Fréttablaðið - 04.03.2015, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 4. mars 2015 | FRÉTTIR | 11
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf.
verður haldinn 26. mars 2015
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar í félaginu
sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2,
fimmtudaginn 26. mars 2015 og hefst kl. 15:00.
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár með athugasemdum
endurskoðenda.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu
reiknings ári og framlög í varasjóð.
4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins skal lögð fram og atkvæði greidd um hana.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum, ef borist hafa.
– Fyrir liggur tillaga um breytingu á 18. gr. samþykkta félagsins sem felur í sér
fækkun varastjórnarmanna úr fimm í tvo.
6. Kosning stjórnar félagsins.
7. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
8. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins.
9. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
10. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum með framkvæmd endurkaupaáætlunar.
11. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Hluthafar eiga rétt á að leggja mál og/eða ályktunar-
tillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða
rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund.
Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun
verði tekin fyrir verður endanleg dagskrá og tillögur
uppfærðar á vefsvæði félagsins eigi síðar en þremur
dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur
eða ályktanir fyrir fundinn á veffangið stjorn@sjova.is.
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða
auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum. Nánari
upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsvæði
félagsins, www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verða ekki skriflegar
nema ef einhver fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör
skal þó vera skriflegt ef fleiri eru í kjöri til stjórnar en
kjósa skal. Kveðið er nánar um stjórnarkjör í samþykkt-
um félagsins en kosið er eftir hlutfallskosningu. Athygli
er þó vakin á ákvæðum samþykkta um hlutfall kynja í
stjórn félagsins.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti
á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá atkvæða-
seðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist
félaginu a.m.k. fimm dögum fyrir auglýstan aðalfund.
Hluthafar geta jafnframt vitjað atkvæðaseðla í höfuð-
stöðvum félagsins frá sama tíma og greitt þar atkvæði.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað
og mætt er fyrir helming hlutafjár í félaginu.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Í tilkynningu um
framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda,
kennitölu og heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf,
önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í
félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við
helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem
og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Fram-
boðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins.
Upplýsingar um frambjóðendur verða aðgengilegar á
vefsvæði félagsins, www.sjova.is/fjarfestar/hluthafa-
fundir að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þar á
meðal tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund
eru birt á vefsvæði félagsins, www.sjova.is/fjarfestar/
hluthafafundir, og liggja frammi á skrifstofu þess í
Kringlunni 5, 103 Reykjavík.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn
á fundarstað frá kl. 14:30 á aðalfundardegi.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 3. mars 2015.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
LANDBÚNAÐUR Með nýrri dýravel-
ferðarlöggjöf á Íslandi og innleið-
ingu nýrra reglugerða eykst frelsi
og velferð dýra á hverju ári. Mikl-
ar breytingar eru fram undan
hvað varðar aðbúnað dýra og árið
2021 verður til dæmis hefðbundið
búrhald fyrir fugla til eggjafram-
leiðslu alfarið bannað.
Þóra Jóhanna Jónasdóttir,
dýralæknir gæludýra og dýra-
velferðar hjá Matvælastofnun,
segir stærstu framförina felast
í því að í dag sé litið á dýr sem
skyni gæddar verur. „Ný lög um
dýravelferð tóku gildi árið 2014
og í þeim er loks viðurkennt að
dýr eru skyni gæddar verur.
Auðvitað getum við gert betur
en það hefur orðið mikil framför
hvað varðar velferð dýra, þá sér-
staklega eru auknar áherslur á
frelsi dýranna. Að þau séu ekki
í þröngum básum og hafi meira
ferðafrelsi, segir Þóra, sem hefur
borið saman nýja dýravelferðar-
löggjöf við gildandi stefnu ESB í
dýravelferðarmálum.
„Á næstunni detta inn nýjar
reglugerðir þar sem hugað er
að því að bæta velferð alifugla.
Hefðbundið búrhald fyrir fugla
til eggjaframleiðslu verður bann-
að frá 2021,“ segir Þóra frá og
segir alifuglabændur hafa góðan
tíma til að laga sig að breyttum
reglum.
„Það er mikill kostnaður falinn
í breytingu á reglugerðum eins
og þessum og því mikilvægt að
gefa tíma til aðlögunar.“
- kbg
Dýravelferð aukin með nýjum reglugerðum:
Hefðbundið búrhald bannað árið 2021
BÚRHALD BANNAÐ Ný dýralöggjöf
á Íslandi og reglugerðir ESB leiða til
aukinnar velferðar dýra. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
REYKJAVÍK Hildur Sverrisdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, lagði fram tillögu á borgar-
stjórnarfundi í gær um að taka
upp óundirbúnar fyrirspurnir
í borgarstjórn líkt og tíðkast á
Alþingi í óundirbúnum fyrir-
spurnatíma ráðherra.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri sagði í umræðum um tillög-
una, að talað væri um þennan dag-
skrárlið á Alþingi sem „hálftíma
hálfvitanna“.
Hildur sagðist harma það að
með þessum orðum Dags væri
verið að ýja að því að minnihlut-
inn þyrfti að passa sig hvernig
hann myndi haga orðum sínum
í þessum dagskrárlið ella myndi
meirihlutinn hætta að bjóða upp á
þennan dagskrárlið. - ngy
Vill óundirbúnar fyrirspurnir:
,,Hálftími
hálfvitanna“
HILDUR SVERRISDÓTTIR Borgarstjóri
tók vel í tillöguna og sagði svona dag-
skrárlið geta gengið í borgarstjórn.
STJÓRNMÁL Drög að frumvarpi til
breytinga á lögræðislögum eru
nú til kynningar hjá innanríkis-
ráðuneytinu. Það er liður í undir-
búningi fullgildingar samnings
Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðs fólks og felur í sér breyt-
ingar vegna 12. gr. samningsins.
Þá er í frumvarpinu brugðist við
ábendingum og tillögum nefnd-
ar Evrópuráðsins gegn pynding-
um vegna heimsóknar hennar til
Íslands árið 2012.
Þá byggir frumvarpið á til-
lögum sem komu fram um nauð-
ungar vistanir í framhaldi af
opnum fundi ráðuneytisins um
mannréttindi geðsjúkra. - kbg
Drög að breytingum:
Úrbætur á
lögræðislögum
SVÍÞJÓÐ Brynvarðir sænskir
bílar, 250 talsins, kunna að verða
seldir til Íraks þótt sænsk yfir-
völd heimili ekki vopnaútflutning
til Íraks.
Samkvæmt frétt sænska ríkis-
útvarpsins voru brynvörðu bíl-
arnir seldir til Tékklands árið
2010 í þeirri trú að tékkneski her-
inn ætlaði að nota þá.
Tékkar eru sagðir hafa gabbað
Svía og tékkneskt einkafyrirtæki
íhugar að selja sænsku herbílana
til Íraks. - ib
Svíar gabbaðir:
Sænskir her-
bílar til Íraks
ALÞINGI Lögð var fram tillaga til
þingsályktunar um eflingu brot-
hættra byggða og byggðafestu
veiðiheimilda af Lilju Rafneyju
Magnúsdóttur, Steingrími J.
Sigfúsyni og Steinunni Þóru Árna-
dóttur, öll þingmenn Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs.
Þau álykta að fela sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra að vinna
framtíðarstefnumörkun um efl-
ingu brothættra byggða í samráði
við Byggðastofnun og helstu hags-
munaaðila.
Til grundvallar stefnumörkun-
inni fyrir minni sjávarbyggðir
verði lögð verulega aukin byggða-
festa veiðiheimilda. - ngy
Ráðherra marki stefnu:
Efling brot-
hættra byggða
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
F
-F
C
2
8
1
3
F
F
-F
A
E
C
1
3
F
F
-F
9
B
0
1
3
F
F
-F
8
7
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K