Fréttablaðið - 05.02.2015, Qupperneq 10
5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
HONDA ACCORD ELEGANCE
Nýskr. 07/13, ekinn 37 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 4.090 þús.
Rnr. 282432.
HYUNDAI ix20 COMFORT
Nýskr. 06/11, ekinn 65 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.590 þús.
Rnr. 310105.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
VW POLO COMFORTLINE
Nýskr. 06/12, ekinn 38 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Rnr. 120593.
SUBARU LEGACY SPORT
Nýskr. 09/08, ekinn 75 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.150 þús.
Rnr. 120592.
SUZUKI GRAND VITARA
Nýskr. 06/11, ekinn 56 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.690 þús.
Rnr. 102377.
RANGE ROVER VOGUE DÍSIL
Nýskr. 06/09, ekinn 60 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 9.990 þús.
Rnr. 282437.
RENAULT CLIO EXPRESSION
Nýskr. 05/13, ekinn 16 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.290 þús.
Rnr. 282438.
Frábært verð!
2.190 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 90%
FJÁRMÖGNUN
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
DÓMSMÁL Álagið á Hæstaréttar-
dómurum hefur síður en svo
minnkað frá því tekin var ákvörð-
un um að fækka þeim, eftir að
þeim var fjölgað í kjölfar efna-
hagshrunsins.
Dómurum við Hæstarétt var
fjölgað um þrjá árið 2011 og
voru þá tólf, en hefur nú aftur
verið fækkað niður í níu. Á síð-
asta ári fjölgaði skráðum málum
við Hæstarétt um 36 og var fjöldi
þeirra því alls 111 eða 13 prósent-
um fleiri en meðaltal áranna 2008
til 2013. Skráð ný mál hafa aldrei
verið fleiri.
Kærum í einkamálum til Hæsta-
réttar fjölgaði verulega og voru 96,
eða um 33 prósent.
Þá hefur dæmdum málum
við réttinn einnig fjölgað, voru
í fyrra 764 sem er 10 prósentum
fleiri en meðaltal áranna 2008 til
2013. Ódæmd sakamál eru 30 pró-
sentum fleiri en meðaltal áranna
2010 til 2013, eða 74 mál, en fjöldi
ódæmdra einkamála í árslok var
svipaður og undanfarin ár, eða 133
mál.
Frá því 1. mars í fyrra var dóm-
urum við réttinn fækkað úr tólf
í níu, en þeim hafði verið fjölg-
að vegna fyrirsjáanlegs álags á
Hæstarétt.
Boðað hefur verið nýtt frum-
varp um millidómstig sem kæmi
óhjákvæmilega til með að létta
álaginu af Hæstarétti. Í kjölfarið
myndi dómurum þar fækka.
Innanríkisráðuneytið skip-
aði nefnd undir forystu Kristín-
ar Edwald hæstaréttarlögmanns.
Aðrir nefndarmenn eru Hafsteinn
Þór Hauksson, lektor við Háskóla
Íslands, og Hervör Þorvaldsdóttir
héraðsdómari.
Þessari nefnd var ætlað að koma
með tillögu að því hvernig slíku
dómstigi yrði komið á laggirnar.
Nefndin hefur ekki enn skilað af
sér áliti. Nefndin var upphaflega
skipuð í ágúst árið 2013 og stefnt
var að því að hægt yrði að leggja
fram frumvarp byggt á tillögum
hennar í mars árið 2014.
Samkvæmt upplýsingum frá
innanríkisráðuneytinu er gert ráð
fyrir að tillögunni verði skilað
í lok þessa mánaðar en eftir það
þarf að taka ákvörðun um hvort
tillagan fari í umsögn.
Vonast er til þess að hægt verði
að leggja fram frumvarp um milli-
dómstig á þessu þingi en frestur-
inn til að leggja fram frumvörp er
til 31. mars. fanney@frettabladid.is
Mál fyrir Hæstarétti
hafa aldrei verið fleiri
Álagið á Hæstarétti hefur síður en svo minnkað en samt hefur dómurum fækkað.
Nefnd um millidómstig hefur ekki enn skilað af sér tillögu en stefnt var að því að
frumvarp kæmi fram í mars í fyrra. Millidómstig myndi létta álagið verulega.
➜ Á síðasta ári fjölgaði
skráðum málum við Hæsta-
rétt um 36. Þau voru alls
111 talsins eða 13% fleiri en
meðaltal áranna 2008-2013.
1000
800
600
400
200
0
188
214
216 151
221
182
188
147
155
206
227 203
255
294
106
96
88 74
89
104 294
256
317
216
252 257 285 266
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
ALLS
697
782
726 704
770
826
862
NÝ MÁL VIÐ HÆSTARÉTT 2008-2014
Einkamál áfrýjun Sakamál áfrýjun Einkamál kærur Sakamál kærur
KJARAMÁL Miðstjórn ASÍ áréttaði í
gær að um kaup og kjör áhafna Pri-
mera Air gildi íslensk lög og kjara-
samningar. Alþýðusambönd á öllum
Norðurlöndunum líta rekstur og
aðferðafræði Primera Air, Ryanair
og fleiri alvarlegum augum.
ASÍ skoraði á íslensk stjórnvöld
að nýta lög bundnar heimildir sínar
til þess að stöðva brotastarfsemi
félagsins og bentu á lög um starfs-
mannaleigur og um réttindi og
skyldur erlendra fyrirtækja sem
senda hingað starfsfólk.
Stjórnendur Primera Air segja
yfirlýsingu ASÍ furðulega, órétt-
mæta og villandi.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
frá flugfélaginu sem send var fjöl-
miðlum í gærkvöldi.
Þar segir að ASÍ hafi ekki byggt
ályktun sína á neinni sérstakri
vitneskju, þekkingu eða stað-
reyndum. Flugfélagið kveðst telja
ásakanir ASÍ svo alvar legar og
ærumeiðandi að það áskilur sér
rétt til að leita réttar síns fyrir
dómstólum. - kbg
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) áréttar um kaup og kjör áhafna Primera Air:
Vilja láta stöðva brotastarfsemi
Á VELLINUM Alþýðusambönd allra
Norðurlanda vilja reyna að stöðva
meinta brotastarfsemi Primera Air.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
TAÍVAN, AP Síðdegis í gær hafði tekist að bjarga
fimmtán manns á lífi úr farþegaflugvél sem fórst
í Taívan í gær. Óttast var að 43 hefðu farist þegar
vélin hrapaði í höfuðborginni Taípei.
Ekki er vitað hvað olli slysinu, en vélin var á
vegum taívanska flugfélagsins TransAsia. Í taí-
vönsku útvarpi var aftur og aftur spiluð upptaka
af síðustu samskiptum flugmanna við flugturn,
þar sem flugmaður hrópaði þrisvar neyðarorðið
„Mayday“ og „bilun í hreyfli“. Upptakan gaf þó
enga vísbendingu um það hvað komið hefði fyrir.
„Það er of snemmt núna að velta því fyrir sér
hvort það hafi verið vélin eða áhöfnin,“ sagði Greg
Waldron, ritstjóri flugtímaritsins Flightglobal í
Singapúr.
Nokkrir vegfarendur tóku myndbönd af slysinu,
sem sýnd voru í fjölmiðlum víða um heim í gær. Þar
sést vélin koma fljúgandi í áttina að brú, snúast svo
nokkuð skyndilega á hlið, reka vænginn í bifreið og
brúarhandrið og hrapa síðan í Keelung-ána.
Um borð í vélinni voru 58 manns. Flestir farþeg-
anna voru frá Kína. Vélin var af gerðinni ATR 72,
smíðuð í Frakklandi og á Ítalíu. Síðasta sumar fór-
ust tugir manna þegar önnur vél sömu gerðar, frá
sama taívanska flugfélaginu, hrapaði.
- gb
Á fimmta tug manna taldir hafa farist þegar farþegaflugvél hrapaði í Taívan:
Fimmtán manns bjargað á lífi
LEITAÐ Í FLAKI VÉLARINNAR Björgunarfólk hraðaði sér að
vélinni, sem stóð upp úr ánni að litlum hluta. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
0
4
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
5
-1
3
4
0
1
3
A
5
-1
2
0
4
1
3
A
5
-1
0
C
8
1
3
A
5
-0
F
8
C
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K