Fréttablaðið - 05.03.2015, Page 40
5. mars 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28
Glæpasögur sem byggðar eru á
fjölskyldusögu höfundar eru ekki
á hverju strái. Ein slík hefur þó
farið sem eldur í sinu um heim
glæpasagna að undanförnu og sér
ekki fyrir endann á velgengni bók-
arinnar Dansað við björninn eftir
Svíana Anders Roslund og Stefan
Thunberg sem voru staddir hér á
landi í vikunni.
Anders Roslund er margverð-
launaður rannsóknarblaðamaður
og lofaður spennusagnahöfundur
á síðustu árum. Stefan Thunberg
er á meðal eftirsóttustu handrits-
höfunda Norðurlandanna og eftir
hann liggja þekkt handrit að bæði
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
en þetta er hans fyrsta bók.
Sagan sem birtist lesendum
í Dansað við björninn er engin
venjuleg glæpasaga. Hún er fjöl-
skyldusaga Stefans Thunberg sem
hefur gengið með hana í maganum
og á sálinni í tæp tuttugu ár. Stefan
er næstelstur fjögurra bræðra sem
snemma á tíunda áratug síðustu
aldar héldu Svíþjóð í heljargreipum
með röð vopnaðra rána sem minntu
fremur á bandaríska kvikmynd en
skandinavískan veruleika. Á þeim
tíma var Stefan í listaskóla í Stokk-
hólmi en hann var engu að síður
fyllilega meðvitaður um það sem
bræður hans aðhöfðust.
Aðeins röð átaka
„Við komum úr skemmdu umhverfi
með ofbeldisfullan og alkóhólíser-
aðan föður gínandi yfir öllu. Fyrir
bræður mína var þetta leið út. Að
verða sér úti um nægilega mikið af
peningum til þess geta lifað góðu
lífi. Ég vissi alveg hvað var í gangi
á þessum tíma en það var aldrei
inni í myndinni að kjafta frá þessu,
slíkt gengi þvert á allt sem okkur
hafði verið innprentað. En svo líða
þessi ár og við Anders kynnumst
og náum saman um þetta verkefni.
Ég hefði aldrei getað þetta nema
með honum, þá hefði þetta aldrei
orðið almennileg bók – bara röð af
átökum án orsaka og afleiðinga.“
Þeir Stefan og Anders eru ólíkir
einstaklingar. Engu að síður bend-
ir Anders á að þeir sjái sögur með
sömu augum og að það hafi gert
þeim kleift að vinna saman. „Við
gerðum okkur grein fyrir því að
við erum tengdari en við áttum
von á. Ég kem líka af heimili með
ofbeldisfullum föður og þetta
mótar mann. Hefur mótað okkur
báða, gert okkur að skapmönnum
og sett í okkur galla sem við höfum
þurft að vinna í að losa okkur við.
Svo var ég líka í hringiðu þessar-
ar sögu á sínum tíma sem frétta-
maður og það sjónarhorn nýtist
okkur. Í ekki stærra samfélagi
en er í kringum glæpasögur og
kvikmyndir í Svíþjóð var svo
óhjákvæmilegt annað en að leiðir
okkar lægju saman að endingu.“
Vopnaspjall í eldhúsinu
Þeir Anders og Stefan eru sam-
mála um að til þess að geta form-
að bók úr þessari ofbeldisfullu
fjölskyldusögu hafi farið best á að
taka hana í sundur og raða saman
brotunum. „Ég fór og sótti lög-
regluskýrsluna og hún var upp á
6.000 síður,“ segir Anders. „Tók
þetta ferlíki í fangið og burðaðist
með þetta upp á fimmtu hæð í litlu
íbúðina mína í Stokkhólmi þar sem
Stefan beið eftir mér. Mér leið eins
og ég væri að dragnast með lík upp
allar tröppurnar og inn í íbúð þar
sem ég lét þetta vaða í gólfið. Stef-
an horfði á aðfarirnar og hrúguna
og gekk svo þegjandi út. Ég gat vel
skilið að þetta væri erfitt og beið
bara þangað til hann var tilbúinn
að koma að þessu og það kom að
því nokkrum vikum seinna. Veru-
leikinn sem birtist okkur þarna og
í upplifun Stefans er grunnurinn
að öllu í þessari bók – stóri sann-
leikurinn.“
Þó svo Stefan hafi aldrei verið
gerandi eða aðili að því sem átti
sér stað var hann alltaf nálæg-
ur. „Það er súrrealískt í dag að
hugsa til þess að þegar ég kom í
heimsókn þá heyrði ég í bræðrum
mínum tala um vopn og ránsáætl-
anir yfir nokkrum bjórum við eld-
húsborðið. Þeir kölluðu mig lista-
manninn og glottu aðeins að mér
en annað var það ekki. Einu sinni
gekk ég inn á þá þar sem þeir sátu
og voru að horfa á sjónvarpsfréttir
um ránin og þeir ræddu þetta bara
eins og þeir væru að tala um bíó-
mynd. Þeir vissu að ég vissi en það
þurfti ekki að orða neitt.“
Skapandi og snjallir bræður
Það var svo daginn fyrir jól, vet-
urinn sem þetta stóð sem hæst,
að Stefan kom heim í lok dags og
kveikti á sjónvarpinu. Þar var
verið að fylgjast með eltingarleik
lögreglunnar við glæpamennina
sem höfðu skekið Svíþjóð. Þeir
voru vopnaðir og í stórum bíl,
fastir í skurði í byljandi sænsk-
um vetrarstormi, tilbúnir í átök.
„Mesta áfallið var að sjá að pabbi
var með þeim. Þeir höfðu tekið upp
á því að sættast við kallinn og taka
hann með í næsta rán. Það var
áfall vegna þess að ég veit hvaða
mann hann hefur að geyma og ég
efaðist ekki um að hann mundi
aldrei gefast upp. Ég var viss um
að bræður mínir mundu deyja
þarna í skurðinum í skotbardaga
við lögregluna og við þá tilhugsun
hrundi ég. Gat ekki meir. Sofnaði
og vaknaði endurnærður á falleg-
um aðfangadegi sannfærður um
að þetta hefði bara verið draumur.
Gekk út á horn til þess að ná mér
í morgunverð og þá sá ég fyrir-
sagnir blaðanna og raunveruleik-
inn skall á mér að nýju.“
Anders bendir á hversu mikill
og þungbær þessi raunveruleiki
getur verið. „Tengsl Stefans við
bræður sína eru svo sterk og þetta
er svo náið að stundum þurftum
við að kljúfa persónur og skapa
þær að nýju til þess að ná utan
um verkefnið. Þessi rán voru svo
hrottaleg en um leið hugmyndarík
og snjöll. Stefan er greinilega ekki
eini skapandi einstaklingurinn í
þessari fjölskyldu – hann fann því
bara jákvæðari farveg.“
Við erum vinir í dag
„Núna þegar ég er loksins búinn
að fara í gegnum þetta allt er þessi
vanmáttartilfinning ekki eins
ráðandi,“ segir Stefan og leggur
áherslu á að við skrifin hafi í raun
tekist á tveir pólar. „Annars vegar
var þessi inngróna tilfinning um að
maður megi aldrei kjafta og hins
vegar mantran okkar Anders um
að brjóta þetta allt niður í sögu og
skáldskap.
Það sem gerði mér þetta kleift
var að móðir mín gaf mér leyfi og
hjálpaði mér í gegnum þetta. Hún
sagði: „Nú er komið að þér Stefan,
þetta er þinn tími.“ Það breytti
öllu. Hún er löngu farin frá föður
mínum og spjarar sig í dag og það
gera bræður mínir líka.
Ég hafði samband við þá þegar
bókin var klár til prentunar. Það
var tveimur dögum fyrir jól, rétt-
um tuttugu árum eftir að þeir
náðust og ég fór með eitt hand-
rit til þeirra svo þeir gætu lesið
þetta fyrstir allra. Ég fór heim
og beið. Fimmtán tímum síðar
fékk ég símtal frá yngri bróð-
ur mínum Felix. Hann öskraði í
símann: „Ég fokking hata þig en
ég elska þessa bók!“ Síðan skellti
hann á og við töluðum ekki saman
í ár. Hann þurfti sinn tíma og
við bræðurnir erum allir vinir í
dag.“
magnus@frettabladid.is
Ég hata þig en ég elska þessa bók
Glæpasagnahöfundarnir Anders Roslund og Stefan Thunberg tókust á við það erfi ða verkefni að skrifa bók sem byggir á ættarsögu
Stefans en bræður hans og æskuvinir frömdu fj ölda vopnaðra rána í Svíþjóð snemma á tíunda áratug síðustu aldar.
★★★ ★★
Annar tenór
Sýnt í Iðnó
HÖFUNDUR: GUÐMUNDUR ÓLAFSSON
LEIKARAR: GUÐMUNDUR ÓLAFSSON,
SIGURSVEINN MAGNÚSSON, AÐALBJÖRG
ÁRNADÓTTIR
LEIKSTJÓRI: MARÍA SIGURÐARDÓTTIR
LÝSING: KJARTAN DARRI KRISTJÁNSSON
Tenórinn er kominn aftur á sínar
gömlu slóðir í Iðnó og fyrir troð-
fullu húsi á laugardaginn fór
hann yfir atburðarás síðustu tólf
ára ásamt því að syngja nokkur
vel valin lög. Guðmundur Ólafs-
son bæði skrifar og leikur aðal-
hlutverkið í þessar ljúfsáru gam-
ansýningu þar sem tenórinn hittir
gamlan vin, undirleikarann skiln-
ingsríka leikinn af Sigursveini
Magnússyni, sem er að hita upp
fyrir tónleika kvöldsins.
Mikið hefur breyst síðasta ára-
tuginn, tenórinn er fluttur heim
til Íslands en er ekki alls kostar
sáttur við dvöl sína í litlu þorpi
úti á landi þar sem hann kenn-
ir mishæfileikaríkum bræðrum
að radda, syngur í jarðarförum
þegar BÓ kemst ekki og neitar að
taka þátt í þorrablótsskemmtiat-
riðum fyrir kvenfélagið. Aftur á
móti hefur undirleikarinn fundið
sinn stað í lífinu, umkringdur fjöl-
skyldu sinni og bíður nú eftir fæð-
ingu tólfta barnabarnsins.
Söngrödd Guðmundar er algjör
gersemi, lituð af einlægni og
skemmtileg nærvera hans er
máttarstólpi sýningarinnar. Það
er einmitt í gegnum röddina þar
sem tenórinn finnur helst sjálfan
sig en bitrar minningar af gamla
lífinu eru sem hlekkir á tilfinn-
ingalífi hans. Hann endurlifir ást-
ina í gegnum „On the Street Where
You Live“ úr My Fair Lady, syng-
ur heilu aríurnar af mikilli innlif-
un og textar Davíðs Stefánssonar
framkalla gæsahúð á þeim sem
leggja við hlustir.
Leikstjórnin er í reyndum
höndum Maríu Sigurðardóttir og
vinnur hún skemmtilega með hið
undur fallega rými Iðnó. Tempóið
í sýningunni er kannski helst til
lágstemmt fyrir gamanleikrit en
einföld umgjörð og lýsing Kjart-
ans Darra skapa skemmtilegt
andrúmsloft í salnum. Undirleik-
ur Sigursveins er einnig fagur án
þess að vera of yfirþyrmandi.
Vandamál sýningarinnar ligg-
ur helst í ójöfnu handritinu, for-
tíðarþráin og blákaldur raunveru-
leikinn finna aldrei samhljóm.
Dramatíkin og húmorinn takast
á en hvorugt er sérstaklega eftir-
minnilegt, þó hitta sumar eftir-
hermur Guðmundar beint í mark,
„efrivarabræðurnir“ þrír þá sér-
staklega. Undirspilarinn virðist
eingöngu vera til staðar sem stuðn-
ingsaðili fyrir tenórinn og svipaða
sögu má segja um tæknikonu húss-
ins, leikin prýðilega af Aðalbjörgu
Árnadóttur. Persónur þeirra hafa
hvorki djúpa forsögu né mikið fram
að færa nema gamansöm innslög og
samúð í garð tenórsins.
Uppgjör tenórsins við sjálfan
sig hefur þannig enga skýra niður-
stöðu fyrir utan mögulega að taka
lífið í sátt frekar en að ríghalda í
fortíðina og eftirsjána sem henni
fylgir. Ferðalagið er spaugilegt
á köflum og söngurinn fallegur
á leiðinni en endar ekki á nýjum
stað.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Algjörlega glimrandi
söngstund með Guðmundi en verkið
líður fyrir misjafnt handrit.
Tenórinn snýr aft ur á fjalirnar
SKEMMTILEG KVÖLDSTUND Þau Guðmundur Ólafsson og Aðalbjörg Árnadóttir
þykja standa sig vel á fjölunum í Iðnó en sýningin líður nokkuð fyrir misjafnt handrit.
THUNBERG OG ROSLUND „Við erum ólíkir einstaklingar sem sjáum sögur sömu
augum,“ segir Anders Roslund um þá félaga sem skrifuðu saman glæpasöguna
Dansað við björninn sem byggir á fjölskyldusögu Stefans Thunberg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í DRAUGAHELLINUM Hér geymdu þeir
félagar vopnin sem þeir rændu og nýttu
við ránin. Myndin sýnir tvo af bræðrum
Stefans Thunberg, þá Carl og Lenneart
Sumonja, ásamt æskuvini þeirra Johan
Alin fyrir miðri mynd.
VOPNAÐ RÁN Ein af 6.000 blaðsíðum
lögregluskýrslunnar um vopnuðu ránin
sem bræður Stefans frömdu og sagt er
frá í Dansað við björninn.
MENNING
0
4
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
4
-6
5
9
C
1
4
0
4
-6
4
6
0
1
4
0
4
-6
3
2
4
1
4
0
4
-6
1
E
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K