Fréttablaðið - 04.03.2015, Qupperneq 54
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 34
„Svolítið erfið spurning því
slagurinn stendur á milli þriggja
staða, KFC, Nings og BK kjúklings,
en þetta eru allt mínir uppáhalds-
staðir.“
Hanna Rún Bazev Óladóttir dansari
BESTI SKYNDIBITINN
„Ég byrjaði að safna múmínálfa-
bollum fyrir fjörutíu og níu vikum,
þá gáfu mágkonur mínar mér
mína fyrstu tvo bolla. Hundurinn
minn braut annan svo ég fór og
keypti nýjan. Svo átti ég afmæli
og þá bættist við. Þá var ég komin
með safn,“ segir Gestný Rós Guð-
rúnardóttir, múmínálfabollaaðdá-
andi og ötull safnari.
Gestný hefur komið sér upp
veglegu safni sem samanstendur
af þrjátíu og tveimur mismunandi
bollum og sautján skálum merkt-
um hinum finnsku múmínálfum.
Að auki hefur hún sankað að sér
múmínseglum á ísskápinn, sér-
stakri múmínsleif og -dós, svo
eitthvað sé nefnt. Hún telur ekk-
ert merkt Múmínálfunum sér óvið-
komandi.
Fýluferð til London
„Við kærastinn skruppum til Lond-
on í fyrra til að heimsækja tiltekna
múmínbúð sem ég hafði haft auga-
stað á í dálítinn tíma. Svekkelsið
varð því umtalsvert þegar í ljós
kom að ég átti þegar hvern ein-
asta bolla sem þar var seldur. Ég
kom sárlega tómhent heim,“ segir
Gestný skúffuð og bætir við að
henni þyki enginn múmínbolli ljót-
ur. „Er bara hægt að sleppa því að
kaupa einn bolla af því að hann er
síðri en hinir? Ég þarf að eiga þá
alla og svo læri ég bara að elska
þá ef í harðbakkann slær. Hver
einn og einasti er ómissandi fyrir
heildina.“
Draumurinn að komast
í pílagrímsferð til Finnlands
„Draumurinn er að komast í verk-
smiðjuna úti og kíkja í Múmín-
land. Toppurinn væri að fara með
Írisi vinkonu minni en við ræðum
stundum hve mikið okkur langar
að leggja land undir fót og komast
saman í góða múmínferð.“
Gestný hafði ekki vanið sig á
kaffidrykkju fyrr en hún fór að
hlaða í safnið. „Ég drakk aldrei
kaffi fyrr en ég fékk þessa bolla,
þá byrjaði ég á því til þess að njóta
þeirra til fulls. Nú drekk ég alltof
mikið kaffi,“ segir hinn ástríðu-
fulli múmínbollasafnari.
Gestný kaupir marga bolla hér-
lendis en hún hefur einnig þurft
að teygja sig út fyrir landsteinana
eftir nýju efni. Dýrustu bollarnir í
Alveg skilyrðislaus
ást á múmínálfum
„Ég þarf að eiga þá alla og svo læri ég bara að elska þá ef í harðbakkann slær,“
Gestný Rós Guðrúnardóttir er forfallinn múmínálfaaðdáandi.
MÚMÍNBOLLASJÚK
Þessir eru hennar
uppáhalds þótt hún
sjái ekki ástæðu
til að gera of
mikið upp á
milli þeirra.
MÚMÍNGALLI
OG BOLLASÝKI
Gestný Rós
er mögulega
einhver mesti
múmínálfa-
aðdáandi á
landinu og þótt
víðar væri leitað.
MYND/KAMELA RÚN
safn-
inu
hafi
kost-
að
hana
tólf þús-
und krón-
ur hingað
komnir.
„Reyndar
ætlaði ég ekkert að
segja frá þessu,“ segir
hún og skellir upp úr. „Múmínálf-
arnir eru svo krúttlegir. Það er
líka svo gaman að safna einhverju
og allir hafa gaman af að fá sopa
úr svona bolla,“ segir Gestný að
lokum. gudrun@frettabladid.is
PANTAR AF NETINU Gestný
leitar fanga víða og eBay hefur
gagnast henni vel. Þessir bollar
kostuðu hana skildinginn en
hún sér ekki eftir krónu.
NAUTA TATAKI
Nautatataki, chili,
kóriander, kex
TÚNA
Kolaður túnfiskur, bonito-gljái
beikon, sítrónugrassmajó, kex
NÆTURSALTAÐUR
ÞORSKHNAKKI
Grillað toppkál, blaðlaukur, quinoa,
beurre blanc
HVÍTSÚKKULAÐI
OSTAKAKA
Ástaraldin, bakað hvítt
súkkulaði, kókosís
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · KOLRESTAURANT.IS
Borðapantanir í síma 517 7474
eða info@kolrestaurant.is
NÝR
SPENNANDI
MATSEÐILL
Brot af því besta:
Verslanir Söstrene Grene í Smáralind og Kringlu
eiga von á nýrri heimilislínu í vikunni og er þetta í
fyrsta sinn sem svo stór lína kemur í búðir hjá þeim.
Síðastliðið haust kom, eins og frægt er orðið, lína
með hliðarborðum frá þeim og var eftirspurnin
svo mikil, þar sem borðin voru í takmörkuðu upp-
lagi, að á tímabili var slegist um borðin í verslun-
inni. Það má því jafnvel búast við því að beðið verið
í röðum eftir nýju línunni. „Fólk hefur aðeins verið
að hringja og forvitnast um línuna, en ég veit ekki
hvort það verða raðir fyrir utan eins og með borð-
in. Við búumst svo sem ekki við því, en það verður
bara að koma í ljós,“ segir Brynja Scheving, eigandi
Söstrene Grene á Íslandi, aðspurð hvort þau búist
við látum á föstudag.
Húsbúnaðurinn, sem verður einungis í takmörk-
uðu upplagi, var væntanlegur til landsins í gær og
reiknaði Brynja með að hann yrði kominn í verslanir
á föstudagsmorgun. „Þetta er rosalega flott lína, smá
svona „industrial“ fílingur. Við erum að fá í fyrsta
sinn ljós og lampa ásamt fleiru fallegu,“ bætir hún við.
Verður slegist um nýju línuna?
Ný lína er væntanleg í Söstrene Grene en slegist var um hliðarborð í versluninni í fyrra.
VINSÆL Ljósastæði sem þessi hafa
verið vinsæl undanfarið svo búast má
við að þau seljist upp.
Fólk hefur aðeins verið
að hringja og forvitnast um
línuna, en ég veit ekki hvort
það verða raðir fyrir utan
eins og með borðin.
Brynja Scheving, eigandi Söstrene Grene.
● Bollarnir eru framleiddir af
finnska keramikfyrirtækinu
Arabia.
● Fyrsti múmínborðbúnaðurinn var
framleiddur árið 1950.
● Múmínbollarnir eins og við
þekkjum þá voru fyrst framleiddir
árið 1990.
● Bollarnir eru hann-
aðir af Tove Slotte með
teikningum eftir Tove og
Lars Jansson.
● Þrjár til fimm nýjar teg-
undir af bollum eru framleiddar
á hverju ári, með bollum sem
framleiddir eru í takmörkuðu
upplagi eins og jólaútgáfur.
● Einn verðmætasti bollinn var
jólabollinn sem framleiddur var
fyrir Fazer-kaffihúsið og Stock-
mann-stórverslunina, árið
2004. Aðeins voru gerð
400 stykki af honum
og er hann falur á upp-
boðssíðum fyrir 300-
650 þúsund íslenskar
krónur.
FRÓÐLEIKUR UM HINA SÍVINSÆLU MÚMÍNBOLLA
Ég
drakk
aldrei
kaffi fyrr
en ég fékk
þessa bolla,
þá byrjaði ég á
því til þess að
njóta þeirra til fulls.
Nú drekk ég alltof mikið
kaffi.
Gestný Rós Guðrúnardóttir
Múmín-aðdáadni
BROT AF SKÁLASAFNINU Gestný er
áhugasöm um allt sem tengist Múmín-
álfunum
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
F
-E
3
7
8
1
3
F
F
-E
2
3
C
1
3
F
F
-E
1
0
0
1
3
F
F
-D
F
C
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K