Skessuhorn - 12.06.2013, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Fjöldi refa felldur
BORGARB: Mikið hefur ver-
ið um refi í nágrenni sveitabæja
í Borgarbyggð í vor. Hafa þeir
gerst aðgangsharðir í lambfé og
hafa bændur á nokkrum bæjum
því þurft að vígbúast og kallað
til refaskyttur til að verja bú-
stofn sinn. Samkvæmt heimild-
um Skessuhorns er nú á stuttum
tíma búið að fella átta refi í ná-
grenni Valbjarnarvalla í Borgar-
hrepp og nýverið voru tveir ref-
ir í lambfé á heimatúninu í Hall-
kelsstaðahlíð í Kolbeinsstaða-
hreppi. Annar þeirra var fallinn
í valinn síðast þegar fréttist, en
einnig lamb sem hann hafði náð
að drepa.
-mm
Mæðrastyrks-
nefnd vantar
húsnæði
AKRANES: Mæðrastyrks-
nefnd Vesturlands, sem ver-
ið hefur til húsa að Kirkju-
braut 37, í gamla pósthúsinu á
Akranesi, hefur nú misst hús-
næði sitt. „Við auglýsum því
eftir hentugu húsnæði und-
ir starfsemi okkar á Akranesi,
en nefndin þjónar öllu Vestur-
landi. Þeir sem gætu lagt okk-
ur lið hafi samband í síma 868-
3547,“ segir Aníta Björk Gunn-
arsdóttir, formaður nefndarinn-
ar. Mæðrastyrksnefnd hafði síð-
ast matarúthlun um páska, en
skortur á fjármagni hefur haml-
að úthlutunum síðan. „Þörfin
er engu að síður brýn, því 40-
50 fjölskyldur leita til okkar á
mánuði,“ segir Aníta Björk sem
hvetur fyrirtæki sem einstak-
linga til að leggja nefndinni til
fjármagn.
–mm
Skora á
Íbúðalánasjóð
BORGARBYGGÐ: Byggðar-
ráð Borgarbyggðar samþykkti
á fundi sínum sl. fimmtudag að
skora á Íbúðalánasjóð að leigja
út íbúðir í eigu sjóðsins í Borg-
arbyggð. Í samtali við Skessu-
horn sagði Páll S. Brynjars-
son sveitarstjóri að byggðarráð
horfi aðallega til um tíu nýrra
íbúða í eigu sjóðsins sem eru við
Brákarbraut í Borgarnesi sem
allar eru tilbúnar til notkunar.
Páll segir skort á leiguhúsnæði
í sveitarfélaginu og því sé mik-
ilvægt að Íbúðalánasjóður bjóði
íbúðirnar til leigu.
–hlh
Skotfélag fær
æfingasvæði
BORGARBYGGÐ: Á fundi
umhverfis- og skipulagsnefnd-
ar Borgarbyggðar sl. föstudag
var samþykkt að veita Skot-
félagi Vesturlands heimild til
að nýta landskika við Öldu-
hrygg á Mýrum sem æfinga-
svæði. Að sögn Páls S. Brynj-
arssonar sveitarstjóra Borgar-
byggðar er svæðið rétt neðan
við grjótnámu Borgarverks við
Snæfellsnessveg, tæpum einum
kílómeter norðvestan við Borg.
Skotfélag Vesturlands var stofn-
að í apríl á síðasta ári í Borgar-
nesi og eru félagsmenn nú um
100. Töluverður áhugir er fyrir
starfi þessa unga félags sem m.a.
hóf í vetur uppbyggingu inniað-
stöðu í gamla sláturhúsi Kaup-
félags Borgfirðinga í Brákarey.
Formaður SV er Þórður Sig-
urðsson. –hlh
Leiðrétt vegna
aðsendrar greinar
Vegna aðsendrar greinar Önnu
Hallgrímsdóttur sem birtist í
Skessuhorni 5. júní sl. vill Valdís
Einarsdóttir safnastjóri Byggða-
safns Dalamanna og Héraðs-
skjalasafns Dalasýslu koma eft-
irfarandi á framfæri. „Byggða-
safn Dalamanna opnaði 1. júní,
en þar er ekki veitingasala, hef-
ur aldrei verið og verður ekki
á meðan safnið er í núverandi
húsnæði. Við tökum heldur ekki
á móti pöntunum fyrir Hótel
Eddu, sem er allt annar rekstrar-
aðili og Byggðasafn Dalamanna
hefur ekkert með að gera,“ seg-
ir Valdís. Anna, sem skrifaði
umrædda grein, hefur jafnframt
óskað eftir að leiðrétting komi
fram á misfærslu hennar: „Þau
mistök áttu sér stað hjá mér í
síðasta tölublaði að Byggðasafn
Dalamanna í Sælingsdal var
sagt hafa verið lokað 1. júní sl.
og því hafi hópur á mínum veg-
um hætt við komu þangað. Hið
rétta er að safnið var opið þenn-
an dag eins og kynnt hafði ver-
ið. Þessi fullyrðing er hér með
borin til baka og hlutaðeigend-
ur starfsmenn Byggðasafnsins
beðnir afsökunar.“
-mm
Þrettán sóttu um
starf bygginga-
fulltrúa
HVALFJ.SV: Umsóknarfrest-
ur um stöðu byggingafulltrúa í
Hvalfjarðarsveit rann út 8. júní
sl. Umsóknir um stöðuna voru
13: Ármann Halldórsson, Egg-
ert Guðmundsson, Einar Þor-
björnsson, Gísli Grétar Gunn-
arsson, Guðjón Þór Ragnars-
son, Guðný Elíasdóttir, Gunn-
ar S Ragnarsson, Gunnlaugur
Jónasson, Karl Ómar Jónsson,
Kristinn Aðalbjörnsson, Ómar
Örn Kristófersson, Rúnar Ingi
Guðjónsson og Vífill Björnsson.
„Sveitarstjóri og fjármálastjóri
munu fara yfir umsóknirnar og
skila samantekt til sveitarstjórn-
ar á næsta fundi,“ segir í frétt á
vef sveitarfélagsins. –mm
Aflabrögð hafa verið góð hjá grá-
sleppusjómönnum á Breiðafirði síð-
an veiðar hófust inni á firðinum 20.
maí síðastliðinn. „Við erum ánægð-
ir með fiskiríið en óánægðir með
annað, svo sem að dagafjöld-
inn er orðinn alltof lítill á veið-
unum,“ segir Páll Aðalsteinsson
sem rær frá Stykkishólmi ásamt
félaga sínum Álfgeiri Marinós-
syni. Þeir hafa frá 20. maí róið á
Önnu Karen SH og voru á mánu-
daginn búnir að fá 16,5 tonn af
heilli grásleppu, en fengu í fyrra
á 50 dögum sem þá voru leyfðir
til veiðanna 25 tonn á þann bát.
Fimmtudaginn 20. júní verða 32
dagarnir sem nú eru leyfðir á bát
búnir og þá gera þeir félagar út
næsta tímabili á Fríðu SH, sem þeir
eiga einnig.
Páll segir betri veiði nú en í fyrra
sem megi meðal annars rekja til
þess að mun færri net eru í sjó, 200
á bát í stað 300 í fyrra. Nú eru líka
færri bátar sem stunda veiðarnar,
13 bátar frá Stykkishólmi en voru
þremur eða fjórum fleiri í fyrra.
Hrognaverð hefur lækkað og er nú
í sögulegu lágmarki, 400 krónur
fengjust nú fyrir kílóið af hrognun-
um í stað 1.250 króna þegar það var
best. Það bætir hins vegar úr skák
segir Páll að nú sé grásleppan
seld heil og fyrir stykkið fáist 600
krónur með hrognum. Aðspurð-
ur segir hann að veður og gæft-
ir frá því veiðarnar byrjuðu inn-
an kollulínunnar 20. maí hafi ver-
ið mjög hagstæðar, en sú lína nær
frá Lambanesi við Arnórsstaði
rétt vestan við Brjánslæk yfir að
Krossnesvík vestan við Grundar-
fjörð. Páll og Álfgeir leigðu sér
bát til að stunda veiðar utan lín-
unnar frá 20. mars til 20. apríl.
„Þá voru ógæftir og netatjón og
við veiddum bara tíu tonn, þann-
ig að það var lítið út úr því að hafa,“
sagði Páll Aðalsteinsson.
þá
Samanburður á fjölda tilkynninga
til barnaverndarnefnda og fjölda
umsókna um þjónustu til Barna-
verndarstofu fyrstu þrjá mánuði
áranna 2012 og 2013 var birtur í
síðustu viku. Þar kom fram að til-
kynningum til barnaverndarnefnda
fjölgaði á landinu öllu um tæplega
13% fyrstu þrjá mánuði ársins 2013
samanborið við fyrstu þrjá mánuði
ársins 2012. Hlutfallslega var fjölg-
un tilkynninga langmest á Akranesi
þar sem þær fóru úr 18 fyrstu þrjá
mánuði 2012 í 49 nú í ár. Fjölgun-
in er því nálægt 250% milli ára.
Fjölgun slíkra mála er einnig mik-
il í Reykjanesbæ eða úr 109 í 167
á þessu tímabili, en minni ann-
ars staðar. Fleiri tilkynningar bár-
ust um drengi, en stúlkur, en hlut-
fall tilkynninga vegna drengja var
53,1% fyrstu þrjá mánuði ársins
2013.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
á Akranesi segir erfitt að draga
ályktanir vegna fjölgunar barna-
verndartilkynninga út frá þrem-
ur fyrstu mánuðum ársins, en um
sveiflur sé að ræða þar sem tilkynn-
ingarnar hafi verið 34 fyrstu þrjá
mánuðina 2011 í stað 18 í fyrra og
síðan 49 núna í ár. Regína vekur at-
hygli á því að farið var í kynningu á
112 sem barnanúmeri í byrjun árs,
með greinarskrifum í Skessuhorn
og á heimasíðu Akraneskaupstaðar.
Væntanlega hafi sú kynning orð-
ið til þess að ýta við fólki, sem hafi
svo leitt til mikils fjölda tilkynninga
fyrstu þrjá mánuði þessa árs.
Flestar tilkynningar frá barna-
verndarnefndunum á landinu voru
vegna vanrækslu, eða 35,9% fyrstu
þrjá mánuði ársins 2013. Einnig
fjölgaði tilkynningum vegna kyn-
ferðisbrotamála um 50% á tíma-
bilinu frá árinu áður. Er sú fjölgun
rakin til mikillar umfjöllunar fjöl-
miðla um þau mál frá byrjun árs-
ins. Fjöldi tilkynninga í skýrslunni
er fenginn með því að leggja sam-
an fjöldann frá mánuði til mánaðar
og þess vegna getur sama barnið átt
við í tilkynningum í hverjum mán-
uði. Til samanburðar við Akranes
má nefna að á svæði Borgarfjarð-
ar og Dala bárust 11 tilkynning-
ar fyrstu þrjá mánuðina í fyrra en
fimm sama tímabil nú í ár. Á svæði
Snæfellinga bárust sex tilkynning-
ar fyrstu þrjá mánuði 2012 en tíu
fyrstu þrjá mánuðina í ár. þá
Mikil fjölgun tilkynninga til
barnaverndarnefndar á Akranesi
Páll Aðalsteinsson og Álfgeir Marinósson grá-
sleppusjómenn í Stykkishólmi.
Góð aflabrögð hjá
grásleppusjómönnum á Breiðafirði