Fréttablaðið - 04.03.2015, Side 50
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR
| SPORT | 30
HANDBOLTI Það er sannkallaður
stórleikur í þýsku bikarkeppninni í
kvöld er tvö bestu lið Þýskalands –
Kiel og Rhein-Neckar Löwen – mæt-
ast í Mannheim. Þetta er leikur í átta
liða úrslitum keppninnar og sigur-
vegarinn kemst því í „Final Four“-
helgina. Leikurinn er í beinni á Stöð
2 Sport og hefst klukkan 18.00.
Kiel er með tveggja stiga forskot
á Löwen í þýsku deildinni og sigur-
vegarinn í þessum leik verður ansi
líklegur til þess að fara alla leið í
keppninni.
„Þetta verður klárlega hörku-
leikur. Bæði lið ætla sér á úrslita-
helgina í Hamborg þannig að þetta
verður athyglisvert,“ sagði Alfreð
er Fréttablaðið sló á þráðinn til
hans í gær. Hann var þá á kafi í
undirbúningi fyrir leikinn enda
ekki þekktur fyrir að slá slöku við.
Tvö bestu lið landsins
„Ég held að það sé alveg á hreinu
að þetta séu tvö bestu liðin í Þýska-
landi í dag. Flensburg hefur verið
óheppið með meiðsli en svo hafa
strákarnir hans Geirs Sveinssonar
í Magdeburg verið að spila rosalega
vel síðustu mánuði.“
Það er nýr maður í brúnni hjá
Löwen en Daninn Nicolaj Jacob-
sen tók við þjálfarastarfinu af Guð-
mundi Guðmundssyni. Alfreð segir
að það sé ekki mikill munur á leik-
stíl liðsins þó svo það sé kominn
nýr þjálfari.
„Þeir misstu tvo mikilvæga
varnarmenn en að öðru leyti er
þetta sama liðið. Þetta er nokk-
urn veginn sami boltinn en smá
áherslubreytingar eins og eðlilegt
er þegar það kemur nýr maður,“
segir Alfreð en það situr örugglega
í leikmönnum Löwen að hafa misst
af þýska meistaratitlinum til Kiel í
fyrra á grátlegan hátt.
„Maður gleymir þessu ekki svo
auðveldlega en svona er þetta.
Þetta var virkilega sætt.“
Nokkrar breytingar urðu á liði
Kiel milli ára og liðið fór frekar
hægt af stað. Það er aftur á móti
komið á mikla ferð núna og líklegt
til afreka í öllum keppnum.
„Við byrjum eiginlega alltaf
frekar illa og það var kannski ekki
mjög óvænt þar sem ég var með
þrjá nýja útispilara og svo meidd-
ust bæði Aron Pálmarsson og Filip
Jicha í byrjun. Það var erfitt að
vera án þeirra lengi. Burtséð frá
fyrsta mánuðinum þá höfum við
verið að spila mjög vel og alltaf
betur og betur. Liðið er á réttri leið
þó svo Jicha sé ekki almennilega
kominn inn í þetta og Aron hafi
verið að detta út nokkrum sinnum.“
Aron kom auðvitað meiddur til
Kiel eftir HM eftir að hafa feng-
ið heilahristing. Hann tók því ekki
þátt í fyrstu leikjum liðsins eftir
dvölina í Katar.
„Staðan á honum virðist vera
mjög góð núna. Það er ekki annað
að sjá en að hann sé laus við allan
hausverk og klár í bátana. Það
munar um það fyrir okkur.“
Handan við hornið bíða leikir í
16-liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu. Kiel datt ekki í lukkupott-
inn þegar dregið var því Kiel spil-
ar við nágranna sína og erkifjend-
ur í Flensburg. Þessi lið mættust í
úrslitum í fyrra og má því búast við
hörkuleikjum.
„Svona er þetta bara. Ef maður
ætlar að komast til Kölnar þá verð-
ur maður að mæta því sem kemur,“
segir Alfreð silkislakur og augljós-
lega ekki mikið að velta sér upp úr
þessu.
„Við stefnum að því að vinna alla
leiki og komast í allar úrslitakeppn-
ir. Við gerum líka allt til að vinna
deildina aftur. Þannig er þetta
hérna en við tökum samt alltaf einn
leik fyrir í einu. Ég gef aldrei upp
mín persónulegu markmið en í Kiel
er það þannig að það er aldrei neinn
ánægður nema við verðum meist-
arar.“
Erfið kynslóðaskipti hjá Íslandi
Akureyringurinn Alfreð segir að
það verði ekki eins miklar breyt-
ingar hjá liðinu næsta sumar.
Helsta breytingin verður sú að
báðir markverðir liðsins fara og
tveir nýir koma. Annar þeirra er
Daninn Niklas Landin sem ver
mark Löwen í dag.
„Ég vildi endilega fá Landin og
ætlaði að stilla honum upp með
Johan Sjöstrand. Hann vildi samt
frekar vera markvörður númer
eitt hjá Melsungen þannig að við
fengum annan í hans stað,“ segir
Alfreð.
Hann fylgdist vel með á HM
í Katar en hvernig líst Alfreð á
framtíð landsliðsins eftir dapra
frammistöðu liðsins í Katar?
„Ég veit það ekki alveg. Það eru
kynslóðaskipti í gangi þarna sem
gætu orðið erfið. Sérstaklega þar
sem yngri leikmenn eins og Ólaf-
arnir og Rúnar Kárason hafa verið
mikið meiddir.“ henry@frettabladid.is
Maður gleymir ekki
lokadeginum í fyrra
auðveldlega. Það var
virkilega sætt.
Alfreð Gíslason.
SPORT
MMA „Það er áhugi hjá UFC að fá
Gunna á UFC-kvöldið í Las Vegas í
júlí. Þetta er stærsta bardagakvöld
ársins,“ segir Haraldur Nelson,
faðir og umboðsmaður Gunnars
Nelson, en allt stefnir í að Gunn-
ar keppi í Bandaríkjunum í fyrsta
skipti í júlí.
Þá mun vinur og æfingafélagi
Gunnars, Conor McGregor, keppa
um heimsmeistaratitilinn í fjaður-
vigt gegn Jose Aldo. Þetta kvöld er
það stórt að einnig verður titilbar-
dagi í veltivigtinni, sem er flokk-
urinn hans Gunna, þar sem meist-
arinn Robbie Lawler mun mæta
Rory McDonald.
„Við höfum fengið mjög jákvæð
viðbrögð og þeir hafa sagt við mig
að þeir vilji hafa Gunna á þessu
kvöldi. Vonandi gengur það eftir.
Ég á nú ekki endilega von á því að
Gunni verði á meðal aðalbardaga
kvöldsins því það er kominn titil-
bardagi í vigtinni hans þar. Það
skiptir samt engu máli á svona
stóru bardagakvöldi.“
Haraldur segir að þó bardagi
Gunnars yrði ekki á meðal aðal-
bardaganna yrði hans bardagi
samt líklega í sjónvarpinu þar sem
Gunnar sé það hátt skrifaður.
„Ég myndi segja að það væru
svona níutíu prósent líkur á því
að það verði af þessu. Við erum að
undirbúa okkur eins og það verði
af þessu. Það kæmi mér mjög á
óvart ef þetta gengi ekki upp. Það
er samt ekkert vitað um neinn and-
stæðing heldur,“ segir Haraldur
bjartsýnn.
„Ef af þessu verður þá mun
Gunnar fara út nokkru áður enda
langt ferðalag. Svo vill hann vera
vel undirbúinn fyrir hvern þann
andstæðing sem hann fær.“ - hbg
90 prósent líkur á að Gunnar keppi í Vegas
Það lítur allt út fyrir að Gunnar Nelson keppi á sama kvöldi og Conor McGregor þann 11. júlí í Las Vegas.
HVAÐ NÆST? Gunnar í sínum síðasta bardaga gegn Rick Story. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Aðeins titill gleður fólk í Kiel
Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel eru á mikilli siglingu og líklegir til afreka í öllum keppnum. Líkt
og alltaf er pressa á Alfreð að skila titlum í hús. Hann setur einnig mikla pressu á sjálfan sig að ná árangri.
PRESSA Það er ætlast til þess að Alfreð Gíslason skili titlum á hverju einasta ári hjá
stórliði Kiel. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ENSKI BOLTINN
ASTON VILLA - WBA 2-1
1-0 Gabriel Agbonlahor (23.), 1-1 Saido Berahino
(67.), 2-1 Christian Benteke (90.).
HULL - SUNDERLAND 1-1
1-0 Dame N‘Doye (15.), 1-1 Jack Rodwell (77.).
SOUTHAMPTON - C. PALACE 1-0
1-0 Sadio Mané (83.).
STAÐA EFSTU LIÐA:
Chelsea 26 18 6 2 56:22 60
Man. City 27 16 7 4 57:27 55
Arsenal 27 15 6 6 51:29 51
Man. Utd 27 14 8 5 46:26 50
Southampt. 28 15 4 9 39:20 49
Liverpool 27 14 6 7 40:30 48
Tottenham 26 13 5 8 41:36 44
Swansea 27 11 7 9 31:34 40
West Ham 27 10 9 8 39:33 39
Stoke City 27 11 6 10 31:34 39
Newcastle 27 9 8 10 32:42 35
Crystal P. 28 7 9 12 31:39 30
WBA 28 7 9 12 26:36 30
Everton 27 6 10 11 33:39 28
Hull City 28 6 9 13 26:37 27
Sunderland 28 4 14 10 23:39 26
Aston Villa 27 6 7 15 15:38 25
QPR 26 6 4 16 27:45 22
Burnley 27 4 10 13 25:45 22
Leicester 26 4 6 16 24:42 18
LOKSINS Tim Sherwood vann fyrsta
leik Aston Villa síðan í deildinni síðan í
desember. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KÖRFUBOLTI Martin Hermanns-
son, landsliðsmaður í körfubolta
og leikmaður LIU Brooklyn-
háskólans í efstu deild banda-
ríska háskólakörfuboltans, var
valinn í fimm manna nýliðaúrval
NEC-deildarinnar sem kynnt var
í gær.
Martin skoraði 10,2 stig að
meðaltali í leik og gaf 3,3 stoð-
sendingar. Þá spilaði hann mest
allra í sínu liði á tímabilinu eða
31,3 mínútur að meðaltali í leik.
Þetta er mikil viðurkenning fyrir
Martin.
Þessi öflugi bakvörður var tví-
vegis kjörinn nýliði vikunnar í
NEC-deildinni en samherji hans,
Njarðvíkingurinn Elvar Már
Friðriksson, var einu sinni kjör-
inn nýliði vikunnar.
Annar liðsfélagi Martins, Nura
Zanna, er í nýliðaúrvalinu ásamt
þeim Junior Robinson úr Mount
St. Francis, Marcquise Reed úr
Robert Morris og Cane Broome
úr Sacred Heart. - tom
Martin valinn í
nýliðaúrvalið
GOTT ÁR Martin spilaði vel á fyrsta ári
með LIU Brooklyn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI „Veðrið er líklega aðeins
betra hér en hjá ykkur,“ segir Margrét
Lára Viðarsdóttir, markadrottning
íslenska landsliðsins í fótbolta, hress
og kát í samtali við Fréttablaðið,
aðspurð hvernig lífið er á Algarve
þar sem stelpurnar okkar hefja leik í
Algarve-mótinu gegn Sviss í dag.
Margrét Lára, sem er markahæsti
leikmaður landsliðsins frá upp-
hafi með 71 mark í 94 leikjum, er
mætt aftur til starfa eftir meiðsli og
barneign. Hún spilaði síðast landsleik
31. október 2013.
„Það er alveg frábær tilfinning að
vera komin aftur. Maður hefur stefnt
að þessu allan tímann. Takmarkið var
alltaf að koma aftur og þetta er bara
byrjunin. Ég þarf að hafa þolinmæði
þar sem ég hef verið lengi frá en
fyrst og fremst er bara frábært að
vera komin aftur í hópinn, vera mætt
til Algarve í sólina og spila á móti
bestu þjóðum heims. Það gerist ekki
betra,“ segir Margrét Lára.
Markadrottningin hefur of oft
á sínum ferli verið lengi frá vegna
meiðsla, en síðasta fjarveran var
mun jákvæðari. Hún eignaðist sitt
fyrsta barn.
„Ég datt bara í annað hlutverk. Ég
saknaði fótboltans og alls félags-
skaparins sem honum fylgir en að
sama skapi fær maður lítinn gull-
mola í hendurnar sem maður týnir
sér með. Ég sé ekkert eftir þeim
tíma en það er gaman að geta
samtvinnað móðurhlutverkið
og fótboltann. Það er fátt sem
toppar það,“ segir Margrét
Lára sem ætlar sér stóra hluti á
seinni hluta ferilsins.
„Maður setur auðvitað kröfur
á sjálfan sig. Ég ætla ekkert
bara að vera með. Ég þarf
samt að vera skynsöm því
ég hef verið að berjast við
meiðsli. Allt gengur samt vel
og er á uppleið. Ég er
spennt að komast
út á völlinn og ég
hef fulla trú á að ég
geti komið sem betri
leikmaður til baka. Ég
hef reynsluna og hef
róast með aldrinum. Ef
allt gengur að óskum
vonast ég til að geta
toppað á mínum ferli
núna.“
Margrét er á sínu
fyrsta Algarve-móti undir
stjórn Freys Alexanders-
sonar, en spilamennska
liðsins hefur tekið miklum breyt-
ingum undir hans stjórn.
„Ég er bara spennt að komast
inn í þetta. Ég þurfti nánast auka
töflufundi til að komast inn í þetta
en ég hef verið fljót að læra. Ég læri
nýja hluti á hverjum degi og hlakka
mikið til,“ segir Margrét Lára sem er
með fjölskylduna með sér úti.
„Litli pjakkurinn er enn á brjósti
þannig að hann er með mér hérna
úti og pabbi hans líka. KSÍ hefur
staðið þétt við bakið á mér og öll
fjölskyldan en án þessa fólks væri
þetta ekki hægt,“ segir Margrét Lára
Viðarsdóttir. - tom
Kem sterkari til baka og get vonandi toppað
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
0
-0
A
F
8
1
4
0
0
-0
9
B
C
1
4
0
0
-0
8
8
0
1
4
0
0
-0
7
4
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K