Fréttablaðið - 04.03.2015, Qupperneq 26
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Ég er ekki mikið fyrir að vera mjög kalt þannig að ég hef frekar ferðast innanlands á sumrin. Ég hef farið í
fjölmarga venjulega hella víða um land
og svo vinn ég við að fara með fólk ofan
í Þríhnúkagíga en ég hafði ekki komið í
íshelli áður,“ segir Tryggvi Gunnarsson
leikstjóri. „Það var mögnuð upplifun að
koma í íshellana, við fórum í tvo hella,
öðrum hefur verið gefið nafnið Kristall,
að ég held, en hinn ber ekki nafn svo
ég viti til, enda nýmyndaður og á án efa
eftir að hverfa fljótlega. Ég efast um að
ég myndi rata í þann helli aftur, ég sat
bara aftan í jeppa og hossaðist fram
og til baka og svo vorum við komin að
jökulsporðinum austan megin og þar
var hellirinn. Það var ótrúlegt að koma
inn í hellana, að sjá ævafornan ísinn og
það er hægt að sjá endalausar myndir í
honum ef maður notar smá ímyndunar-
afl.“
Tryggvi segir hellinn vera marg-
breytilegan eftir því hvar í honum er
staðið. „Birtan inni í honum er ótrúlega
falleg, einhvern veginn neonblá. Ég
lagðist á bakið og horfði upp í loftið og
virti fyrir mér ísinn. Ég kafa mikið og
þetta var eiginlega alveg eins og þegar
legið er ofan í grunnum sjó og horft á
öldurnar brotna fyrir framan sig nema
það er eins og öldurnar hafi verið
frystar í tíma. Það er hægt að sjá rótið
í ísnum og maður fær þessa endalausu
hreyfingu sem jökullinn er á beint í æð.
Hreyfingin í ísnum er svo hæg að það er
erfitt fyrir mannsaugað að greina það
í augnablikinu þó maður vissulega sjái
hana á milli ára og mér fannst ótrúlegt
að upplifa þetta.“
Íshellirinn var uppgötvaður fyrir
örfáum árum. Suma daga er ófært í
hann vegna breytinga sem eru miklar
á þessu svæði og mælir Tryggvi með
að fara ekki á þessar slóðir nema með
reyndum leiðsögumönnum sem eru
nokkrir í Suður sveit. „Ég mæli með því
að fólk fari austur eftir, gisti og geri
góða helgarferð úr þessu eins og við
gerðum. Það spillti ekki fyrir að við
fengum gott veður og geggjaða norður-
ljósasýningu, það er engin ljósmengun
þarna í sveitinni þannig að norður-
ljósin njóta sín vel. Enda var þarna
alveg krökkt af ferðamönnum, það var
eins og við værum í safaríferð því þegar
við keyrðum frá þjóðveginum niður að
gististað var svo mikið af túristum sem
stóðu og lágu á veginum og vildu ekki
færa sig af því þeir voru að reyna að ná
góðum myndum. Þetta var eins og að
keyra í þjóðgarði í útlöndum að nóttu til
og dýrin frjósa í bílljósunum og neita að
hreyfa sig og það þarf að þræða á milli
þeirra, þetta var ansi mögnuð ferð.“
■ liljab@365.is
MÖGNUÐ UPPLIFUN
JÖKLAFERÐ Tryggvi Gunnarsson leikstjóri fór í fyrsta sinn í íshelli um helgina
þegar hann fór ásamt vinum sínum í Kristalshelli í Breiðamerkurjökli. Ekki
spillti fyrir að um kvöldið léku norðurljósin við hvern sinn fingur.
VEL BÚINN Gott er að vera vel búinn þegar farið er á jökul.
HRESS HÓPUR Hópurinn fór í Kristalshelli undir leiðsögn Ágústs Rúnarssonar
hjá Iceland Magic Travel og skemmti sér vel.
BRUGÐIÐ Á LEIK
Birtan inni í hellinum er
ótrúlega falleg að sögn
Tryggva.
AÐSENDAR MYNDIR/
ÁGÚST RÚNARSSON
MIKILFENGLEGT Tryggvi inni í Kristalshelli ásamt þeim Herði Ellerti Ólafssyni og Halldóru Bjarkadóttur. MYND/HEÓ
Aðalfundur Ferðafélagsins Útivistar verður
haldinn fimmtudaginn 19. mars 2013 kl. 20.
Fundurinn verður haldinn í Skaftfellingabúð
Laugavegi 178 4. hæð (eystri inngangur).
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Ferðafélagið Útivist
AÐALFUNDUR
Laugavegi 178 • Sími 562 1000 • www.utivist.is
*P
re
nt
m
ið
lak
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
0
-0
1
1
8
1
3
F
F
-F
F
D
C
1
3
F
F
-F
E
A
0
1
3
F
F
-F
D
6
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K