Fréttablaðið - 04.03.2015, Qupperneq 10
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Margar
stærðir
og gerðir
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
350
PVC mottur 50x80 cm1.590
66x120 cm kr 2.890
100x150 cm kr 5.590
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Breidd: 67 cm
Verð pr. lengdarmeter
1.595
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
1.845
6mm gúmmídúkur grófrifflaður
3.490pr.lm.
einnig til 3mm á kr.
1.990
Gúmmímottur margar
gerðir og stærðir,
verðdæmi 66x99cm
2.490
RÚSSLAND Þúsundir manna gengu
upp að kistu Boris Nemtsovs í gær
til að kveðja hann, þar sem kist-
an var höfð opin við Sakharov-
miðstöðina í Moskvu. Miðstöðin
er nefnd eftir Andrei Sakharov,
einum þekktasta andófsmanni Sov-
éttímans.
Nemtsov var myrtur á fimmtu-
daginn úti á götu í Moskvu, en
hann hafði árum saman harðlega
gagnrýnt stjórn Vladimírs Pútín
forseta.
Anna Duritskaja, hin úkra-
ínska kærasta Nemtsovs, fékk að
fara heim til Kænugarðs á mánu-
dag. Rússnesk stjórnvöld höfðu þá
haldið henni í yfirheyrslum yfir
helgina, en hún var viðstödd þegar
hann var myrtur.
Hún er talin vera eina vitnið að
morðinu, en segist ekki hafa séð
neitt þar sem morðinginn hafi
komið aftan að þeim og verið horf-
inn á braut nánast samstundis.
Að minnsta kosti tveimur evr-
ópskum þingmönnum var bannað
að koma til Rússlands til að taka
þátt í athöfninni í gær. Þetta eru
þau Sandra Kalniete, fyrrverandi
utanríkisráðherra Lettlands, og
Bogdan Borusewicz, forseti efri
deildar pólska þingsins.
Stjórnarandstæðingurinn Alexei
Navalní fékk ekki að fara til útfar-
arinnar, en hann situr í fangelsi.
Hann hafði óskað eftir því að fá að
vera viðstaddur útför Nemtsovs.
Fjölmargir andstæðingar Pútíns
hafa ýmist verið myrtir eða settir
í fangelsi á valdatíð hans. Meðal
þeirra er blaðakonan Anna Polit-
kovskaja sem var myrt árið 2006 í
lyftu í fjölbýlishúsinu sem hún bjó
í. Fimm menn hafa verið dæmdir
í fangelsi fyrir morðið á henni, en
engin skýring hefur samt fengist á
því hver hafi fengið þá til verksins.
Pútín hefur verið gagnrýndur
fyrir að hafa sjálfur tekið að sér
umsjón með rannsókninni á morð-
inu á Nemtsov, ekki síst þar sem
andstæðingar hans hafa viljað
bendla hann sjálfan við morðið.
gudsteinn@frettabladid.is
Fjöldi fólks
við útförina
Boris Nemtsov var borinn til grafar í Moskvu í gær.
Þúsundir manna voru við útförina. Kærasta hans
sögð hafa fengið að fara til Úkraínu á mánudag.
NEMTSOV KVADDUR Þúsundir manna
fylgdu Nemtsov til grafar í Moskvu.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Auk ættingja og vina Nemtsovs voru bæði rússneskir stjórnarandstæðing-
ar og fulltrúar rússneskra stórnvalda viðstaddir útförina ásamt fulltrúum
erlendra ríkja.
Arkadí Dvorkovítsj, aðstoðarforsætisráðherra Rússlands.
John Tefft, sendiherra Bandaríkjanna í Rússlandi.
Vygaudas Usackas, hinn lettneski fastafulltrúi Evrópusambandsins í
Rússlandi.
John Major, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.
Mikhaíl Kasjanov, stjórnarandstæðingur, fyrrverandi forsætisráðherra
Rússlands.
Ilja Jashín, einn helsti samstarfsmaður Nemtsovs til margra ára.
Anatólí Tsjúbaís, einn helsti forsprakki einkavæðingar á tímum Boris
Jeltsíns forseta.
Platon Lebedev, einn helsti samstarfsmaður auðkýfingsins Mikhaíls
Khodorkovskís. Báðir sátu þeir árum saman í fangelsi.
Dina Eidman, 87 ára gömul móðir hins myrta, og aðrir ættingjar og vinir.
Meðal viðstaddra
SKEMMTUN „Því miður er staðan sú
að við ráðum ekki við þetta án fjár-
hagsaðstoðar,“ segir aflraunamað-
urinn Magnús Ver Magnússon, sem
nú leitar fjárhagsaðstoðar hjá fyrir-
tækjum og sveitarfélögum til að
halda kraftakeppnir á Austurlandi.
Að því er fram kemur í bréfi
Magnúsar til sveitarfélaga er stefnt
að því að halda bæði Austfjarða-
tröllið og Valkyrju Íslands 2015
víðs vegar um Austurland í júlí eða
ágúst. „Aflraunamenn og konur
etja þar kappi við hrikaleg-
ar aflraunir og við hverja
aðra,“ segir Magnús.
Gífurlegur kostnaður
fylgir mótinu og þáttagerð
fyrir sjónvarp að sögn Magn-
úsar. „Því miður hefur innkoma
okkar til að dekka kostnað ekk-
ert aukist undanfarin ár, frekar
minnkað eftir hrun. En allur kostn-
aður hefur farið upp úr öllu valdi;
kostnaður eins og leiga á rútu,
sendibíl, eldsneyti og við þátta-
gerðina svo eitthvað sé nefnt.“
Þá segir Magnús að gerður verði
sjónvarpsþáttur um keppnina og
hann afhentur fullunninn til RÚV.
„Er fléttað saman við aflraunirn-
ar hrikalegri náttúru, sögu stað-
anna sem farið er á og lífi fólksins
þar fyrr og síðar, þetta á að vera
svona menningarþáttur í bland við
krafta!“ - gar
Magnús Ver segir kostnað upp úr öllu valdi:
Austfjarðatröll þarf
að fá hjálparhönd
EFNAHAGSMÁL Undirliggjandi
erlend staða þjóðarbúsins í árslok
2014 er metin neikvæð um 880
milljarða króna eða 45 prósent af
áætlaðri vergri landsframleiðslu
ársins 2014. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Seðlabanka
Íslands.
Til samanburðar var undir-
liggjandi staða í lok þriðja árs-
fjórðungs metin neikvæð um 929
milljarða króna. Undirliggjandi
staða hefur því batnað á fjórða
ársfjórðungi um 49 milljarða
króna eða um 2,5 prósent af
vergri landsframleiðslu.
Við lok árs 2014 var hrein staða
við útlönd neikvæð um 7.835
milljarða. - ngy
Staða við útlönd neikvæð:
Neikvæð staða
þjóðarbúsins
SEÐLABANKI ÍSLANDS Við lok árs
2014 var hrein staða við útlönd nei-
kvæð um 7.835 milljarða.
KRAFTAKARL
Magnús Ver Magn-
ússon lofar hrika-
legum aflraunum
þegar sterkustu
konur og karlar
landsins etja kappi.
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
0
-0
A
F
8
1
4
0
0
-0
9
B
C
1
4
0
0
-0
8
8
0
1
4
0
0
-0
7
4
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K