Fréttablaðið - 05.02.2015, Síða 66
5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54
FÓTBOLTI „Ég hef verið með hug-
ann við að flytja heim nokkuð lengi
eftir erfið ár hjá Silkeborg. Þetta
var besta lausnin og gott að kom-
ast í umhverfi þar sem mér og fjöl-
skyldunni líður vel,“ segir Bjarni
Þór Viðarsson en hann skrifaði í
gær undir þriggja ára samning við
uppeldisfélag sitt, FH.
FH-ingar ætla sér augljóslega
stóra hluti í sumar því þeir sömdu
einnig við Belgann Jeremy Serwy.
Sá er mikill spyrnumaður og var á
mála hjá Dortmund í fyrra. Hann
spilaði þó aðeins með varaliðinu
og endaði hjá ungverska liðinu
Újpest.
Aðeins FH kom til greina
Bjarni Þór er orðinn 26 ára gamall
en náði aldrei að spila fyrir meist-
araflokk félagsins því hann samdi
við Everton aðeins 16 ára gam-
all. Hann hefur einnig spilað með
liðum í Englandi, Belgíu og Dan-
mörku en er nú kominn heim.
„Það er gott að vera kominn
heim í FH. Það er allt rosalega
flott hjá þeim hérna og kom mér á
óvart hvað allt er orðið flott,“ segir
Bjarni en það kom ekki til greina
að fara í annað félag hér heima
enda faðir hans formaður FH og
föðurbróðir hans formaður knatt-
spyrnudeildar.
„Það hefði ekki verið vel séð ef
ég hefði farið eitthvað annað. Það
hefðu þó nokkrir aðilar ekki verið
sáttir og ég tók því enga áhættu.“
Hjá FH hittir Bjarni líka fyrir
bróður sinn, Davíð, en þeir hafa
aldrei náð að spila saman fyrir
meistaraflokk.
„Það á örugglega eftir að vera
mjög gaman. Ég vonast til þess
að við náum vel saman á vell inum
og verðum ein af betri miðjum
deildarinnar,“ segir Bjarni Þór en
á hann ekki von á því að lenda í
einhverjum bræðraátökum á vell-
inum?
„Við eigum eflaust eftir að láta
hvor annan heyra það eitthvað. Það
er hluti af þessu. Við hættum að
slást þegar við vorum krakkar og
látum það vera núna.“
Ekki að drífa sig út aftur
Bjarni kemur heim hokinn af
reynslu eftir langan atvinnu-
mannsferil hjá ungum manni.
„Ég þekki Ísland ekkert sérstak-
lega vel en hef fylgst nokkuð vel
með deildinni. Ég þekki líka Heimi
þjálfara vel sem er jákvætt,“ segir
miðjumaðurinn en hann er ekkert
að drífa sig í að komast aftur út í
atvinnumennsku.
„Ég ætla að einbeita mér að því
að spila vel fyrir FH. Það þarf
að vera freistandi tilboð ef ég
fer aftur út. Það eru engin enda-
lok að koma heim og sérstaklega
þegar maður fer í svona gott félag.
Við ætlum að stefna á titla næsta
sumar enda með gott lið og viljum
líka standa okkur í Evrópukeppn-
inni.“ - hbg
Löngu hættur að slást við bróður minn
Bjarni Þór Viðarsson er ánægður að vera kominn heim og er ekki að drífa sig út aft ur í atvinnumennsku.
KOMINN HEIM Bjarni spilar á ný með
uppeldisfélagi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÚRSLIT
OLÍSDEILD KARLA
VALUR - FRAM 34-17 (15-7)
Valur - Mörk (skot): Orri Freyr Gíslason 4 (4),
Kári Kristján Kristjánsson 4/2 (4/2), Sveinn Aron
Sveinsson 4 (6), Ómar Ingi Magnússon 3/2 (3/2),
Guðmundur Hólmar Helgason 3 (4), Finnur Ingi
Stefánsson 3 (4), Alexander Örn Júlíusson 3 (5),
Elvar Friðriksson 3 (5), Geir Guðmundsson 3 (6),
Bjartur Guðmundsson 2 (2), Vignir Stefánsson 2
(3), Atli Már Báruson (1).
Varin skot: Stephen Nielsen 18/1 (30/2, 60%),
Hlynur Morthens 6 (11, 55%).
Hraðaupphlaup: 11 ( Kári Kristján Kristjánsson 1,
Sveinn Aron Sveinsson 3, Finnur Ingi Stefánsson
3, Alexander Örn Júlíusson 1, Elvar Friðriksson 2,
Vignir Stefánsson 1.).
Utan vallar: 14 mínútur.
Fram - Mörk (skot): Sigurður Örn Þorsteinsson
5 (12), Ólafur Jóhann Magnússon 3 (4), Stefán
Baldvin Stefánsson 3 (6), Arnar Freyr Ársælsson
2 (6), Arnar Snær Magnússon 1 (2), Ragnar Þór
Kjartansson 1 (2), Garðar B. Sigurjónsson 1/1 (4/2),
Kristinn Björgúlfsson 1 (6/1), Þorri Björn Gunn-
arsson (1), Þröstur Bjarkason (2), Stefán Darri
Þórsson (4).
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 8
(34/4, 24%), Valtýr Már Hákonarson 3 (11, 27%).
Hraðaupphlaup: 5 (Sigurður Örn Þorsteinsson
1, Ólafur Jóhann Magnússon 2, Stefán Baldvin
Stefánsson 1, Arnar Freyr Ársælsson 1.).
Utan vallar: 6 mínútur.
GÓÐUR Kári Kristján Kristjánsson er
kominn heim frá Katar og skoraði fjögur
mörk fyrir Valsmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KÖRFUBOLTI Kvennalið Kefla-
víkur verður án leikstjórnanda
síns, Ingunnar Emblu Kristínar-
dóttur, í næstu tveimur leikjum
liðsins en hún hefur verið úr-
skurðuð í tveggja leikja bann.
Hún var kærð fyrir atvik sem
gerðist í undanúrslitaleik Kefla-
víkur og Snæfells á laugardaginn
var en hún sparkaði þá í Gunn-
hildi Gunnarsdóttur hjá Snæfelli.
Dómarar leiksins misstu af
atvikinu en sparkið sást mjög vel
í sjónvarpsupptöku frá leiknum.
Aga- og úrskurðarnefnd tók mál
hennar fyrir og dæmdi hana í
tveggja leikja bann. - óój
Ingunn Embla
sett í leikbann
GRÓFT BROT Ingunn Embla sparkaði í
leikmann Snæfells. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TAEKWONDO Ingibjörg Erla
Grétars dóttir, nýkrýndur Norður-
landameistari í taekwondo í
fimmta sinn, hækkaði sig upp um
þyngdarflokk fyrir Norðurlanda-
mótið í Noregi um helgina en það
kom ekki í veg fyrir að hún fagnaði
sínu fimmta NM-gulli fyrir tvítugt.
„Ég er mjög sátt og líka með
það að það gekk öllum mjög vel á
mótinu,“ segir Ingibjörg Erla en
hvernig fór hún að þessu? „Ég er
bara með mjög gott fólk í kringum
mig og æfi vel,“ segir Ingibjörg
Erla og það er svolítið að heyra
á henni að þetta hafi verið svona
dálítið það sama og venjulega.
Með mikla reynslu
„Þessi var ekkert öðruvísi hjá mér
en hinir fjórir. Þetta er búið að
vera svipað. Ég er búin að keppa
á Norðurlandamótinu síðan 2008
og er því komin með mjög mikla
reynslu á þessu móti,“ segir Ingi-
björg. Ingibjörg hefur keppt á
mótinu síðan hún var þrettán ára.
Hún vann fyrsta titilinn í ung-
lingaflokki en hina í fullorðins-
flokki.
„Það eru alveg tíu til fimmtán
ár eftir og vonandi verða Norður-
landameistaratitlarnir margir hjá
mér,“ segir Ingibjörg létt og það
er að heyra á henni að hún er bara
rétt að byrja á sínum taekwondo-
ferli. Ingibjörg Erla vann norska
stelpu í úrslitaleiknum og hefndi
þar fyrir aðra íslenska stelpu sem
sú norska hafði slegið út í undan-
úrslitunum.
Færði sig upp um þyngdarflokk
„Ég var að keppa í þyngdinni fyrir
ofan mig þannig að ég hef aldrei
keppt á móti þessari áður. Þessar
stelpur voru aðeins þyngri en ég
en það munaði samt ekki miklu,“
sagði Ingibjörg Erla sem keppti
nú í -62 kíló flokknum í stað -57
kílóa flokknum áður. „Það er engin
ástæða nema kannski að ég hafi
verið feitabolla eftir jólin,“ segir
Ingibjörg í miklu meira gríni en
alvöru.
Ingibjörg Erla tekur undir það
að það þurfi hugrekki í þetta
sport. „Hugrekkið er mikilvægur
kostur. Það hrjáir marga að vera
mjög stressaðir. Ég er frekar and-
lega sterk á mótum. Ég hef aldrei
fundið fyrir stressi og það finnst
sumum svolítið skrýtið,“ segir
Ingibjörg Erla létt. Hún kvartar
ekki undan höggunum sem hún
fær. „Þetta venst. Það er alveg
eðlilegt að fá nokkra marbletti,“
segir Ingibjörg en hefur hún slopp-
ið við stór meiðsli? „Ég hef fengið
heilahristing einu sinni og aðeins
meitt mig í ökklum og hnjám en
ekkert alvarlegt. Við erum í það
miklum hlífum að maður er aldrei
að slasa sig mikið. Það er rosalega
lítið slysahætta í þessu sporti,“
segir Ingibjörg.
En af hverju fór hún í tae-
kwondo á sínum tíma?“ Ég sá sýn-
ingu þegar ég var sjö eða átta ára
og fannst þetta svo flott að mig
langaði að stunda þetta líka. Ég
fann mig í þessu strax á fyrstu
æfingunni,“ segir Ingibjörg Erla
sem hefur prófað margar íþróttir
en aldrei fundið sig nema í tae-
kwondo.
Ingibjörg Erla býr í Kópavogi,
keppir fyrir Selfoss og stundar
nám í viðskiptafræði við Háskól-
ann í Reykjavík. En af hverju
keppir hún fyrir Selfoss? „Það
er bara besta liðið,“ segir hún án
þess að hika en Ingibjörg hefur
keppt fyrir Selfoss frá 2011. Ingi-
björgu dreymir um Ólympíuleika
en viður kennir að hún sé svolítið
langt frá þeim draumi enn þá.
Erfitt að komast á ÓL
„Ég stefni alveg á það að komast á
Ólympíuleika en það verður mjög
erfitt því maður þarf að safna það
mörgum stigum á mótum sem gefa
slík stig. Ég ætla allavega að reyna
að ná eins mörgum stigum og ég
get á þessu ári og svo sjáum við
bara til,“ segir Ingibjörg Erla að
lokum.
Ingibjörg Erla var ekki sú eina
sem varð Norðurlandameistari því
það urðu einnig Ástrós Brynjars-
dóttir, Ágúst Kristinn Eðvarðsson,
Daníel Jens Pétursson og Gunnar
Snorri Svanþórsson. ooj@frettabladid.is
Aldrei stressuð fyrir bardaga
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir varði Norðurlandameistaratitil sinn í taekwondo í Noregi um helgina en hún
varð þá Norðurlandameistari í fi mmta sinn. Þetta voru ein af sex íslenskum gullverðlaunum á mótinu.
FIMM NM-GULL Ingibjörg
Erla Grétarsdóttir með
uppskeruna á síðustu
fimm Norðurlandamótum
sínum í taekwondo.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HANDBOLTI Olís-deild karla í handbolta heldur áfram í kvöld þegar 17.
umferðin klárast með fjórum leikjum. Það byrjar allt með leik ÍBV og
Hauka í Vestmannaeyjum klukkan 18.00 og klukkutíma síðar
verður flautað til leiks í viðureign Akureyrar og ÍR. Klukkan
19.30 hefjast svo leikir Stjörnunnar og FH í Mýrinni annars
vegar og HK og Aftureldingar hins vegar.
Mosfellingar byrjuðu tímabilið frábærlega og unnu sex
fyrstu leikina og gerðu eitt jafntefli áður en þeir voru
loks slegnir niður á jörðina af botnliði HK í áttundu
umferð Olís-deildarinnar. Kópavogspiltar unnu þar
óvæntan sigur, 25-22.
Gengi liðanna er þó ólíkt með öllu það sem af er
tímabili, en HK vann aðeins einn leik fyrir utan að
leggja Aftureldingu að velli og er rótfast við botninn
með fjögur stig. Afturelding er í 3. sæti með 22 stig.
Mosfellingar reyna
að hefna ófaranna FÓTBOLTI Kvennalandslið Íslands í fótbolta spilar vináttuleik við
Holland í Kórnum í Kópavogi 4. apríl, knattspyrnusambönd landanna
komust að samkomulagi um tvo leiki á næstu tveimur árum. Ísland
og Holland mætast fyrst hérlendis í Kórnum sem fyrr segir í byrjun
apríl og svo aftur í Hollandi á næsta ári.
Þá verður spilað á einum af leikstöðum EM 2017, en Hollendingar
eru einmitt gestgjafar næsta Evrópumóts og verða því ekki í pott-
inum þegar dregið verður til riðlakeppninnar 13. apríl.
Leikurinn við Holland kemur beint í kjölfarið á Algarve-mótinu
þar sem Ísland er í riðli með Bandaríkjunum, Noregi og Sviss, en
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari fær góða leiki til að undirbúa
liðið fyrir undankeppni EM sem hefst næsta haust.
Liðin mættust síðast í riðlakeppni EM 2013 en þá vann Ísland,
1-0, með marki Dagnýjar Brynjarsdóttur. Það skaut Íslandi í 8 liða
úrslit. Þetta verður annar leikur Hollands gegn Íslandi í Kórnum, en
þau skildu jöfn árið 2009, 1-1. Þá skoraði Ólína G. Viðarsdóttir. - tom
Gestgjafar EM koma í heimsókn
AFTUR Í KÓRINN Holland sótti Ísland heim 2009
og spilaði þá vináttuleik í Kórnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
0
4
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
4
-F
A
9
0
1
3
A
4
-F
9
5
4
1
3
A
4
-F
8
1
8
1
3
A
4
-F
6
D
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K