Fréttablaðið - 04.03.2015, Síða 48

Fréttablaðið - 04.03.2015, Síða 48
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 28 BAKÞANKAR Viktoríu Hermannsdóttur „Það besta sem kom fyrir mig í sambandi við listina er að ég get unnið í friði án þess að fá trufl- anir utan frá. Það er kosturinn við að vera heyrnarlaus. Svo hef ég augu sem ég sé og skynja með,“ segir myndlistarmaður- inn Gunnar Snær Jónsson eða Gison Snaer, en hann hefur verið heyrnarlaus frá fæðingu. Hann opnaði í gær fyrstu myndlistarsýningu sína, Gleym mér ei, þar sem hann vinnur með dýr í útrýmingarhættu. „Í þetta sinn nota ég dýr, þar sem ég er mikill dýravinur. Ég hef alltaf verið meðvitaður um dýr í útrýmingarhættu og ég fékk í hjartað við að ímynda mér að þessi fallegu dýr munu brátt hverfa þar sem ekki er hugsað nógu vel um þau,“ segir hann. Í framhaldinu fór hann að skoða undirtegundir kattardýra sem eru í útrýmingarhættu og komst að því að flestar tegundir væru í hættu. „Ég fann nokkrar tegundir sem ég vildi nota í lista- verkin mín og kannaði margs konar mynstur af upprunalandi þeirra til þess að endurtúlka menningu sem þessi dýr eiga rótgróinn part í. Markmiðið er svo að fá fólk til að finna fyrir tengslum við þessi dýr, því þau eru að hverfa, þess vegna heitir sýningin „Gleym mér ei“, því við ættum aldrei að gleyma dýrunum,“ bætir hann við. Í verkunum notar Gunn- ar aðeins svart og hvítt, nema í augu og nef dýranna. „Ég nota litina táknrænt fyrir persónu- leika þeirra, því þau eru ekki bara hlutur heldur dýr með pers- ónuleika og tilfinningar eins og við. Þótt þú þekkir tígrisdýr í sjón, hefur þú kannski ekki velt fyrir þér persónueinkennum þeirra og hvort þið gætuð verið sálufélagar? Kannski vill svo til að áhorfendur finni eitt af katta- dýrunum sem minnir þá á sjálfa sig og þar með gleyma þeim aldrei. Þetta var ég með í huga þegar ég gerði verkin,“ segir hann. Sýningin er á veitingastaðnum Coocoo’s Nest á Grandagarði og verður opin til 31. mars. - asi Teiknar myndir af kattar- dýrum í útrýmingarhættu Myndlistarmaðurinn Gísli Snær Jónsson segir heyrnarleysið hjálpa sér í mikið í einbeitingu í listsköpuninni. DÝRAVINUR Gísli skoðaði uppruna dýranna sem hann teiknar. FRETTABLAÐIÐ/ STEFÁN Að stíga fram Reglulega koma fram í fjölmiðlum hug-rakkir viðmælendur sem stíga fram og segja sína sögu. Það er ekki auðvelt skref að opna sig fyrir framan alþjóð um mál sem fólk hefur í sumum tilfellum þagað um nánast alla ævi. Bjarnheiður Hannesdóttir sem sagði sögu sína í Kast- ljósi á dögunum og þar áður í Frétta- blaðinu er gott dæmi um þetta. Hún sagði sína sögu til þess að sýna hversu alvarleg- ar afleiðingar átröskun getur haft á fólk, enda er hún sjálf lifandi dæmi um það. Hún fór í hjartastopp eftir að hafa huns- að aðvaranir lækna. Í dag er hún bundin hjólastól, er með mikinn spasma og á erfitt með að tjá sig. Vonandi verður saga hennar til þess að einhverjir sem þjást af þessum sjúkdómi leiti sér hjálpar áður en það verður of seint. Í NÓVEMBER á síðasta ári sagði Fréttablaðið sögu Liönu Bel- inska, kvensjúkdómalæknis frá Úkraínu. Liana hefur starfað á leikskóla hérlendis í átta ár vegna þess að hún hefur ekki fengið menntun sína metna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Eftir umfjöllunina fór þingmaður að skoða málin og það endaði með því að Liönu voru boðnar nokkrar leiðir hjá lækna- deildinni til þess að fá námið metið á sann- gjarnari hátt en áður. Það mun hugsanlega gera öðrum innflytjendum auðveldara fyrir að fá menntun sína metna þegar komið er hingað til lands. ÞEGAR KASTLJÓSIÐ fjallaði um brot Karls Vignis fyrir um tveimur árum þá varð sprenging í tilkynningum kynferðis- brota. Fjölmargir stigu fram og gerðu upp sín mál, mál sem oft hafa stjórnað lífi þeirra í allt of mörg ár. Fjölmörg þeirra tengdust ekki Karli Vigni en vegna umræð- unnar öðlaðist fólk hugrekki til þess að skila skömminni þangað sem hún á heima, nefnilega ekki hjá þeim sjálfum. Þetta eru aðeins örfá dæmi af mörgum um fólk sem tekið hefur það stóra skref að segja opin- berlega frá misbeitingu eða brestum. Hvort sem það er af völdum sjúkdóms, misnotkun- ar eða misréttis. Allt skiptir þetta máli. ÞAÐ ÞRÍFST svo margt í skjóli þöggunar og þess vegna er svo mikilvægt þegar fólk hefur kjark til þess að segja frá vegna þess að yfirleitt hjálpar það ekki bara því sjálfu heldur öðrum líka. STILL ALICE 5:45, 8, 10:10 ANNIE 5:15 VEIÐIMENNIRNIR 8, 10:30 HRÚTURINN HREINN 5:45 8 10:40 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK o. siSAM Magnaður þriller byggður á metsölubókinni ÁÐUR EN ÉG SOFNA Frá framleiðandanum Ridley Scott Nicole Kidman Colin Firth Mark Strong Tilnefnd til 3 óskarsverðlauna Meryl Streep, Emily Blunt, Chris Pine og Johnny Depp ANNIE KL. 5.30 VEIÐIMENNIRNIR KL. 5.30 - 9 - 10.40 BIRDMAN KL. 5.30 - 8 - 10.40 ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.20 - ÍSL TEXTI ANNIE KL. 5 INTO THE WOODS KL. 5 HRÚTURINN HREINN KL. 3.30 HOT TUB TIME MACHINE KL. 8 - 10.10 FIFTY SHADES OF GREY KL. 8 - 10.40 KINGSMAN KL. 8 - 10.45 PADDINGTON KL. 5.45 - ÍSL TAL Save the Children á Íslandi Kría Brekkan kemur fram á Húrra í kvöld ásamt Áka Ásgeirssyni og Gnúpverjunum í Panos from Komodo. „Tónleikarnir eru á Óðinsdag og Áki Ásgeirs verður með og kyndir undir performans- inum mínum og bruggar ein- hvers konar minnisseið,“ segir Kristín Anna sem kemur fram undir listamannsnafninu Kría Brekkan, en hún spilaði lengi með hljómsveitinni Múm og tók þátt verkinu Visitor eftir Ragnar Kjartansson. Hún mun flytja efni sem hún hefur samið á síðastliðnum tíu árum og vinnur nú að því að taka upp. Kvöldinu lokar svo sveitin Panos from Komodo. Tónleikarnir hefj- ast klukkan níu á skemmtistaðnum Húrra og er miðaverð 1.000-2.000 krónur. - gló Kría Brekkan á Húrra í kvöld KRÍA BREKKAN Markmiðið er svo að fá fólk til að finna fyrir tengslum við þessi dýr, því þau eru að hverfa, þess vegna heitir sýningin „Gleym mér ei“, því við ættum aldrei að gleyma dýrunum. 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 0 -0 F E 8 1 4 0 0 -0 E A C 1 4 0 0 -0 D 7 0 1 4 0 0 -0 C 3 4 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.