlega þætti og þetta gerði gæfumuninn fyrir mig.“ Birna segir að eftir að hún hafi farið að tjá sig um átröskunina hafi hún komist að því að íþrótta- átröskun væri algengari en hún hafði haldið. „Ég hélt að ég væri sú eina sem glímdi við þetta en eftir að ég fór að opna mig meira hef ég komist að því að þetta er töluvert algengt. En það er ekki mikið talað um þetta og það er algengt að fólk skammist sín fyrir að glíma við þetta. Með bókinni langar mig að opna á umræðuna,“ segir Birna. Hún segist hafa viljað skrifa bókina og segja sína sögu til þess að geta mögulega hjálpað öðrum í sömu stöðu. „Með því að gefa út bókina vildi ég sýna fólki að það er allt hægt. Það er hægt að kom- ast upp úr þessu.“ Hún segist í dag vera í góðu formi líkamlega og ekki lengur veik. „Þetta háir mér ekki í dag en auðvitað hefur átröskunin haft sín áhrif á líkam- ann.“ Bókin kemur sem fyrr segir út á laugardaginn og í tilefni þess ætlar Birna að halda útgáfuboð í Dalskóla í Úlfarsárdal milli klukkan 2 og 4. Hægt er að fá nán- ari upplýsingar á Facebook. - vh „Hélt ég væri sú eina“ Birna lýsir baráttu sinni við íþróttaátröskun sem hún veiktist af þrettán ára gömul. MIKIL REYNSLA Birna veiktist fyrst af átröskun þegar hún var aðeins þrettán ára gömul. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég fann út að því léttari sem ég var því hraðar gat ég hlaupið. Átröskun er alvarlegt sálrænt vandamál sem getur valdið heilsutjóni eða jafnvel dauða. Átröskun er skipt í tvo meginflokka: lystarstol og lotugræðgi. Átröskun er algengari meðal kvenna heldur en karla og kemur venjulega fram á unglingsaldri. Hún er algengari meðal íþróttafólks en annarra þjóðfélagshópa og þá sérstaklega í íþróttum þar sem líkamsvöxtur skiptir máli. Sérstakir félagslegir áhættuþættir eru miklar kröfur um að vera grannur og eins miklar kröfur um að standa sig vel. Í íþróttum eru þessir áhættuþættir gjarnan báðir til staðar á sama tíma. Í öllum íþróttum eru gerðar kröfur um árangur og þar að auki í sumum íþróttum lögð sérstök áhersla á grannan líkamsvöxt. Tíðni átröskunar er mest í þeim íþróttum sem gera kröfur um grannan líkamsvöxt; svo sem ballett, fim- leikum og skautadansi. GÓÐ RÁÐ TIL ÍÞRÓTTAIÐKENDA ● Hlustið á eigin þarfir og tilfinningar– þið eigið rétt á að vera eins og þið eruð. ● Takið sjálfstæðar ákvarðanir varðandi eigið líf. ● Ef ykkur líður illa og haldið að þið séuð haldin átröskun, talið þá um líðan ykkar við einhvern sem þið treystið, foreldra, vini, þjálfara, kenn- ara, námsráðgjafa eða skólahjúkrunarfræðing. heimild: doktor.is ÁTRÖSKUN ALGENGARI MEÐAL ÍÞRÓTTAFÓLKS MIKLAR KRÖFUR Sérstakir áhættuþættir eru kröfur um að vera grannur og standa sig vel. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.