Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Myndband við lagið „Fun in the
sun“ með hljómsveitinni My Sweet
Baklava frá Akranesi kom út í síð-
ustu viku. Tónlistarmyndbandið
var tekið upp á Akranesi í vor en
lagið er að finna á plötu sveitarinn-
ar, Drops of sound, sem kom út í
febrúar. Tökustaðir myndbandsins
voru Garðalundur og Litla búðin
við Kirkjubraut. „Þetta er sumar-
lag sem við höfum átt nokkuð lengi
og alltaf beðið eftir rétta sumrinu
til þess að gera eitthvað meira með
lagið. Það fjallar um stelpu sem
vinnur í fatabúð en leiðist því all-
ir aðrir eru að leika sér úti í sól-
inni,“ sagði Valgerður Jónsdóttir
söngkona og píanóleikari í samtali
við Skessuhorn. Stúlkuna lék Aldís
Ylfa Heimisdóttir og það var Akur-
nesingurinn Kristinn Gauti Gunn-
arsson sem annaðist upptökur og
klippingu á myndbandinu. Hljóm-
sveitina skipa hjónin Valgerður og
Þórður Sævarsson sem bæði koma
frá Akranesi ásamt Sveini Rúnari
Grímarssyni sem spilar á bassa og
Smára Þorsteinssyni sem spilar á
trommur. Á plötunni spila einn-
ig Gunnhildur Vilhjálmsdóttir á
trompet og harmónikku og Jón
Trausti Hervarsson, faðir Valgerð-
ar, á saxófón. „Gunnhildur gat því
miður ekki leikið í myndbandinu
vegna anna í sauðburði og fengum
við því Petrúnu Berglindi Sveins-
dóttur til þess að hlaupa í skarðið
fyrir hana og leika trompetleikara,“
segir Valgerður.
Tónleikar í
Kaupmannahöfn
Þetta er fyrsta tónlistarmyndband-
ið sem hljómsveitin gefur út. „En
vonandi ekki það síðasta,“ seg-
ir Þórður. „Þetta virðist vera ein
besta leiðin til þess að fá fólk til
þess að hlusta á tónlistina og við
höfum fengið mjög góð viðbrögð
við myndbandinu. Nú bindum við
bara vonir við að Ingvi Hrafn setji
myndbandið í reglulega spilun á
ÍNN,“ segir hann og hlær. Mynd-
bandið má síðan finna á vefsvæðinu
YouTube og einnig með frétt á vef-
síðu Skessuhorns sl. föstudag.
Þess má geta að hljómsveitin
heldur tónleika á Café Zusammen
í Fredriksberg Kaupmannahöfn
laugardaginn 29. júní næstkom-
andi og þá mun hún fylgja plötunni
á eftir með ýmsum tónleikum hér
á landi í sumar. „Við höfum verið
dugleg að spila, bæði bara við tvö
en einnig með hinum strákunum í
hljómsveitinni, frá því platan kom
út í febrúar. Einnig erum við byrjuð
að semja nýtt efni svo það er aldrei
að vita nema ný plata komi út von
bráðar,“ segja Valgerður og Þórður
í hljómsveitinni My Sweet Baklava
að lokum. ákj
Sýningin 21.07 verður frumsýnd
í Frystiklefanum Rifi fimmtu-
daginn 27. júní næstkomandi. Er
þetta fjórða sumarið í röð sem
starfrækt er leikhús í þessu 165
manna samfélagi á norðanverðu
Snæfellsnesi en það er heimamað-
urinn og leikarinn Kári Viðars-
son sem er forsprakkinn í þessu
spennandi verkefni. Nýjasta sýn-
ingin, og sú önnur sem unnin er
í samstarfi við Víking Kristjáns-
son leikara, fjallar um lendingu
geimvera á Snæfellsjökli þann
5. nóvember 1993 og er því að
hluta sannsöguleg. Blaðamaður
Skessuhorns leit við í Frystiklef-
anum í síðustu viku og ræddi við
Kára og Víking um þetta forvitni-
lega leikrit.
„Þrír geimveruáhugamenn frá sitt-
hvorum staðnum í heiminum fengu
sýn á sama tíma um að geimverur
myndu heimsækja jörðina á Snæ-
fellsjökli 5. nóvember 1993. Þeir
fengu einnig út sama lendingartíma,
kl. 21.07, og þess vegna varð þetta
að þessari stóru, alheimsfrétt. Þetta
var til að mynda í fréttum á Íslandi í
marga mánuði áður en þetta átti að
gerast og hingað komu fullt af er-
lendum geimveruáhugamönnum og
sérfræðingum til þess að verða vitni
að þessum merkilega atburði,“ út-
skýrir Kári í byrjun spjalls.
Heimafólk á Snæfellsnesi tók
fullan þátt í móttöku geimveranna
og skipulagði flotta dagskrá þenn-
an dag. Sýningin, 21.07, sem gerist
á rauntíma, fjallar um tímann í að-
draganda lendingarinnar og bregða
Kári og Víkingur, sem báðir verða
á sviðinu, sér í líki margra persóna
sem komu við sögu. Sumar þeirra
eru enn búsettar á svæðinu við Snæ-
fellsjökul. „Enn þann dag í dag eru
mjög skiptar skoðanir um geimverur
og tilvist þeirra. Þess vegna leyfum
við okkur að skoða þennan atburð út
frá mörgum sjónarhornum þannig
að sem flestar skoðanir fái að njóta
sín,“ segir Víkingur.
Ímyndunarveikur og
skíthræddur
Þó nú séu tuttugu ár liðin frá því
geimverur áttu að lenda á Snæfells-
jökli er atburðarásin enn mörgum
Snæfellingum í fersku minni. Kári
er þar engin undantekning þó svo
að hann hafi einungis verið átta að
verða níu ára þetta örlagaríka haust.
„Ég var alveg sérstaklega ímyndun-
arveikt barn og því alveg skíthrædd-
ur við þetta,“ rifjar hann upp. „Ég
trúði því alveg hundrað prósent að
þetta væri að fara að gerast, þorði
til að mynda ekki að fara upp á jök-
ul og var í rauninni að fara yfir um á
tímabili. Þess vegna lifir þessi dag-
ur svona vel í minningunni og ég
held það sé þannig með marga hér
á svæðinu. Það muna allir hvar þeir
voru þennan dag.“
Að sögn Kára líta margir á þenn-
an atburð í dag sem hálfgert grín og
brandara. Þegar hann hafi hins vegar
farið að skoða þetta út frá fleiri hlið-
um hafi hann komist að því að marg-
ar ólíkar hvatir lágu að baki þess að
fólk tók virkan þátt í þessu. „Sumir
trúðu virkilega á þetta og komu jafn-
vel langa leið utan úr heimi til þess
að verða vitni að þessum atburði sem
þeir trúðu að myndi breyta lífi þeirra.
Þetta fólk varð síðan mjög sorgmætt
og vonsvikið þegar það sá ekki geim-
verur. Trúin var svo sterk. Síðan var
fullt af fólki sem fannst þetta bara
sniðugt og vildi gera eitthvað öðru-
vísi og skemmtilegt. Það fór upp á
jökul til þess að taka þátt og horfa
á flugeldasýningu. Við skoðum at-
burðinn þannig út frá fleiri hliðum
en þeirri sem almenningur þekkir.“
Upphefja
raunveruleikann
Kári fór í heilmikla heimildavinnu
við undirbúning leiksýningarinnar.
Talaði við fólk sem tengdust atburð-
inum, skoðaði blaðagreinar tengd-
ar honum og fékk til að mynda all-
ar fréttir Ríkissjónvarpsins frá þess-
um tíma til athugunar. „Við notumst
við staðreyndir í sýningunni en tök-
um okkur síðan ákveðið skáldaleyfi
og leikum okkur með þær. Stað-
reyndirnar eru þarna en við leyfum
okkur að ýkja þær aðeins,“ segir Vík-
ingur. „Í sumum tilfellum mjög mik-
ið,“ skýtur Kári inn í. „Í grunninn
eru sögurnar sannar og persónurn-
ar raunverulegar. En til þess að gera
leiksýningu sem verður ekki mónó-
tónísk kennslustund um atburðinn,
heldur sýningu sem hefur flækjur
og árekstra og allt þetta sem fólk vill
sjá í leikhúsi, þá þurftum við að taka
okkur mikið skáldaleyfi.“ „Það má
segja að við séum að upphefja raun-
veruleikann,“ bætir Víkingur við.
„Og þó svo að við notumst við al-
vöru nöfn þá er þetta ekki eftirherm-
usýning. Þeir sem sjá persónu með
sínu nafni í leiksýningunni munu því
ekki sjá neina alvöru speglun.“
Strákarnir segja heimamenn hafa
tekið mjög vel í hugmyndina og að
margir bíði spenntir eftir lokaút-
komunni. Þeir voru til dæmis með
leiklestur í Ólafsvík á dögunum þar
sem lesnar voru upp nokkrar sen-
ur úr leikritinu við góðar undir-
tektir gesta. „Nú eru tuttugu ár síð-
an þetta gerðist og er okkar ætl-
un að upphefja þennan viðburð svo
hann gleymist ekki. Í mínum huga er
þetta mjög stór saga fyrir þetta sam-
félag, allavega ein sú stærsta á mín-
um æskuárum,“ segir Kári.
Fáar sýningar í sumar
Kári og Víkingur hafa áður unn-
ið saman en þeir settu í samein-
ingu upp gamanleikinn Hetju sem
byggður var á Bárðar sögu Snæfells-
áss. Sú sýning var jafnframt frum-
raun Kára á sviði og fyrsta sýning-
in sem sett var upp í Frystiklefan-
um í Rifi. Verkið fékk frábæra dóma
og var í framhaldinu sýnt bæði í
Landnámssetrinu í Borgarnesi og í
Tjarnarbíói. „Hetja gekk mjög vel
og við höfum lengi stefnt að því að
vinna aftur saman en tímasetningar
ekki hentað,“ segja þeir.
Eins og áður sagði verður 21.07
frumsýnt í Frystiklefanum fimmtu-
daginn 27. júní næstkomandi. Hins
vegar verða sýningarnar ekki marg-
ar í sumar sökum anna hjá bæði
Kára og Víkingi. Gera þeir ráð fyr-
ir að ná fimm til sjö sýningum áður
en þeir verða að hverfa til ann-
arra verka. „Vonandi fjölmenn-
ir fólk bara. Þetta lofar mjög góðu
og verður mjög fyndið og skemmti-
legt ferðalag ,“ segja þeir Kári og
Víkingur að lokum en svo gæti far-
ið að færri komist að en vilja. Því
er eins gott að fólk fylgist með aug-
lýsingum frá þeim félögum þegar
nær dregur og tryggi sér miða sem
fyrst.
ákj
Hljómsveitin My Sweet Baklava sendir
frá sér tónlistarmyndband
Hjónin Þórður Sævarsson og Valgerður Jónsdóttir.
Skoða lendingu geimvera á Snæfellsjökli
Leikararnir Kári Viðarsson og Víkingur Kristjánsson heimsóttir í Frystiklefann
Frá leiklestri þeirra félaga í Pakkhúsinu í Ólafsvík nýverið. Ljósm. þa.
Víkingur Kristjánsson og Kári Viðarsson.