Fréttablaðið - 22.10.2014, Page 16

Fréttablaðið - 22.10.2014, Page 16
22. október 2014 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS S kuldir íslenska ríkisins eru miklar og afborganir og vextir af þeim eru svimandi háar fjárhæðir. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er ákveðinn, hann setur niðurgreiðslu lánanna í forgang. Segir lægri skuldir og lægri greiðslubyrði vera helsta velferðarmál þjóðarinnar. Þegar okkur hefur orðið ágengt þar, þá opnist tækifæri til svo margs. Staða okkar er þannig að illa getum við gert hvort tveggja, greitt niður skuldir og rekið það samfélag sem við höfum vanist, og alls ekki það samfélag sem við viljum helst hafa. Til að fara leið Bjarna, að hallalausum fjárlögum, verðum við að grípa til margs, og sumt af því er miður gott. Hversu oft hefur okkur verið sagt að ein mesta, besta og skynsamlegasta fjárfesting sem þekkist sé aukin menntun. Að hver króna sem sett er í menntun skili sér margfalt til baka. Hvers vegna er þá gripið til þess ráðs að fæla fólk, sem er tuttugu og fimm ára og eldra, frá menntun? Er það vegna þess að ekki sé þjóðhagslegur hagur af námi þess fólks, eða erum við að fórna fólki og framtíðartekjum til að greiða niður aðrar skuldir? Og hvort er betra að lækka greiðslubyrðina eða afsala þjóðinni tekjum framtíðarinnar? Mikið vantar upp á að þeir peningar sem varið er, og á að verja, til vegamála dugi til nauðsynlegs viðhalds, hvað þá uppbyggingar. Ástæðan er markmiðið um lækkun skulda. En hvað kostar hvert slys mikið? Hvað þurfum við að borga vegna hættulegra vega? Það er erfitt að reikna fjárhagslegt áfall af vondum vegum og ónýtum. En auðvelt að reikna vexti og afborganir ríkissjóðs. En hvort er betra, að auka kostnað vegna afborgana eða leggja fram nauðsynlega peninga til viðhalds og uppbyggingar vega? Þá er óreiknuð óhamingja þeirra sem slasast. Það þarf væntanlega að loka nokkrum flugvöllum. Ekki vegna þess að ekki sé þörf fyrir þá. Nei, vegna þess að við höfum ekki efni á að halda þeim opnum. Flugvellirnir eru ekki bara til áætl- unarflugs eða skemmtiflugs. Þeir eru líka til sjúkra- og neyðar- flugs. Kann að vera að frestun á viðhaldi kosti síðar meira en það sem nú á að spara? Heilbrigðiskerfið hangir enn á bjargbrúninni. Hluti ástandsins þar er þekktur allri þjóðinni og seint verður hægt að reikna til enda skaðann sem hlýst af frestun nauðsynlegra verkefna. Markmiðið um hallalaus fjárlög er stefnuviti allra ákvarðana. Sem er göfugt markmið. Þá er eftir að reikna, hvort er dýrara að borga afborganir og vexti eða safna upp mörgum og óleystum verkefnum sem munu kosta verulega mikla peninga þegar þar að kemur. Það eru ekki búvísindi að halda í aurinn og kasta krónunni, nema þá kannski ef henni yrði kastað fyrir fullt og allt. Það ágæta fólk, sem nú fer með völdin fyrir okkar hönd, ætti að leggja fram trúverðuga útreikninga um hvor leiðin er betri. Eins má spyrja hvort hægt sé að þrengja að öðru og minna áríðandi en heilbrigði, menntun og öryggi. Svarið hlýtur að vera einfalt, auð vitað er það hægt. Nú tökum við dýr lán hjá framtíðinni. Það kemur að skuldadögum. Er alveg víst að hallalaus fjárlög séu eina leiðin: Tökum stór lán hjá framtíðinni Sigurjón Magnús Egilsson sme@frettabladid.is Enn fjölgar sveitarfélögum sem telja skort á leiguhúsnæði. Á höfuðborgarsvæðinu telur aðeins Garðabær að framboð leiguíbúða í sveitarfélaginu sé nóg. Samtímis eru um 1.800 manns á biðlista hjá sjö stærstu sveitar- félögunum, þorrinn á höfuðborgarsvæðinu. Stuttu eftir að ég tók við ráðherraembætti minnti ég á júlísamkomulag aðila vinnu- markaðarins frá 1965 um stórátak til að leysa brýnan húsnæðisskort. Samkomulagið var liður í lausn erfiðrar vinnudeilu og var samið um byggingu 1.250 íbúða fyrir lág- tekjufólk í Reykjavík. Benti ég á að í aðdrag- anda erfiðra kjarasamninga gætu samning- ar af þessum toga reynst skynsamlegir. Verkalýðshreyfingin hefur nokkra reynslu af samkomulagi við atvinnurekend- ur um framlög í fræðslusjóði, orlofssjóði og sjúkrasjóði og síðast árið 2011 náðist sam- komulag við atvinnurekendur um að þeir greiddu árlega rúman einn milljarð króna í starfsendurhæfingarsjóði. Hvers vegna ekki að semja við atvinnurekendur um sérstakt framlag í húsnæðissjóði á vegum verkalýðs- félaganna til uppbyggingar leiguhúsnæðis fyrir félagsmenn? Í tillögum um framtíðarskipan húsnæðis- mála eru gerðar ýmsar tillögur til að liðka fyrir starfsemi húsnæðisfélaga sem byggja eða kaupa íbúðir til langtímaleigu til að lækka kostnað og auka hagkvæmni, meðal annars að vaxtaniðurgreiðslum verði breytt í stofnstyrki og með skattaívilnunum fyrir félögin. Unnið er að fjórum frumvörpum í velferðarráðuneytinu fyrir yfirstandandi þing sem öll styðja við þessar hugmyndir um nýtt júlísamkomulag. Þessu til viðbótar má benda á að lífeyris- sjóðirnir fjármagna stóran hluta húsnæðis- lána og í stjórnum þeirra sitja fulltrúar launafólks og atvinnurekenda. Því ætti að vera lag til að semja um hagstæða fjármögn- un í þágu launafólks. Í mínum huga er enginn betur til þess fallinn að stofna og reka leigufélög án gróðasjónarmiða fyrir almenning í landinu en verkalýðsfélögin sjálf, ekki hvað síst á höfuðborgarsvæðinu þar sem þörfin er hvað mest. Þau hafa reynsluna, þau hafa árum saman rekið leigufélög í gegnum orlofssjóð- ina og þekkja hvernig á að standa að þessu. Í dag koma saman fulltrúar verkalýðs- félaganna um allt land á ársfund ASÍ, kjósa sér forseta og marka stefnuna í aðdraganda kjarasamninga. Ég trúi því og treysti að niður staðan verði í þágu framtíðarinnar. Húsum okkur upp með skynseminni HÚSNÆÐISMÁL Eygló Harðardóttir félags- og hús- næðismálaráðherra ➜ Í mínum huga er enginn betur til þess fallinn að stofna og reka leigufélög án gróðasjónarmiða en verkalýðsfélögin sjálf. Skotið fyrst og spurt svo l Vopnamál lögreglunnar voru rædd á Alþingi í gær. Helgi Hjörvar, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, sparaði ekki föstu skotin: „Ég neita að trúa að innanríkisráðherra hafi, án nokkurrar umræðu í samfélaginu eða í þinginu, heimilað stórfelld vopna- kaup. Ég neita líka að trúa því að 500 milljóna króna fjárveiting, sem samþykkt var í þinginu, hafi verið nýtt í þessu skyni; fjárveiting sem átti að efla almenna löggæslu í landinu,“ sagði Helgi og bætti við „ … að ráðherrann sæki um sérstaka fjár- veitingu, en lögreglan sé ekki með leynd vopnavædd án nokkurrar lýðræð- islegrar umfjöllunar þar um.“ Skotið fyrst og spurt svo ll Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, skaut í allar áttir á þingi í gær og sagði meðal annars: „Samfélagið virðist vera meira og minna í uppnámi. Verkföll og átök eru fram undan á flestum sviðum. Þá berast fréttir af því að það séu til peningar til að kaupa ný vopn fyrir lögregluna, hríðskotabyssur og hálf- sjálfvirkar byssur, af sömu fjárlögum og gera ekki ráð fyrir því að börnum sé boðið upp á framhaldsskólanám hér og að fullorðnu fólki sé sömu- leiðis úthýst úr framhaldsskólanámi. Í sömu fjárlögum er gert ráð fyrir því að hægt sé að kaupa ein- hver hundruð nýrra hríð- skotabyssna og hálfsjálf- virkra skammbyssna fyrir lögregluna.“ Skotið fyrst og spurt svo lll Helgi Hrafn Gunnarsson Pírati hitti kannski best í mark og talaði af reynslu: „ … en það hefði aldrei hvarflað að mér að ég hefði átt að spyrja á þeim tíma hvort þetta færi ekki örugglega ekki í 200 MP5-hríð- skotabyssur. Ég hef spilað nógu marga tölvuleiki um ævina, virðulegi forseti, til að vita nákvæmlega hvaða vopn þetta eru. Þetta eru drápstæki. Það að hafa 200 stykki hjá lög- regluliði sem telur 600-700 manns þykir mér fráleitt miðað við það fyrirkomulag sem við höfum búið við, fyrirkomulag sem fólk hefur almennt verið sátt við.“ sme@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.