Fréttablaðið - 05.03.2015, Page 12
5. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 12
BMW X5
Nýskr. 09/11, ekinn 55 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 8.980 þús.
Rnr. 102498.
NISSAN JUKE ACENTA
Nýskr. 11/13, ekinn 13 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.150 þús.
Rnr. 120611.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
NISSAN QASHQAI TEKNA
Nýskr. 03/14, ekinn 16 þús. km.
dísil, beinskiptur.
Rnr. 142750.
NISSAN X-TRAIL LE
Nýskr. 11/13, ekinn 17 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.990 þús.
Rnr. 142737.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/13, ekinn 35 þús km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 4.190 þús.
Rnr. 281279.
CHEVROLET CAPTIVA
Nýskr. 12/10, ekinn 63 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.880 þús.
Rnr. 142751.
HYUNDAI iX35 COMFORT
Nýskr. 05/14, ekinn 42 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.980 þús.
Rnr. 142740.
Frábært verð!
4.970 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 90%
FJÁRMÖGNUN
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
„Ég varð þungt hugsi þegar niður-
stöður PISA-könnunarinnar komu
og ég velti því fyrir mér hvað ég
gæti gert sem foreldri og sem
starfsmaður í bókaforlagi,“ segir
Þórhildur Garðarsdóttir, fjármála-
stjóri hjá Forlaginu. Hún fékk þá
hugmynd að kynna fyrir nemend-
um í sjötta bekk í Grandaskóla,
þar sem hún á sjálf barn, hvernig
bók verður til með aðstoð starfs-
manna Forlagsins, rithöfunda og
prentsmiðju.
„Ég bar upp hugmyndina við
skólastjórnendur í maí í fyrra og
þeir tóku strax mjög vel í hana
og sögðust ætla að fella þetta inn
í kennsluna. Verkefnið byrjaði
í október síðastliðnum og hefur
verið í gangi síðan. Það er æðis-
legt að sjá að menntakerfið okkar
geti verið svona sveigjanlegt. Nú
eru krakkarnir að skrifa bók þar
sem hver og einn verður með sína
sögu og ætlar Oddi að prenta bók-
ina fyrir þau.“
Að sögn Þórhildar kom ritstjóri
frá Forlaginu í heimsókn til nem-
enda og sagði þeim frá samvinn-
unni við rithöfunda. „Höfundar
sem komu í heimsókn greindu
frá því hvernig þeir fengju hug-
myndir og sögðu einnig frá því
að þeir fengju handritið til baka
frá ritstjóra bókaforlagsins síns
og þyrftu að leggjast í leiðrétt-
ingar eins og til dæmis að stytta
og breyta orðalagi. Krökkunum
fannst það mjög áhugavert og
einn kennarinn þeirra sagði mér
að þetta hjálpaði henni við að láta
krakkana skilja að þau þyrftu að
fara aftur yfir ritgerðir og laga
eftir að kennarinn gerði athuga-
semdir en það hafði verið erfitt að
fá þau til þess. Hönnuðir komu í
heimsókn í skólann og fóru meðal
annars yfir það hvernig bókakáp-
ur eru gerðar og tóku dæmi um
hversu margar tillögur geta legið
að baki lokagerðinni.“
Þórhildur segir það vera draum
sinn að fleiri skólar taki þátt í
svona verkefni. „En þeir þyrftu þá
að sækja um þátttöku því að það
þarf að vera fullur vilji hjá þeim
til þess. Kennarar þurfa að leggja
mikið á sig en auk umsjónarkenn-
ara koma að verkefninu íslensku-
kennari, myndmenntakennari og
tölvufræðikennari.“
Í tengslum við verkefnið var
efnt til sérstaks lestrarátaks
hjá nemendunum sem stóð í þrjá
mánuði, frá október og út desem-
ber. „Að sögn kennara tóku allir
krakkarnir framförum og allir
juku lestrarhraða sinn, líka þeir
sem voru hraðlæsir fyrir en það
er víst ekki algengt þegar þau
eru orðin svona gömul. Okkur
tókst í raun það sem við stefndum
að, það er að auka læsi þeirra.“
Virkja þurfti foreldra á ný í
lestrarátakinu, að því er Þórhild-
ur greinir frá. „Þeir tóku gríðar-
lega vel í þetta. Þeir þurftu að skrá
fjölda blaðsíðna sem krakkarnir
lásu heima og hversu lengi þeir
lásu en almennt eru foreldrar ekki
beðnir um slíkt eftir fjórða bekk.“
Þórhildur kveðst hafa verið með
í öllum heimsóknum til krakk-
anna. „Stemningin var æðisleg
og skólastjórnendur eru ánægð-
ir með þetta verkefni sem hefur
tekist vonum framar. Krakkarnir
ræða mikið um bækur sín á milli
og sýna áhuga á bókum sem þeir
sjá auglýstar og eru að koma út.
Það þykir núna „töff“ að lesa.“
ibs@frettabladid.is
Krökkunum þykir nú
töff að lesa bækur
Hugmynd foreldris nemanda í sjötta bekk í Grandaskóla um að fá starfsmenn
bókaforlags og rithöfunda til að segja frá því hvernig bók verður til var vel tekið.
Nemendur eru núna sjálfir að skrifa bók sem verður prentuð hjá Odda.
Í HEIMSÓKN Í PRENTSMIÐJU Nemendur í sjötta bekk í Grandaskóla heimsóttu Odda ásamt Gunna Helga rithöfundi. Þar sáu
þeir bók rithöfundarins koma út úr prentvélunum. MYND/GRÍMUR KOLBEINSSON
Að sögn
kennara tóku
allir krakk-
arnir fram-
förum og allir
juku lestrar-
hraða sinn,
líka þeir sem voru hrað-
læsir fyrir.
Þórhildur Garðarsdóttir,
fjármálastjóri Forlagsins
Bæjaryfirvöld og skólastjórnendur
í Vestmannaeyjum hyggjast vinna
að samkomulagi um áherslur í
skólamálum næstu árin. Leggja á
megináherslu á að bæta árangur í
læsi og stærðfræði, að sögn Ernu
Jóhannesdóttur fræðslufulltrúa.
„Markmiðið er að verða meðal
þeirra fremstu í landinu hvað varð-
ar vellíðan, færni og árangur. Þetta
er ekki beint stefna, heldur sýn á
það sem við viljum að gerist.“
Að sögn Ernu verður sjónum
beint að því að gagnvirkt sam-
starf verði milli allra skólastiga og
milli skóla og heimila. Jafnframt á
íhlutun að vera snemmtæk þegar
með þarf með stuðningi og hvatn-
ingu. Vinna á markvisst að þess-
um málum fram til ársins 2018.
„Við gerum það auðvitað með aðal-
námskrá grunnskóla að leiðarljósi,“
tekur Erna fram. „Okkur finnst við
ekki hafa verið að ná nógu góðum
árangri í könnunum þegar skólar
hafa verið bornir saman. Við vilj-
um að allir í samfélaginu vinni að
sama markmiði,“ bætir hún við. - ibs
Unnið að samkomulagi um áherslur í skólamálum í Vestmannaeyjum:
Ætla að bæta árangur nema
Í VESTMANNAEYJUM Gagnvirkt sam-
starf á að verða milli skólastiga og milli
skóla og heimila. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
0
4
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
4
-6
F
7
C
1
4
0
4
-6
E
4
0
1
4
0
4
-6
D
0
4
1
4
0
4
-6
B
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K