Fréttablaðið - 05.02.2015, Síða 45

Fréttablaðið - 05.02.2015, Síða 45
FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2015 | SKOÐUN | 33 Náms- og starfsráðgjafi í grunn- skóla er trúnaðarmaður og tals- maður nemenda vegna mála sem tengjast námi þeirra og skólagöngu. Hlutverk hans er m.a. að leiðbeina nemendum um góð vinnubrögð og námsvenjur, að veita upplýsingar um nám og kynna framhaldsskóla, að aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum sínum og setja sér markmið, að vera stuðn- ingsmaður nemenda vegna erfið- leika eða áfalla og að vinna með kennurum og öðru starfsfólki að bættum samskiptum nemenda og gegn einelti. Samstarf við foreldra/ forráðamenn er einnig mikið. Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 gerir ráð fyrir að náms- og starfsráðgjafar séu hluti af lög- bundinni sérfræðiþjónustu fyrir grunnskólabörn og á það við um alla nemendur frá fyrsta bekk og upp úr. Kveðið er á um rétt barna til að njóta náms- og starfsráðgjafar í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 (13. grein) og í Barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna, en þar segir í 28. grein: „Aðildarríki viðurkenna rétt barns til menntunar og skulu þau, til þess að réttur þessi nái fram að ganga […] Sjá til þess að upplýsingar og ráðgjöf um nám og starfsval séu fyrir hendi og aðgengilegar öllum börnum.“ Hver er staðan? Í nóvember sl. var gerð könnun á stöðu náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum. Sendur var spurn- ingalisti, rafrænt, til allra skóla- stjóra á landinu. Skólarnir eru 176. Svör bárust frá 115 skólum, eða 65%, sem er nægileg svörun til þess að draga af marktækar ályktanir. Kannað var hvort náms- og starfsráðgjafar starfa í skólunum, Hefur barnið þitt aðgang að náms- og starfsráðgjöf? Lesandi góður, mig langar að kynna fyrir þér hugmynd sem ég hef um hvernig hægt er að brúa bilið sem er hjá þjóðkirkjunni þar sem hana vantar 600 milljónir til þess að við- halda kirkjum landsins svo þær liggi ekki undir skemmdum, en kirkjurnar eru víst um 800 tals- ins. Því er ég með hugmynd um hvort ekki sé hægt að selja kirkjur til að brúa þetta bil. Núna hefur sjálf- ur fjármálaráð- herra, Bjarni Benediktsson, spurt hvort ekki væri hægt að selja eignir til að standa í skilum. Ég tel að þessi hugmynd sé svolítið skemmtileg og atvinnuskapandi þar sem innrétta þarf kirkju með turni og öllu. Þetta getur aukið möguleika á að unga fólkið flytji aftur í heimabyggð þar sem sums staðar vantar húsnæði. Vissulega eru kannski kvaðir eins og grafir í bakgarðinum og það þarf víst að afkirkja húsið til þess að það sé ekki lengur guðshús. Þetta er svona hugmynd sem mig langar að varpa fram til ykkar og skoða hvort ekki sé grundvöllur fyrir þessu. Það gæti verið mjög gaman fyrir lista- fólk að gera eitthvað sem gleður augað og væri skemmtilegt tæki- færi til að leyfa okkur að vera opin og viðsýn. Til eru dæmi erlendis um að kirkjum hafi verið breytt í bóka- safn, skemmtistað og heimili. Dansleikir í Hallgrímskirkju, þar er mikið gólfpláss og stórt orgel er þegar á staðnum. Þá er ég ekki endilega að tala um skemmtistað fyrir ungt fólk ein- göngu með plötusnúð á staðnum sem væri líka í lagi, heldur einnig svona 19. aldar dansleik með kjólfatnað jafnt fyrir unga sem aldna eða jú kannski svona skemmtistað. Sala á kirkjum KIRKJUR Sigurður Óskar Óskarsson formaður Ungra Pírata hvort þeir hafa tilskylda menntun og ef ekki, hvaða aðra menntun fólk sem sinnir starfinu hefur. Niðurstöður könnunarinnar benda til að ekki séu starfandi náms- og starfsráðgjafar í u.þ.b. þriðjungi grunnskóla á landinu. Starfsheitið náms- og starfsráð- gjafi hefur verið lögverndað síðan 2009 en í þriðjungi þeirra skóla sem hafa náms- og starfsráðgjafa hafa aðrir verið ráðnir til að sinna starf- inu. Í þeim hópi má finna leikskóla- kennara, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa, sálfræðinga, sérkennara, almenna kennara, félagsráðgjafa, félags- fræðinga, skólastjóra og fyrrver- andi skólastjórnendur. Víða pottur brotinn Af framansögðu má ljóst vera að víða er pottur brotinn í grunn- skólum landsins varðandi náms- og starfsráðgjöf. Mikill fjöldi nemenda fær ekki þessa lögboðnu þjónustu. Þessi staða er óviðunandi. Á undan- förnum árum hafa verið gerðar rannsóknir og skrifaðar margar skýrslur sem allar hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að efla náms- og starfsráðgjöf en lítið hefur þok- ast í rétta átt. Á vegum mennta- málaráðuneytisins er nú unnið að stefnumótun um málefni náms- og starfsráðgjafar. Vonandi skilar sú vinna þeim árangri að réttur barna til þess að hafa aðgang að náms- og starfsráðgjöf verði virtur, ekki bara í orði heldur einnig á borði. Sigríður Bílddal MENNTUN Rannveig Óladóttir náms- og starfsráðgjafar í grunnskóla Kringlan | Smáralind ➜ Niðurstöður könnunar- innar benda til að ekki séu starfandi náms- og starfs- ráðgjafar í u.þ.b. þriðjungi grunnskóla á landinu. 0 4 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 A 5 -1 D 2 0 1 3 A 5 -1 B E 4 1 3 A 5 -1 A A 8 1 3 A 5 -1 9 6 C 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.