Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2015, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 05.03.2015, Qupperneq 26
FÓLK|TÍSKA Einn helsti aðdáandi Zuhairs Murad er söng- og leikkonan Jennifer Lopez sem iðulega klæðist föt-um hans. Nokkrir stjörnur sáust í kjól frá Murad á rauða dreglinum þegar Óskarsverðlaunin voru afhent í lok febrúar. Má þar til dæmis nefna Chrissy Teigan, Önnu Faris og Jennu Devan Tatum svo einhverjar séu nefndar. Frægar konur eins og Taylor Swift, Carrie Under wood, Ivana Trump, Beyoncé, Shakira, Christina Applegate og Vanessa Williams eru allar góðir kúnnar hjá Murad auk margra fleiri. Zuhair Murad er ekki síður þekktur fyrir brúðarkjóla sína sem þykja ákaflega fallegir. Hægt er að skoða hönnun hans á vefsíðunni zuhairmurad.com Zuhair Murad fæddist í Baalbek í Líbanon árið 1971 og ólst þar upp. Frá unga aldri dreymdi hann um að verða hönnuður. Hann var aðeins tíu ára þegar hann byrjaði að teikna kjóla. Árið 1997 opnaði hann vinnustofu í Beirút og vann að mestu fyrir fasta viðskiptivini. Árið 1999 sýndi hann í fyrsta skipti á stórri tískusýningu í Róm og tveimur árum síðar í París. Þessar sýningar veittu honum al- þjóðlega tískufrægð þar sem strax var eftir honum tekið af helstu tískublöðum heims. KJÓLAMEISTARI FÍNA FÓLKSINS GLÆSILEIKI Einn helst kjólameistari stjarnanna er tískuhönnuðurinn Zuha- ir Murad. Þar sem stórir viðburðir fara fram má sjá heimsþekktar konur í kjólum hans. Nýlega sýndi Murad kjólatísku sína fyrir sumarið 2015 í París. ÍBURÐUR Einn af kjólum Zuhairs Murad sem sýndur var á tískuviku í París í lok janúar. Hann er íburðarmikill og sannarlega í anda Hollywood- drottninga. Murad er afar vinsæll kjóla- hönnuður hjá þeim allra frægustu. ELEGANS Zuhair Murad er frá Líbanon en er löngu orðinn þekktur um allan heim fyrir hönnun sína. Hann hefur hannað mikið fyrir Jennifer Lopez. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Flottir kjólar 8.900 kr.- Str: S-XXL LIFÐU í NÚLLINU! Til hvers að flækja hlutina? 365.is | Sími 1817 0 4 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 4 -7 9 5 C 1 4 0 4 -7 8 2 0 1 4 0 4 -7 6 E 4 1 4 0 4 -7 5 A 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.