Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
www.skessuhorn.is
Athygli er vakin á
því að næsta útgáfa
Skessuhorns verður
fimmtudaginn
20. júní í staðinn fyrir
miðvikudaginn 19. júní.
Næsta blað
Frestur til að skila auglýsingum er til
kl. 12.00 miðvikudaginn 19. júní.
Samstarfshópur um forvarnir í
Bor
gar
byg
gð.
16 ára
dansleikir og áfengi
fara ekki saman!
Smáralind og Kringlunni
Verið velkomin
við tökum vel á móti ykkur
Sími 544-4220 - 568-4344
KOMIÐ OG TAKIÐ ÞÁTT Í HJÓLALEIKNUM OKKAR!
FULL BÚÐ AF FLOTTUM SUMARFÖTUM
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Nýlega var ráðið í sameiginlega
stöðu fulltrúa skipulags- og bygg-
ingamála bæði í Grundarfirði og
Stykkishólmi. Það var bygginga-
fræðingurinn og húsasmíðameist-
arinn Sigurbjartur Loftsson, eða
Baddi eins og hann er yfirleitt kall-
aður, sem var valinn úr hópi um-
sækjenda. Þess má geta að fyrir-
tæki sem hann á hlut í, Batteríið,
tók síðastliðinn föstudag við hin-
um virtu verðlaunum Evrópusam-
bandsins í nútíma arkitektúr, Mies
van der Rohe, fyrir hönnun á ráð-
stefnu- og tónlistarhúsinu Hörpu í
Reykjavík. Sama dag og verðlaun-
unum var veitt viðtaka hitti blaða-
maður Skessuhorn Badda fyrir á
skrifstofu hans í Hafnarfirðinum og
spurði hann nánar út í þennan nýja
starfsvettvang á Snæfellsnesi.
Lærði í Danmörku og
Nýja Sjálandi
Baddi er fæddur árið 1973 og ólst
upp í Grindavík. „Þar vann ég
við netagerð, var á sjónum bæði á
loðnu og trolli en ákvað síðan að
fara í skóla og læra smíðar,“ segir
hann í byrjun spjalls, en hann út-
skrifaðist sem smiður árið 1992 og
fór að vinna hjá byggingafyrirtæk-
inu HK verk. „Við smíðuðum fullt
af einbýlishúsum, parhúsum og
raðhúsum bæði úr timbri og steypu
og sinntum einnig viðhaldi hér og
þar meðal annars við Bláa lónið
og Víðihlíð dvalarheimili aldraðra.
Stærstu verkefnin sem má nefna er
að við vorum undirverktakar hjá
nýja Bláa lóninu og sinntum einn-
ig viðhaldi þar. Það var mikil áskor-
un því þetta var öðruvísi bygg-
ing en maður átti annars að venj-
ast, og svo að innrétta flugskýlið
fyrir Suðurflug upp á Keflavíkur-
flugvelli,“ segir Baddi en eftir níu
ára starf við smíðar ákvað hann að
fara og læra meira. Byggingafræð-
in varð fyrir valinu og flutti hann
því til Danmerkur til að nema fag-
ið. „Ævintýraþráin blundaði alltaf í
mér og endaði ég niðri á Nýja Sjá-
landi þar sem ég tók praktík. Þar
endaði ég inni á stofu sem heit-
ir Dimensions Architects og sér-
hæfir sig í rándýrum einbýlishús-
um og skólabyggingum. Eftir prak-
tíkina var mér boðin vinna strax, ég
var ekki einu sinni búinn með skól-
ann, og fyrir vikið ákvað ég að gera
lokaverkefnið mitt hjá þeim sam-
hliða vinnu. Lokaverkefnið mitt var
hönnun leikskóla með öllum þeim
kröfum sem gerðar eru þarna nið-
urfrá, en þær eru mun harðari en
við eigum að venjast hér á Íslandi.
Menn eru hræddari og meðvitaðri
um brottnám barna og misnotkun
og bera byggingarnar keim af því.
Gler er mikið notað á leikskólun-
um og eru veggirnir úr gleri fyrir
120-150 sentímetrana svo allir hafi
góða yfirsýn yfir hvað er að gerast í
leikskólanum. Starfsfólk sér þann-
ig inn í öll rými en börnin lifa í sín-
um heimi fyrir neðan glerið,“ út-
skýrir Baddi.
Fengist við ýmis
stór verkefni
Eftir útskrift starfaði Baddi í þrjú
ár í Nýja Sjálandi og var þá boð-
ið að kaupa sig inn í arkitektastof-
una. „Ég ákvað að gera það ekki.
Kannski sem betur fer því þetta
er langt í burtu frá heimahögun-
um, eða 27 tíma flug ef ég ætlaði
að skreppa heim,“ segir hann, en á
Nýja Sjálandi kynntist hann eigin-
konunni, Kristbjörgu Hermanns-
dóttur frá Stykkishólmi, sem var
þar á ferðalagi. „Ég ákvað því að
flytja aftur heim til Íslands og taka
löggildinguna. Þetta var árið 2006
og allt brjálað að gera í byggingar-
iðnaðinum hér á landi. Mér bauðst
vinna nánast hvar sem er og end-
aði hér hjá Batteríinu, sem ég sé
svo sannarlega ekki eftir. Ég keypti
mig inn í fyrirtækið árið 2009 og
hef tekið þátt í mörgum spenn-
andi verkefnum á þessum tíma.
Ég teiknaði meðal annars Ásvalla-
laugina, höfuðstöðvar Mannvits og
var verkefnisstjóri á Alþingisreitn-
um og flutningi Skúlahúss sem er
sennilega þyngsta og hæsta hús
sem hefur verið flutt á Íslandi. Þeg-
ar kreppan kom hérna þá datt þessi
bransi alveg niður og við fórum að
leita okkur verkefna út fyrir lands-
steinana. Við enduðum bæði í Nor-
egi og Kanada og vorum meðal
annars valin til þess að hanna fyr-
ir University of Manitoba svokall-
að Active Living Center sem er
í raun stór miðstöð fyrir afreks-
fólk í íþróttum, eða alls tíu þúsund
fermetra bygging. Þetta eru bara
nokkur dæmi um það sem ég hef
fengist við hérna síðastliðin sjö ár,“
segir Baddi.
En hvernig dettur farsælum
byggingafræðingi frá Grindavík
í hug að sækja um stöðu skipu-
lags- og byggingafulltrúa Grundar-
fjarðar og Stykkishólms? „Ég við-
urkenni að það var ekki auðveld
ákvörðun,“ segir Baddi. „Þegar ég
sá auglýsinguna spurði ég Krist-
björgu í gamni hvort ég ætti ekki
bara að sækja um. Hún er náttúr-
lega frá Stykkishólmi þannig við
verjum þegar miklum tíma þar og
okkur líður mjög vel í Stykkishólmi.
Við prófuðum að spyrja krakkana
hvernig þeim litist á að flytja vestur
og þegar þau sögðust bæði vera til í
það sótti ég um.“
Sest hinum megin
við borðið
„Hverjum manni er hollt að breyta
til á tíu ára fresti,“ segir Baddi en
hann vann í níu ár sem smiður og
hefur nú unnið í níu ár á arkitekta-
stofu. „Ætli ég verði þá ekki í níu
ár byggingafulltrúi,“ spyr hann og
brosir. Þó hann kveðji samstarfsfólk
sitt hjá Batteríinu með söknuði seg-
ist hann spenntur fyrir nýjum verk-
efnum. „Ég átta mig á því að þarna
verður ekki sama gríðarlega upp-
byggingin og hefur verið hér fyr-
ir sunnan. Ég tekst bara á við þau
verkefni sem koma upp, held áfram
ráðgjöf, uppbyggingu og framþró-
un hjá einstaklingum og fyrirtækum
í sveitarfélögunum eins og þarf á að
halda og reyni að leysa úr þeim jafn
óðum. Það hefur gengið hingað til.
Ég tel mig þekkja þetta starf ágæt-
lega eftir um tuttugu ár í þessum
bransa en ég hef verið í töluverðum
samskiptum við byggingafulltrúa í
gegnum tíðina. Nú má segja að ég
setjist hinum megin við borðið.“
Fjölskyldan mun flytja til Stykk-
ishólms á næstu misserum en Baddi
og Kristbjörg eiga tvö börn, fimm
og fjórtán ára. Kristbjörg hefur sagt
starfi sínu sem kennari við Hús-
stjórnarskólann í Reykjavík lausu
en sagt er að þaðan fari fólk yfir-
leitt ekki fyrr en það nær eftirlauna-
aldri. Fjölskyldan rífur sig þann-
ig að öllu upp með rótum. „Þann-
ig ef einhver veit um hús fyrir fjög-
urra manna fjölskyldu þá getur
hann haft samband,“ segir hann og
hlær. „Þetta er yndislegt svæði og
ég held það hafi alveg fullt af mögu-
leikum. Það eina er að það er nokk-
uð langt frá Reykjavík upp á að fá
ferðamenn þangað, sérstaklega yfir
veturinn. En ég held að það sé alveg
hægt að gera gott betra. Ég hlakka
bara til að takast á við þetta verkefni
hjá Grundarfirði og Stykkishólmi,“
segir Sigurbjartur Loftsson að lok-
um. ákj
Sigurbjartur Loftsson nýr skipulags- og byggingafulltrúi
Grundarfjarðar og Stykkishólms:
Svæðið býður upp á
marga möguleika
Sigurbjartur Loftsson nýr skipulags- og byggingafulltrúi í Grundarfirði og Stykkishólmi.
17. júní kaffi á Akranesi
Kaffisala Kirkjunefndar Akraneskirkju í
Safnaðarheimilinu Vinaminni, Skólabraut 13
frá kl. 14.00 til 17.00. Glæsilegt kökuhlaðborð.
Verð: Fullorðnir kr. 2.000.
Börn 6-12 ára kr. 500
Ath: Ekki posi á staðnum.
Kirkjunefnd Akraneskirkju Ske
ss
uh
or
n
20
13