Fréttablaðið - 05.03.2015, Qupperneq 22
5. mars 2015 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22
Fólk sem mögulega vill
vel en með gerðum sínum
vekur með mér falsvonir og
hefur af mér og miklu fleir-
um stórar fjárfúlgur. Allt
of margir eru fórnarlömb
þessara skúrka. Skilningur
minn er 100% hjá þeim sem
láta glepjast. Hugarástand
fólks með lífsógnandi sjúk-
dóma eða sem orðið hefur
fyrir slysi er þannig að við
erum auðveld skotmörk.
Örvinglun og að grípa hvert
hálmstrá er eðlilegur fylgi-
fiskur svona ástands. En við skulum
staldra við. Tala við aðra og fá að
tala við þá sem hafa læknast.
Það er ekki sótt að forríku fólki,
eignamiklu fólki eða fólki sem berst
mikið á. Nei, það er mest spennandi
að viðkomandi sé veikur, helst með
enga batavon, með öðrum orðum
dauðvona.
Alls konar töframeðul eru seld
með fullyrðingum um hitt og þetta
sem stenst enga skoðun svo ekki
sé talað um forrit og vélbúnað sem
gerir alla að nýslegnum túskildingi.
Það nýjasta í því er fjarlækning,
þarf bara hár af viðkomandi, jafn-
vel bara mynd af honum/henni og
vélin sendir bylgjurnar til viðkom-
andi. Heilu stofurnar eru til með
alls konar óhefðbundnum lækn-
ingum. Yfirvöld leyfðu þetta með
lögum um græðara.
„Það er í sjálfu sér eðlilegt að þeir
sem haldnir eru alvarlegum sjúk-
dómi leiti allra ráða til að
öðlast bata og séu þá fúsir
til að reyna eitthvað sem
er utan við hið viðtekna í
heilbrigðisþjónustunni.“
Tekið af internetinu úr
skýrslu heilbrigðisráðherra
um græðara og starfsemi
þeirra á Íslandi (lögð fyrir
Alþingi á 131. löggjafarþingi
2004–2005).
Hvar er eftirlitið? Hver
verndar neytandann? Ef
einhver þarfnast verndar er
það þessi viðkvæmi hópur.
Stöldrum við
Nú má ekki skilja mig svo að ég
sé á móti öllu sem ekki er vísinda-
lega sannað. Ég hef reynt margt af
þessu t.d.: Kírópraktor, grasalækna,
Bowen-tækni, höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð, heilun, miðla,
slökun, nudd alls konar, nálastung-
ur, hómópata (smáskammtalækn-
ingar), vítamín, fyrirbænir og núna
síðast einhvers lags bylgjumeðferð
ásamt miklu fleiru.
Ekkert af þessu hefur gert mér
vont nema það hefur ekki aukið
mikið á veraldlegan auð minn enda
flest ekki gefins í svona meðferðum.
Flest hefur veitt mér góða slökun og
vellíðan á meðan á því stendur og í
stuttan tíma á eftir.
Það sem ég get mælt með, til vel-
líðunar og hressingar, en ekki til
lækninga, er: Kírópraktor, höfuð-
beina- og spjaldhryggjarmeðferð,
heilun, slökun, nudd, nálastungur,
grasalæknar í einstöku tilvikum og
hómópatar sem ekki nota „geisla-
vélar“ til að breyta sykurpillum í
meðul. Aðrir hafa lofað mér meiru
en staðið var við.
Hvað er þá vandamálið? Lang-
flestir af þessum töframönnum
hafa lofað svo miklu meiru en þeir
geta staðið við. Jafnvel lækningu á
MND og krabbameinum alls konar
svo ekki sé talað um annað „smott-
erí“. Þarna eru allt of margir að
taka stórfé fyrir eitthvað sem aldrei
verður annað en falsvonir hjá þeim
veiku. Að einhverjir séu að vekja
falsvonir og ræna dauðvona fólk
er í mínum huga glæpur sem verð-
ur einhvern veginn að koma í veg
fyrir. Lægra leggst fólk ekki að
mínu mati.
Ég hvet alla, sem fá tilboð sem eru
of góð til að standast, til að staldra
við, aðeins að kanna hvað er á bak
við gylliboðin. Við erum flest viti
borin og þó okkur séu gerð tilboð á
tímum örvæntingar þá er samt rétt
að staldra við. Við berum ábyrgð
á eigin heilsu og höfum svo margt
betra við tímann að gera en að láta
aðra hafa okkur að fífli. Við getum
gert það sjálf og notið lífsins um leið.
Lifið heil!
Hvað laðar að mér skúrka?
Áratuga hefð er fyrir því að
halda Iðnþing einu sinni á
ári. Þá kemur fólk í íslensk-
um iðnaði saman og fer yfir
þau málefni sem efst eru á
baugi.
Iðnþing 2015 fer fram á
Hótel Nordica í dag og hefst
kl. 14. Þar munu leiðtogar
fyrirtækja, sérfræðingar
og ráðherrar ræða saman
um þær stefnuáherslur sem
Samtök iðnaðarins hafa sett
á oddinn, það er menntun,
nýsköpun og framleiðni.
Menntun er lykillinn að velmeg-
un allra þjóða. Samtök iðnaðarins
vilja efla menntun fyrir atvinnu-
lífið. Til þess að hér megi áfram
dafna öflugt atvinnulíf verðum við
að fjölga iðn-, verk- og tæknimennt-
uðu fólki. Það er skortur á fag-
menntuðu fólki á Íslandi,
ekki bara í iðnaði heldur
einnig í mörgum öðrum
greinum svo sem ferða-
þjónustu og sjávarútvegi.
Undanfarin ár hefur tekist
að vekja áhuga ungs fólks á
tækifærum innan verk- og
tæknigreina á háskólastigi.
Þann vöxt þarf að tryggja
áfram.
Nýsköpun er forsenda
framþróunar og fram-
leiðniaukningar. Við vilj-
um styrkja og styðja við nýsköpun
á öllum sviðum. Á Iðnþingi munum
við ræða nauðsyn þess að skapa
nýjar lausnir til að auka fram-
leiðni á öllum sviðum iðnaðar, jafnt
hjá sprotum sem rótgrónum fyrir-
tækjum.
Nýsköpun og menntun eru grunn-
þættir sem stuðla að aukinni fram-
leiðni. Við Íslendingar erum eftir-
bátar annarra þjóða þegar kemur að
framleiðni. Með öðrum orðum eru
afköst okkar lakari í samanburði
við nágrannaþjóðir. Við megum
ekki og eigum ekki að sætta okkur
við það. Geta okkar til að auka hér
hagvöxt liggur í aukinni framleiðni
og betri nýtingu mannauðs.
Það er samvinnuverkefni okkar
allra að koma Íslandi í fremstu röð
ríkja og skapa hér heilbrigt og öfl-
ugt atvinnulíf sem er ákjósanlegt
fyrir fólk og fyrirtæki.
Velkomin á iðnþing!
Erum við tilbúin fyrir
næstu iðnbyltingu?
Við lifum á tímum þar
sem auður jarðar safnast
á sífellt færri hendur.
Ríkustu 80 menn heims-
ins eiga jafn mikið og
fátækustu 3,5 milljarð-
arnir. Moldríka 1% á
nú nálægt helmingi alls
auðs jarðarinnar. Sex
stórfyrirtæki eiga 90%
fjölmiðla í Bandaríkj-
unum. Eignar hald á fjöl-
miðlum ræður gríðar-
lega miklu um fréttaflutning
þeirra. Kannski ættum við að
fara varlega í að treysta frétta-
flutningi fjölmiðla sem eru í
eigu manna sem taka stöðugt
meira til sín?
Fréttaflutningur fjölmiðla
stjórnast líka af auglýsinga-
styrkjum. Lyfja- og matvæla-
fyrirtæki auglýsa gríðarlega
mikið í fjölmiðlum. Sjáum við
sem dæmi einhvern tímann
ádeilu á erfðabreytt matvæli
eða lyfjaiðnaðinn í fjölmiðlum?
Fjölmiðlar eru í raun ótrú-
lega miðstýrt fyrirbæri. Ef eitt-
hvað fer í einn af stóru fjölmiðl-
unum, t.d. BBC eða CNN, þá er
það fljótt komið í flesta/alla aðra
vestræna fjölmiðla. Sama þótt
fréttin sé röng! Eitt dæmi af
mörgum um þetta er frá síðasta
sumri þegar fréttamaður BBC
sagðist hafa séð rússneska her-
flutningalest fara yfir landa-
mæri Rússlands inn í Úkraínu,
forsætisráðherra Úkraínu
sagði síðan að herflutningalest-
inni hefði að mestu verið eytt
af úkraínska stjórnarhernum.
Þegar hvorugt af þessu reyndist
hins vegar vera rétt þá gufaði
fréttin hreinlega upp. Fjölmiðlar
báðust ekki afsökunar á röngum
fréttaflutningi. Það var einfald-
lega ekki orð um þetta meir!
Skaðinn var hins vegar skeð-
ur vegna þess að þetta var rétt
fyrir fund Bandaríkjaforseta og
nokkurra leiðtoga Evrópuríkja
þar sem tekin var ákvörðun um
að herða á viðskiptaþvingunum
gagnvart Rússlandi.
Gagnrýnislausir
Fjölmiðlar mega heita algjörlega
gagnrýnislausir á vestræna þjóð-
arleiðtoga (t.d. Bandaríkjafor-
seta) og leiðtoga alþjóðastofnana
(t.d. NATO). Þessir háu herrar
hafa mjög greiðan aðgang að
fjölmiðlum. Er einhvern tímann
efast um orð þeirra?
Ástralski rannsóknarblaða-
maðurinn John Pilger sýnir í
heimildarmynd sinni: „The War
You Don’t See“, hvernig fjöl-
miðlar eru notaðir til að reka
stríðsáróður. M.a. með viðtöl-
um við fréttamenn sem viður-
kenna að hafa farið með rangan
fréttaflutning. Til að fara í stríð
þarf samþykki almennings og
þar gegna fjölmiðlar veigamiklu
hlutverki með einhliða frétta-
mennsku sinni og áróðri gegn
ríkjum sem Vesturveldin hafa
ákveðið að gera að skotmörk-
um sínum. Það þarf með öðrum
orðum að markaðssetja stríð.
Heimildarmynd Pilg ers var sýnd
á síðustu RIFF-kvikmyndahátíð
og hana er að finna á johnpilger.
com og YouTube. Það velkist
ekki nokkur maður í vafa um
hlutdrægni fjölmiðla eftir að
hafa horft á þessa mynd.
Hvað er til ráða? Fylgjast
með fjölmiðlum með gagnrýnu
hugarfari eða þá bara hreinlega
loka fyrir þá. Fara á netið og afla
sér upplýsinga í gegnum óháðar
fréttasíður. Fréttasíður sem eru
öllum opnar og treysta á styrki
almennings, ekki fyrirtækja, og
reiða sig sáralítið eða ekkert á
auglýsingatekjur. Góðir upphafs-
punktar eru t.d. fréttamiðlar
eins og consortium news.com og
global research.ca. Þá má nefna
sjálfstæða rannsóknarblaða-
menn eins og t.d. Robert Parry,
John Pilger, Michel Chossu-
dovsky og Paul Craig Roberts.
Fólk finnur sjálft hvað það vill
lesa þegar það er komið af stað.
Um fjölmiðla
Stríðið í Sýrlandi hófst
15. mars 2011. Á þeim
fjórum árum sem senn
eru liðin frá upphafi
átakanna hafa 7,5 millj-
ónir barna neyðst til að
flýja skelfilegt ofbeldi
og átök og yfirgefa
heimili sín. Stór hluti
þeirra er á vergangi
innan heimalandsins
en tæpar tvær milljón-
ir barna hafa flúið yfir
til nágrannaríkjanna. Á
bak við þessar sorglegu tölur
eru raunveruleg börn af holdi
og blóði.
Börn sem eiga sér drauma og
vonir um hvað þau vilja verða
þegar þau verða stór. Því stríð
rænir börn ekki aðeins æsku
þeirra heldur varpar það líka
skugga á möguleika þeirra fyrir
framtíðina.
Með ómetanlegri hjálp heims-
foreldra og fleiri sem stutt hafa
neyðarhjálp UNICEF, höfum
við veitt börnum frá Sýrlandi
lífsnauðsynlega aðstoð allt frá
upphafi átakanna. Hjálp á borð
við vatn, heilsugæslu, hlý föt,
næringu, sálrænan stuðning og
menntun. Menntun er ef til vill
ekki það fyrsta sem kemur upp
í hugann þegar neyðarhjálp er
nefnd. Skólaganga skiptir hins
vegar ekki aðeins máli fyrir
framtíðarmöguleika barna
heldur skapar skólinn einnig
mikilvægan, fastan punkt í til-
veru sem hefur verið umturnað
í ringulreið stríðsins. Menntun
verður enn mikilvægari þegar
neyðarástand varir í marga
mánuði. Mörg ár.
Í dag hefst neyðarsöfnun UNI-
CEF og Fatimusjóðsins fyrir
menntun og framtíð sýrlenskra
flóttabarna. Okkar von er að
þessi börn verði hluti af þeirri
kynslóð sem fær það gífurlega
stóra hlutverk að byggja sýr-
lenskt samfélag upp á nýjan leik.
Börn dagsins í dag eru læknar,
smiðir, kennarar og verkfræðing-
ar framtíðarinnar. En þau þurfa
hjálp. Einfaldur pakki af skóla-
gögnum gefur gleði og von og
getur endurvakið drauma fyrir
framtíðina. Þú getur lagt þitt af
mörkum til neyðarsöfnunar UNI-
CEF og Fatimusjóðsins með því
að senda sms-ið BARN í núm-
erið 1900 (1.490 krónur) og gefið
flóttabarni pakka af skólagögn-
um, eða styrkt um frjálst framlag
á reikning UNICEF á Íslandi eða
Fatimusjóðs. Börn eiga aldrei sök
í stríði en engu að síður eru það
þau sem bera mestan skaða af.
Þín hjálp getur veitt flóttabarni
frá Sýrlandi von og betri framtíð.
Að gefa von
Nú þegar við minnumst
og höldum upp á 100 ára
afmæli kosningarétt-
ar kvenna og kjörgeng-
is kvenna til Alþingis
hefur gripið um sig mikið
ömmu-æði. Formæðra er
nú minnst í ræðu og riti
og frásögnum um ömmur,
langömmur, ömmusystur
og afasystur er safnað á
vef Þjóðminjasafnsins.
Fyrirlestrar um ömmur
slá aðsóknarmet.
Þetta hófst allt í byrj-
un afmælisársins með
vikulegu fyrirlestrunum „Marg-
ar myndir ömmu“ á vegum Rann-
sóknarstofnunar í jafnréttisfræð-
um við Háskóla Íslands (RIKK) í
samstarfi við Þjóðminjasafnið og
framkvæmdanefnd um 100 ára
afmæli kosningaréttar kvenna.
Svipaðra fyrirlestra höfðu Norð-
menn efnt til á 100 ára afmæli
kosningaréttar kvenna þar 2013.
Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns-
ins fylltist strax á fyrsta fyrir-
lestrinum og síðan hefur aðsókn-
in verið svo mikil að margir hafa
þurft frá að hverfa. Ömmusögurn-
ar sprengdu af sér Þjóðminjasafn-
ið og svo fyrirlestrasalinn í Öskju,
húsi Náttúrufræðistofnun-
ar, svo að næsti fyrirlestur
verður í hátíðasal Háskóla
Íslands. Upplýsingar um
staðsetningu ömmufyrir-
lestranna framvegis
verða á vef www.rikk.hi.is
og www.kosningarett-
ur100ara.is. Ömmufyrir-
lestrarnir verða á föstu-
dögum í hádeginu fram í
maí og koma svo út á bók
í haust.
Margar hugmyndir hafa
vaknað í umræðunum eftir
þessa fyrirlestra. Kennar-
ar hafa verið hvattir til að vera
með ömmuverkefni, konur vilja
óðar og uppvægar safna fróðleik
og miðla um ömmur sínar og aðrar
formæður. Heimildasöfnun er í
miklum gangi og hafa skjalasöfn
ekki dæmi um annað eins.
Ömmusögum safnað
Nú hefur Þjóðminjasafnið ákveð-
ið að safna sögum um ömmur í
samstarfi við RIKK, sem ætlar
síðan að nýta þær til kvennarann-
sókna. Þessar sögur má rita undir
fullu nafni eða nafnlaust. Þeim er
hægt að koma til safnsins á heima-
síðu Þjóðminjasafnsins. Allir geta
tekið þátt í þessu verkefni, konur
og karlar, ungir jafnt sem aldnir.
Sagan hefur verið sögð af körlum
um karla, en konur hafa gengið til
starfa sinna hávaðalaust og borið
áhyggjur sínar og erfiði í hljóði.
Nú er tími til að fræðast um allar
þessar konur og safna þeim fróð-
leik saman á einn stað. Það ömmu-
sögusafn mun auðga söguna og
bæta til muna heimildir um hlut
kvenna í samfélaginu á síðustu
öld og nýtast í rannsóknarverk-
efni um konur.
Í gangi eru námskeið þar sem
kennt er að safna upplýsingum og
semja erindi eða skrifa sögu for-
mæðra sinna, ömmu, langömmu
eða jafnvel langalangömmu. For-
mæður eru í kastljósi afkomenda
sinna þetta árið í tilefni kosninga-
réttarafmælisins. Það er mikil-
vægt ljós.
Kennarar ættu að hvetja nem-
endur til að fjalla um ömmur
sínar, í ritgerð eða jafnvel í ljóði.
Sögu kvenna síðustu aldar þarf að
skrá.
Lesandi góður, hver var amma
þín? Nú er að setjast niður og leita
heimilda og/eða skrá minning-
ar um ömmur sínar og miðla lífi
þeirra til komandi kynslóða.
Hver var amma þín?
HJÁLPARSTARF
Bergsteinn
Jónsson
framkvæmdastjóri
UNICEF á Íslandi
FJÖLMIÐLAR
Sölvi Jónsson
starfar með
fötluðum
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Guðjón
Sigurðsson
formaður MND
félagsins
➜ Ég hvet alla sem fá tilboð
sem eru of góð til að stand-
ast að staldra við...
➜ Við Íslendingar erum
eftirbátar annarra þjóða
þegar kemur að framleiðni.
MENNING
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
framkvæmdastjóri
100 ára afmælis
kosningaréttar
kvenna
IÐNAÐUR
Guðrún
Hafsteinsdóttir
formaður Samtaka
iðnaðarins
➜ Börn eiga aldrei
sök í stríði en engu
að síður eru það þau
sem bera mestan
skaða af. Þín hjálp
getur veitt fl óttabarni
frá Sýrlandi von og
betri framtíð.
➜ Fjölmiðlar eru í
raun ótrúlega mið-
stýrt fyrirbæri. Ef
eitthvað fer í einn af
stóru fjölmiðlunum,
t.d. BBC eða CNN, þá
er það fl jótt komið
í fl esta/alla aðra
vestræna fjölmiðla.
0
4
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
4
-9
2
0
C
1
4
0
4
-9
0
D
0
1
4
0
4
-8
F
9
4
1
4
0
4
-8
E
5
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K