Skessuhorn - 12.06.2013, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Vert er að minna á tónlistarhá-
tíðina IsNord sem fram fer næstu
daga í Borgarfirði með metnaðar-
fullri dagskrár eins og lesa má um í
blaðinu í dag.
Næstu dagana, alveg fram að
sunnudegi er spáð austan- og
norðlægum áttum. Rigning eða
súld að mestu um landið austan-
vert en þurrara vestan til. Hiti verð-
ur 7-16 stig, hlýjast vestanlands. Á
sunnudag er spáð hægri suðlægri
átt, skýjuðu en líkum á skúrum í
flestum landshlutum. Hiti víða 10
til 15 stig. Á mánudag verður svip-
að veður, útlit fyrir dálitla vætu síð-
degis og hiti breytist lítið.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Ætlar þú í stangveiði
í sumar?“ Tæplega þriðjungur ætl-
ar að gera það, eða 28% en 64%
gera það ekki. Rúm 8% höfðu ekki
myndað sér skoðun á því.
Í þessari viku er spurt:
Ætlar þú á bæjar- eða héraðshá-
tíð í sumar?
Konur sem hreyfðu sig hressilega á
laugardaginn var, í árlegu kvenna-
hlaupi, eru Vestlendingar vikunn-
ar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Kaupa ekki
land undir
Miðaldaböð
BORGARBYGGÐ: Byggð-
arráð Borgarbyggðar ákvað á
fundi sínum sl. fimmtudag að
kaupa ekki land undir vænt-
anleg Miðaldaböð sem ráðgert
er að byggja í landi Hrauns-
áss II í Hálsasveit. Það er fé-
lagið Sígildar sögur ehf. í eigu
hjónanna Kjartans Ragnarsson
og Sigríðar Margrétar Guð-
mundsdóttur sem hefur haft af-
notarétt af landinu samkvæmt
samningi við landeigendur þar
sem fyrirhugað er að Miðalda-
böðin rísi. Félagið bauð Borg-
arbyggð landsspilduna til sölu
í maí til að þoka verkefninu
áfram og leitaði byggðarráð
álits hjá KPMG vegna þess.
Í fundargerð ráðsins segir að
byggðarráð sjái sér ekki fært
að verða við erindinu þar sem
það fellur ekki að hefðbundn-
um verkefnum sveitarfélagsins.
Engu að síður telur ráðið verk-
efnið áhugavert.
–hlh
Dýrin í
skóginum
SVÍNADALUR: Erlendir
ferðamenn sem dvöldu í sumar-
bústað í Svínadal í Hvalfjarðar-
sveit sl. mánudag hringdu í of-
boði til lögreglu. Kváðust þeir
hafa séð, ekki einn, heldur tvo
ísbirni skammt frá bústaðnum
og annar þeirra hefði risið upp
á afturfæturna. Um fjölskyldu-
fólk var að ræða og voru hjónin
búin að loka börn sín inni í her-
bergi en stóðu sjálf vörð og rétt
þorðu að kíkja út um gluggana.
Þegar lögregla mætti á svæð-
ið var fyrst reynt að róa fólkið
og bent á að langlíklegast væri
að þarna væru hvítar íslensk-
ar sauðkindur á ferðinni. Að
sögn lögreglu var ekki nokkru
tauti við komandi gagnvart út-
lendingunum og fór lögreglan
því á staðinn og kannaði málið.
Kindurnar utan við bústaðinn
reyndust allar alveg sauðmein-
lausar og tókst laganna vörð-
um að endingu að sannfæra út-
lendingana um hvers kyns væri
og var börnunum því hleypt út
úr herberginu og róuðust þau
heldur. Skimuðu þó vel í kring-
um sig í kjarrlendinu í kringum
bústaðinn áður en þau héldu út
úr bústaðnum á vit nýrra ævin-
týra.
-mm
ÍTALSKT ESPRESSÓ!
Beint í bollann – ilmandi ferskt!
ACTIFRY
FÆST Í SEX LITUM
VIÐ TÖKUM
VEL Á MÓTI
VÆNTANLEGUM
BRÚÐHJÓNUM
OG STOFNUM
BRÚÐAR-
GJAFALISTA
Í ÞEIRRA
NAFNI Ankarsrum® Original-hrærivélin
er lífstíðareign.
Skaftryksugurnar
hafa aldeylis
slegið í gegn
TÆR
SNILLD!
Frábært
úrval
heimilistækja
ÞJÓÐBRAUT 1 / AKRANESI / SÍMI 530 2870 / www.ormsson.is
Landmælingar Íslands, sem eru með
aðsetur á Akranesi, hafa hlotið jafn-
launavottun VR en þetta er sjötta
fyrirtækið sem hlýtur vottunina frá
því hún var fyrst veitt í apríl síðast-
liðnum. Landmælingar Íslands eru
jafnframt fyrsta ríkisstofnunin til
þess að hljóta vottunina. „Þetta er
í góðu samræmi við þá vinnu sem
við höfum unnið í launa- og mann-
auðsmálum innan stofnunarinnar
á undanförnum árum,“ sagði Jens-
ína Valdimarsdóttir starfsmanna-
stjóri Landmælinga Íslands í sam-
tali við Skessuhorn, en hún er að
Þórður Guðmundsson forstjóri
Landsnets sagði í fréttaviðtali á
RUV í liðinni viku flutningskerfi
raforku vera sterkt á Suðurlandi
en veikt á Norðurlandi og teng-
ingin milli landshluta, þ.e. norðurs
og suðurs, sé gjörsamlega óviðun-
andi. Hann segir að í umræðunni
um rammaáætlun gleymist að það sé
tómt mál að tala um að fara að ræða
rammaáætlun og nýjar virkjanir
þegar enga virkjun er hægt að tengja
inn á núverandi kerfi. „Reyndar væri
hægt að tengja virkjanir í neðri hluta
Þjórsár að einhverju leyti en þær
eru eins og kunnugt er í biðflokki
rammaáætlunar. Fjármagn er ekki
vandamál hjá Landsneti enda hafa
litlar sem engar fjárfestingar verið á
undanförnum árum,“ segir Þórður.
Hann segir næga raforku hafa ver-
ið á Suðurlandi í vetur þegar skerða
hafi þurft raforkudreifingu á Norð-
ur- og Austurlandi.
Ummæli forstjóra Landsnets eru í
takt við það sem fram kom í viðtali
við Jónas Guðmundsson hjá Rarik í
Búðardal í síðasta blaði Skessuhorns.
Jónas segir að í heild verði að styrkja
rafflutningskerfið í landinu, að hans
mati verði á næstu árum að fara í
fjárfrekar framkvæmdir til að styrkja
Byggðalínuna. „Hún er í raun orðin
barn síns tíma og þetta gengur nátt-
úrlega ekki eins og það er í dag að
ekki sé hægt að miðla orkunni svo
hún nýtist. Núna er til dæmis mik-
il ónýtt orka syðra og vatnið flæðir
yfir stíflunar. Á sama tíma vantar
vatn í Hálslón og skammta þurfti
orku til álvinnslu í Reyðarfirði og
mjölvinnslu á Norðfirði og Vopna-
firði. Þetta eru óttalegar „garnir“ í
Byggðalínunni. Við þurfum kerfi
sem flytur 400-500 megavött. Það
þarf tengingu á milli aðalorkuver-
anna í landinu, Þjórsár-Tungnár-
svæðis og Kárahnjúka. Við þurfum
meðal annars nýja línu yfir Sprengi-
sand og uppbyggðan og malbikaðan
veg með henni til að halda línunni
við,“ segir Jónas. þá
Landmælingar Íslands fyrsta ríkisstofnunin til
að hljóta jafnlaunavottun VR
vonum afar ánægð með þessa við-
urkenningu.
Vonar að fleiri fylgi
í kjölfarið
Eins og fram kom í Hagtíðindum
fyrr á þessu ári mældist óleiðrétt-
ur launamunur kynjanna á Íslandi
18,1% á árinu 2012, þar af 18,5%
á almennum vinnumarkaði en
16,2% hjá opinberum starfsmönn-
um. Á heimasíðu VR segir að jafn-
launavottunin sé ætluð fyrirtækjum
og stofnunum sem vilji sýna svart
á hvítu að launastefna þeirra og
mannauðsstjórnun mismuni ekki
konum og körlum. Þá geti vottun
af þessu tagi bætt starfsanda, styrkt
ímynd og jafnvel gert fyrirtækjum
auðveldara um vik að fjármagna
sig. „Í jafnréttislögum kemur fram
að konum og körlum sem vinna hjá
sama atvinnurekanda skulu greidd
jöfn laun og þau skulu njóta sömu
kjara. Í vottuninni felst fagleg úttekt
á þeirri vinnu sem við höfum unnið
á undanförnum árum og staðfestir
hún að sömu laun eru greidd fyrir
jafn verðmæt störf. Ferlinu er síðan
fylgt eftir með reglubundnu eftir-
liti en einu sinni á ári kemur úttekt-
araðili frá BSI á Íslandi og trygg-
ir að jafnlaunakerfi stofnunarinnar
sé virkt og að hún fylgi eigin skjal-
festu verklagi sem uppfyllir kröfur
staðalsins,“ segir Jensína sem segist
jafnframt vona að fleiri ríkisstofn-
anir fylgi í kjölfarið. „Ég held að
við höfum nú sett gott fordæmi fyr-
ir aðrar ríkisstofnanir og hef ekki
trú á öðru en að einhverjar fylgi í
kjölfarið,“ segir Jensína Valdimars-
dóttir starfsmannastjóri Landmæl-
inga Íslands að lokum. ákj
Frá afhendingu jafnlaunavottunarinnar. Ljósm. Guðni Hannesson.
Jensína Valdimarsdóttir starfsmanna-
stjóri LMÍ.
Jónas Guðmundsson hjá Rarik í
Búðardal.
Styrking raforkukerfisins gleymist í
umræðunni um rammaáætlun
Hluti byggðalínunnar.