Fréttablaðið - 04.03.2015, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 4. mars 2015 | SKOÐUN | 15
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is
Lilja Sif Þorsteinsstóttir sálfræðingur flytur erindið
„Ungt fólk og sorg“ á fræðslukvöldi Nýrrar dögunar
og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins,
fimmtudagskvöldið 5. mars kl. 20 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Aðgangur ókeypis, allir hjartanlega velkomnir.
Ungt fólk
og sorgHagsmunir þjóðar varði leiðina
Ef við lítum á kjör og
aðstöðu eldri borgara hér
á landi í dag, kemur í ljós,
að staða aldraðra á Íslandi
er mjög slæm. Kjörin eru
almennt svo lág, að ekki er
unnt að lifa mann sæmandi
lífi af þeim. Við það bætist,
að staða sjúkra eldri borg-
ara er algerlega óásættan-
leg. Þeir verða að bíða
mánuðum saman eftir að
komast á hjúkrunarheim-
ili. Og þegar þeir loks
komast þar inn, eru heim-
ilin stórlega undirmönnuð
vegna fjárskorts. Sama er að segja
um heimahjúkrun. Þó stjórnmála-
menn tali um að efla heimahjúkr-
un, fylgja ekki athafnir orðum
þeirra. Það er ekkert gert til þess
að efla hjúkrun í heimahúsum.
Heimahjúkrun er einnig stórlega
undirmönnuð.
Eldri borgurum naumt skammtað
Ráðamenn þjóðarinnar ætlast til
þess að einhleypur ellilífeyrisþegi,
sem hefur engar greiðslur úr líf-
eyrissjóði og einungis lífeyri frá
almannatryggingum, lifi af 192
þús. kr.á mánuði eftir skatt. En
samkvæmt síðustu neyslukönnun
Hagstofunnar, sem birt var, eru
meðaltalsútgjöld einhleyp-
inga til neyslu 321 þús kr. á
mánuði. Engir skattar eru
þar meðtaldir. Allir sjá
hvílík gjá er þarna á milli.
Dæmið gengur einfald-
lega ekki upp með 192 þús.
kr. á mánuði (eftir skatt).
Ef sami ellilífeyrisþegi
hefði 70 þús. kr. á mán-
uði úr lífeyrissjóði, hefði
hann aðeins lítið meira í
heildar tekjur á mánuði
vegna mikillar skerðingar
TR. Þetta er líkast eigna-
upptöku. TR skerðir trygg-
ingabætur um 40 þús. kr. á mánuði
beinlínis vegna greiðslunnar úr
lífeyrissjóði. Kvæntur ellilífeyris-
þegi, sem eingöngu hefur tekjur
frá TR, fær aðeins 172 þús.kr. á
mánuði frá almannatryggingum.
Neikvæð afstaða stjórnvalda
Afstaða stjórnvalda til aldraðra
og öryrkja er mjög neikvæð hér
á landi. Annars staðar á Norður-
löndunum ræða stjórnvöld og
samtök eldri borgara saman um
það hvað unnt sé að gera til þess
að bæta kjör og aðstöðu eldri
borgara. Hér á landi stinga stjórn-
völd kröfum og ályktunum eldri
borgara undir stól og hafa engan
áhuga á að ræða málin. Mann-
réttindi eru einnig ítrekað brot-
in á öldruðum og öryrkjum hér á
landi.
Í lögum um málefni aldraðra
segir, að aldraðir eigi að njóta
jafnréttis á við aðra þegna þjóð-
félagsins. En þetta lagaákvæði
er þverbrotið. Rannsóknir leiða
í ljós, að biðtími aldraðra eftir
meðferð á sjúkrastofnunum er
lengri en þeirra, sem yngri eru. Í
launa- og kjaramálum hafa eldri
borgarar sætt annarri meðferð
en launþegar. Kjörum eldri borg-
ara hefur verið haldið niðri og þau
skert á sama tíma og láglaunafólk
hefur fengið kjarabætur. Emb-
ættismenn og alþingismenn hafa
fengið leiðréttingu á sínum kjör-
um afturvirkt á sama tíma og kjör
aldraðra hafa verið fryst. Eldri
borgurum hefur verið mismunað
freklega. Mannréttindi hafa ítrek-
að verið brotin á þeim.
Staða aldraðra er mjög slæm
„Örsmá er býflugan meðal
fleygra vera en afurð henn-
ar er sætari öllu lostæti.
Hreyk þér ekki upp þótt
þú berir glæst klæði og
ofmetnast ekki þótt þú njót-
ir sæmdar.
Því að Drottinn gerir
dásemdarverk og það sem
hann aðhefst er mönnum
hulið.
Margur harðstjórinn
hefur úr hásæti fallið og sá
hlaut kórónu sem síst varði.
Margur valdhafinn þoldi mestu
smán og rómaðir menn lentu á valdi
annarra“ (Síraksbók 11:3-6)
Biblían er bók bókanna, það er
engin spurning. Ég tala oft um
hana sem „Orginalinn“. Ástæð-
an er sú að ég hef markvisst sótt
mikið af uppbyggilegum námskeið-
um í m.a. stjórnun, sjálfstyrkingu
og hópefli reglulega frá því ég fór
á vinnumarkaðinn innan við tví-
tugt. Það leið varla það ár sem ég
fann ekki eitthvert nám-
skeið til að sækja. Ótal
margt lærði ég sem gerði
mig betri í vinnu og bætti
mitt persónulega líf. Fyrir
um tíu árum fór ég svo á
Alfa-námskeið sem breytti
öllu mínu lífi. Á námskeið-
inu kynntist ég lifandi trú,
sem fram að því hafði fall-
ið undir falleg ævintýr í
mínum huga. Samhliða
fór ég að lesa Biblíuna og
uppgötvaði hið ótrúlega.
Í Biblíunni, bók bókanna, fann ég
nánast, ef ekki, allt sem ég var búin
að læra á hinum námskeiðunum og
hafði skipt máli. Ég tel mig því
vera komna með frumritið, „Org-
inalinn“. Ég þarf því bara eina bók
í dag, les oft í henni og finnst hún
ennþá einstök, eftir þessi tíu ár.
Hér koma vers úr 1. Korintubréfi
13. kafla sem ég les oft vegna þess
að þau minna mig á að vera alltaf
góð við fólk:
„Þótt ég talaði tungum manna og
engla en hefði ekki kærleika væri
ég hljómandi málmur eða hvell-
andi bjalla. Og þótt ég hefði spá-
dómsgáfu og vissi alla leyndar-
dóma og ætti alla þekking og þótt
ég hefði svo takmarkalausa trú að
færa mætti fjöll úr stað en hefði
ekki kærleika, væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum
mínum og þótt ég framseldi líkama
minn til þess að verða brenndur en
hefði ekki kærleika, væri ég engu
bættari.“
Hið íslenska biblíufélag er 200
ára í ár. Ég óska félaginu til ham-
ingju með 200 árin. Megi Guð
blessa áframhaldandi starf félags-
ins.
Hið íslenska biblíufélag 200 ára
KJÖR
ALDRAÐRA
Björgvin
Guðmundsson
formaður kjara-
nefndar Félags eldri
borgara
TRÚ
Fríður Birna
Stefánsdóttir
framkvæmdastjóri
ABC barnahjálpar
FJÁRMÁL
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
forsætisráðherra
➜ Í lögum um málefni
aldraðra segir, að aldraðir
eigi að njóta jafnréttis á við
aðra þegna þjóðfélagsins. En
þetta lagaákvæði er þver-
brotið.
➜ Ég þarf því bara eina bók
í dag, les oft í henni og fi nnst
hún ennþá einstök, eftir
þessi tíu ár.
Eitt hundrað milljarða
hagnaður bankanna (80
milljarðar eftir skatta) á
árinu 2014 er áminning um
þau mistök sem gerð voru
við endurreisn bankanna
eftir hrun. Vegna ákvarð-
ana sem þá voru teknar
er bankakerfið of stórt og
ávinningur af endurmetnu
lánasafni kemur að mestu
leyti í hlut kröfuhafa Arion
banka og Íslandsbanka en
ekki ríkisins sem þó bar áhættuna
af endurreisninni.
Lögum samkvæmt gilda strang-
ar reglur um eignarhald á fjár-
málafyrirtækjum. Sérstakar
undanþágur í lögum þurfti til að
heimila kröfuhöfum að eignast
bankana á árinu 2009. Núgildandi
lög heimila ekki slíkar undanþág-
ur þannig að nú stæðist það ekki
lög að afhenda kröfuhöfum bank-
ana eins og gert var á sínum tíma.
Samanlagður hagnaður Arion
banka, Íslandsbanka og Lands-
bankans frá hruni er um 360 millj-
arðar króna. Stór hluti þessa hagn-
aðar kemur til vegna endurmats á
lánasöfnum sem færð voru á helm-
ingsafslætti yfir í nýja banka en
eru mun meira virði.
Meirihluti hagnaðarins
til kröfuhafa
Frá árinu 2009 hefur meirihlut-
inn af 360 milljarða króna hagn-
aði bankanna eftir skatta
runnið til erlendra kröfu-
hafa. Miðað við óbreytta
gjaldeyrissköpun ræður
íslenska hagkerfið ekki
við að greiða arð af hagn-
aðinum úr landi, nema því
aðeins að sleppa því að
greiða samningsbundnar
afborganir af erlendum
lánum. Það er hættulegt
fyrirkomulag.
Arðsemi eigin fjár bank-
anna er langt umfram það sem
aðrir atvinnurekendur eiga að
venjast og það þó eigið fé bank-
anna hafi safnast upp frá stofnun
þeirra. Eigið fé bankanna þriggja
er nú um 600 milljarðar króna
og hefur meira en sjöfaldast að
núvirði frá aldamótum.
Þetta hefur gerst þrátt fyrir
háan rekstrarkostnað bankanna
sem týnist inni í miklum hagn-
aði þeirra. Rekstrarkostnaðurinn
á árinu 2014 nam svipaðri fjár-
hæð og ríkið ver til menntamála
og menningarstarfsemi, eða um 80
milljörðum króna.
Við eðlilegar aðstæður væri
ástæðulaust að amast við góðri
afkomu fyrirtækja. Uppspretta
hagnaðar skiptir hins vegar máli
og í tilviki bankanna sprettur hann
að miklu leyti af endurmati á lána-
söfnum og fákeppni. Aðgangs-
hindranir eru óvenju miklar í
bankastarfsemi, ekki síst vegna
umfangsmikils regluverks. Ólík-
legt er því að nýir aðilar ryðji sér
til rúms á markaðnum með áherslu
á lægri kostnað, minni þjónustu
og betri kjör eins og gerst hefur
á mörgum sviðum viðskiptalífsins
og bylt áratugagömlum viðskipta-
venjum. Bankar eru því betur
varðir gegn samkeppni, innlendri
sem erlendri, heldur en almennt
tíðkast um fyrirtæki.
Breytingar óhjákvæmilegar
Á næstu árum eru breytingar á
eignarhaldi bankanna óhjákvæmi-
legar. Stjórnvöld þurfa að vinna
að því að skipulag bankakerfisins
tryggi skilvirka miðlun fjármagns
til og frá heimilum og fyrirtækj-
um á hagkvæman og öruggan hátt.
Það er ekki hægt að nálgast
greiðslujafnaðarvanda Íslendinga
af léttúð. Af óskhyggju telja sumir
að unnt sé að komast hjá efnahags-
áföllum með því að styggja engan
og halda öllum góðum, en slíkt er
ekki raunhæft. Þvert á móti þarf
skýra sýn og sterka forystu þar
sem hagsmunir íslensku þjóðar-
innar eru hafðir að leiðarljósi.
➜ Þvert á móti þarf skýra
sýn og sterka forystu þar
sem hagsmunir íslensku
þjóðarinnar eru hafðir að
leiðarljósi.
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
F
-D
9
9
8
1
3
F
F
-D
8
5
C
1
3
F
F
-D
7
2
0
1
3
F
F
-D
5
E
4
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K