Fréttablaðið - 05.03.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.03.2015, Blaðsíða 24
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Langamma mín átti þennan upphlut sem er nú orðinn 95 ára gamall,“ segir Svava Kristín en hún er nafna langömmu sinnar og á sama afmælisdag og hún. „Ég mátaði þjóðbúninginn fyrst fjórtán ára þegar langamma vildi fá mynd af mér í honum. Ég sá þá eftir því að hafa ekki prófað hann fyrr því ég hefði gjarnan viljað fermast í honum.“ Svava Kristín klæddist þjóðbúningnum ekki aftur fyrr en hún var sautján ára gömul. „Þá var haldið þorrablót sem öll fjölskyldan var á leið á. Flestir klæddu sig í þjóðleg föt og mig langaði að vera með. Hins vegar vildi ég ekki vera alveg hefðbund- in. Þá ákvað ég að fara bara í bolinn af upphlutnum ásamt stokkabeltinu og það kom rosalega vel út,“ segir Svava Kristín. Hún hefur síðan þá klæðst upp- hlutsbolnum við ýmis hátíðleg tækifæri. „Ég hef verið í bolnum yfir kjól eða verið í honum einum við pils eða víðar samkvæmisbuxur og þetta kemur alltaf vel út.“ JÁKVÆÐ VIÐBRÖGÐ Hún segist iðulega fá mjög góð viðbrögð frá fólki. „Margir spyrja mig út í hvort bolurinn sé ekta og ég fæ mikið hrós fyrir. Ég hef ekki fengið neikvæð viðbrögð þótt ég sé vitanlega að breyta búningnum með því að klæðast honum svona,“ segir hún. Fjöl- skylda hennar er einnig mjög jákvæð. „Þeim þykir vænt um að ég noti búninginn en auðvitað má ekki misnota hann og vera í þessu alla daga. Ég vel sér- stök tilefni til þess og þá er þetta bara skemmti- legt.“ Mikil verðmæti liggja í stokkabeltinu og millum og baldýringum á bolnum. Er óhætt að fara út á gal- eiðuna með slíka dýrgripi? „Ég passa þetta vel. Svo hringir mamma alltaf í mig daginn eftir til að athuga hvort allt hafi skilað sér heilt heim,“ svarar Svava og hlær. GAMAN AÐ GÖMLUM FÖTUM Svava segist pæla talsvert í tísku. „Mér finnst oft gaman að vera pínulítið öðruvísi og breyti oft göml- um hlutum og geri þá að mínum. Þannig er fataskáp- urinn hennar ömmu eiginlega allur kominn í bæinn til mín,“ segir hún glettin. „En inn á milli fylgir maður bara tískunni,“ segir hún en uppáhaldsbúðir hennar hér á landi eru Spútnik og Zara. Eyðir þú miklu í föt? „Já, ég verð að viðurkenna það, ég er dálítið dýr í rekstri,“ svarar hún kímin. En hvað með helstu veikleikana þegar kemur að tísku og útliti? „Ætli það sé ekki fullkomnunar áráttan. Ég er mjög lengi að hafa mig til og vinir mínir geta orðið ansi þreyttir á að bíða eftir mér meðan ég næ öllu alveg fullkomnu. Það þarf allt að passa, frá skóm og fötum til förðunar. Reyndar lít ég ekki á þetta sem veikleika af því ég hef bara svo rosalega gaman af því að hafa mig til.“ ■ solveig@365.is Í UPPHLUTSBOL AF LANGÖMMU SINNI TÍSKA Förðunarfræðingurinn Svava Kristín Grétarsdóttir notar bol og belti af þjóðbúningi langömmu sinnar við ýmis hátíðleg tækifæri. Hún parar þessi þjóðlegu klæði við nútímalegri fatnað á borð við stutt pils og víðar buxur. ÞJÓÐLEG OG SMART Svava Kristín Grétars- dóttir heldur mikið upp á upphlut lang- ömmu sinnar sem hún notar við hátíðleg tækifæri. MYND/VILHELM Útsala Útsala Öll efni á 1000 og 1500 kr. Laugavegi 101. Sími 552 1260. Opið frá 10 – 18. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin BelladonnaStærðir 38-58 Léttar yfirhafnir Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl. 11–18 Opið laugardaga k l. 11-16 0 4 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 4 -8 D 1 C 1 4 0 4 -8 B E 0 1 4 0 4 -8 A A 4 1 4 0 4 -8 9 6 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.