Fréttablaðið - 05.02.2015, Page 70

Fréttablaðið - 05.02.2015, Page 70
5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 58 „Ég er mjög ánægður með tattú- ið, hún kann þetta stelpan,“ segir Jóhann Kristinn Jóhannsson, en hann fékk sér fyrir skömmu tattú sem dóttir hans, hin átta ára Emilía Rós Jóhannsdóttir, teiknaði. Jóhann Kristinn, sem kallar sig Jóhann Prinsessupabba á Face book að beiðni dóttur sinnar, segist hafa spurt dóttur sína á sunnudegi hvort hún vildi teikna mynd af þeim feðg- inum sem hann ætlaði svo að flúra á sig. „Ég sagði henni að teikna okkur saman. Hún heldur þó á hamstri í búri á myndinni,“ segir Jóhann. Þau eiga þó ekki hamstur og því ekki ólíklegt að dulin skilaboð sé að finna í teikningu dótturinnar. „Hana langar augljóslega í hamstur,“ bætir Jóhann við og hlær. Feðginin voru einmitt að huga að því að koma við í dýrabúð og skoða hamstra þegar blaðamaður náði tali af þeim. Flúrið er um það bil 13 sentímetra langt og er á handlegg Jóhanns. „Hún á hendurnar mínar. Ég er með nafnið hennar á vinstri hendinni og svo teikninguna hennar á hægri hendinni.“ Dagur Gunnarsson hjá Blek- smiðjunni sá um að flúra verk- ið á handlegg Jóhanns. „Honum fannst þetta virkilega flott. Hann sagði þó að hann hefði ekki flúr- að teikningu barna oft á foreldra þeirra.“ Jóhann segir vel koma til greina að láta flúra á sig fleiri teikningar dóttur sinnar. „Ég væri alveg til í fleiri tattú eftir hana. Hún fær alveg að ráða hvernig næsta tattú verður, ég treysti henni svo vel,“ bætir hann við. Tattúið er það sjöunda sem hann fær sér en þó það fyrsta sem Emilía Rós teiknar. Jóhann segist þó ekki vera mik- ill teiknari og að hinir listrænu hæfileikar dóttur sinnar komi alfarið frá móður hennar. „Ég gæti örugglega ekki teiknað mynd til að bjarga lífi mínu,“ segir hann og hlær. gunnarleo@frettabladid.is Teikning dótturinnar endaði sem húðfl úr Jóhann Kristinn Jóhannsson lét fl úra á sig mynd sem átta ára dóttir hans teiknaði. FLOTT FEÐGIN Jóhann Krist- inn Jóhanns- son og Emilía Rós Jóhanns- dóttir ætla líklega að leita sér að flottum hamstri en hann rataði inn á myndina sem Emilía Rós teiknaði fyrir pabba sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hún á hendurnar mínar. Ég er með nafnið hennar á vinstri hend- inni og svo teikninguna hennar á hægri hendinni. „Ég segi bara gangi honum vel að finna tónleikahús þar sem ekki er selt kjöt,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson um Morrissey, sem hefur aflýst tón- leikum sínum í Hörpu vegna þess að kjöt er selt í húsinu. Friðrik Ómar stendur h ins ve g a r f y r i r mikilli kjötveislu í sama húsi um helgina, þegar Meatloaf-tónleika- sýningin Bat Out Of Hell fer fram í síðasta sinn í Hörpu. „Ég er mikill kjötmaður en hef hins vegar verið að djúsa í níu daga og get varla beðið eftir því að gæða mér á dýrindis kjöthleif,“ segir Frið- rik Ómar. Hann vill einnig meina að á meðan Meatloaf-tónleikasýningin hafi farið fram í Hörpu hafi sala á kjöti aukist til muna í húsinu. „Það verður rífandi sala á kjöti um helgina. Morrissey er lík- lega ekki sáttur við mig,“ bætir Friðrik Ómar við og hlær. Hann og hans hópur eru nú að fylla Eldborg í fjórða skiptið með tónleikasýningunni en kjötveislan fyllir einnig Hof í fjórða sinn þann 21. febrúar. „Öll „showin“ hafa hætt fyrir fullu húsi. Nú klárum við þetta og undirbúum næstu verkefni. Við stefnum á frekari afrek á árinu.“ - glp Morrissey er ekki sáttur við mig Friðrik Ómar verður með kjöthleif í Hörpu um helgina, enda mikill kjötmaður. Prettypegs fætur undir húsgögn 19.990.- Pia Wallén bakki 6.500.- Pia Wallén teppi frá 13.500.- Mikið úrval af fallegum hönnunarvörum. Fáðu sent heim að dyrum. www.snuran.is vefverslun S: 537-5101 „Ég fæ mér bókhveitigraut í morgun mat eða svokallaða „grechku“ að rússneskum sið.“ Freyja Eilíf Logadóttir myndlistarkona. MORGUNMATURINN Þjóðleikhúsið frumsýnir nýja uppsetningu leikritsins Fjalla- Eyvindar eftir Jóhann Sigurjóns- son þann 26. mars. Einn mikil- vægasti partur leikmyndarinnar, heljarinnar ísklumpur úr Jökuls- árlóni, kom til Reykjavíkur í gær. „Honum var rúllað beint inn í frystigám,“ segir sýningarstjór- inn Kristín Hauksdóttir. Hún bætir við að nú fari í gang próf- anir á því hve lengi klumpurinn endist og hvernig hann hagi sér. Kristín vonar að ekki þurfi að sækja fleiri ísjaka en vill ekk- ert gefa upp hvernig hann verður brúkaður á sviðinu. „Þetta er afar frumleg hug- mynd leikstjórans Stefans Metz og leikmyndahönnuðarins Seans Mackaoui,“ segir Kristín. Fólk verði að mæta á sýninguna og sjá hvert hlutverk klakans er með eigin augum. „Ég bragðaði hann áðan og get sagt þér að það er enginn munur á þúsund ára gömlum ísmola úr Vatnajökli og venjulegum klaka í kókglasi.“ - jóe Þúsund ára gamall ísklumpur í leikmyndinni Stærðarinnar ísjaki úr Jökulsárslóni mun leika hlutverk í uppsetningu Þjóðleikhússins á Fjalla-Eyvindi. HJÁ ÍS KLUMPINUM Nína Dögg Fil- ippusdóttir og Stefán Hallur Stefánsson fara með hlutverk Höllu og Fjalla- Eyvindar. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM FRIÐRIK ÓMAR HJÖRLEIFSSON MORRISSEY MEAT LOAF 0 4 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 3 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 A 4 -D 3 1 0 1 3 A 4 -D 1 D 4 1 3 A 4 -D 0 9 8 1 3 A 4 -C F 5 C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.