Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.02.2015, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 05.02.2015, Qupperneq 4
5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 186 ferkílómetra af birki-skógi má finna á Austurlandi. Það er það minnsta í einum lands- fjórðungi. MENNTUN Náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum er þjónusta sem börn eiga rétt á samkvæmt lögum. Mikill fjöldi nemenda fær ekki þessa lög- bundnu þjónustu. Þetta skrifa náms- og starfsráðgjafarnir Rannveig Óla- dóttir og Sigríður Bílddal í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Þær segja niðurstöður könnun- ar, sem gerð var í nóvember síðast- liðnum, benda til að ekki séu starf- andi náms- og starfsráðgjafar í um það bil þriðjungi grunnskóla á land- inu. „Starfsheitið náms- og starfs- ráðgjafi hefur verið lögverndað síðan 2009 en í þriðjungi þeirra skóla sem hafa náms- og starfsráð- gjafa hafa aðrir verið ráðnir til að sinna starfinu. Í þeim hópi má finna leikskólakennara, þroskaþjálfa, iðju- þjálfa, sálfræðinga, sérkennara, almenna kennara, félagsráðgjafa, félagsfræðinga, skólastjóra og fyrr- verandi skólastjórnendur,“ skrifa þær Rannveig og Sigríður. „Sumir skólastjórnendur ráða aðra þótt þeir viti hver menntun náms- og starfsráðgjafa eigi að vera. Það eru dæmi um að skóla- stjórnendur haldi að gamli skóla- stjórinn geti tekið að sér að leið- beina krökkunum, meira að segja í Reykjavík,“ segir Rannveig í viðtali við Fréttablaðið. Svanhildur María Ólafsdóttir, for- maður Skólastjórafélags Íslands, segir æskilegast að menntaðir náms- og starfsráðgjafar séu við störf í öllum skólum þar sem því verður við komið. „Í fámennum skólum er kannski erfitt að ráða í fullt starf. Þá hafa aðrir tekið þetta að sér.“ Hún bætir því við að náms- og starfsráðgjöf sé jafnframt oft bara hlutastarf í stærri grunnskólunum. „Það hefur ekki verið veitt mikið fjármagn í þessi störf. Kennsla hefur haft forgang.“ Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, pró- fessor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, segir nám í þessum fræðum hafa hafist 1990. „Námið var eins árs diplómanám til ársins 2004. Þegar það var orðið tveggja ára meistaranám var ger- legt að setja í lög að starfsheitið væri lögverndað.“ Á hverju ári útskrifast 15 til 20 nemendur, að því er Guðbjörg grein- ir frá. Hún segir þörf á að bæta skipulag ráðgjafar og fræðslu um nám og störf í grunnskólum. „Börnin hafa ekki fengið mikla fræðslu um framtíðina í skólakerfinu og á vinnu- markaðnum. Svo eru allir hissa á miklu brottfalli. Það er nauðsynlegt að auka fræðslu á þessu sviði. Þarna er um almannahagsmuni að ræða. Annars staðar á Norður löndunum fá grunnskólanemendur miklu meiri fræðslu um möguleika á námi og störfum. Í Finnlandi fá nemendur í efstu bekkjum grunnskólanna um 80 kennslustundir í náms- og starfs- fræðslu sem er skyldunám. Að auki eru þeir tvær vikur úti á vinnumark- aði. Hér er þetta oftast val og ekki í öllum skólum.“ Nú er unnið að stefnumótun um málefni náms- og starfsráðgjafar á vegum mennta- og menningar- málaráðuneytisins. Í starfshópnum eru fulltrúar velferðarráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytis og Félags náms- og starfs- ráðgjafa. Formaður starfshópsins, Guðrún Birna Kjartans dóttir náms- og starfsráðgjafi, segir áherslur vera að breytast í Evrópu og víðar á þann hátt að litið verði á ráðgjöf og fræðslu í námi og starfi sem hluta af þróun starfsferils alla ævi en ekki bara inngrip í 10. bekk. ibs@frettabladid.is / sjá síðu 33 Náms- og starfsráðgjafa vantar í þriðjung skóla Grunnskólabörn eiga rétt á náms- og starfsráðgjöf samkvæmt lögum. Niðurstöður könnunar benda til að ekki séu starfandi náms- og starfsráðgjafar í um þriðjungi grunnskóla. Aðrir gegna starfinu í þriðjungi skólanna. Í TÆKNISKÓLANUM Grunnskólanemar fá víða miklu meiri fræðslu um möguleika á námi og störfum en á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Laufey María Jóhannsdóttir, formaður Félags framhalds- skólanema, segir mikilvægt fyrir nemendur að fá hjálp til að finna rétta braut í námi og starfi. „Þetta er einn af mikilvægustu þáttunum í námi nemenda. Það hefur sýnt sig að ánægjan eykst töluvert þegar nemendur hafa með hjálp ráðgjafa fundið út hvað hentar þeim.“ Það er mat Laufeyjar að námsráðgjafar ættu að vera í öllum skólum og fleiri en einn. „Það eru alltof margir nemendur á hvern námsráðgjafa. Þeir geta ekki farið yfir það með hverjum og einum hvaða skref sé best fyrir hann að taka í sínu námi. Hlutverk námsráð- gjafa ætti einnig að vera skýrara. Þeir taka oft að sér hlutverk sálfræðinga sem ættu líka að vera í skólunum.“ Ráðgjöf einn mikilvægasti þátturinn JÓRDANÍA, AP Tveir fangar voru teknir af lífi í Jórdaníu í gær í hefndarskyni fyrir morð á jórd- önskum flugmanni sem myrt- ur var í Sýrlandi. Vígamenn Íslamska ríkisins brenndu flug- manninn og birtu á netinu mynd- band af því þegar kveikt er í honum. Abdullah II. Jórdaníukonungur hraðaði sér heim til Jórdaníu frá Bandaríkjunum þar sem hann var í opinberri heimsókn. Hann sagði að Jórdanía myndi bregðast við af fullri hörku og efla hernað sinn gegn Íslamska ríkinu. Fangarnir tveir voru báðir hengdir, en þeir hétu Sajida al Rishawi og Ziad al Karbouly. Báðir voru þeir frá Írak og höfðu tengsl við al-Kaída-samtökin, að því er Mohammad al Momani, talsmaður jórdanskra stjórn- valda, fullyrti. Almenningur í Jórdaníu hefur haft tvíbenta afstöðu til þátt- töku í hernaði gegn vígasveit- um Íslamska ríkisins í Sýrlandi og Írak. Annars vegar blöskr- ar fólki grimmdin og vill hefnd- ir, en á hinn bóginn vill fólk ekki neina þjónkun við Vestur- lönd, jafnvel þótt óvinurinn sé sá sami. Þátttaka jórdanska hersins í loft árásum Bandaríkjahers á Íslamska ríkið er því ekki vel séð. Jórdanski flugmaðurinn var 26 ára gamall og hét Muath al Kaseasbeh. Á myndbandinu mátti sjá merki þess að hann hefði sætt barsmíðum. - gb Jórdanía brást hart við eftir að vígamenn Íslamska ríkisins myrtu jórdanskan flugmann: Tveir fangar teknir af lífi í hefndarskyni MINNINGARATHÖFN UM FLUGMANN- INN Jórdanskir hermenn komu saman til að minnast flugmannsins, sem víga- menn tóku af lífi í gær. NORDICPHOTOS/AFP SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Kringlan | 588 2300 afsláttur af öllum GARDÍNUM PÚÐUM & 20% GILDIR TIL 23. FEBRÚAR 2015 JAFNRÉTTI Skipan starfshóps innan ríkisráðherra, sem fjalla á um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum, var breytt áður en hann tók til starfa um mánaðamótin. Upphafleg skipan hópsins sem auglýst var af ráðuneytinu var á skjön við jafnréttislög, og Frétta- blaðið sagði frá í gær. Skipan starfshópsins var breytt vegna ábendingar um kynjahlut- fall í hópnum og var ákveðið að óska á ný eftir tilnefningu frá Sýslumannafélagi Íslands sem aðeins hafði tilnefnt konu og ekki greint frá hlutlægum ástæðum þess að ekki væri mögulegt að til- nefna bæði karl og konu. Starfshópurinn hefur þegar haldið sinn fyrsta fund. - shá Jafnréttislög sögð virt: Starfshópur rétt skipaður Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá SUÐVESTLÆGAR ÁTTIR verða ríkjandi á landinu næstu daga og nokkuð vindasamt. Það ganga skil austur yfir landið á morgun með rigningu eða slyddu í fyrstu en síðan éljum í kólnandi veðri síðdegis. 4° 18 m/s 4° 12 m/s 5° 8 m/s 6° 9 m/s Strekkingur eða hvasst víða um land. Kólnandi. Strekkingur allra vestast og með N-strönd, annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 3° 17° -12° 3° 15° -3° -3° 1° 1° 19° 5° 11° 11° 17° 4° 0° 1° -1° 3° 7 m/s 6° 18 m/s 4° 9 m/s 2° 10 m/s 4° 11 m/s 4° 14 m/s 0° 18 m/s 2° 2° 0° 1° 4° 0° 6° -3° 2° 0° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur LAUGARDAGUR Á MORGUN BYGGÐAMÁL Rafræna íbúakosn- ingin Betri hverfi 2015 fer fram í Reykjavík dagana 17. til 24. febrúar næstkomandi. Kjósa á um verkefni í hverfum borgarinnar. Kosið verður milli allt að 20 hug- mynda í tíu hverfum borgarinnar. Sextán ára og eldri með lögheim- ili í Reykjavík geta tekið þátt. Til þess að komast inn á kosningavef- inn verða íbúar að eiga Íslykil eða rafræn skilríki til auðkenningar. Niðurstöður kosninganna eru bindandi fyrir Reykjavíkurborg sem skuldbindur sig til að fram- kvæmda þau verkefni sem kosin eru. - ngy Blásið til rafrænna kosninga: Reykvíkingar kjósa í febrúar REYKJAVÍK Kosning í febrúar er sögð samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu. Námið var eins árs diplóma- nám til ársins 2004. Þegar það var orðið tveggja ára meistara- nám var gerlegt að setja í lög að starfsheitið væri lögverndað. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf. 0 4 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 A 4 -D 8 0 0 1 3 A 4 -D 6 C 4 1 3 A 4 -D 5 8 8 1 3 A 4 -D 4 4 C 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 7 2 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.