Fréttablaðið - 05.02.2015, Page 12
5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
FERÐAÞJÓNUSTA Innan fárra vikna
verður lokið við að grafa ísgöng
í Langjökli – þau lengstu sinnar
tegundar í Evrópu. Þá tekur við
lokafrágangur en tekið verður á
móti fyrstu gestum í júní og þeir
leiddir tugi metra undir jökul-
inn þar sem bíður þeirra undra-
veröld.
„Þetta er langt komið. Ætli við
eigum ekki eftir tíu daga í að
klára göngin sjálf, og eftir það
eru einhverjir hellar eftir og
svo frágangsvinna; að snurfusa
eitt og annað áður en við tökum
til við að setja upp lýsingu og
fleira,“ segir Sigurður Skarp-
héðinsson, framkvæmdastjóri
IceCave Iceland.
Í raun er íshellirinn, sem er að
verða tilbúinn, hringlaga göng
sem ná um 200 metra inn í jökul-
inn á 30 metra dýpi. „En þegar þú
labbar hringinn eru þetta tæpir
400 metrar og lengra þegar krók-
ar og kimar eru meðtaldir,“ segir
Sigurður.
Við gröftinn inn í jökulinn
„fundu“ verktakarnir sprungu
eina mikla djúpt í jöklinum.
Sigurður segir að þessi smíð
frá náttúrunnar hendi verði
eitt helsta aðdráttarafl gang-
anna. „Stóri bónusinn var að
við komum inn í gríðarstóra
sprungu; þar sem við komum inn
í hana er hún 5 metrar á breidd
og hún er 200 til 300 metra löng.
Hún opnast ekki yfir sumarið,
og við komum að henni í botninn.
Það verður mikil upplifun fyrir
gesti að horfa eftir henni,“ segir
Sigurður.
Í þessari undraveröld í jökl-
inum, sem Sigurður lýsir, verður
gestum boðið að virða fyrir sér
sýningar í afkimum og hliðar-
skútum, þar verða jafnvel til-
höggvin íslistaverk sem gleðja
augað svo ekki sé talað um sjálft
jökulstálið, upplýst eftir kúnst-
arinnar reglum. Hugsað er fyrir
öllu, jafnvel þeim sem eru á þeim
buxunum að ganga í það heilaga
því í jöklinum verður lítil kapella
fyrir þá sem gera sérkröfur.
Göngin eru ofan við Geit-
landsjökul í um 1.260 metra hæð
yfir sjávarmáli, og hugsuð sem
viðbót við ferðaþjónustu á því
svæði landsins sem ásóknin er
mest. Það er Icelandic Tourism
Fund (ITF I), framtakssjóður í
eigu Landsbankans, Icelandair
Group og nokkurra lífeyrissjóða,
sem stendur að verkefninu undir
merkjum fyrirtækisins IceCave.
Við opnun í sumar var reikn-
að með að framkvæmdin myndi
kosta á bilinu 200 til 300 milljón-
ir, en Sigurður telur að hún verði
lítið eitt dýrari. svavar@frettabladid.is
Sprunga djúpt í Langjökli
magnar upp upplifun gesta
Lengstu ísgöng í Evrópu, djúpt í Langjökli, verða opnuð ferðafólki í júní. Mikil sprunga í jöklinum „fannst“ við
gröftinn og verður eitt helsta aðdráttarafl ferðafólks. Reiknað er með 20 til 30 þúsund gestum á ári.
Stóri bónusinn var að við komum inn
í gríðarstóra sprungu; þar sem við komum
inn í hana er hún 5 metrar á breidd og
hún er 200 til 300 metra löng.
Sigurður Skarphéðinsson,
framkvæmdastjóri IceCave Iceland.
Í LANGJÖKLI Verkefnið
hefur vakið athygli
erlendis og Lonely
Planet hefur valið
ísgöngin einn mest
spennandi viðkomu-
staðinn árið 2015.
MYND/ICECAVEICELAND
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá
árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu
hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg,
frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með
örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna.
Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða
bara einn og sér.
www.odalsostar.is
ÓÐALSOSTUR
TIGNARLEGUR
ALÞINGI Heildartekjur Happ-
drættis Háskóla Íslands (HHÍ) af
söfnunarkössum og happdrættis-
vélum námu fimm milljörðum
króna á síðasta ári.
Hreinar happdrættistekjur,
þegar vinningarnir eru dregnir
frá, eru rúmlega 1,5 milljarðar
króna. Brúttótekjur Íslandsspila
voru 3,9 milljarðar en hreinar
happdrættistekjur 1,2 milljarðar
króna. Þetta kemur fram í svari
innanríkisráðherra við fyrir-
spurn Ögmundar Jónassonar
þingmanns.
Þá voru tekjur Íslandsspila
meiri en háskólans að frádregn-
um vinningum og kostnaði, eða
780 milljónir króna. Tekjur
Happdrættis Háskóla Íslands
voru 595 milljónir króna. - sks
Spurt um tekjur HHÍ:
Hagnaður af
spilakössum
yfir milljarði
SPILAKASSAR Tekjur Íslandsspila voru
meiri í fyrra en tekjur Háskólans.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
STJÓRNMÁL Svandís Svavarsdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, hefur
lagt fram fyrirspurn á Alþingi til
innanríkisráðherra um aðgerðir
gegn mansali.
Fyrirspurnin er í tólf hlutum og
spyr Svandís meðal annars hver eða
hverjir beri ábyrgð á því að fórnar-
lömb mansals fái þá aðstoð sem
þeim ber samkvæmt alþjóðasamn-
ingum, hvaða ráðstafanir séu gerðar
til þess að grennslast fyrir um hvort
mansal viðgangist og hvort fólk hafi
verið selt hingað.
Svandís spyr einnig til hvaða
ráðstafana íslensk stjórnvöld
hafi gripið til að tryggja að hér
sé starfað í samræmi við mark-
mið samnings Evrópuráðsins um
aðgerðir gegn mansali. Þá vill hún
vita hversu margir liðir í gildandi
mansals áætlun hafi komist til
framkvæmda og hversu margir
liðir í aðgerðaáætlun gegn man-
sali hafi ekki komist til fram-
kvæmda og hvaða skýringar séu á
því. Svandís vill frá skrifleg svör
við fyrirspurn sinni.
Í um fjöllun
Frétta blaðsins
hefu r komið
fram að fátt
hefur komið til
framkvæmda í
aðgerðaáætlun
gegn mansali og
þá síst varðandi
aðstoð til fórnar-
lamba. Ólöf Nor-
dal innanríkisráðherra sagði í við-
tali við Fréttablaðið ljóst að þeir
fjármunir sem áætlunin gerir ráð
fyrir hafi ekki skilað sér og því hafi
þurft að tryggja að þau úrræði og
aðgerðir sem nauðsynlegt er að ráð-
ast í verði framkvæmd á annan hátt.
Ekki er öll framkvæmdin á herð-
um innanríkisráðherra. Nokkrar
aðgerðir gegn mansali varða vel-
ferðarráðuneyti. Eygló Harðardótt-
ir, félags- og húsnæðismálaráðherra,
svaraði fyrirspurn Fréttablaðsins
um skort á aðgerðum á þann veg að
hún tryði því að það þyrfti að skoða
betur úrræði fyrir fórnar lömb man-
sals og þá sér í lagi karla. - kbg
Svandís Svavarsdóttir sendir fyrirspurn til innanríkisráðherra um aðgerðaáætlun gegn mansali:
Vill skrifleg svör um mansal á Íslandi
SVANDÍS
SVAVARS DÓTTIR
SAMFÉLAG Vefurinn neteinelti.
is og stuttmynd sem þar er að
finna er hluti af lokaverkefni
ellefu manna hóps kennaranema
í grunnskólakennarafræðum til
B.Ed.-gráðu vorið 2014.
Hópurinn ákvað nýverið að
færa Heimili og skóla, lands-
samtökum foreldra, vefinn til
umsjónar en samtökin hafa þegar
notað hann í fræðslustarfi sínu í
grunnskólum. Í stuttmyndinni er
rætt við ungt fólk um ýmsar hlið-
ar eineltis. - kbg
Nýr vefur tekinn í gagnið:
Birta stutta
heimildarmynd
LÖGREGLUMÁL
Hraðakstur myndaður
Brot 22 ökumanna voru mynduð
á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í gær,
að því er fram kemur á vef lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Á
einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 64
ökutæki þessa akstursleið og því ók um
þriðjungur ökumanna, eða 34 prósent,
of hratt eða yfir afskiptahraða.“ Meðal-
hraði hinna brotlegu er sagður hafa
verið 43 kílómetrar á klukkustund, en
þarna er 30 kílómetra hámarkshraði.
0
4
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
5
-0
E
5
0
1
3
A
5
-0
D
1
4
1
3
A
5
-0
B
D
8
1
3
A
5
-0
A
9
C
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K