Fréttablaðið - 17.03.2015, Page 44
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 24
TREND KLÆDDU AF ÞÉR KULDANN Í KLÆÐILEGRI KÁPU
Í kvöld fer fram Slow Food-
fundur á veitingastaðnum Mat
og drykk þar sem matreiðslu-
maðurinn Gísli Matthías Auð-
unsson mun freista þess að gera
Íslendinga stolta af matarhefð-
um sínum, sem hann segir fjöl-
breyttari en marga grunar.
„Það er svona stóra markmið-
ið með veitingastaðnum og við
ætlum svolítið að tala um það
í kvöld og sýna okkar snúning
á íslenskri klassík,“ segir Gísli
glaður í bragði, en hann mun
halda stutt erindi um íslenska
matarhefð auk þess boðið verð-
ur upp á þjóðlega smárétti í
skemmtilegum búningi á borð
við saltfisk, kleinur, harðfisk
og hangikjöt.
„Ég mun halda smá tölu, bæði
um hvernig við getum skoðað
og notað gamlar heimildir í
nútímamatargerð og tala um
góðu hlutina í íslenskri matar-
hefð og hverju við ættum að
vera stolt af í því,“ segir Gísli.
Hann segir margt sem Íslend-
ingar geti stært sig af. „Við
erum með frábært hráefni,
bæði fisk, kjöt og frábæran
skelfisk sem er einn af þeim
betri í heiminum að mínu mati
og síðan eigum við hefðirnar
líka. Eins og hvernig við reykt-
um matinn, sýrðum hann og
fleira og við setjum fram góðu
hlutina í því, en ekki endilega
bara gamla, góða hákarlinn,“
segir hann og hlær.
Hann segir það jafnvel hafa
komið sér á óvart af hversu
miklu var að taka þegar hann
hóf undirbúningsvinnu fyrir
Mat og drykk, en hún var meðal
annars unnin í samstarfi við
sagnfræðinga og þekkta mat-
gæðinga á borð við Nönnu
Rögnvaldardóttur. Áhugi Gísla
á íslenskri matarhefð kviknaði
fyrir allnokkru.
„Ég hef alltaf verið mikið
fyrir nýnorræna matargerð,
allt frá því að sú hreyfing hófst
og þetta helst svolítið í hend-
ur við það. Eftir hrunið þá var
kannski ekki hægt að flytja
inn frábært gæðahráefni að
utan og maður þurfti kannski
að einbeita sér meira að því
íslenska, sem er bara frábært.
Þá er maður að styrkja meira
íslenska smáframleiðendur og
bændur,“ segir Gísli og bætir
við: „Mér finnst það bara hálf-
gerð skylda mín sem mat-
reiðslumaður að versla mikið
við þá.“
Slow Food-fundurinn verður
haldinn á veitingastaðnum Mat
og drykk og hefst klukkan hálf
sjö í kvöld en einnig verður
Gunnþórunn Einarsdóttir frá
Matís á svæðinu. Aðgangseyrir
er 1.490 krónur.
gydaloa@frettabladid.is
ÍSLENSK MATARHEFÐ Gísli Matthías matreiðslumaður hefur mikinn áhuga á íslenskri matarhefð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjölbreytt íslensk matarhefð er
umræðuefni Slow Food-fundar
Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður á veitingastaðnum Mat og drykk, segir íslenska matarhefð fj ölbreyttari en marga grunar og
af meiru að taka en gamla góða hákarlinum. Einnig verður hægt að gæða sér á þjóðlegum smáréttum í skemmtilegum búningi.
Kleina
600 g hveiti
100 g sykur
100 g smjör
4 tsk. lyftiduft
3 egg
2 stk. rifin kardimomma
AÐFERÐ Hnoðið deigið vel saman í
höndum. Deig rúllað út og passið að
hafa það ekki of þunnt. Skorið út og
steikt við 190°C.
Mysingskrem
50 g mjólk
50 g rjómi
12 g kartöflumjöl
35 g púðursykur
10 g smjör
50 g mysingur
AÐFERÐ Púðursykur settur í pott
og bræddur. Smjöri og rjóma bætt
við púðursykurinn. Þykkið mjólkina
með kartöflumjöli og blandið saman
við púðursykur, smjör og rjóma.
Mysingnum er bætt við í lokin og
kremið sigtað.
KLEINA
OG MYSINGSKREM
Ég hef alltaf
verið mikið fyrir
nýnorræna matar-
gerð, allt frá því að
sú hreyfing hófst
og þetta helst
svolítið í hendur
við það.
Þegar vindurinn
blæs og napurt er
um að litast er gott
að klæða sig í kápu
og ekki er verra ef
hún er klæðileg í
þokkabót.
LÍFIÐ
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-E
2
5
8
1
4
2
5
-E
1
1
C
1
4
2
5
-D
F
E
0
1
4
2
5
-D
E
A
4
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K