Fréttablaðið - 05.02.2015, Blaðsíða 60
5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 48
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir
fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
BÍÓFRÉTTIR
53 ára Jennifer Jason Leigh
Þekktust fyrir: Single White Female.
AFMÆLISBARN DAGSINS
Jones orðuð
við Star Wars
Felicity Jones er í viðræðum um að
leika í næstu Star Wars-mynd, The
Force Awakens, sem er væntanleg
í bíó í desember á næsta ári. Jones
var nýlega tilnefnd til Óskarsins fyrir
hlutverk sitt í The Theory of Every-
thing. Fyrir viku bárust fregnir um að
áheyrnarprufur vegna myndarinnar
væru í fullum gangi og svo virðist sem
Jones hafi gengið allt í haginn þar.
Áður höfðu Rooney Mara og Tatiana
Maslany verið orðaðar við hlutverk í
myndinni. Tökur eiga að hefjast síðar
á þessu ári.
FRUMSÝNINGAR
Birdman
Gamandrama
Helstu hlutverk: Michael Keaton,
Edward Norton, Emma Stone.
Seventh Son
Ævintýramynd
Helstu hlutverk: Ben Barnes,
Julianne Moore og Jeff Bridges.
Jupiter Ascending
Ævintýramynd
Helstu hlutverk: Mila Kunis, Chann-
ing Tatum og Sean Bean.
Hleypur í skarðið
Charlie Hunnam úr
sjónvarpsþáttunum
Sons of Anarchy hefur
tekið að sér hlutverk í
Lost City of Z. Þar leik-
ur hann á móti Robert
Pattinson og Siennu
Miller. Myndinni er
leikstýrt af James
Gray sem er þekktur
fyrir We Own the
Night. Hunnam hleypur í
skarðið fyrir Benedict
Cumberbatch sem
varð að hætta við
að leika í myndinni
vegna hlutverks síns
í Marvel-myndinni
Doctor Strange.
Point Break frestað
Kvikmyndaverið Warner Bros. hefur
frestað frumsýningu hasar myndarinnar
Point Break um fimm mánuði. Hún
verður því sýnd um næstu jól í
stað 31. júlí. Þar með hefur
hún skipt á dagsetningum
við Mission: Imposs ible 5
með Tom Cruise í aðalhlut-
verki. Edgar Ramirez og
Luke Bracey leika aðalhlut-
verkin í Point Break
í stað Patrick
Swayze og Keanu
Reeves sem léku
í upphaflegu
myndinni frá
árinu 1991. 5,9/108,3/10 6,5/1092% 39%
FELICITY JONES Hefur verið tilnefnd
til Óskarsins fyrir hlutverk sitt í The
Theory of Everything. NORDICPHOTOS/GETTY
Stærstu nöfnin í Hollywood verða
á meðal gesta á hinni árlegu
bresku BAFTA-verðlauna hátíð
sem verður haldin í 68. sinn í
London á sunnudaginn.
Hátíðin fer fram í Royal Opera
House í Covent Garden og á
meðal þeirra sem ganga eftir
rauða dreglinum verða Bene-
dict Cumberbatch, Reese Wither-
spoon, Eddie Redmayne, Julianne
Moore, Ralph Fiennes og Michael
Keaton. Einnig verður á hátíð-
inni Jóhann Jóhanns-
son sem er tilnefndur
til BAFTA-verð-
launanna fyrir
tónlistina í The
T h e o r y O f
Every thing
sem fjallar um
vísindamann-
inn Stephen
Hawking. Stutt
er síðan Jóhann
vann Golden
Globe-verðlaun-
in fyrir tónlistina
fyrstur Íslendinga,
auk þess sem hann er
tilnefndur til Óskarsverð-
launanna sem verða afhent 22.
febrúar. Á BAFTA-hátíðinni mun
Jóhann etja kappi við Antonio
Sanchez fyrir tónlistina í Bird-
man, Alexandre Desplat fyrir
The Grand Budapest Hotel, Hans
Zimmer fyrir Interstellar og Mica
Levi fyrir Under the Skin.
Stephen Fry verður kynnir í
tíunda sinn og hlakkar hann mikið
til. „Að vera kynnir á kvikmynda-
verðlaununum hefur alltaf verið
hápunktur ársins hjá mér,“ sagði
hinn nýgifti leikari. „Að aðstoða
akademíuna við að kynna kvik-
myndagerð og hvetja fólk til að
fara í bíó skiptir mig miklu máli.“
Auk þess að verðlauna fyrir
kvikmyndir eru BAFTA-verðlaun-
in einnig veitt fyrir afrek í sjón-
varpi og tölvuleikjum.
Hljómsveitin Kasabian stígur á
svið á hátíðinni og sagði gítarleik-
arinn Sergio Pizzorino í samtali
við blaðið Daily Mail að það væri
„gríðarlegur heiður“ að fá að opna
hátíðina. Lofaði hann eftirminni-
legri frammistöðu.
Gamanmyndin The Grand
Budapest Hotel hlaut
flestar tilnefningar
til BAFTA-verð-
launanna, eða
ellefu talsins,
þar á meðal sem
besta myndin
og fyrir besta
leikarann,
Ralph Fiennes.
The Theory
Of Everything
hlaut tíu tilnefn-
ingar, þar á meðal
í fjórum stærstu
flokkunum.
Birdman fékk einnig
tíu tilnefningar en The Imita-
tion Game fékk níu, þar á meðal
fyrir bestu leikkonuna í aukahlut-
verki, Keiru Knightley.
Leikstjórinn Mike Leigh, sem
var heiðursgestur RIFF-hátíð-
arinnar hér á landi í fyrra, fær
heiðurs verðlaunin BAFTA-Fel-
lowship og kemst þá í hóp með ekki
ómerkara fólki en Helen Mirren,
Alfred Hitchcock og Steven Spiel-
berg.
Eftir að athöfninni lýkur á
sunnudaginn mun hljómsveitin
Molotov Jukebox leika fyrir dansi
í eftirpartíi á hótelinu Grosvenor
House. freyr@frettabladid.is
Jóhann gæti unnið til BAFTA
í fyrsta sinn á sunnudaginn
BAFTA-verðlaunahátíðin verður haldin í London í 68. sinn á sunnudagskvöld. Jóhann Jóhannsson er
tilnefndur fyrir tónlistina í The Theory Of Everything. Leikarinn Stephen Fry verður kynnir í tíunda sinn.
KYNNIR Leikarinn Stephen Fry verður kynnir BAFTA-hátíðarinnar í London í tíunda
sinn á sunnudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY
2014 Ólafur Arnalds hlaut BAFTA-verðlaunin fyrir
tónlist sína í sjónvarpsþáttunum Broadchurch.
2012 Kvikmyndatökumaðurinn Hákon Pálsson
hlaut BAFTA New Talent-verðlaunin í Skotlandi fyrir
myndina No More Shall We Part.
2006 Latibær hlaut BAFTA fyrir besta alþjóðlega
barnaefnið.
2005 Valdís Óskarsdóttir hlaut verðlaunin fyrir
klippingu myndarinnar Eternal Sunshine of the
Spotless Mind.
ÍSLENDINGAR OG BAFTA-VERÐLAUNIN
JÓHANN JÓHANNSSON
Tónlistarmaðurinn gæti bæst í
hóp þeirra Íslendinga sem hafa
hlotið BAFTA-verðlaunin.
0
4
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
4
-F
F
8
0
1
3
A
4
-F
E
4
4
1
3
A
4
-F
D
0
8
1
3
A
4
-F
B
C
C
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K