Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2013, Síða 22

Skessuhorn - 12.06.2013, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013 Vitinn á Breið er nýlegur vettvang- ur menningarviðburða á Akranesi. Vitavörðurinn Hilmar Sigvaldason er duglegur að fá til sín tónlistar- fólk og aðra listamenn til að standa fyrir viðburðum í vitanum. Um síð- ustu helgi var opnuð myndlistarsýn- ing í Akranesvita, en reyndar skiptir listamaðurinn Hrönn Eggertsdóttir sýningunni í tvo hluta. Annar hlut- inn heitir Landið mitt og hinn Eft- irvænting. Í tilefni þessarar sýning- ar heimsótti blaðamaður Skessu- horns Hrönn í vinnustofu henn- ar í bílskúrinn að Hjarðarholti 10 á Akranesi, í Gallerí Grund. Hrönn á að baki fjölda einkasýninga og sam- sýninga. Þegar blaðamaður hitti Hrönn að máli var hún ekki farin að koma myndunum fyrir í vitan- um. „Ég er með 42 frágengin verk en verð trúlega ekki með þau öll á sýningunni. Svo á eftir að koma í ljós hvernig verkin þola óupphit- að húsnæði eins og vitinn er,“ seg- ir Hrönn. Hún skýrir nöfnin á sýn- ingunum þannig. „Landið mitt eru myndir af landinu margar draum- kenndar. Hin sýningin, Eftirvænt- ing, eru abstrakt myndir og nafn- ið er tilkomið vegna þess að ég hef málað af svo mikilli eftirvæntingu og tilhlökkun í vetur.“ Bernskan einkenndist af útileikjum Hrönn er borinn og barnfædd- ur Akurnesingur. Hún hefur búið þar alla sína tíð, fyrir utan náms- ár í Reykjavík og tvö ár sem hún var við kennslu norður á Húsavík. „Það má segja að ég hafi mikið til verið rótgróin hér og uppvöxturinn hérna á Akranesi mótaði mig mikið. Ég á bara eitt systkini, Hlyn bróð- ur minn sem er fimm árum yngri en ég. Foreldrar mínir eru Unnur Leifsdóttir sem býr ennþá í æsku- heimili mínu að Skagabraut 39, en faðir minn Eggert Sæmunds- son lést 1990 fyrir aldur fram, að- eins 61 árs. Hann var húsgagna- smíðameistari en starfaði lengst af í Sementsverksmiðjunni. Augastein- arnir mínir eru dóttir mín Unnur Alexandra Sigurðardóttir sem býr í Englandi ásamt manni sínum. Ég á eitt ömmubarn, Karólínu Hrönn Hilmarsdóttur sem orðin er 21 árs gömul. Hlynur bróðir býr á Skaga- braut 21 þar sem föðuramma mín Karólína Stefánsdóttir bjó. Hús- ið okkar á Skagabrautinni var lengi næstefsta húsið á Skaganum, næst Fögrugrund sem stóð rétt hjá þar sem Skaganesti eða Stöðin er núna. Þarna var víst fjárrétt Skagamanna áður fyrr en hún var nýhorfin þeg- ar ég man fyrst eftir mér,“ segir Hrönn sem fæddist 7. júní 1951. „Mér fannst bernskan einkennast af því að við krakkarnir voru allt- af úti í hinum ýmsu leikjum. Það var bara þegar veðrið var mjög vont sem við vorum innandyra og það fannst okkur agalegt að geta ekki verið úti. Svona var þetta sumar og vetur. Ég man meira að segja eft- ir því að á veturna þegar kom mik- ill snjór að þá grófum við okkur inn í skaflana og bjuggum til snjóhús. Þar kveiktum við kertaljós, fengum okkur kakó og höfðum það huggu- legt.“ Snemma bar á myndlistarmanninum Aðspurð segir Hrönn að snemma hafi borið á listaáhuganum. „Ég held ég hafi verið tveggja ára þeg- ar ég fór með mömmu í heimsókn til Guðlaugar ömmu og þar var þá stödd hjá ömmu systir hennar, fín frú úr Reykjavík. Ég komst í vesk- ið hennar og náði þar í varalitinn. Ég sá að stofuveggurinn var góð- ur flötur til að mála á og gerði þar heilmikið myndverk sem ég var rosalega ánægð með. Ég fór stolt fram og sagði þeim að koma og sjá. Þetta vakti ekki mikla hrifningu og ég var hissa á viðbrögðunum. Mamma var mjög reið við mig og úr þessu varð heilmikill grátur. Ég fékk rassskellingu, enda þurfti víst að mála stofuna eftir þetta. Foreldr- ar mínir hafa reyndar stutt mig vel í minni listsköpun um tíðina. Ég var sífellt teiknandi sem krakki, teikn- aði gjarnan á saurblöð og auð blöð fremst í bókum. Pabbi minn átti teikningar frá iðnskólaárunum sem hann hélt upp á og voru geymd- ar á sparistað. Ég hafði upp á þeim og teiknaði aftan á þær. Það vakti ekki mikla hrifningu. Þegar ég var tíu ára gömlu tilkynnti ég í bekkn- um mínum að ég ætlað að verða teiknikennari þegar ég yrði stór. Ég skil ekki hvað ég var ákveðin í því, þar sem á þessum tíma voru eng- ir kennarar í skólanum sem sinntu myndmennt sérstaklega,“ segir Hrönn sem eftir grunnskóla innrit- aðist í Myndlistar- og handíðaskól- ann. Hún lauk þar námi eftir fjögur ár með kennarapróf. Saknar nemendanna Að loknum námsárunum í Reykjavík kom Hrönn heim á Akra- nes og gerðist kennari í Brekkubæj- arskóla, arftaka Barnaskóla Akra- ness. „Ég tók að mér bæði mynd- mennt og almenna kennslu. Síð- ar þróaðist það þannig að mynd- menntakennslan varð sífellt yfir- gripsmeiri í skólanum. Ég hef allt- af haft óskaplega gaman af börn- um og unglingum og naut þess að kenna. Ég lagði mikið upp úr sam- skiptunum og þótt ég vildi gjarnan að mínir nemendur næðu árangri í sínum viðfangsefnum hver sem þau voru, fannst mér samt númer eitt að þeim liði vel og þau nytu sín. Ég sakna krakkanna eftir að ég hætti kennslu,“ segir Hrönn en hún lét af kennslu í Brekkubæjarskóla fyr- ir tæpu einu og hálfu ári. Eins og fyrr segir hefur Hrönn haldið fjölda einkasýninga, en hún starfrækti einnig um tíma Gallerí- ið Gjugg með Bjarna Þór Bjarna- syni listmálara. Hrönn hélt sína fyrstu einkasýningu í Bókhlöðunni á Akranesi 1975 og flestar hafa sýn- ingar hennar verið á Akranesi, en einnig á Húsavík og í Reykjavík. Reyndar var síðasta einkasýning hennar í Jónshúsi í Kaupmanna- höfn 2004. Þá var Hrönn reynd- ar ekki sjálf á staðnum, en vinkona hennar sá um sýninguna sem tókst vel. Samsýningarnar hafa einnig verið margar, allar á Akranesi eða í Borgarfirði. Hrönn reiknar með að sýningin í Vitanum á Breið verði opin í nokkurn tíma, jafnvel fram yfir Írsku dagana sem verða fyrstu helgina í júlí. þá Í upphafi ársins ákvað ríkisstjórn Samfylkingar og VG í samstarfi við hagsmunasamtök vinnumarkaðar- ins að hrinda af stað sameiginlegu átaki til að hækka menntunarstig á vinnumarkaði. Ráðist er í átak- ið í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórn- arinnar í tengslum við kjarasamn- inga 5. maí 2011 þar sem gefin voru fyrirheit um aðgerðir í vinnu- markaðs- og menntamálum. Lið- ur í átakinu sem kynnt var er til- raunaverkefni sem miðar að því að kanna þörf launafólks og atvinnu- rekenda fyrir menntun og gera til- lögur að nýjum námsúrræðum ef þörf er á. Að auki er markmið verk- efnisins að þróa aðferðir sem auð- velda mat á fyrra námi og starfs- reynslu einstaklinga inn í hið hefð- bundna skólakerfi, gera tillögu um framtíðarskipan þeirra mála og hvetja til aukins samstarfs umsjón- araðila framhaldsfræðslu, fram- haldsskóla og háskóla um menntun á vinnumarkaði. Stjórnvöld lögðu til að tilraunaverkefnið yrði fram- kvæmt á tveimur svæðum, í Breið- holti og í Norðvesturkjördæmi. Norðvesturkjördæmi var valið sem tilraunasvæði sökum þess að þar er gott þversnið af íslensku atvinnu- lífi, stóriðja, sjávarútvegur, ferða- þjónusta, landbúnaður og ýmis þjónusta. Alls hefur ríkið til ráð- stöfunar um 950 milljónir króna í verkefnið. Tilraunaverkefnin kom- ust þó ekki af stað í tíð síðustu rík- isstjórnar þar sem verkefnisstjór- nir voru fyrst skipaðar 23. apríl sl., nokkrum dögum fyrir kosningar. Það kemur því í hlut hinnar nýju ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins að ýta verk- efnunum úr vör. Könnun gerð meðal starfsfólks og stjórnenda Vilhjálmur Egilsson, verðandi rekt- or Háskólans á Bifröst, er formað- ur verkefnisstjórnar tilraunverk- efnisins í Norðvesturkjördæmi og kynnti hann verkefnið á aðalfundi Símenntunarmiðstöðvar Vestur- lands sem fór fram á Akranesi á fimmtudaginn. Vilhjálmur seg- ir undirbúning vel á veg kominn og væntir hann þess að það fari af stað nú í júní. „Fyrsta skrefið í verk- efninu verður að greina eftirspurn og þarfir einstaklinga og forsvars- manna fyrirtækja á menntun í kjör- dæminu. Bæði verða gerðar hefð- bundnar kannanir hjá stjórend- um fyrirtækja og meðal almenn- ings. Eins verður gerð viðamik- il viðtalskönnun þar sem fyrirtæki verða heimsótt og þar kallað eft- ir skoðunum starfsfólks og stjórn- enda til þess hvers konar menntun þarf að bjóða upp á til að hægt sé að bæta þekkingu þess, starfsemi fyrir- tækjanna, og um leið hækka mennt- unarstigið. Fjölbreyttar spurningar verða bornar undir viðmælendur til að draga fram sem gleggsta mynd af viðhorfum fólks á vinnumarkaði á svæðinu til menntunar. Í fram- haldinu verður skoðað hvernig þróa og nýta megi betur það nám sem nú þegar er í boði og hvaða nýjum námsúrræðum megi tefla fram. Grunnurinn að þessu starfi verða kannanirnar og teljum við að þeim þætti verkefnisins verði lokið í nóvember og niðurstöðurnar og tillögugerð á grunni þeirra kynntar á sérstakri ráðstefnu sem þá verður haldin,“ segir Vilhjálmur. Vinna hefst innan skamms Vegna verkefnisins verða tveir starfshópar skipaðir til að hafa yf- irumsjón með ákveðnum þáttum þess. Skipaður verður starfshópur til að leiða vinnu við könnunina umræddu og er hann þegar farinn af stað. Sá hópur mun í framhald- inu vinna úr niðurstöðum henn- ar og gera tillögur um hvern- ig þróa megi ný námsstyrkjakerfi svo dæmi sé tekið. Þá verður skip- aður starfshópur sem mun fjalla um þróun og samræmingu raun- færnimats á starfsreynslu og fyrra námi einstaklinga, velta upp hug- myndum að nýju námsframboði og gera tillögur að auknu sam- starfi menntastofnana og fram- haldsnámsaðila. Vilhjálmur seg- ir að verkefnisstjórn verði í hönd- um Háskólans á Bifröst en gert er ráð fyrir að fastir starfsmenn sem ráðnir verða í verkefnið verði fjórir sem dreifast um kjördæm- ið. Hlutverk starfsmanna verði að reka og þjónusta starfshópa, framkvæma viðtöl, skipuleggja heimsóknir, fundi og ráðstefnur. Þá segir Vilhjálmur að til standi að ráða 6-8 sumarstarfsmenn til að vinna á vegum verkefnisins í sumar. hlh Var stolt yfir fyrsta myndverkinu tveggja ára gömul Hrönn Eggertsdóttir myndlistarkona sýnir nú í Akranesvita Hrönn Eggertsdóttir á vinnustofu sinni í bílskúrnum við Hjarðarholt 10 á Akranesi. Hrönn við hluta verka sinna á sýningunni í Akranesvita við opnuna sl. föstudag. Vilhjálmur Egilsson er formaður verk- efnisstjórnar. Skoðað hvernig efla megi menntunarstig í Norðvesturkjördæmi Stjórnvöld ráðast nú í átak sem miðar að því að hækka menntunarstig í Norð- vesturkjördæmi. Myndin er frá kennslustund í Stóriðjuskóla Norðuráls fyrr á þessu ári. Ljósm. þá

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.