Fréttablaðið - 05.03.2015, Side 36
5. mars 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts föður okkar,
ÞORGEIRS INGVASONAR
Asparfelli 4, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 6. febrúar. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigrún Linda Þorgeirsdóttir
Þórir Þorgeirsson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
konu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
RANNVEIGAR TRYGGVADÓTTUR
Hringbraut 50, Reykjavík.
Sérstakar kveðjur sendum við starfsfólki
deildar V3 á Grund, með þakklæti fyrir alúð
og góða umönnun.
Örnólfur Thorlacius
Valgeir Hallvarðsson Aðalbjörg Kristinsdóttir
Eva Hallvarðsdóttir Ásgeir Valdimarsson
Herdís Hallvarðsdóttir Gísli Helgason
Rannveig Hallvarðsdóttir Jóhannes Karl Jia
Tryggvi Hallvarðsson Þuríður Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn og afi,
GUÐJÓN AGNAR EGILSSON
Háaleitisbraut 109, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
27. febrúar 2015. Útför hans verður gerð frá
Grensáskirkju mánudaginn 9. mars nk.
klukkan 15.00.
Guðlaug Rakel Pétursdóttir
Rakel Rósa Ingimundardóttir
Systir mín,
GUÐNÝ GESTSDÓTTIR
Ásvallagötu 37,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni,
föstudaginn 6. mars nk. kl. 16.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á minningarsjóð Sóltúns.
f.h. fjölskyldunnar,
Júlíus Gestsson
Hjartkær móðir okkar, dóttir,
systir og mágkona,
HUGRÚN REYNISDÓTTIR
Klukkubergi 15, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 1. mars á líknardeild
Landspítalans Kópavogi. Jarðsungið verður
í Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 6. mars
kl. 15.00.
Helena Rakel Jóhannesdóttir
Dagur Fannar Jóhannesson
Sigríður K. Skarphéðinsdóttir
Reynir Hjörleifsson
Áslaug Reynisdóttir
Kristín Reynisdóttir Gísli Fannberg
Skarphéðinn Reynisson Júlía Margrét Guðbjargardóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HREINN RAGNARSSON
kennari,
Laugarvatni,
er látinn.
Guðrún Einarsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÓLAFÍA SIGURÐARDÓTTIR
BERGMANN
Miðtúni 42, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju,
föstudaginn 6. mars kl. 13.00.
Sigurður Bjartmar Sigurjónsson Sesselja Gísladóttir
Gísli Geir Sigurjónsson Herborg Sjöfn Óskarsdóttir
Þorvaldur B. Sigurjónsson Dagný Hildur Leifsdóttir
Brynja Sigurjónsdóttir Kjartan Jónsson
Freyja Sigurjónsdóttir Róbert Leadon
Rúnar Sigurjónsson Anna Elín Óskarsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Vinum okkar og vandamönnum nær og fjær,
sem við náum ekki til, þökkum við innilega
fyrir samúð og vinarhug vegna andláts og
útfarar mannsins míns og föður okkar,
ÖNUNDAR ÁSGEIRSSONAR
Guð blessi ykkur öll.
Eva H. Ragnarsdóttir
Greta Önundardóttir
Ásgeir Önundarson
Ragnar Önundarson
Páll Torfi Önundarson
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍN ÞORSTEINSDÓTTIR
Hjúkrunarheimilinu Seljahlíð,
lést þann 7. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram.
Kristín S. Magnúsdóttir
Þóra G. Magnúsdóttir
Magnús Þ. Magnússon
og aðstandendur
Kær móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR
lést 5. febrúar sl. Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Með þökk fyrir veitta
samúð og kærleik. Guð blessi ykkur öll.
Stefán Þorleifsson Anna Þórný Sigfúsdóttir
Málfríður Þorleifsdóttir Þorsteinn Árnason
Steindóra Kristín Þorleifsdóttir Rene Sigsgaard Pedersen
Lilja Rós Þorleifsdóttir Sigurður Elvar Baldvinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
HELGA PÉTURSDÓTTIR
er látin. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Blóm og kransar afþakkaðir.
Jóhannes Bjarnason
Pétur Bjarnason
Sigurður Bjarnason
Bjarni Bjarnason
Ásgerður Bjarnadóttir
ODDBERGUR EIRÍKSSON
skipasmiður,
Ytri-Njarðvík,
lést þann 27. febrúar sl. á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Hann verður jarðsunginn frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 6. mars
kl. 14.00.
Kolbrún Oddbergsdóttir
Guðmundur Oddbergsson
og aðrir aðstandendur.
Námskeiðið Máttur kvenna hefur verið
kennt við Bifröst í áratug og þeim tíma-
mótum verður fagnað með útrás verk-
efnisins til Bashay í norðanverðri Tans-
aníu. Kynningarfundur verður haldinn í
hádeginu á morgun milli 12.00 og 13.00
á Hverfisgötu 4-6.
„Þrjár meginástæður eru fyrir því
að ráðist er í verkefnið á þessum tíma-
punkti. Við höfum verið að kenna nám-
skeiðið við góðan orðstír í áratug, sjálf
hef ég tengingar við Tansaníu og við vilj-
um sýna samfélagslega ábyrgð,“ segir dr.
Anna Elísabet Ólafsdóttir, einn umsjón-
armanna verkefnisins.
Auk hennar standa dr. Eiríkur Berg-
mann og dr. Magnús Árni Skjöld Magn-
ússon fyrir að flytja Mátt kvenna út fyrir
landsteinana.
Námskeiðið er til þess fallið að kenna
konum að skoða umhverfi sitt og koma
auga á tækifærin.
„Við höfum aðlagað efni námskeiðs-
ins staðháttum í Tansaníu og munum
aðstoða konur við að greina viðskipta-
tækifæri og gera viðeigandi viðskipta-
áætlanir,“ útskýrir Anna Elísabet.
Samkvæmt nýrri skýrslu Oxfam á eitt
prósent jarðarbúa næstum helming alls
auðs veraldar og tuttugasti hluti á 95 pró-
sent eignanna. Því miður er fátækt gríð-
arlega útbreidd eins og raunin er víða í
Afríku. En rannsóknir sýna að í barátt-
unni gegn fátækt bítur menntunin best.
Með menntun fær fólk tæki til að brjót-
ast úr klóm fátæktar og raunveruleg
tækifæri til að breyta aðstæðum sínum.
„Við höfum notið aðstoðar Restituta
Joseph, Rasty, en hún er ung kona frá
Bashay sem dvalið hefur hérlendis í sjö
vikur og hlotið þjálfun í efninu. Hún
fer svo til síns heima og undirbýr kon-
urnar og fjölskyldur þeirra áður en við
komum,“ segir Anna Elísabet.
Kynningarfundurinn verður einn-
ig nýttur sem stofnfundur félagsins
Women Power. Tilgangur félagsins
er að veita konum fjárhagslega aðstoð
vanti þær fjármagn til að vinna úr
viðskiptahugmyndum sínum. „Með
Women Power viljum við hjálpa enn
frekar við að koma konum af stað.
Þannig verður hægt að gera konum
kleift að kaupa til dæmis sauma-
vélar eða annan búnað, til að hefja
framleiðslu, sem annars hefði reynst
ómögulegt,“ bætir Anna Elísabet við.
Áhugasamir geta lagt verkefninu lið
með framlögum í gegnum Karolina
Fund, en fyrirkomulaginu verða gerð
ítarleg skil á kynningarfundinum.
Að lokum mun Ólöf Magnúsdótt-
ir, rekstrarstjóri UNICEF á Íslandi,
ræða stöðu kvenna í ólíkum menning-
arheimum.
gudrun@frettabladid.is
Máttur kvenna í útrás
Háskólinn á Bifröst stendur fyrir kynningarfundi viðamikils verkefnis sem fyrirhugað er
að koma upp í Tansaníu til að auka hlut kvenna í atvinnulífi nu og draga þannig úr fátækt.
MÁTTUR
KVENNA
Systurnar
dr. Anna
Elísabet og
Hulda Ólafs-
dætur ásamt
konunum
í Bashay
sem ætla
að mennta
sig. Hér er
verið að
vefja þær inn
í efni sem
síðar varð
að fallegum
dressum.
0
4
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
4
-8
D
1
C
1
4
0
4
-8
B
E
0
1
4
0
4
-8
A
A
4
1
4
0
4
-8
9
6
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K